Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 26. JAMÚAR 1991. 19 pv Sviðsljós Basinger og Baldwin mæta saman á frumsýningu á Misery. Basinger og Baldwin gera alltvitlaust Kynbomban Kim Basinger, sem ís- lenskir áhorfendur sáu seinast í Bat- man, gerði nýlega kvikmyndafram- leiðendum og leikstjórum afar gramt í geði. Henni til dyggrar aðstoðar var mótleikari hennar, Alec Baldwin. Saman áttu þau að leika í kvik- mynd sem heitir Marrying Man og er framleidd af Disney-kvikmynda- verinu. Þau skötuhjúin mættu aldrei á réttum tíma, neituðu að vinna fram eftir og voru með óteljandi sérkröfur og stjömustæla. Basinger lét reka kvikmyndatökumanninn í miðjum tökum því henni fannst hann ekki mynda hennar hátign nógu vel. Alec Baldwin trylltist þegar símarnir í hjólhýsinu hans biluðu og gekk ber- serksgang og braut glös og stóla og henti síma í einn af starfsmönnun- um. Til þess aö kóróna allt saman urðu þau ástfangin og er fullyrt að Basin- ger hafi spillt Baldwin því áður en þau tóku saman var hann þekktur fyrir stundvísi og vinnusemi en hún fyrir hið gagnstæða. Sömu heimildir herma að starfslið kvikmyndavers- ins hafi skemmt sér við að hlusta á samtöl turtildúfnanna í innanhúss- símakerfinu á tökustað. Það sem þeim fór þar á milli var víst ekki ætlað ókunnum eyrum. Síðan tökum lauk, leikstjóra og framleiðendum til mikils léttis, hafa Basinger og Baldwin víða sést sam- an. Sögusmettur í Hollywood eru þegar famar að fullyrða að þau skundi saman upp að altarinu áður en langt um hður en þau neita ölium shkum orðrómi. Hinn fjölmiðlafælni Patrick Swayze skaut upp kollinum á þessari sömu frumsýningu. Fylgikona hans var engin önnur en hans trygga eigin- kona, Lisa Niemi, en Patrick er afar hollur og heimakær og lítið fyrir sviðsljósið utan hvita tjaldsins. Hitaveita Reykjavíkur brýrtir fyrir ökumönnum jeppa og vélsleða að sýna ýtrustu gætni í vetrarumferð nálægt Nesjavallaæð, lögn Hitaveitur Reykjavíkur á Mosfellsheiði. Á þeim köflum þar sem snjór hylur æðina geta myndast stór holrúm undir sjónum umhverfis hana, varhugaverð allri umferð. Forðist því hugsanleg óhöpp á fólki, skemmdir á farartækjum eða hitaveitulögn. Sýnið ýtrustu varkárni. Akið aðeins yfir Nesjavallaæða á sérstökum, vel merktum yfirkeyrslum, sem víða hafa verið byggðar yfir æðina. Yfirkeyrslur bera ökutæki með allt að 10 tonna öxulþunga. Hitaveita Reykjavíkur hefur gefið út bækling sem sýnir legu Nesjavallaæðar og allra yfirkeyrslna. Ennfremur fylgir Loran C staðsetningartafla fyrir yfirkeyrslur. Merkingar við Nesjavallaæð ■ ■: Yfirkeyrsla er bak við þetta merki Yfirkeyrsla er milli þessara merkja Bæklingurinn liggur frammi hjá Hitaveitu Reykjavíkur Grensásvegi 1,128 Reykjavík, sími 600100 og verður hann sendur þeim sem þess óska. Ennfremur hefur honum verið dreift H1 björgunar- sveita, ýmissa klúbba, fyrirtækja og félagasamtaka sem tengjast ferðalögum og útivist. Þá liggur bæklingurinn frammi á nokkrum bensín- stöðvum, sem næst liggja Mosfellsheiði. Það dugar ekki að trylla yfir hvað sem fyrir er. Hitaveita REYKJAVÍKUR Góða ferð - góða heimkomu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.