Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Page 2
2
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991.
Fréttir
25 ára karlmaður dæmdur 1 eins árs fangelsi:
Smyglaði 200grömmum af
amf etamíni í endaþarmi
meintur flármögnunaraðili með langan sakaferil neitaði og var sýknaður
Sakadómur í ávana- og fíkniefna-
málum hefur dæmt 25 ára karlmann
í eins árs fangelsi fyrir aö hafa staðið
að innflutningi á 200 gömmum af
amfetamíni frá Amsterdam árið 1989.
Maðurinn gekkst fullkomlega við
broti sínu og ákæruatriðum. Annar
maður, 33 ára Reykvíkingur, sem
einnig var ákærður og hefur mjög
langan sakaferil, aðallega vegna
fíkniefnamála, neitaði á hinn bóginn
öllum sakargiftum. Hann var ákærð-
ur fyrir að hafa lagt fram 110 þúsund
krónur til innkaupaferðarinnar, sagt
hinum fyrir um innkaupsstað og
greitt honum síðan fyrir innkaupa-
ferðina með 80 grömmum af hassi
og nokkrum grömmum af amfetam-
íni. Þessi maður var sýknaður.
Mennirnir voru fyrrum skipsfélag-
ar á fiskibát og því kunningjar. Máls-
atvik, að sögn þess sem var dæmdur
í fangelsi, voru að hann var orðinn
peningalaus og heimsótti kunningj-
ann snemma árs 1989. Þar sem sá
maður var fíkniefnasali færði hann
í tal hve mikinn gróða hann fengi
fyrir innflutning eiturlytja. Menn-
irnir sammæltust síðan um að sá
fyrrnefndi færi til Amsterdam um
helgi til aö kaupa 200 grömm af am-
fetamini og myndi sá síðarnefndi
fjármagnaða ferðina, hótelkostnað
og fleira.
Hinn dæmdi maður sagðist hafa
flogið út og gefið sig þar aö ákveðnum
manni í „samlokusjoppu" við
Damstraat í Amsterdam. Þar fékk
hann 200 grömm af amfetamini. Þetta
setti hann í sjö smokka og „tróð þeim
upp í endaþarminn" á sér brottfarar-
daginn til íslands. Þegar hann kom
til Islands kvað hann tollverði hafa
gert á sér líkamsleit en þeir ekkert
fundið.
Eftir að fíkninefnin gengu niður af
manninum afhenti hann þau á heim-
ili hins meinta íjármagnara. Fyrir
innflutninginn fékk hann síðan 80
grömm af hassi, nokkur grömm af
amfetamíni og 10 þúsund krónur. Á
næstu dögum var hann handtekinn
á Óshlíðarvegi, skammt frá Bolung-
arvík, en meintur fjármagnari var
handtekinn í Reykjavík.
í Sakadómi var sá sem fór i ferðina
til Amsterdam dæmdur fyrir ofan-
greindan innflutning. Auk þess þótti
fullsannað að árið 1988 hefði hann
selt og gefið ótilgreindum hópi fólks
á ísafiröi og Bolungarvík um 30
grömm af amfetamíni sem mun hafa
verið í eigu Englendings. Við ákvörð-
un refsingar var tekið mið af því hve
samvinnuþýður hann var við að
gangast við brotum sínum. Meintur
fjármögnunaraðili var sýknaður
vegna skorts á sönnunum. Bjarni
Stefánsson dómarafulltrúi kvað upp
dóminn. -ÓTT
Rikisstjómin boöuö til fundar á morgun:
Island aftur
með í viðræð-
unum um EES
Ríkisstjórnin kémur til fundar
annað kvöld til aö ræða áfram-
haldandi þátttöku íslands í viðræð-
um EFTA og EB um Evrópska
efnahagssvæðið. Að undanfórnu
hefur íslenska sendinefndin ekki
tekið þátt í þessum viðræðum til
að leggja áherslu á þá afstöðu ís-
lendinga að ekki komi til greina aö
skipta á aðgangi útlendinga að is-
lenskri fiskveiðilögsögu og toll-
frjálsum aðgangi með íslenskar
vörur inn á markaði EB.
Búist er við að ríkisstjórnin veiti
íslensku sendinefndinni endurnýj-
að umboð til að ljúka samningum
um Evrópska efnahagssvæðið.
Ekki verður þó hvikað frá fyrri
afstööu íslands varðandi fiskveiðar
hér við land. Náist samkomulag
innan ríkisstjórnarinnar um fram-
hald viðræönanna mun samninga-
nefnd ísíands taka aö nýju þátt í
viðræðum EFTA og EB þegar í
næstu viku. Formaður íslensku
nefndarinnar er Hannes Hafstein.
-kaa
Jóhann Már Maríusson, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, og Halldór Jónatansson fara yfir úfboð sem opnað var
vegna mannvirkjagerðar fyrir Fljótsdalsvirkjun í gær. Útboðið var í þremur þáttum: aðrennsiisgöng, stöðvarhús
og frárennsli og Eyjabakkastífla og inntaksmannvirki. Lægsta tilboðið átti sænska fyrirtækið NCC International
AB. Tilboð þess í alla þrjá þættina hljóðar upp á samtals tæplega 6.100 milljónir króna. Samstarfsfyrirtæki NCC
eru Hagvirki og norska fyrirtækið Statkraft. DV-mynd Brynjar Gauti
Slysið í Bretlandi:
Einn liggur
þungthaldinn
íslendingurinn, sem lá meðvitund-
arlaus á Royal Exeter sjúkrahúsinu
í gær eftir bílslysið aðfaranótt
fimmtudagsins, var enn þungt hald-
inn þegar síðast fréttist í gærkvöldi.
Fjórir félaga hans voru á batavegi
en sá fimmti útskrifaöist af sjúkra-
húsinu á fimmtudag. -ÓTT
Olíuverðlækkar
-bensín óbreytt
Verðlagsráö hefur fallist á óskir
olíufélaganna um lækkun á gasolíu.
Verðið lækkar um 12,6 prósent - lítr-
inn lækkar því úr 24,60 í 21,50 krón-
um. Bensínverð breytist ekki en verö
á svartoliu mun hins vegar lækka
um 16,1 prósent. -ÓTT
Þorsteinn Pálsson:
Kannaróeðlilegar
ráðningarÓlaÞ.
Þorsteinn Pálsson hefur óskað eftir
greinargerð um tilteknar embættis-
ráðningar Óla Þ. Guðbjartssonar í
ráðherratíð hans. Þorsteinn er að
kanna hvort óeðlilega hafi veriö stað-
iö að ýmsum stöðuveitingum. Lög-
reglustjórinn í Reykjavík hefur ósk-
að eftir að Þorsteinn staðfesti skipu-
rit þar sem ekki er gert ráð fyrir
hinni umdeildu stöðu aðstoðaryfir-
lögregluþjóns. -ÓTT
Hagnaöur Bifreiðaskoðunar 85,7 milljónir eftir skatta:
„Þetta er ekki óskapnaður“
Aðrar tekjur
Nýskráning
437,9
SkodjÁ
ökutækja
249,5
agnaður Æ Hagnaður Eigið fé
/rir skdtíár eftirskatta
Svona skiptast tekjur Bifreiðaskoðunar á síðasta ári.
Karl Ragnars, forstjóri Bifreiða-
skoðunar Islands hf„ segir að hann
geti ekki fallist á að fyrirtækið sé
kallað einkavædd einokun eöa að
rætt sé um það sem einhvern
óskapnað sem sé hvorki einkafyrir-
tæki, samvinnufyrirtæki eða ríkis-
fyrirtæki.
„Þarna eigið þið blaðamenn
nokkra sök. Þetta er ekki óskapnað-
ur heldur þjóöþrifafyrirtæki. Þetta
er verktakafyrirtæki sem hefur
samning við stjórnvöld um að sinna
þessu hlutverki og stjórnvöld koma
með þá gjaldskrá sem fyrirtækið
vinnur eftir. Þannig er hagsmuna
neytenda gætt í hvívetna," segir
Karl.
Umræður um eðli fyrirtækisins
Bifreiðaskoðunar íslands hf. eru að
komast í brennidepil eftir að hagnað-
ur fyrirtækisins á síðasta ári nam
um 32 prósentum af heildartekjum.
Svo hátt hagnaðarhlutfall sýna sára-
fá hlutafélög í landinu.
Hagnaður fyrirtækisins fyrir
skatta var 141,1 milljón króna. Hagn-
aður eftir skatta var um 85,7 milljón-
ir króna. Heildartekjur voru 437,9
milljónir króna. Eigið fé fyrirtækis-
ins er 249,5 milljónir króna og er eig-
infjárhlutfalliö um 48 prósent. Það
er mjög hátt hlutfall.
Bifreiðaskoðun íslands var stofnuö
á miðju ári 1988 og tók til starfa í
ársbyrjun 1989. Jón Sigurösson, nú-
verandi viöskiptaráðherra og þáver-
andi dómsmálaráðherra, lagði fram
stjórnarfrumvarp um stofnun fyrir-
tækisins. Frumvarpið var samþykkt
af meginþorra þingmanna.
Ríkið á helming hlutaíjárins í fyrir-
tækinu, tryggingafélögin fjórðung,
og ýmsir aðrir eins og bílaumboö,
bifreiðaverkstæöi, FÍB og Bilgreina-
sambandiö, eiga fjóröung.
Stjómarformaður Bifreiöaskoðun-
ar íslands hf. er Þorsteinn Geirsson,
ráðuneytisstjóri í dómsmálaráöu-
neytinu.
Karl segir að ekki megi horfa fram
hjá því að með Bifreiðaskoðun ís-
lands sé veriö að reisa úr rústum
starfsemi Bifreiðaeftirlits ríkisins og
gera alvöru úr bílaskoöun hérlendis.
„Það er ekki nokkur einasti maður
sem spyr að því hvernig það starf
gangi. Við erum aö reyna að segja frá
því að við séum búnir að byggja
myndarlegar skoðunarstöðvar í
Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöð-
um og áformum aö byggja skoðunar-
stöövar á fjórum stöðum, ísafirði,
Borgarnesi, Húsavík og Selfossi á
þessu ári.“
- Finnst þér samt ekki þessi mikli
hagnaður fyrirtækisins benda til
þess að gjaldskráin sé allt of há?
„Fyrirtækiö þarf á þessum hagnaði
að halda ef því á að takast að byggja
upp skoðunarstöövar út um allt land
af eigin aflafé og komast almennilega
á laggirnar eins og stjórnvöld ætlast
til. Þegar fram líða stundir og fyrir-
tækinu vex fiskur um hrygg mun
hagnaðurinn minnka. Stefnt er aö
því að hann verði ekki meiri en að
borga eölilegan 'arð af hlutabréfum.
Það má segja aö þegar sé byrjaö á
þessu. Gjaldskráin í ár er sú sama
°g \ fyrra sem þýöir í raun gjald-
skrárlækkun," segir Karl Ragnars. ■
-JGH