Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Page 31
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1991.
31
Menning
Píanótónleikar
Evrópusamband píanókennara hélt tónleika í
íslensku óperunni í gærkvöldi þar sem Halldór
Haraldsson píanóleikari lék einleik á píanó. Á
efnisskránni voru verk eftir Ludwig van Beet-
hoven, Bela Bartok, Maurice Ravel, Claude De-
bussy og Frederic Chopin.
Beethoven samdi Pathétique sónötuna á fyrsta
hluta ferils síns. Samt er enginn byrjendabragur
á verkinu heldur ber það skýr merki höfundar-
ins bæði að formi og innihaidi. Þetta hefur um
langt skeið verið með vinsælustu píanóverkum
og eru fyrir því góðar ástæður. Verkið er vel
samið, frumlegt og yndisfagurt. Það sama verð-
ur ekki sagt um 32 tilbrigði eftir sama höfund.
Tánlist
Finnur Torfi Stefánsson
Þetta verk er passacagha eða öllu heldur Chac-
onna og tekst aldrei að komast yfir þá formlegu
einhæfni sem jafnan er hætta á í shkum verkum
ef ekki er gert eitthvað sérstakt til að koma í
veg fyrir það. Verkið hljómar á köflum eins og
fingraæfing fyrir píanóleikara eða þjálfunar-
stykki í tónsmíðum.
Þrjú ungversk þjóðlög eftir Bartok, Oiseaux
tristes eftir Ravel og Pour le piano eftir Debussy
eru allt vel geröar og fallega hljómandi tónsmíð-
ar en stóðust þó ekki samanburð við þá sjald-
gæfu dýrgripi þar sem eru Noktúrna í cís-moll
og Polonaise í As-dúr eftir Chopin.
Það er ekki á hvers manns færi að halda tón-
leika með efnisskrá af þessu tagi og á Halldór
Haraldsson þakkir skildar fyrir framtakið.
Flutningur hans var yfirleitt mjög góður, en
bestum tökum náði hann í túlkun ljóðrænna
kafla. Hæst reis túlkun hans í Noktúrnu Chop-
ins þar sem honum tókst að skapa mjög sterka
stemningu.
Sáttargjörð við dauðann
Fyrir einu og hálfu ári hélt Arngunnur Ýr
Gylfadóttir sýningu í listasalnum Nýhöfn sem
var æöi nærgöngul við áhorfandann. Hún var
opinskátt systurtorrek; byggð upp af ýmiss kon-
ar dauðaminnum sem skírskotuðu til örlaga til-
tekins ástvinar, en gegndu einnig því hlutverki
að minna okkur lifendur á návist dauðans. Svo-
leiðis áminningar, nefndar memento mori, eru
algengar í eldri myndlist. Enginn efaðist um hug
og dug þessarar ungu listakonu, en þegar upp
var staðið reyndist einstaklingsbundinn sárs-
aukinn hinni almennu áminningu, og þar með
almennri skírskotun, sennilega yfirsterkari.
Sýningin, sem Arngunnur Ýr heldur að Kjarv-
alsstöðum um þessar mundir, er nokkurs konar
framienging þessarar umfjöllunar um „dauðans
óvissa tíma“, en með öðrum formerkjum. Hún
er meiri um sig, þematískari og þar af leiðandi
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
öllu hlutlægari. Sársaukann hefur listakonan
virkjað í þágu gegnumgangandi hugmyndakerf-
is. Úm rúmlega fimmtíu verk sýningarinnar
segir Arngunnur Ýr í sýningarskrá: „Þótt
myndefnið sé frábrugðið innbyrðis skapast þar
samband sem hver mynd ein og sér væri ekki
fær um að lýsa.“
Röntgenmyndir
Öðrum megin austursalar eru eingöngu ljósa-
kassar af ýmsum stærðum. Eru þeir eins og
nútíma útgáfa af helgiskrínum þeim sem varð-
veita jarðneskar leifar kaþólskra dýrölinga, en
geyma röntgenfilmur í stað líkamsparta. Rönt-
genfílmurnar leggur listakonan ofan á önnur
aðfóng, t.d. hár, bein og myndir af himintungl-
um. Þannig vill hún koma á framfæri heild-
rænni veraldarsýn, þar sem innviðir líkamans
og innviðir alheims kallast á. Það sem kemur
fyrir líkamann, hrörnun og dauði, er samkvæmt
því ekki endalok eins eða neins, heldur hluti
af undraverðu sköpunar- og þróunarmynstri,
sem kannski er aðeins hægt að skrifa á reikning
æðri máttarvalda.
Arngunnar Yr ásamt einu myndverka sinna.
Andspænis ljósakössunum eru fjórar myndr-
aðir sem listakonan kallar Varanlegar menjar,
einnig unnar með blandaðri tækni, þar á meðal
olíu, plexígleri, flaueli, rósum, hári og marm-
ara. Þessar myndraðir erú í rauninni ítrekun á
þeim viðhorfum sem fram koma í ljósakössun-
um, en í áþreifanlegra - og kannski fyrirsjáan-
legra - formi.
Innri og ytri veröid
Mjúkir og safaríkir ávextir í ytri veröld okkar
eru spegilmynd líffæranna; lögun þeirra og
áferð kallar upp í hugann frekari ytri hliðstæð-
ur (bresti í glerrúðu, æðar í marmara o.fl.) sem
vísa aftur á enn aðrar innri hliðstæður og svo
framvegis, væntanlega til eilífðarnóns. Boð-
skapur listakonunnar virðist hér aftur vera sá
að innri og ytri veruleiki séu eitt, hluti af sama
sköpunarverkinu. Út af fyrir sig standa myndr-
aðirnar undir þeirri kenningu og innan sinna
takmarka eru þær býsna áhrifaríkar, ekki síst
nr. II.
Á hinn bóginn nægja þessar samlíkingar ur
efnisheiminum tæplega til að skapa verkunum
þá andlegu vídd sem listakonan lýsir eftir í sýn-
ingarskrá, kannski helst fyrir allt að því munúö-
arfullan áþreifanleika þeirra.
Ef líta máá fyrri sýningu Arngunnar Ýrar sem
samfellda tjáningu harms, er kannski ekki úr
vegi að líta á sýninguna að Kjarvalsstöðum sem
sáttargjörð við dauðann.
Að henni yfirstaðinni getur listakonan vænt-
anlega tekið aftur upp merki lífsorku og ástar.
Fréttir
Viðskiptabókun viö Sovét:
Rammasamningur tiibúinn
til undirskriftar
Rammasamkomulag hefur náðst
milli íslands og Sovétríkjanna um
nýja viðskiptabókun fyrir árin 1991
og 1992. Samkomulagið mun þó
ekki taka gildi fyrr en það hefur
verið undirskrifað og staðfest af
stjórnvöldum beggja landanna.
Fyrri viðskiptabókun féll úr gildi
um áramótin og er því í raun ekk-
ert viðskiptasamkomulag nú milli
ríkjanna. Bókunin er gerð á grund-
velli viðskiptasamnings sem gerð-
ur var milli landanna 1953. Undan-
farin ár hafa þær verið gerðar til
flmm ára og í þeim hafa bæði magn-
og verðmætatölur verið tilteknar.
Mikil viðskipti hafa verið milli
landanna á grundvelh þessara bók-
ana. Þess má geta í þessu sambandi
að á fyrstu 10 mánuðum síðasta árs
fluttu íslendingar út vörur til Sov-
étríkjanna fyrir tæplega 2,4 millj-
arða og keyptu þaðan vörur fyrir
tæplega 3,7 milljarða.
Að þessu sinni er bókunin þó
aðeins almenn viljayfirlýsing til
tveggja ára um farsæl viðskipti
milli landanna. í henni'er meðal
annars að finna skrá yfir þær vörur
sem íslendingar óska eftir að fá
keyptar frá Sovétríkjunum fram til
ársloka 1992, svo sem bensín, svar-
toUu, gasolíu, timbur, vélar, bif-
reiðar og tól til virkjana. í henni
er einnig að finna lista yflr þær
vörur sem íslendingar vilja selja
aðUium í Sovétríkjunum, svo sem
freðfisk, saltsíld, Iagmeti, uUarvör-
ur og vélar til fiskvinnslu.
í fyrirUggjandi drögum að bókun
er kveðið á um að stefnt skuli að
sem mestum jöfnuði í viðskiptum
landanna. Talað er um að til greina
komi að aðilar í löndunum stofni
með sér sameiginleg fyrirtæki til
að efla viðskiptin. Einnig segir að
aðUar bókunarinnar skuli ekki síð-
ar en á miðju ári 1992 hefja viðræð-
ur um nýja viðskiptabókun fyrir
árin 1993 til 1995.
-kaa
Veður
Suðvestan og sunnan kaldi eða stinningskaldi með
súld sunnan- og suðaustanlands en skúrum á vestur-
landi og annesjum norðanlands i dag. Hægari og
að mestu úrkomulaust i kvöld. i nótt gengur til sunn-
anáttar og fer þá að rigna, fyrst vestanlands. Hiti
2-10 stig.
Akureyri
Egilsstaðir
Galtarviti
Keflavíkurflugvöllur
Kirkjubæjarklaustur
Raufarhöfn
Reykjavík
Vestmannaeyjar
Bergen
Helsinki
Kaupmannahöfn
Ósló
Stokkhólmur
Amsterdam
Barcelona
Berlin
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
LosAngeles
Lúxemborg
Malaga
Mallorca
Montreal
Nuuk
París
Róm
skýjað 7
skýjað 7
rigning 4
rigning 3
rign/súld 4
alskýjað 2
rigning 3
rign/súld 5
skýjað 2
skýjað -6
léttskýjað -2
skýjað -A
léttskýjað -6
súld 3
þokumóða 6
þokumóða 2
heiðskirt -2
alskýjað 2
mistur 3
súld 3
skýjað 2
léttskýjað 1-2
skýjað -2
skýjað 9
heiðskirt 4
skýjað -21
skýjað -13
skýjaö 3
þokumóða 1
Gengið
Gengisskráning nr. 14. - 22. janúar 1991 kl. 9.15
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar • 54,620 54,780 55,880
Pund 106,727 107,040 106,004
Kan. dollar 47,174 47,312 48,104
Dönsk kr. 9,5323 9,5602 9,5236
Norsk kr. 9,3784 9,4059 9,3758
Sænsk kr. 9,7920 9.8207 9,7992
Fi. mark 15,1491 15,1935 15.2282
Fra. franki 10,7806 10,8122 10,8132
Belg. franki 1,7797 1.7849 1,7791
Sviss. franki 43,5375 43,6651 43,0757
Holl. gyllini 32,5216 32,6169 32,5926
Þýskt mark 36.6700 36.7774 36,7753
It. líra 0,04877 0,04891 0,04874
Aust.sch. 5,2061 5,2214 5,2266
Port. escudo 0,4117 0,4129 0,4122
Spá. peseti 0,5830 0,5847 0,5750
Jap. yen 0,41500 0,41621 0.41149
Irskt pund 97,428 97,714 97,748
SDR 78,3415 78,5710 78,8774
ECU 75,5941 75,8155 75,3821
F iskmarkaðimir
Faxamarkaður
21. janúar seldust alls 134,275 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Medal Lægsta Hæsta
Blandað 0,377 29,30 20,00 77,00
Gelluc 0,022 330,00 330,00 330,00
Hrogn 0,483 319,59 100,00 345,00
Karfi 1,132 .47.26 27,00 48,00
Keila 3,358 45,01 39,00 46,00
Langa 0.081 65,00 65,00 65,00
Lúða 0,389 362,62 300,00 430,00
Skarkoli 0,707 89,00 89,00 89,00
Steinbítur 0,651 71,27 64,00 74,00
Þorskur. sl. 96,779 102,42 74,00 113,00
Þorskur, ósl. 9,821 92,29 86,00 120,00
Undirmálsf. 8,421 76,75 57,00 82.00
Ýsa.sl. 8,986 106,55 90,00 117,00
Ýsa.ósl. 3,068 83,70 77.00 98,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
21. janúar seldust alls 77,034 tonn.
Þorskur 21,149 105,59 98,00 124,00
Þorskur, ósl. 17,703 91,04 85,00 101,00
Smáþorskur 2,103 85,19 85,00 87.00
Smáþorskur, ósl. 1,408 79,00 79,00 79,00
Ýsa 14,149 106.77 60,00 110,00
'Ýsa, ósl. 8,174 86,56 60,00 92,00
Smáýsa.'ósl. 0,244 60,00 60,00 60,00
Gellur 0,016 290,00 290,00 290,00
Lýsa, ósl. 0,117 56,15 30.00 60,00
Koli 0,064 83,00 83,00 83,00
Rauðm./grál. 0,086 82,00 82,00 82,00
Hrogn 0,125 361,84 255,00 370,00
Keila 0,206 35,31 20,00 49,00
Karfi 0,364 45,00 45,00 45,00
Steinbitur 0,186 69,42 68,00 70.00
Ufsi, ósl 0.027 36,00 36,00 .36.00
Langa, ósl. 0,284 62,00 62,00 62,00
Langa 1,258 69,73 62,00 71,00
Skata 0,044 50,00 50,00 60.00
Steinbitur, ósl. 1,569 66,96 64,00 67,00
Lúða 0,759 403,99 316.00 460,00
Keila, ósl. 6,947 48,78 38,00 54,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
21. janúar seldust alls 93,296 tonn.
Þorskur, bl. 6,082 ■91.68 91,00 92,00
Þorskur, ósl. 60,773 99,62 88,00 125,00
Þorskur, sl. 1,418 97,41 92,00 100,00
0,778 75,00 75,00 75.00
Tindaskata 0,013 5,00 5,00 5,00
Langa 0,453 65,63 59,00 69,00
Skata 0,062 82,87 64,00 90,00
Lýsa 0,285 58,61 55,00 59,00
Háfur 1,130 5,00 5,00 5,00
Ufsi 2,296 40,17 37,00 53,00
Steinbítur 2,487 61,41 59,00 80,00
Blandað 0,956 40,42 20,00 57,00
Ýsa, ósl. 13,476 86,47 79,00 97.00
Skarkoli 0,363 73,44 50,00 80,00
Lúða 0,060 509,35 “330,00 585,00
Lifur 0,044 10,00 10,00 10,00
2,345 47,23 35,00 52.00
Hrogn 0,014 190,00 190,00 190,00
Hlýri 0,029 60,00 60,00 60,00
Hlýri + steinb. 0,029 60,00 60,00 60,00
Karfi 1,004 47,67 5,00 52,00
Kinnfiskur 0,059 185,00 185,00 185,00
Gellur 0,031 255,00 255,00 255.00
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI • 653900