Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Blaðsíða 4
LAUGARDAGUR.26, JANÚAR.1991.
Fréttir
Bæjarstjómin á ísafirði:
Brestir í meirihlutasam-
starfi sjálfstæðismanna
- launakj ör bæj arstj óra valda ágreiningi
Ágreiningur blossaði upp að nýju
milli sjálfstæðismanna á ísafirði á
fundi bæjarstjómar síðastliðinn
fimmtudag. í upphafi fundarins
kynnti Kolbrún Halldórsdóttir, vara-
forseti bæjarstjómar, samkomulag
sem hún sagöi að meirihlutinn hefði
náð við Haraid Líndal Haraldsson
bæjarstjóra um breytt ráðningar-
kjör. Þau skipuðu bæði sæti á í-hsta
sjálfstæðismanna í síðustu kosning-
um.
Þessu andmælti Georg Bærings-
son, D-lista sjálfstæðismanna, og
sagði ekkert slíkt samkomulag hafa
náðst. Hafði hann á orði eftir fundinn
að hann hygðist láta brjóta á þessu
á bæjarráðsfundi sem haldinn verö-
ur á mánudaginn. Ef svo fer er ekki
ólíklegt að endir verði bundinn á
meirihlutasamstarf sjálfstæðis-
manna á Ísafírði.
Núverandi meirihluti í bæjarstjóm
er eingöngu skipaður sjálfstæðis-
mönnum en í síöustu kosningum
bauð ílokkurinn fram í tvennu lagi,
D-lista og í-lista, vegna ágreinings
um uppröðun á lista. Svo virðist sem
þær deilur, sem þá spruttu upp milli
þessara tveggja arma Sjálfstæðis-
flokksins, hafi leitt til enn frekari og
djúpstæðari ágreinings.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
serri DV hefur aflað sér, fela drögin
að breyttum kjarasamningi í sér
meiri yfirvinnugreiðslur en lækkun
bílastyrks og hækkun á húsaleigu.
Um er að ræða innbyrðis leiðréttingu
en í heildina eru launakjörin nánast
óbreytt.
Ekki náðist í Georg .Bæringsson
vegna þessa máls í gær en að sögn
heimildarmanna DV er ágreiningur-
inn um breytt ráðningarkjör í raun
deilur um völd og áherslur í bæjar-
stjóminni. Sem kunnugt er vildu
D-hstamenn mynda meirihluta með
alþýðuflokksmönnum eftir kosning-
arnar en gengu til samstarfs við í-
hstann vegna eindreginna tilmæla
frá flokksforystunni.
Að sögn Haralds Líndal bæjar-
stjóra á hann ekki von á að upp úr
meirihlutasamstarfinu slitni vegna
þessa máls. Hann segir að menn
hljóti að beygja sig undir meirihluta-
ákvörðun í málinu.
„Það er eins og gengur og gerist í
lýðræðinu, menn éru ekki alltaf sam-
mála. Það er rétt hjá Georg aö hann
lýsti sig andsnúinn þessum samningi
þegar gengið var frá honum við mig
en hann talaði ekkert um að beita
sér gegn honum.“
-kaa
Guðmundur Viöar Friðriksson og Stefán Jóhannsson, tveir af stofnendum íslensku lakkrísverksmiðjunnar í Kína,
ásamt Bjarna Halldórssyni sem verður framkvæmdastjóri. Þeir félagar halda á samningnum við kínversku sælgæt-
isverksmiðjuna og að sjálfsögðu er samningurinn á kínversku. DV-mynd GVA
*
íslendingar stofna lakkrísverksmiöju 1 Kína:
Þeir héldu að ég væri
að bjóða þeim gúmmí
- segir Guðmundur Viðar Friðriksson, einn eigendanna
„Kínveijar þekkja ekki lakkrís
sem sælgæti og reyndar enginn Asíu-
búi, nema lakkrísrótina sem lyf. Þeir
héldu þess vegna að ég væri að bjóða
þeim gúmmí þegar ég bauð þeim ís-
lenskan lakkrís,“ segir Guðmundur
Viðar Friöriksson, einn stofnenda og
eigenda lakkrísverksmiðju sem verið
er að setja á stofn í Kína.
Upphaf hugmyndarinnar um
lakkrísverksmiðjuna má rekja til
ársins 1985 en þá átti Guðmundur
Viðar sælgætisgerðina Völu. Hann
reyndi fyrir sér með útflutning á
sælgæti og þar á meðal lakkrís. „Við-
brögðin bæði í Danmörku og Banda-
ríkjunum voru mjög góð en bæði var kerfis og lagna ýmiss konar. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins í
kostnaðurinn alltof mikih og fram- Samningar tókust síöan viö kín- Kína verður Bjarni Halldórsson við-
leiðslugetan of htil.“ verska sælgætisverksmiðju í eigu skiptafræðingur.
Árið 1987 keypti Guðmundur heild- kínverska ríkisins sem hefur verið * -ns
verslunina Sjónval sem hefur átt við-
skipti við Kína frá 1978 og þá sá hann
möguleika á þessari framleiðslu. „Ég
hóf þá viðræður við Chu Yiyou, við-
skiptafuhtrúa kinverska sendiráðs-
ins hér, og hann tók mjög vel í hug-
myndina. Ég hafði því samband við
Stefán Jóhannsson sem vann hjá
Fjárfestingarfélaginu og hann hefur
hjálpað mér við að skipuleggja allt í
sambandi við framkvæmd hug-
myndarinnar og starfsemina."
Eftir ítarlega skoðun og heimsókn-
ir til borga í Kína var ákveðið að
verksmiöjan yrði i borginni Guangz-
hou vegna góðra samgangna, síma-
starfrækt í um 40 ár. „Verksmiðjan
er mjög vel tækjum búin fyrir fram-
leiðslu á öhu sælgæti en við bætum
svo lakkrísnum. inn í þá fram-
leiðslu," segir Guðmundur Viðar.
Heildarfjárfestingin er 1,2 mihjónir
dollara og skiptist til helminga á
mhli kínverskra og íslenskra aðha.
íslenska lakkrísverksmiöjan verður
þó sérstakt fyrirtæki en í samstarfi
við hið kínverska. Kínverski mark-
aðurinn er ekki sá eini sem þeir fé-
lagar hyggjast leggja undir sig, held-
ur hafa þeir náð mörkuðum víðs veg-
ar um heiminn, meðal annars í
Bandaríkjunum.
Skiptar skoðanir um söluna á Þormóði ramma:
Páll og Pálmi bak við
líklega kaupendur
- ónóg auglýsing er fyrirtækið var selt
Þingmennirnir Páll Pétursson og
Pálmi Jónsson stóöu á bak við menn
sem voru líklegir til að kaupa Þor-
móð ramma á Siglufirði. DV hefur
frétt að Páll hafi tengst mönnum í
KEA og fleiri, sem höfðu áhuga, og
Pálmi sjálfstæðismönnum á Siglu-
firði sem spáðu í fyrirtækið. En salan
var ekki nægilega auglýst.
„Ég bað um utandagskrárumræðu
um málið og ég taldi að fréttatilkynn-
ingin í nóvember hefði ekki verið
nægjanleg en ég áht að Þormóður
rammi hafi verið seldur á nógu háu
verði,“ sagði Jón Sæmundur Sigur-
jónsson alþingismaður í viðtali við
DV í gær. Hann tekur þannig undir
þá gagnrýni Ríkisendurskoðunar að
salan hafi ekki verið næghega aug-
lýst.
Jón Sæmundur er einn tjögurra
þingmanna Norðurlandskjördæmis
vestra sem óskuðu eftir könnun Rík-
isendurskoðunar á sölunni.
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra mótmælir skýrslunni í við-
tali við DV. Hann telur óraunhæft
að meta svonefnda „framlegð“ fyrir-
tækisins jafnháa og gert er í skýrsl-
unni og þess vegna komi Ríkisendur-
skoðun með alltof hátt verð. Ólafur
Ragnar bendir á að miðað við síðustu
ár ætti verð, sem þannig fæst, að
vera 130 milljónir króna en ekki 300
milljónir eins og Ríkisendurskoðun
heldur fram.
Ríkisendurskoðun metur söluverð-
mæti fyrirtækisins á grundvelh
tekna þess en ekki eigna. Við út-
reikninga sína á tekjuvirðinu gerir
Ríkisendurskoðun ráð fyrir að heild-
artekjur fyrirtækisins á árinu verði
rúmur milljarður og það geti skilað
30 milljónum í hagnað. Á grundvelh
þessa telur Ríkisendurskoðun að
miðað við að fyrirtækið væri selt á
300 milljónir króna geti það engu að
síður gefið eigendum sínum 10 pró-
sent arð af söluverðmætinu.
Hallgrímur Þorsteinsson, endur-
skoðandi Þormóðs ramma, segir í
viðtali við DV að niðurstaða Ríkis-
endurskoðunar hafi komið sér mjög
áóvart. HH/KAA
Framsóknarflokkurinn í Reykjavik:
Sex efstu sætin ákveðin
- litlar líkur á aö Ásgeir Hannes taki sæti
„Við ákváðum að færa bara upp
á listanum eftir að ljóst var að
Guðmundur G. Þórarinsson myndi
ekki taka annað sæti hstans. Þaö
'er því útilokað að hróflað verði við
þessum sætum. Síðan er verið að
vinna að niðilrröðun fyrir aftan
sjötta sætið. Ég á von á því að þeirri
vinnu ljúki um helgina," sagði
Helgi S. Guðmundsson, formaður
uppstilhngarnefndar Framsóknar-
flokksins í Reykjavík, í samtali við
DV.
Þeir sem skipa munu sex efstu
sæti listan eru: Finnur Ingólfsson,
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
Bolh Héöinsson, Hermann Svein-
bjömsson, Anna Margrét Valgeirs-
dóttir og Þór Jakobsson.
Nú eru taldar litlar sem engar
hkur á að Ásgeir Hannes Eiríksson
alþingismaöur taki sæti á lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík.
Viðræður hafa átt sér stað milli
hans og ákveðinna manna í upp-
stillingarnefnd. Ásgeir tók hug-
myndinni ekki fjarri í upphafi.
Hins vegar hefur þetta mætt mik-
ihi andstöðu hjá fjölmörgum fram-
sóknarmönnum. Þegar það svo
bætist við að ekki veröur hróflað
við sex efstu sætum hstans er ótrú-
legt að Ásgeir Hannes taki sæti þar
fyrir aftan.
Þegar þetta var borið undir Helga
S. Guðmundsson sagði hann að við-
ræður við Ásgeir Hannes hefðu átt
sér stað. Hann vildi að öðru leyti
ekkert um máhö segja en benti á
að atburðarásin væri hröð í stjórn-
málum nú á tímum og því varleg-
ast að fullyrða ekki neitt.
-S.dór
Jón Baldvin afneitar kosningabandalagi
Birgir Dýrfjörö, afstoðarmaður
Jóns Baldvins Hannibalssonar, hafði
samband viö blaðið vegna frásagnar
nýlega af stöðu mála í prófkjörsslag
krata í Reykjavík. Birgir hefur eftir
formanni Alþýöuflokksins, aö hann
hafi ekki tekið og muni ekki taka
afstöðu með eða móti neinum fram-
bjóðendum í prófkjöri Alþýðflokks-
ins. Hann sé því ekki í kosning-
abandalagi viö Össur Skarphéðins-
son í prófkjörinu. Jón Baldvin segist
sem formaöur ætla sér aö ná öllum
alþýöuflokksmönnum saman í fylk-
ingu eftir prófkjör, bæði þeim sem
tapaogþeimsemsigra. -HH