Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1991. 7 Sandkom Einn á lúðurinn Pyrrívetur varkonanokk- urásjötugs- aldriafcrðum miöborgina Þegarhún haíöilokiöer- indum sínum liélt hún nuYnr áHveríísgötu og ákvað að taka strætisvagn heim. Nokkur tjöldi marrna var að bíða með henni í biðskýlinu en voru ekki á sömu leið og hún. Það kom því að því að hún var orðin ein. Þá sá hún ungl- ingsstrák vera að læðupokast fyrir aftan skýlið. Allt í einu skaust hann inn I strætisvagnaskýlið og spurði hvatvíslega: Hvað ertu með í veskinu, góða? Sú gamla var með tösku með axlaról og lagöi hún í sky ndi hægri höndina yfir töskuna. Svo gaf hún snáðanumeinn „upper cut“ með þeirri vinstri og sagði um leið: Snaut- aðu heim til honnar mömmu þinnar. Stráknum brá greinilega því hún sá undir iljar honum á flóttanum niður Hverfisgötuna. „Ég varð ekkert hrædd við strákinn," sagði hún i samtali við DV. „Mér ofbauð bara svo þessi frekja í honum. Þetta sýnir það líka að þó við séum farin að eldast getum við varið okkur.“ Hvar eru tenn- umar mínar? Kunningi S-'.ndkornsrit- ara hringdi í hannumdag- ínnogsagöi honum sögu af manninokkr- umsemfórað; skemmtasérí ákveðnum klúbbi upp á Velli. Maðurinn, sem er á miðjum aldri, varð nokkuð öl v- aður og á endanum var honum skutl- að heim meðvitundarlitlum. Morg- uninn eftir hringdi hann í vini og kunningja og spurðiþá hvort þeir hefðu nokkuð fundið fölsku tennum- ar sínar. Enginn hafði haft spurnir af tanngarðinum en manninum var bent á að hringja í starfsfóik veitinga- staðarins og spyrja hvort þær hefðu nokkuð fundist á dansgólfinu eða í einhvetju vinglasinu. Maðurinn gerði að sjálfsögðu eins ogfyrir hann hafði verið lagt en á veitingastaðnum kannaðist enginn við að hafa fúndið tennumar. Seinna um daginn hringdi hann svo alsæll í vinahópinn aftur og sagðist hafa fundið tennurn- ar sínar. Þær höfðu ekki farið langt því þær fúndust undir rúmi manns- ins. Pylsur í milljónatali Fréttastofa Sjónvarpsgerði undirritun bú- vorusammngs-' insskiHíktog aðrirfjölmiðl- ar.Fréttinvar aðsjálfsögðu : myndskreytt ! : oggátuáhorf- endur barið augum ýmsar kjötegund- ir sem allar áttu það sameiginlegt aö hafa verið pakkað i umbúðír sem merktar voru einum söluaðila, eða SS. Menn hafa svona verið að velta því fy rir sér hvort fréttastofan sé far- in að auglýsa þessar vörur sérstak- lega fyrir SS og aðrir söluaðilar fai ekki inni í fréttatímanum. Ekki í framboði Súrea-listmn fékkekkíað bjóðaframi ; stúdenta-og háskólaráðs- kosningunum semframfórui: gærþráttfyrir ítrekaðartil- raunirtilaðfá framboðslistann samþykktan. Þar sem iila gekk að fá að bjóða firam gátu aðstandendur listans lítt unnið að stefnumörkun. Eitt af því sem sag- an segir að þeir hafi þó hugsaö sér að hafá í stefimskrá sinni var að leggja niður Lánasjóðinn og vera búnir að koma upp huggulegri stúd- entabyggð fyrír árið 3000. Það væri synd að segja að-stúdentar spáðu ekkiíframtíðina. ».»!**»!!» tafa?1' ;Wnjsít**** Umsjón: Jóhanna Margrét EinarsdóHir Fréttir Undirskriftalistar til stuðnings brottrekna bæjarstjóranum á Egilsstöðum: Breyta engu um aðégmunhætta - en sýna mér traust bæjarbúa, segir Sigurður Símonarson bæjarstjóri „Þessir undirskriftalistar koma ekki til með að breyta neinu fyrir mig. Ég er hræddur um að ég gæti ekki labbað inn í þetta starf aftur. En þetta er geysilega mikill stuðning- ur við mig og sýnir að a.m.k. bæj- arbúar bera traust til minna starfa," segir Sigurður Símonarson bæjar- stjóri á Egilsstöðum. Meirihluti bæj- arstjórnar hefur sagt honum upp störfum og segja ástæðuna skort á samstarfsvilja og trúnaðarbrest. Undirskriftalistar þar sem uppsögn Sigurðar er mótmælt ganga nú milli manna á Egilsstöðum. „Ég kannast ekki við neinar deilur eða samstarfsörðugleika við meiri- hluta bæjarstjómar og hef óskaö eft- ir nánari skýringum á uppsögninni. Þetta kom mér því mjög á óvart,“ segir Sigurður Sigurður hefur starfað sem bæjar- stjóri frá 1987 en eftir kosningamar síðastliðið vor voru skiptar skoðanir um endurráðningu hans. „Ég hafnaði þá endurráðningu til eins árs og taldi eðlilegra að skipta um bæjarstjóra á þeim tímapunkti en eftir að samkomulag náðist taldi ég að máhð væri úr sögunni,“ segir Sigurður. Meirihluti bæjarstjórnarinnar samanstendur af Framsóknarflokki og óháöum en Sigurður er flokks- bundinn alþýðuflokksmaður. „Það hefur aldrei farið neitt leynt og ég lýsti því yfir á sínum tíma þannig að menn hafa alltaf vitað hvar ég væri í póhtík. En ég get lýst því yfir með góðri samvisku að ég hef aldrei skipt mér af póhtík eftir að ég var ráðinn hingað sem bæjar- stjóri," segir Sigurður. Sveinn Þórarinsson, forseti bæjar- stjórnar, segir að fyrr eða síðar hefði komiö að uppsögn Sigurðar þar sem ekki var samstaða um ráðningu hans eftir kosningarnar. „Okkur þykir samstarfið ekki nógu hpurt og það er ákveðinn skortur á trúnaði. Ég vif ekki fara nánar út í það. En þetta er ekki pólitískt mál í sjálfu sér,“ segir Sveinn. -ns Jakob Pétursson kennari og Sigurbrandur sonur hans, til hægri, voru fyrstir til að leggjast við bryggjuna á bát sinum Bryndísi SH 271. Sturla Böðvarsson bæjarstjóri og Pétur Ágústsson, formaður hafnarnefndar, voru meðal þeirra sem tóku á móti þeim. DV-mynd Ingibjörg Ný f lotbryggja í Stykkishómi frigibjörg Hinriksdóttir, DV, Stykkishófrni: Ný flotbryggja var tekin í notkun hér í Stykkishófmi 6. mars sl. Flot- bryggjan er sænsk að uppruna, mjög vönduð að allri gerð og var send hingað í einingum. Króh flytur bryggjuna inn. Bryggjupallurinn er steyptur utan um plast og er mjög stöðugur. Nýja flotbryggjan er einkum heppi- leg fyrir triflueigendur, sem róa dag- lega, og eyjabændur sem eru fjöl- margir í Stykkishólmi. Pláss er fyrir 30 báta við bryggjuna og eru þau nær öll upppöntuð. Lögregla á ísafrrði lagði hald á um 300 myndbönd: Þýf i kom upp um út- leigu á klámspólum - myndbönd úr innbroti leiddu til lögregluaðgerða á videóleigu Lögreglan á Isafiröi lagöi hald á samtals um 300 myndbandssólur sem ætla mátti að væru með klámfengnu efni í síðustu viku. Eigandi mynd- bandaleigu í bænum hefur gengist við því að hafa leigt spólurnar út. Lögreglan upplýsti nýlega innbrot á níu stöðum á Isafirði. Við húsleit heima hjá einum þeirra, sem átti hlut að innbrotunum, fundust meðal ann- ars fjórar myndbandsspólur meö klámfengnu efni. Spólurnar voru frá myndbandaleigu sem var einn af þeim stöðum sem brotist hafði verið inn á. Lögreglan lét síðan til skarar skríöa í síðustu viku. Á sjálfri mynd- bandaleigunni fundust á annað hundrað spólur.' Eigandinn fram- vísaði síðan svipuðu magni af klám- fengnum spólum sem hann hafði geymt á heimih sínu. Hann gekkst við því að hafa leigt efnið út. Málið er enn í rannsókn og verður ákvörð- un tekin síðar um framgang þess. -ÓTT Heimastj ómarsamtökin: Stef na að framboði í ■■■■ ■ ■■■ ollum kjor- dæmum Fulltrúar Heimastjórnarsam- takanna úr öllum kjördæmum hittust í Borgarnesi um síðustu helgi og þar var formlega lýst yfir stofnun samtakanna. Stefha samtökin að framboði í öllum kjördæmum. I framkvæmda- stjórn samtakanna voru kosnir þeir Tómas Gunnarsson, Jón Oddsson og Sigurjón Þorbergs- son. í stjórnmálaályktun samtak- anna segir í aðalatriðum meðal annars að stefna þeirra sé að hverfa frá auknu misrétti mið- stýringar og samtryggingar nú- verandi valdhafa. Boða samtökin vörn og jafnrétti byggðanna. Völdin þurfi að færa nær fólki og byggðum og setja skýr ákvæði í sfjómarskrána um mannrétt- indi, skipan og starfshætti hæsta- réttar og endurskoða þurfi önnur helstu ákvæði stjórnarskrár og löggjafar. Eru samtökin á móti erlendri íhlutun hér á landi og aöildaðEvrópubandalaginu. -hlh Sauðfjárbænd- uruggandi Öm Þórarmsson, DV, fljótum: Á íjóröa hundrað manns sóttu almennan fund í félagsheimilinu Miðgaröi í Varmahlíð hér í Skagafirði á í síðustu viku þegar fulltrúar í sjömannanefnd gerðu grein fýrir tillögum sinum varð- andi framtiðarstefnu í sauðfjár- rækt. Talsverð gagnrýni kom fram á fundinum á tillögumar, einkum þann snögga samdrátt í fram- leiðslu sem boðaður er og stjóm- lausa sölu á greiðslumarki milli landshluta. Þó kom fram í máli bænda að þeir teldu ýmislegt í tillögunum jákvætt og gætu þær með nokkrum breytingum verið grunnur að nýjum búvörusamn- ingi. Það kom skýrt fram í málflutn- ingi sauðfjárbænda að þeir eru kvíðnir um framtíðina og vilja aö óvissuástandi um, hvaö mikiö hver bóndi kemur til með aö mega framleiða, ljúki sem fyrst þannig að hver og einn getí metið hvort búskapurinn gefi honum tekjur til að lifa af í framtíðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.