Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1991. Utlönd Gervityppi veldur uppnámi Kona nokkur í Ástralíu krefst bóta vegna streitu og andlegra óþæginda sem heldur óásjálegt gervityppi-hefur valdið henni. Konan vinnur á skrif- stofu en það er starfssystir hennar sem hefur typpið til sýnis fyrir gesti og gangandi uppi á skjalaskáp. Konan, sem ekki vill láta nafns síns get- ið, segir að bæði hún og maður hennar hafl truflast á geöi viö tilhugsun- ina um sýningargripinn. Um er að ræða jólagjöf sem starfssystirin kom með á skrifstofuna í ársbyrjun 1989. Þegar kom fram á sumar það ár gafst konan upp í vinnunni vegna geð- truflana sem hún hafði orðið fyrir. Hún reyndi að finna aðra vinnu, varð að vepja sem svarar tO um hálfrar milljónar íslenskra króna til endur- menntunar. Þá taldi hún sig einnig þurfa að fara á námskeið í innan- hússarkitektúr til aö geta á ný hugsað fyrirkomulag innanstokksmuna án þess að hafa sýnina frá skrifstofunni alltaf fyrir hugskotssjónum. Nú viU hún fá þennan kostnað bættan. Forsetaf rúin vill skilnað Carlos Menem, forseti Argentínu, þarf nú að fást við konu sína í skilnað- armálí auk þess að berjast við nánast óviðráðanleg vandamál í land- stjorninni. Simamynd Reuler Zulema Yoma, eiginkona Carlosar Menem Argentínuforseta, er ákveðin í að fara fram á skilnað og sakar mann sínn um að hafa brotið öll helstu ákvæði hjúskaparsáttmálans. Lögmaður hennar segir að úr þessu verði ekki fallið frá kröfum um skilnað en forsetin hefur reynt að breiða yfir deiiumál þeirra til að forðast pólitisk áfóU. í Argentínu er þó aitalað að forsetahjónin séu skilin aö skiptum og forsetinn frægur fyrir kvensemi og framhjáhald. Menem á þegar við mikil vandamáf að stríða í stjóm landins. Hann viU ekkert láta hafa eftir sér um skilnaðarmálið og talsmaður hans segir að um einkamáf sé að ræða. Það komi forsetahjónunum einum við. Lög- maður frúarinnar segir hins vegar aö hún hafi orðið fyrir opinberri auð- mýkingu með framferði forsetans og fái ekki uppreisn æru nema með skilnaði við hann. Argentísku forsetahjónin hafa verið gift í 25 ár og allan þairn tíma hafa farið miklar sögur af erfiðleikum í hjónabandinu. í júní á síðasta ári bannaði Menem konu sirrni að koma í forsetahöllina. Ákvörðun forsetans mæltist iUa fyrir og nú sýna skoðanakannanir aö hann er oröinn eínn óvinsælasti forseti Argentínu ffá upphafi. Stærsti froskurinn í Ástralíu Stjórnendur þjóðgarða nærri Brisbane i Astralíu hafa mikiar áhyggjur af fjölgun froska í göróunum. Því var ákveðið að efna til „almennra froskaveiða" í von um að hægf væri að fækka þessum dýrum eitthvað. Á fyrsta degi veiðanna náðust 1057 froskar og voru þeir fluttir á brott. Stærsti froskurinn reyndist vega um hálft kíló og fékk hann nafnlð Stóra Berta. Simamynd Reuter Laxveiðar á Nova Scotia í hættu Fiskifræðingar segja að mörg þúsund laxar muni drepast í einni af helstu laxveiðiánni á Nova Scotia við austurströnd Kanada ef ekkert verður að gerL Ástæðan fyrir þessu er gríðarleg mengun í ánni. Undanfar- in ár hefur verið unnið ötullega að því að hreinsa ána og afsýra vatnið í henni meö kalki. Þetta hefur boriö þann árangur aö lax er tekinn að ganga í ána á ný en nú hefur stjórnin ákveðið að hætta hreinsunarstarfinu. Það er einkum súrt regn sem hefur valdið því aö fiskur hætti að ganga í Austurá, en svo nefnist áin. Nú hafa stjómvöld í Bandaríkjunum og Kanada ákveðiö að vinnan saman gegn mengun andrúmsloftsins og koma þannig í veg fyrir aö regn sýrist. Náttúruverndarmenn eru hins vegar ósáttir viö aö Kanadastjórn skuli nota tækifæriö og hætta að verja fé til hreinsunar fiskivatna. Stjómin segir að heildarframlög til mengunar- vama séu óskert en nýjar aðferðir hafi verið teknar upp. Serbneski stjórnarandstöðuleiðtoginn Vuk Draskovic sem yfirvöld létu lausan úr haldi í gær samkvæmt kröfum mótmælenda. Á meðan fimmtíu þúsund manns komu saman í Belgrad til að fagna frelsi hans var greint frá að júgóslavneski herinn hefði lagt til aðgerðir til að tryggja öryggi landsins. Simamynd Reuter Júgóslavía: Óttast valdbeit- ingu hersins - gengið að kröfum mótmælenda í Serbíu Samtímis því sem tugir þúsunda mótmælenda í Belgrad í Júgóslavíu fögnuðu því í gær að serbneski stjórnarandstöðuleiðtoginn Vuk Draskovic var látinn laus úr haldi undirbjó júgóslavneski herinn að- gerðir til að tryggja öryggi í landinu. Serbía og Svartfjallaland eru einu lýöveldin í Júgóslavíu þar sem kommúnistar em enn við stjóm. Þegar leiðtogar Serbíu, sem njóta stuðnings júgóslavneska hersins, fóm fram á aðstoð í óeirðunum í Belgrad um helgina vom skriödrek- ar sendir á vettvang en þeir voru á brott sólarhringi síðar. Tveir menn létu lífið og yfir áttatíu særðust í átökum við lögreglu á laugardaginn. í kjölfar þessara atburða kröföust mótmælendur afsagnar fimm stjórn- enda sjónvarpsins og lausnar stjórn- arandstöðuleiðtoga sem handtekinn var á laugardaginn. í gær uröu serb- nesk stjómvöld við þessum kröfum mótmælenda. Ennfremur var skipuð nefnd sem rannsaka á atburöina síð- Frá mótmælafundi í miðborg Belgrad i gær. Símamynd Reuter astliðinn laugardag. En kreppan í Júgóslavíu virðist samt ekki á enda. Á meðan mótmæl- endur fögnuðu í Belgrad tilkynnti forseti landsins, Borisav Jovic, að á skyndifundi yfirvalda hefði herinn lagt til aðgerðir til aö tryggja öryggi landsins. Forsetinn greindi ekki nán- ar frá tillögunum. Með hliðsjón af þessum skyndi- fundi og íhlutun hersins síðastiiðinn laugardag óttast leiðtogar í Slóveníu og Króatíu að neyðarástandslög verði sett á í öllu landinu og að að- gerðir hersins á laugardaginn hafi aðeins verið fyrsta skrefið í átt að valdbeitingu. Jovic forseti sagði að yfirmenn hersins kæmu saman aftur á fimmtudag og að þeir myndu þá kynna nýjar tillögur. Fyrr um daginn hafði forsetinn sagt að starfsemi op- inberra ríkisstofnana lægi niðri og að öryggi í sumum hlutum landsins væri hætta búin. Reuter Albanía: Stjórnmálasamband við Bandaríkin - pólítískum fóngum gefnar upp sakir Yfirvöld í Albaníu hafa samþykkt aö láta lausa alla pólítíska fanga og að taka upp stjórnmálasamband við Bandaríkin eftir 52 ára hlé. í yfirlýs- ingu yfirvalda var ekki greint frá fjölda fanganna en áætlað er að þeir séu um tvö hundruð. Sumir voru settir í fangelsi fyrir það eitt að reyna að flytja úr landi. Tengslum Bandaríkjanna og Alba- níu var rift eftir að ítalir réðust inn í landið og hemámu það 1939. Sex ámm síðar fóru viðræður banda- rískrar sendinefndar og albanskra yfirvalda út um þúfur þar sem Al- banir neituðu að viöurkenna samn- inga sem undirritaðir voru fyrir seinni heimsstyrjöldina. Albönsk yfirvöld sökuöu síðar Bandaríkja- stjórn um að reyna að koma komm- únistum frá völdum. í stjómartíð Envers Hoxha ein- angraðist Albanía nær algjörlega frá umheiminum. Hoxha sleit stjórn- málasambandi við Sovétmenn vegna hugmyndafræöilegs ágreinings. Eftirmaður Hoxha, Ramiz Alia, sem tók við völdum 1985, tók í fyrra upp stjómmálasamband við Sovét- menn á ný. Alia hefur komiö á ýms- um umbótum og leyft fiölflokkakerfi. Fyrstu frjálsu kosningarnar fara fram 31. mars næstkomandi. En þrátt fyrir tilraunir Alia til að endurnýja tengslin við umheiminn og koma á umbótum heima fyrir hafa tuttugu þúsund albanskir flóttamenn streymt til Ítalíu undanfamar tvær vikur. Hundruð Albana hafa reynt að komast úr landi til Júgóslavíu. Einnig hefur fjöldi reynt að afla sér vegabréfsáritana til Vesturlanda. í yfirlýsingu frá albanska innan- ríkisráðuneytinu í gærkvöldi var því vísað á bug aö erlend sendiráö í Tir- ana, höfuðborg Albaníu, yrðu opin fyrir væntanlegum flóttamönnum á föstudaginn. Var varað við því að lögreglan myndi koma í veg fyrir að reynt yröi að komast inn í sendiráð- in. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.