Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1991, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 13. MARS 1991.
49
Sólarlandaferðir eru víðast hvar á 10-25% lægra verði hjá ferðaskrifsíofunum heldur en i fyrra.
DV-mynd GVA
Sólarlandaferðir:
Bj artsýni
ríkjandi
- hjá ferðaskrifstofunum með bókanir í ár
Þeir sem hyggja á sólaralandaferð-
ir á þessu ári hafa tekið eftir því að
verð á þeim ferðum er lægra nú en
í fyrra. Lækkun hefur orðið hjá öll-
um ferðaskrifstofum á þessum ferð-
um. Margt hefur þar hjálpað til.
Gengisáhrif hafa verið ferðaskrif-
stofunum hagstæð og þá sérstaklega
hvað varðar gengi dollarans. Margar
ferðaskrifstofanna hafa náð meiri
hagkvæmni í rekstri með aðhaldsað-
geröum og betri samningar hafa
náðst á flugi og gistingu. Þeir menn
sam rætt var við á ferðaskrifstofun-
um voru sammála um að ekki yrði
um samdrátt að ræða í ferðum nú,
miðað við árið í fyrra og sumir töluðu
jafnvel um aukningu á bókunum.
Aukin hag-
kvæmni innanhúss
Hljóðið var gott í Tómasi Þór Tóm-
assyni, sölustjóra hjá Úrval/Útsýn.
„Okkur hefur tekist að ná fram
lækkun á sólarlandaferðum frá í
fyrra og eru margir samverkandi
þættir þess valdandi. Við höfum náð
mikið betri samningum nú, bæði á
flugi og gistingu. Við höfum einnig
náð meiri hagkvæmni innanhúss hjá
okkur i Úrval/Útsýn sem hjálpar
einnig til.
Gengið hefur verið hagstætt og lág
verðbólga gerir það að verkum að
auðveldara er að fylgjast með kostn-
aði og gera áætlanir. Við erum mjög
ánægðir með árið í ár og það stefhir
í að verða betra en í fyrra.
Portúgal er í mikilli sókn hjá okkur
og bókanir eru einnig fleiri til MaU-
orca. Bókanir til Costa del Sol eru
hins vegar svipaðar og í fyrra. Okkur
tókst að ná fram töluverðri lækkun
á öllum sólarlandaferðum okkar en
einhver litil hækkun hefur orðið á
öðrum ferðum. Það er greinilegt að
sólarlandaferðir eru að ná sér upp
aftur, eftir nokkurn samdrátt undan-
farin ár“ sagði Tómas.
Helgi Daníelsson, deildarstjóri
hópferðadeUdar hjá Samvinnuferð-
um/Landsýn sagði að bókanir væm
svipaðar og á síðasta ári. „Bókanir
era farnar að nálgast það sama og í
fyrra, en árið í fyrra var metár hjá
okkur á S/L. Ástæða þess að okkur
tókst að lækka verðið á okkar sólar-
landaferðum er að mestu leyti hag-
stæðari samningar sem við náðum á
Spáni og á Ítalíu. Einnig höfum viö
náð betri samningum í leiguflugi.
Aðrar ferðir hafa hins vegar hækk-
Neytendur
að eitthvað í samræmi við verðbólgu.
Gengisáhrif eru ekki mikil. Dollar
hefur að vísu lækkað, en á móti kem-
ur að peseti, lírur og flórínur hafa
hækkað á sama tíma. Bókanir á sum-
arhúsum eru eitthvað færri, sérstak-
lega í Frakklandi og í Danmörku.
Sumarhúsin í Hollandi standa þó
alltaf fyrir sínu.
Ég hef ástæðu til að ætla að góða
veðrið á íslandi undanfarnar vikur
hafi orðið til þess að bókanir eru
færri en annars hefði orðið. Við erum
samt sem áður í heildina séð, aUs
ekki svartsýnir á þetta ár,“ sagði
Helgi að síðustu.
Eldsneyti keypt
í dollurum
Andri Már Ingólfsson, forstjóri
ferðaskrifstofunnar Veraldar hafði
svipaða sögu að segja. „Við höfum
skrúfað niður innlendan kostnað og
aukakostnaður er nú orðinn enginn
innan fyrirtækisins. Við höfum náð
stórbættum samningum í flugi og
gistingu en sú samningsgerð tók
reyndar marga mánuði. Dollarinn
hefur auk þess lækkað og allt þetta
hefur orðið til þess að verð á sólar-
landaferðum okkar er nú allt að 25%
lægra en í fyrra.
Lítil hreyfing var á bókunum á
meðan á Persaflóastríðinu stóð en
síðan því lauk fyrir tveimur vikum
síðan hefur bókunarflóðið verið mik-
ið. Dreifmgin á staði er svipuð hjá
okkur nú og í fyrra en töluvert er
um bókanir til Irlands sem er nýr
áfangastaður hjá okkur. írland er
ódýrasti sumarleyfisstaðurinn í ár
hjá okkur. Verðið á öðram ferðum
en sólarlandaferðum er eitthvað
hærra en í fyrra, í samræmi við verð-
bólgu,“ sagði Andri Már.
Engilbert Gíslason, markaðsstjóri
hjá Atlantik lagði áherslu á að tvö
atriði hefðu öðrum fremur stuðlað
að lækkun á verði sólarlandaferða.
„Við höfum náð mun betri samning-
um erlendis og gengisþróun dollars
hefur verið hagstæð á árinu. Elds-
neyti er yfirleitt keypt í dollurum og
annar kostnaður við flugið og þess
vegna hefur lækkun dollarans áhrif
til lækkunar.
Verðlækkunin á sólarlandaferðum
hjá okkur er á bilinu 10 til 15%. Bók-
anir nú era svipaðar og á tveimur
síðustu áram en þess ber að geta að
mesti skriðurinn á bókunum er í
kringum páskana. Mikil ásókn er að
jafnaði í Mallorcaferðir og einnig til
Möltu sem er nýr áfangastaður hjá
okkur," sagði Engilbert.
Flestar ferðaskrifstofurnar hafa
greinilega gert átak til að auka hag-
kvæmni innanhúss. Bókanir stefna
víðast hvar í það sama, eða meira en
á síðasta ári. Gengisþróun og lág
verðbólga hafa einnig verið ferða-
skrifstofunum hagstæð. Bjartsýni er
greinilega ríkjandi á þessum mark-
aði. ÍS
Lífsstm
Afruglarar fyrir sjónvarp:
Töluvert
um bilanir
Blaðamaður Neytendasíðu DV
hefur haft spurnir af töluvert hárri
bilanatíðni á algengustu tegund
afruglara fyrir sjónvarp sem er á
markaðnum. Svo virðist sem þessi
tegund afruglara eigi vanda til að
hitna mikið með þeim afleiðingum
að þéttar í honum bili. Nafn af-
raglarans er „TUDI 12“ og hefur
verslunin Heimilistæki hf. selt um
30-35 þúsund stykki af þeirri teg-
und. Algengur kostnaður við við-
gerð á þessari bilun er í kringum
3.000 krónur.
Ólafur Ingi Ólafsson er verkstjóri
á verkstæði Heimilistækja. Hann
upplýsti að á markaðnum væra
þrjár tegundir afruglara. Fyrst
hefði komið á markaðinn tegund
sem nefnd er „Discret" og væri bil-
anatíðnin á honum ekki há. Síðan
er tegundin TUDI12 sem er sá al-
gengasti á markaðnum og svo virt-
ist sem bilanatíðnin á honum væri
meiri en á hinum tegundunum.
Nýjasta tegundin, TUDI 14 hefur
ekki bilað mikið.
í hveijum afruglara eru nokkur
hundruð þétta. Afruglararnir ættu
það til að hitna mikið og það virð-
ist í sumum tilfellum valda
skemmdum á einhverjum af þétt- 1
unum. Verkstæðið hefði tekið upp
á því að bora göt í öll þau tæki sem
hefðu komið inn til viðgerðar af
þessum sökum, til að auka kæli-
getu afruglarans.
Ólafur Ingi tók það fram að oft-
lega geymdi fólk afruglarann inni
í skápum eða hillusamstæðum,
sem gæti hindrað eðlilega loftkæl-
ingu. Hann taldi ekki útilokað að
það gæti valdið bilanatilfellum sem
þessum.
Blaðamaður DV hafði spurnir af
því að franskir framleiöendur
tækjanna hefðu verið upplýstir um
málið og há bilanatíöni borin undir
þá. Þeirra svör voru á þann veg að
bilanatíðnin á TUDI12 væri innan
eðlilegra marka og framleiðendur
þeirra því á engan hátt bótaskyldir.
Ólafur Ingi staðfesti það. Blaða-
maður reyndi að fá uppgefið
hversu margir afruglarar hefðu
komið í viðgerð með bilaðan þétti.
Ólafur Ingi upplýsti að þær tölur
lægju ekki fyrir, þar sem ekki hefði
verið sérstaklega fylgst með því.
Stafab
skrafab
L y k i l l a ð l e y n d a r m á l i
Þú getur fylgst meb þessum spennandi leik á
útvarpsstöbinni FM 957 á hverjum degi íþœtti
Ágústar Hébinssonar milli kl. 13.00 og 16.00.
Notabu þennan miba til ab finna rétta orbib og þú
getur orbib utanlandsferb ríkari.
Þú hlustar bára á FM 957 og verbur meb í leiknum.
Orð/ð sem vib leitum ab í dag:
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 II 12 13 14
□ □□□□□□□□□□ □□□
15 16 11 I* 1’ 2(1 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35
□ □□□□□□□□□□□□□ □□□□□□□
Nafn: _____________
V T7*
f n
«|5
Sendist til:
AÐ OG SKRAFAÐ,
FM 957, P.O. BOX 9057,
129 REYKJAVÍK.