Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1991, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritsfjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst, óháÖ dagblað ÞRIÐJUDAGIiR 22. JANÚAR 1991. Dauðaslys um borðíÁgústi Guðmundssyni Banaslys varð um borð í Agústi Guðmundssyni GK 95 í Njarðvíkur- höfn um klukkan átta í gærmorgun. Maður um fertugt lést er lestarlúga féll á hann er hann vann ásamt öðr- um skipverjum við uppskipun. All- nokkurt hvassviðri var þegar slysið átti sér'stað og er talið að orsakir slyssins megi rekja til þess. -J.Mar Sjómannsins leitað i dag Gylfi Krisljáiisson, DV, Akureyri: Leitinni að sjómanninum frá Grenivík, sem saknað hefur verið síðan í fyrradag, verður framhaldið í dag og verður leitað úr lofti og á sjó og fjörur gengnar. Mannsins, sem er 35 ára, hefur verið saknað síðan bátur hans fannst mölbrotinn í fjörunni við Gjögurtá síðdegis á sunnudag. Skilyrði til leit- ar voru afleit nyrðra í gær en í morg- un viðraði mun betur. Ekki alvarlegt tjón i fárviðrinu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Tjónið, sem varð á Akureyri í fár- viðrinu í gær, varð minna en efni stóðu til. Skemmdir urðu aðallega á fjölbýlishúsi í Skarðshlíð er þakplöt- ur af húsinu fuku af því og þá urðu einnig skemmdir á fimm bifreiðum vegna veðursins. Skorsteinn féll af húsi við'Hafnar- stræti og skemmdi þrjár bifreiðir. Þá fauk spónaplata á bifreið, vegaskilti á aðra enda var vindhraði á Akur- eyri í mestu hviðunum um 200 km á klukkustund þegar mest var. Læknadeilan: Fundifrestað Samningafundi lækna, ríkis og borgar hjá ríkissáttasemjara í gær var frestað þar til í dag. Guðríður Þorstemsdóttir í samninganefnd rík- isins segir að heldur hafi þokast í samkomulagsátt í gær en þó beri talsvertímilli. -ns Dalasýsla: Friðjón sýslumaður Friðjón Þórðarson alþingismaður hefur verið skipaður sýslumaður í Dalasýslu frá og með 1. apríl næst- komandi. Alls sóttu fimm manns um embættið. Friðjón var áður sýslu- maður í Dalasýslu á árunum 1955- 1965. -ns Heitavatnsleiðslur sprungu á nokkrum stöðum í Kópavogi í nótt: wicnn SKemmai íbúðir á sex hæðum Svo virðist sem mikill þrýstingur á heitu vatni i austurbænum í Kópa- vogi hafi orsakað töluverðar skemmdir á nokkrum íbúðum og leiðslum utanhúss í nótt og í morg- un. „Ég vaknaði um klukkan tvö þeg- ar rör sprakk og heita vatnið fór að leka. Það flædch vatn yfir öll teppin í íbúðinni. Ég þurfti síðan að stafla húsgögnum upp og var að þurrka í nokkurn tíma í nótt,“ sagði Hulda Ásgeirsdóttir, íbúi á annarri hæð i fjölbýlishúsinu í Þverbrekku 4 í Kópavogi, í samtali við DV í morgun. Leiðsla spakk á 6. hæð í húsinu i nótt og lak vatn niður eftir öllum hæðum og alveg niður í geymslu í húsinu. Skemmdir urðu mismiklar í íbúöunum en vatn hafð runnið alveg fram á gang í íbúð Huldu á annarri hæð eftir aö leiðsla sprakk í svefnherbergi. Að sögn eins íbúa á 4. hæð virðist vatn hafa lekið nið- ur með veggjum og lofti í íbúðum hussins. Lögreglan í Kópavogi var að taka við tilkynningum um sprungnat heitavatnsleiðslur á nokkrum stöð- um í austurbænum fram til klukk- an átta í morgun. I húsinu í Þver- brekku 4 sprakk ofn og þar lak heitt vatn niöur. Heitavatnsæð sprakk einnig við inntak húsa við göturnar Kjarrhólma og Furu- grund. Hreinn Frímannsson, yfirverk- fræðingur hjá Hitaveitu Reykjavík- ur, segir að upplýsingar liggi fyrir um að þrýstingur hafi aukist á heitavatnskerfmu eftir að hlýna tók í veðri í fyrrinótt. Hann sagði við DV í morgun að það sneri að Hitaveitunni að lag- færa skemmdir sem orðið liafa ut- anhúss. Varðandi leiðslur innan- húss sagði hann að þrýstiminnkar- ar eigi að minnka álag í leiðslum en öryggislokar að taka við ef þeir bila. Þegar DV fór i prentun í morgun voru menn hjá Hitaveitu Reykja- víkur að afla upplýsinga um atvik- in í Kópavogi í nótt. -ÓTT Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavlk: Jóhanna steff nir á annað sætið - þrettán 1 framboði Jóhanna Sigurðardóttir gefur ekki kost á sér í 1. sætið í prófkjöri Al- þýöuflokksins í Reykjavík fyrir kom- andi alþingiskosningar heldur stefnir á annað sætið. Virðist því sem sættir hafi tekist á milli þessara tveggja forystumanna flokksins. Alls gáfu þrettán manns kost á sér í prófkjörið en framboðsfrestur rann út á miðnætti í gær. Prófkjörið fer fram laugardaginn og sunnudaginn 2.-3. febrúar. Kosið verður um sex efstu sætin. Þeir sem gefa kost á sér eru: Birgir Árnason, Gunnar Ingi Gunn- arsson, Guðmundur Haraldsson, Helgi Daníelsson, Jóhanna Sigurðar- dóttir, Jón Ármann Héðinsson, Jón Baldvin Hannibalsson, Magnús Jónsson, Ragnheiður Davíðsdóttir, Valgerður Gunnarsdóttir, Þorlákur Helgason, Þröstur Ólafsson og Össur Skarphéðinsson. -hlh/kaa Undirmenn á stóru togurunum: Samningar samþykktir Hulda Ásgeirsdóttir við rennblautt gólfteppið í stofunni hjá sér í morgun. Húsgögnum varð að stafla upp á meðan verið var að þurrka upp. DV-mynd GVA Stjórn og trúnaðarmannaráð Sjó- mannafélags Reykjavfkur hefur samþykkt fyrir hönd undirmanna á togurunum nýjan kjarasamning milh Sjómannasambands íslands og Landssambands íslenskra útvegs- manna. Deildar meiningar voru um hvort samningurinn hefði verið samþykkt- ur þegar allsherjaratkvæðagreiðsla fór fram um hann innan Sjómanna- sambandsins. Samningurinn var samþykktur með smávægilegiím orðalagsbreyt- ingum er varða hafnarfrí eftir jól og áramót. Sjómannafélag Akureyrar hefur enn ekki tekið afstöðu til hvort það samþykkir samninginn eða fer fram á nýjar samningaviðræður. Afstaða til þess máls verður tekin síðar í þessariviku. -J.Mar LOKI Hefur Davíð tekið að sér teppahreinsun í Kópó? Veðrið á morgun: súld sunnan- lands Á morgun verður suðlæg átt, fremur hvasst á annesjum vest- anlands en mun hægari austan til á landinu. Rigning og súld verður um sunnan- og vestanvert landið en þurrt norðaustanlands'. Hlýtt í veðri og hiti á bihnu 5-9 stig. > C72177 V SMIÐJUKAFFI p SmUM FRÍTT H£/M OPNUM KL. 18VIRKA DAGA OG KL. 12 UM HELGAR v* í Á R A *» c 4 lll ALÞJÓÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAGIÐ LÁGMÚLA 5 • REYKJAVÍK • S. 681644

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.