Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Side 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991.
Sviðsljós
Tónleikar AC/DC:
Unglingur kramdist til bana
Táningur kramdist til bana síö-
astliðinn laugardag er ástralska
rokkhijómsveitin AC/DC hélt tón-
leika í Salt Lake City í Utah-fylki í
Bandaríkjunum.
Lögregla sagöi að pilturinn, sem
var 14 ára, hefði kafnað af súrefnis-
skorti er hann tróðst undir þvög-
una sem þjappaði sér í áttina að
sviðinu. Hann var úrskurðaður lát-
inn er komið var með hann á
sjúkrahús í borginni.
Tveir aðrir unglingar, 18 ára
stúlka og annar 14 ára drengur,
voru fluttir þungt haldnir á sjúkra-
hús eftir að hafa lent undir í troðn-
ingnum.
Þetta var þó ekki eina ólánið sem
henti hljómsveitina á tónleika-
Það er ekki hættulaust að bregða sér á rokktónleika.
ferðalagi þeirra því kvöldið áður að hafa fengið fregnir af eiturlyíja-
stöðvaði lögreglan tónleikana eftir sölu á svæðinu. 14 ára drengur
fannst þar meðvitundarlaus eftir
að hafa tekið inn of stóran skammt
af eiturlyfjum. Honum tókst að
bjarga. H.Guð.
Nú er ný Úrvalsbók komin í verslanir.
Bókin er 416 blaösíöur og er eftir höfundinn John Sandford.
Sagan fjallar um geðveikan morðingja sem fremur hvert morðið á
fætur öðru.
Fórnarlömbin eru alltaf konur, áþekkar ásýndum.
Það syrtir í álinn þegar morðinginn hugsar sér að bera niður þar
sem lögregluna grunar síst...
Þetta er mögnuð spennusaga sem fæst á næsta blaðsölustað.
Bókin kostar aðeins kr. 880,-
ÚRVALSBÆKUR J)
Þessar Úrvalsbækur hafa áður komið út: Flugan á veggnum, i helgreipum haturs og Lygi þagnarinnar.
Þetta er f jórða Úrvalsbókin,
hörkuspennandi
og vel skrifuð
Herrakvöld
Njarðar
Herrakvöld Lionsklúbbsins Njarð- skemmtu sér hið besta eftir því sem
ar var haldið með pompi og prakt á heimildir herma. Umsjónarmaður
Hótel Sögu síðastliðinn fimmtudag. Sviðsljóss er kvenkyns og hætti sér
Sviösljósið veit ekki hvort herrarnir því ekki í „Ljónagryfjuna" á Sögu en
söknuðu kvenna sinna - eða ann- sendi karlljósmyndara sem tók þá
arra, en víst er um það að karlarnir meðfylgjandi myndir. H.Guð.
DV-myndir S