Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Blaðsíða 20
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1991.
ICiOr úf A T ( / i i. U' . w. iia
20.
Kvikmyndir
Brian de Palma og
Bálköstur hégómleikans
Brian de Palma, til vinstri, ásamt kvikmyndatökumanni sínum, Vilmos
Zsigmond, við tökur á The Bonfire of Vanities.
ilty í Lolita varð ég að ráða kvik-
myndastjörnu sem er góður gam-
anleikari. Ég tel Tom Hanks besta
gamanleikarann sem einnig getur
farið vel með hlutverk í dramatísk-
um myndum. Hann sannaði þaö í
Punchline og Nothing in Common.
Og ég er í engum vafa um að þaö
er auðveldara fyrir góðan gaman-
leikara að leika vel alvarleg hlut-
verk en öfugt.“
í önnur aðalhlutverk valdi de
Palma Melanie Griffith og Bruce
Willis. Óhætt er að segja að valiö
hafi einnig komið mörgum lesend-
um bókarinnar á óvart. Með því
að velja þessa þrjá leikara í aðal-
hlutverkin var de Palma í raun að
segja að kvikmynd væri kvikmynd
og bók væri bók og menn ættu ekki
að hnýta þetta saman. Hann viður-
kennir þó að hefði skáldsagan ekki
verið skrifuð hefði handritið að
kvikmyndinni sjálfsagt aldrei orðið
að veruleika. „Kvikmyndafram-
leiðendur hefðu hent því frá sér
með þeim orðum að söguþráðurinn
væri hneykslanlegur," segir de
Palma.
Viðtökur gagnrýnenda hafa yfir-
leitt verið jákvæðar þótt flestir
finni eitthvað að myndinni. Þeir
spámenn, sem sögðu strax að vit-
laust val leikara í aðalhlutverkin
myndi eyðileggja hin sterku áhrif
sem sagan byði upp á, viröast hafa
haft rétt fyrir sér. Að minnsta kosti
er það helsti galli myndarinnar að
mati gagnrýnenda. The Bonfire of
Vanities verður bráðlega sýnd í
Bíóborginni.
Þekktustu kvikmyndir Brians de
Palma eru spennumyndir á borð
við Obsession, Carrie, Dressed to
Kill, Blowout, Body Double og
gangstermyndimar tvær, Scarface
og The Untouchables. í fyrra leik-
stýrði hann Casualties of War sem
fékk yfirleitt góðar viðtökur. Þrátt
fyrir raunsæja lýsingu á mannlegri
grimmd í Víetnamstríðinu á Casu-
alties of War margt sameiginlegt
með fyrri myndum de Palma hvað
varðar ofbeldi.
Nýjasta kvikmynd hans, The
Bonfire of Vanities, sem mundi út-
leggjast á íslensku Bálköstur hé-
gómleikans, er aftur á móti í óra-
fjarlægð frá fyrrnefndum myndum
og kom það mörgum á óvart að
hann skyldi leggja í þessa miklu
skáldsögu Toms Wolfe sem heiliað
hefur marga. The Bonfire of Vaniti-
es er skáldsaga sem fyrirfram hefði
mátt ætla að erfitt væri að kvik-
mynda ef ekki ómögulegt.
Þeir hinir sömu sem hissa urðu
ættu samt að minnast þess að Brian
de Palma hóf feril sinn í New York
seint á sjöunda áratugnum innan
um fólk sem þá gagnrýndi óspart
stefnu stjómvalda. Leikstýrði hann
á þessum árum þremur hárbeittum
ádeilumyndum, Greetings, Hi
Mom! og Get to Know Your Rabbit.
Um leið kynnti hann fyrir heimin-
um Robert de Niro en hann lék í
tveimur þessara kvikmynda.
Spilling og
sjálfumgleði
The Bonfire of Vanities gerist í
New York. „Sagan er um margar
spilltar persónur, persónur sem
haldnar eru stórmennskubrjálæði
og eru sjálfumglaðar fram úr hófi.
Persónur sem nýta sér alvarlegan
atburð sér til framdráttar. Atburö-
urinn sjálfur skiptir ekki máli held-
ur hvemig má notfæra sér hann.
Hvemig þetta fólk þrífst á græðgi
og sjálfumgleði finnst mér nálgast
það að vera grín,“ segir Brian de
Palma um persónumar í myndinni.
De Palma las fyrst bókina þegar
hann var að kvikmynda Casualties
of War í Tælandi. Hann segist strax
hafa fundið fyrir þeirri tilfmningu
að þama væri söguþráður sem
hann langaöi að kvikmynda.
„Ég er mikill aðdáandi einstakra
kvikmynda Stanleys Kubrick. Dr.
Strangelove og Lolita em þar á
meðal og mig hefur alltaf langað til
að gera háðsádeilu um sjálfumglað-
an mann. í The Bonfire of Vanities
finnum við nokkrar slíkar persón-
ur.“
Eitt það fyrsta sem de Palma
gerði eftir að hann tók að sér að
leikstýra The Bonfire of Vanities
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
var að ráða Tom Hanks í hlutverk
Shermans McCoy sem er aðalper-
sónan í sögunni og samnefnari fyr-
ir margt þaö versta í bandarísku
samfélagi þótt sumir vilji meina að
hann leiki einungis eftir þeim regl-
um sem hann kann. Að minnsta
kosti er það svo að lesandi sögunn-
ar myndar sér fljótt ákveðnar skoð-
anir á McCoy.
Tom Hanks leikur veröbréfajöfurinn Stephen McCoy í The Bonfire of
Vanities. Hann er hér ásamt Bruce Willis sem leikur blaðamanninn
Peter Fallow.
Leikaraval
vekurfurðu
Val Toms Hanks í hlutverkið
vakti furðu og kom mörgum á
óvart. Brian de Palma segir svo um
þessa ákvörðun: „Á sama hátt og
Stanley Kubrick valdi Peter Sellers
til að leika dr. Strangelove og Qu-
Enn ein skrautfjöður í hatt Propaganda:
Hitabylgja hlýtur fem verðlaun
Aðalhlutverkin í Heatwave leika James Earl Jones, Cicely Tyson og Blair Underwood.
Kvikmyndagerð fyrir stóru
kapalsjónvarpskerfin í Bandaríkj-
unum er orðin einn hluti kvik-
myndaiönaðarins í Bandaríkjun-
um. Sjónvarpsstöðvar þessar eiga
vaxandi vinsældum að fagna og er
CNN fréttastöðin dæmi um þá stað-
reynd. Eigandi CNN stöðvarinnar
er Ted Turner. Hann er einnig ein-
andi fyrirtækisins Turner Pictures
sem sér um dreifingu og gerð sjón-
varpsmynda sem gerðar eru fyrir
kapalkerfin.
Nýlega voru veitt verðlaun fyrir
bestu kvikmyndir og sjónvarps-
seríur sem eingöngu eru gerðar
fyrir þessi kerfi. Þar kom kvik-
myndin Heatwave sterkt út og
hreppti helstu verðlaunin, fékk
fem verðlaun samtals. Var myndin
vahnn besta sjónvarpskvikmynd-
in, Cicely Tyson fékk verðlaun sem
besta leikkonan og James Earl Jon-
es fékk verðlaun sem bestir leikar-
inn. Einnig fékk Heatwave verð-
laun fyrir bestu klippingu.
Framleiðendur myndarinnar fyr-
ir Turner Pictures voru tvö fyrir-
tæki, Avnet/Kemer Company og
Propagangda Films, sem er eins og
kunnugt er fyrirtæki Siguijóns Sig-
hvatssonar og Steve Gohn.
Þaö er óhætt aö segja að árangur
Propaganda Films er orðinn mjög
góður á kvikmynda- og sjónvarps-
markaðnum. Það var rétt búið að
veita Heatwave þessar viðurkenn-
ingar þegar erlendir gagnrýnendur
í Hohywood veittu sjónvarpsþátt-
unum Tvídröngum, sem Propag-
anda Films framleiðir, þrenn verö-
laun, meðal annars sem besta sjón-
varpsserían í bandarísku sjón-
varpi. Skemmst er að minnast að
Wild at Heart fékk verðlaun í
Cannes, var vahn besta kvikmynd-
in. Propaganda Films hefur einnig
fengiö fiöldann ahan af verðlaun-
um fyrir tónhstarmyndbönd.
Sannir atburðir
kvikmyndaðir
í Heatwave segir frá sönnum at-
burðum sem gerðust í Los Angeles
1965 þegar aUt fór í bál og brand
meðal svartra. MUdar óeirðir
spunnust út af htlu tilefni. Sjö dög-
um eftir að óeirðirnar stöðvuðust
var Robert Richardson ráðinn
blaðamaður á Los Angeles Times,
fyrstur svartra manna.
Aðalpersónan i Heatwave er ein-
mitt Robert Richardson. Hann
hafði unnið sem sendisveinn á Los
Angeles Times og átti þann draum
heitastan að verða blaðamaður.
Það var aftur á móti erfiður róður
að komast að sem blaðamaður á
þessari íhaldssömu stofnun. Hinar
miklu óeirðir urðu til að breyta
þessari stefnu. Þegar Los Angeles
Times gat ekki sent neinn hvítan
blaðamann á óeirðasvæðið bauð
Richardson sig fram og það er
skemmst frá því að segja að hann
stóð sig þaö vel í fréttaflutningi af
óeirðunum að Los Angeles Times
fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir frá-
sögn sína af óeirðunum ári seinna.
Leikstjórinn er
fyrrverandi leikari
Blair Underwood heitir leikarinn
sem leikur Robert Richardson, en
hann er sjálfsagt þekktastur hér
fyrir að leika einn af lögfræðingun-
um í Lagakrókum (LA Law). Aður
hefur verið minnst á Cicely Tyson
og James Earl Jones sem verðlaun-
uð voru fyrir eftirminnilegan leik.
Auk þeirra leikur Sahy Kirkland
stórt hlutverk í myndinni.
Leikstjórinn Kevin Hooks er ekki
þekkt nafn enda hefur hann ein-
göngu leikstýrt í sjónvarpi. Hann
var leikari áöur en hann settist í
leikstjórastóhnn, lék meðal annars
í Sounder þar sem einmitt Cicely
Tyson lék eitt aðalhlutverkið. Faðir
hans Robert Hooks er kunnur kar-
akterleikari og leikur eitt hlutverk-
ið í Heatwave. Hooks telur að
styrkur sinn sem leiksfióri felist
einna helst í því að leikstýra leikur-
unum, eða eins og hann segir sjálf-
ur: „Eg skil leikara enda hef ég
verið þar sem þeir eru.“
Algengast er að kvikmyndir sem
gerðar eru fyrir kapalsjónvarps-
stöðvar séu gefnar út á myndbönd
eftir að dreifingu í sjónvarpi lýkur
og svo er um Heatwave. Má geta
þess að þessa dagana er hún ein-
mitt aö koma út á myndbandi hér
á landi á vegum Skífunnar.