Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1991, Síða 9
1 LAUGARDAGUK 26. JARCAR 1991.
Gaman að ganga
fram af áhorfendum
- segir Páll Óskar Hjálmtýsson, leikari og söngvari
„Það er afskaplega gaman að ganga
fram af áhorfendum. Á sumum sýn-
ingunum má heyra fullan sal af fólki
grípa andann á lofti alla í einu. Mér
finnst gaman aö horfa fram í sal og
sjá kjálka áhorfenda slapa,“ segir
Páll Oskar Hjálmtýsson, leikari og
söngvari, í viðtali við DV.
Páll Óskar leikur aðalhlutverkið í
söngleiknum um Rocky Horror sem
leikfélag Menntaskólans við Hamra-
hlíð er að sýna um þessar mundir í
gamla Iðnó. Rocky Horror eftir Ric-
hard O’Brien er nokkurs konar
minnisvarði hryllingsmynda og hall-
ærisgangs kvikmyndaheimsins og á
sér nokkuð sérkennilega sögu. Söng-
leikur þessi var fyrst færður upp í
London árið 1972. Þremur árum síðar
var gerð samnefnd kvikmynd sem
enn er verið að sýna í kvikmynda-
húsum vestanhafs. Stofnaðir hafa
verið sérstakir aðdáendaklúbbar um
myndina og hörðustu fylgismennirn-
ir íjölmenna á sýningar íklæddir
búningum eftirlætispersóna sinna.
Til þess að fagna 15 ára afmæli kvik-
myndarinnar var myndin gefin út á
myndbandi vestanhafs.
Minnir á
Línu langsokk
Söguþráðurinn í þessu einkenn-
ilega verki er í stuttu máli sá að
venjuleg hjón verða strandaglópar í
gömlu húsi sem er uppfullt af ein-
kennilegu fólki frá Transylvaniu.
Þar ræður ríkjum doktor Frank’n’F-
urter en með hlutverk hans fer Páll.
Hvernig lýsir hann viðfangsefni
sínu?
„Frank’n’Furter er persóna sem má
hkja við Línu langsokk. Hann liggur
á sömu mörkum hins raunverulega
og óraunverulega. Hann er í raun-
inni ekki persóna heldur holdi klædd
sammannleg þrá sem allir, bæði
karlar og konur, þekkja. Þess vegna
elska hann allir eins og Línu lang-
sokk,“ segir Páll Óskar og strýkur
blátt hárið frá andlitinu. Hárið litaði
hann blátt sérstaklega vegna hlut-
verksins.
Rúmlega 50 manns taka þátt í sýn-
ingunni en alls koma 130 manns eitt-
hvað við sögu við að koma verkinu
á flalirnar. Ráðgerðar eru 20 sýning-
ar og má búast við að margir notfæri
sér þetta tækifæri til þess að sjá verk-
ið á sviði í fyrsta sinn á íslandi. Sýn-
ingin hefur hlotið mjög góða dóma
og sérstöku lofsorði hefur verið lokið
á frammistöðu Páls.
Óskaplega gaman
„Þetta er óskaplega gaman. Allir
sem koma við sögu í þessari sýningu
eiga það sameiginlegt að dá verkið
og kunna það gjörsamlega utan-
bókar. Það var aldrei leiðinlegt á
æfmgatímanum þó við plægðum í
gegnum stykkið hvað eftir annað.
Eftir hveija yfirferð var maður tilbú-
inn í aðra. Þessi neisti gerir það að
verkum að manni finnst verkið ekki
taka nema svona 15 mínútur í sýn-
ingu,“ segir Páll.
Yngstur í
söngelskri fjölskyldu
Það ætti kannski ekki að koma
neinum á óvart þó Páll þessi geti
sungið og það betur en næsti maður.
Hann er yngstur sjö systkina, sonur
hjónanna Hjálmtýs Hjálmtýssonar
og Margrétar Matthíasdóttur. Öll
systkinin hafa hlotið tónhstargáfu í
vöggugjöf þó Sigrún Hjálmtýsdóttir,
eða Diddú, sé trúlega þekktust
þeirra. Var mikið sungið á þínu
heimili, Páll?
„Það kom fyrir. Það var nú samt
ekki svona eins og menn kannski sjá
fyrir sér söngelska fjölskyldu sem
situr í hnapp fyrir fram arineldinn á
síðkvöldum og syngur saman. En það
er algengt á fjölskyldusamkomum og
þegar við hittumst öll að við tökum
lagið.“
Páll varð snemma söngvinn og til
er segulbandsupptaka með honum
rétt um tveggja ára gömlum. Þar er
að finna merka heimild um þroska-
feril söngvarans því þar syngur sá
stutti kórrétt, Soföu unga ástin mín,
og telur upp að tíu á ensku. Hvers
vegna á ensku?
„Ég horfði mikið á Kanasjónvarpið
sem barn og lærði þetta þar áður en
ég lærði að telja á íslensku. Mínar
sælustu bernskuminningar eru frá
því að liggja og glápa á sjónvarpið,
fyrst á Sesame Street í Kananum og
síðan á Línu langsokk í sjónvarpinu.
Ég var óskaplega hrifinn af Línu og
er núna að safna þáttunum á spólur
því það er verið að endursýna þá.“
Söngferill Páls hófst opinberlega
þegar hann í æsku söng barnaraddir
inn á nokkrar hljómplötur með Gylfa
Ægissyni og fleiri listamönnum. Síð-
an þegar hann var 12 ára lék hann
aðalhlutverkið í Gúmmí Tarsan eftir
Ole Lund Kirkeegard sem þá var
sýnt í Kópavogsleikhúsinu. Lögin úr
leikritinu voru gefin út á plötu.
Fór í mútur
og hætti að syngja
Það stóðst á endum að rétt eftir
útkomu plötunnar fór Páll Óskar í
mútur og lagði eðlilega sönghstina á
hilluna um hríð.
„Ég söng ekki bofs næstu 4-5 árin,“
segir hann. „Síðan þegar ég byrjaði
í Hamrahlíð gekk ég til liðs við kór-
inn og söng með honum í tvö ár. Það
var afar skemmtilegur og lærdóms-
ríkur tími. En ég hef áhuga á svo
mörgu og er því marki brenndur að
þurfa ævinlega aö hafa mörg járn í
eldinum svo eftir tvö ár þá sneri ég
mér að öðru.“
Það sem Páll kallar annað var að
taka þátt í öllum leiksýningum sem
nemendur settu upp, vera í ritnefnd
skólablaðsins og sitthvað fleira.
Hann gaf sér þó tíma til þess að taka
þátt í hæfileikakeppni sem fram-
haldsskólar gengust fyrir og vakti
þar athygli fyrir túlkun sína á laginu
Til eru fræ, og skilaði honum í þriðja
sæti í þeirri keppni.
Samstarfsmenn Páls í Rocky Horr-
or lýsa honum sem afar listhneigðum
ungum manni sem virðist geta gert
flest það sem hugur hans stendur til.
Auk tónhstarhæfileikanna leggur
hann stund á teikningu og myndlist
og þykir góöur leikari. Hvað tekur
við eftir stúdentsprófið. Ætlar hann
að stunda nám í einhverri listgrein?
Með hat-
ramma bíódellu
„Mér finnst kvikmyndin vera það
listform sem heillar mig einna mest,“
segir Páll. „Þar koma öll þessi list-
form saman í eitt og býður upp á
ótal möguleika til túlkunar. Þar gæti
ég hugsanlega sameinað áhuga minn
á ólíkum listgreinum. Það er hins
vegar ekkert ákveðið nákvæmlega
hvað ég tek mér fyrir hendur að
loknu námi. Ég er að kynna mér
ýmsa skóla erlendis sem gætu hentað
mér.“
Páll Óskar hefur mikinn áhuga á
kvikmyndum og hefur um árabil
unnið með náminu í Aðalvideóleig-
unni á Klapparstíg. Sá staður er
mörgum áhugamönnum um kvik-
myndir að góðu kunnur fyrir fjöl-
breytt úrval kvikmynda sem ekki
sjást í kvikmyndahúsum eða á venju-
legum videoleigum. Páh Óskar á
nokkurn heiður af því úrvcdi sem þar
er á boðstólum. Hann safnar þó ekki
kvikmyndum á myndböndum að
neinu ráði að eigin sögn, því hann á
aðeins 70 titla. Hins vegar á hann
persónulega um 200 kvikmyndir á
Super 8 formi og kennir þar ýmissa
grasa. Páll er ennfremur meðlimur í
„Splatter klúbbnum Mamma,“.
„Splatter," myndir eru kvikmyndir
þar sem lögð er áhersla á ofbeldi og
blóðsúthellingar og ekkert dregið
undan. Óþarft er að taka fram að
slíkar myndir fást yfirleitt ekki sýnd-
ar fyrir almenning.
„Eg hef annars sérstakan áhuga á
kvikmyndum sem eru öðruvísi, sem
liggja utan almennra marka um vel-
sæmi og framsetningu, oft kallaðar
B-myndir eða eitthvað í þeim dúr.
Eftirlætisleikstjóri minn er John
Waters,“ segir Páll.
John Waters var einna þekktastur
fyrir að aðalhlutverkið í flestum
kvikmyndum hans lék klæðskipting-
urinn Divine sem margir muna frá
heimsókn hans til íslands fyrir
nokkrum árum.
„Mér er í fersku minni fyrsta ferð-
in mín í bíó einn. Þá var ég sex ára
og fór að sjá Mjallhvíti og dvergana
sjö og fékk Mentos sælgæti. Ég man
samt aðeins eftir þeim atriðum úr
myndinni sem vöktu hjá mér ótta.
Hvort s’em þessi fyrsta bíóferð hafði
svona áhrif á mig þá hef ég alltaf síð-
an helst viljað fara einn í bíó,“ segir
Páll Óskar fjöllistamaður að lokum.
-Pá
Páll Oskar Hjálmtýsson, leikari og söngvari.
DV-mynd BG
LAUGARÁSBÍÓ
★★★ MBL
„Hörkugóð visindahrollvekja,
spennandi og skemmtileg meo
hverju hasaratriðinu á fætur
öðru. Vel leikin í þokkabót.
Al, MBL
vERSAl; DICTlES EmMMíÖN FRANCES MtDORMAND "ÐÁSEÍAN' COLIN RIELS EFMáNC
DARVL KASS mI!: SAMRAIMI CHUCK PFARRER M §AM RÁIffi & IIN RALMI .:d DANIEL GOLÐIN & LÖSHUA GÖIÐIK
RESTRICTED
UN0E8 1» REQUIRES ACCQMPANYIN6
PARENt 0R ADUtt WAROIAN
bv ROBERT TAPERT
SAMRAIM
™lmiook] A UNIvERSAL RELEASE UN'Ý#Ay
V mPMVERSAL CITV STUPIÖS. INC. . s „ . . , j, A,
Þessi mynd, sem segir frá manni er missir andlitið í spreng-
ingu, er bæði ástar- og spennusaga, krydduð með kímni
og kaldhæðni.