Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Blaðsíða 47
, L^UGARD^GJUR .4. MAÍ -L991. 59 Afmæli Guðvarður Kjartansson Guðvarður Kjartansson leiðbein- andi, Hjallavegi 5 á Flateyri við Önundaríjörð, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Guðvarður er fæddur á Flateyri og ólst þar upp. Hann útskrifaðist úr Samvinnuskólanum á Bifröst árið 1960. Eftir það vann hann hjá ýmsum samvinnufyrirtækjum vítt og breitt um landið, lengst hjá Drátt- arvélum hf. sem gjaldkeri og inn- heimtustjóri frá 1963 til 1967. Hann var kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Súgfirðinga 1970 til 1973, bókari hjá Kaupfélagi Önfirðinga 1978til 1984, aðalbókari hjá Kaupfélagi Árnes- inga 1984 til 1989. Eftir það hefur hann verið leiðbeinandi við Grunn- skólann á Flateyri. Einnig hefur Guðvarður fengist við sjómennsku á milli annarra verka. Guðvarður var formaður Verka- lýðsfélagsins Skjaldar á Flateyri í eitt ár og varamaður í stjórn Kaup- félags Önfirðinga 1979 til 1983. Hann var formaður stjórnar kjördæmis- ráðs Alþýðubandalagsins á Vest- fjörðum í þrjú ár og formaður stjórnar kjördæmisráðs sama flokks á Suðurlandi í eitt ár. í mið- stjórn Alþýðubandalagsins í um fimm ár. Þá átti hann sæti í hrepps- nefnd Flateyrarhrepps 1978 til 1982 og var oddviti í rúmt ár. Fjölskylda Guðvarður er ókvæntur og barn- laus. Guðvarður á fimm systkini. Þau eru Sigurlaug Svanfríður hús- móðir, Hegranesi 34 í Garðabæ, f. 28.4.1943. Hún var gift Grétari Har- aldssyni hrl. en þau slitu samvist- um. Þau eiga þrjú börn og eina fóst- urdóttur. Berta Guðný, Gilsbakka 8 á Nes- kaupstað, f. 23.7.1945. Maður henn- ar er Guðmundur Þorleifsson út- gerðarmaður og eiga þau tvær dæt- ur. Berta átti eina dóttur fyrir hjónaband. Hlöðver hdl., Flókagötu 6 í Hafn- arfirði, f. 16.8.1948. Kona hans er Sveinbjörg Hermannsdóttir hjúkr- unarfræðingur og eiga þau fjögur börn auk þess sem Hlöðver átti eina' dóttur fyrir hjónaband. Sólveig Dalrós, skrifstofumaður á Flateyri, f. 14.6.1951. Maður hennar er Kristján J. Jóhannsson, sveitar- stjóri á Flateyri, og eiga þau tvo syni. Elín Oddný, húsmóðir á Ólafs- firði, f. 16.10.1954. Maður hennar er Jóhann Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ól- afsfjarðar, og eiga þau eina dóttur. Foreldrar Guðvarðar voru Kjart- an Ó. Sigurðsson, sjómaður á Flat- eyri, f. 21.9.1905, d. 24.6.1956 og og kona hans Guðrún P. Guðnadótt- ir verkakona f. 9.9.1916. Ætt Kjartan var sonur Sigurðar Jó- hannsonar frá Hafnardal á Langa- dalsströnd við ísafjarðardjúp og Guðbjargar Einarsdóttur frá Sela- kirkjubóli í Önundarfirði. Foreldrar Sigurðar voru Andrea Sigurlaug Sigurðardóttir og Jóhann Guð- mundsson, síðast b. á Sandnesi við ísafjarðardjúp. Langamma Guð- bjargar Enarsdóttur var Sigríður Þóroddsdóttir, beykis á Patreksfirði, en bróðir hennar var Þórður faðir Jóns Thoroddsen, skálds og sýslu- manns. Frá Þórði er ætt Thorodds- enarakin. Foreldrar Guðrúnar, móður Guð- varðar, voru Albertína Jóhanns- dóttir frá Kvíanesi í Súgandafirði og Guðni J. Þorleifsson frá Norður- eyri í Súgandafirði. Foreldrar Al- bertínu voru Jóhannes Guðmunds- son, b. að Kvíanesi og Guðrún Jóns- dóttir, kona hans. Foreldrar Guðna voru Þorleifur Sigurðsson, ættaður úr Súgandafirði, og Gunnjóna Ein- arsdóttir úr Mýrahreppi í Dýrafirði. Meðal systkina Þorleifs var Valdi- mar faðir Sigríðar, konu Einars Þorbergssonar á ísafirði. Meðal af- komenda hans eru bræðurnir Sig- urður Þ. Salvarsson dagskrárgerð- armaður og Gunnar, skólastjóri Heyrnleysingjaskólans. Einnigeru Sigríður Stefánsdóttir, forseti bæj- arstjórnar á Akureyri, og Einar Kárason rithöfundur afkomendur hans og sömuleiðis Einar S. Einars- son, forstjóri Visa-íslands. Guðvarður verður að heiman á afmælisdaginn. Ingibjörg Jónsdóttir og Oskar Jónsson Ingibjörg Jónsdóttir, foringi í Hjálpræðishernum, til heimilis aö Freyjugötu 9, Reykjavík, verður sjötug á morgun. Eiginmaður hennar, Óskar Jónsson, foringi í Hjálpræðishernum, verður sjötíu og fimm ára þann 4.6. nk. Veisla verður haldin þeim báðum til heið- urs í Samkomusal Hjálpræðishers- ins, Herkastalanum þann 5.5. nk. milli klukkan 15 og 20.00, en þau verða á ferðalagi þann 4.6. nk. Ingibjörg fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hún var vígð sem herkona í Hjálpræðisherinn á föstudaginn langa 1937 en varð for- ingi árið 1942. Hún og maður henn- ar hafa unnið mikið og gott starf á vegum Hjálpræðishersins. Fyrsta skipun þeirra var til ísafjarðar en síðan hafa þau hjónin starfað bæði í Reykjavík og á Akureyri. Árin 1947-49 störfuðu þau í Ringköbing og Fredericiu í Danmörku þar sem þau höfðu ábyrgð á flokksstarfinu. Þau komu heim aftur til Akureyrar 1949 og störfuðu sem flokksstjórar þar og síðar í Reykjavík. Þá voru þau flokksstjórar í Noregi 1955-59, fyrst í Tönsberg og síðan í Gjövik. Þau veittu forstöðu Gesta- og Sjó- mannaheimilinu í Reykjavík 1959-67, veittu forstöðu drykkju- mannaheimili í Björgvin 1967-69 og voru síðan fangelsisritarar Hjálpræðishersins í Noregi. Þá voru þau leiðtogar Hjálpræðis- hersins á íslandi og í Færeyjum 1972-78 en voru svo send til leið- togastarfa í Noregi. Ingibjörg og Óskar létu af opin- berum störfum 12.8.1981 og settust að í Reykjavík en hafa samt starfað að mikilli þrautseigju hér öll árin síðan og hafa m.a. í vetur haft ábyrgð á starfinu við Reykjavíkur- flokk. Forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttir, afhenti Óskari Riddarakross Fálkaorðunnar 1.1.1987 fyrir störf þeirra hjóna að líknar- og félags- málum í Hjálpræðishernum. Ingibjörg og Óskar giftust 13.2. 1943. Óskar fæddist 4.6.1916 en hann er sonur Jóns Jónssonar frá Veiði- leysu á Ströndum, húsgagnasmiös í Reykjavík, og Agöthu Larsen frá Noregi, húsmóður. Óskar vígðist í Hjálpræðisherinn 20.9.1932 og varð foringi 25.6.1936. Systkini hans eru Bertha Fuma- galli; Aðalsteinn sem er látinn; Betsysemerlátin. Systkini Ingibjargar: Ester Jóns- dóttir, sem er látin; Jakobína Jóns- dóttir, sem er látin; Sigríður Jóns- dóttir; Pálína Jónsdóttir; Ragnhild- ur Jónsdóttir, sem dó í frum- Maron Björnsson verkamaður, Asa- braut 3, Sandgerði, veröur áttræður á morgun. Starfsferill Maron fæddist á Hofsósi og ólst þar upp og á Siglufirði frá ellefu ára aldri. Hann stundaði almenna verkamannavinnu, vann í síldar- verksmiðjunni Rauðku og í mörg ár hjá Losunar- og lestunarfélagi Siglufjarðar. Maron flutti í Sandgerði 1950 og stundaði þar einnig verkamanna- vinnu, einkumfiskverkun. Síðustu fjórtán starfsárin hefur hann verið hlaðmaður hjá Loftleiðum og Flug- leiðum á Keflavíkurflugvelli. Maron tók virkan þátt í störfum verklýðshreyfmgarinnar, bæði á Siglufirði og í Sandgerði. Hann var t.d. formaður í Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Miðneshrepps í Sand- gerði í tuttugu og sex ár, auk þess sem hann sat í hreppsnefnd Miðnes- hrepps. Þá tók hann mikinn þátt í söngstarfl og söng m.a. í Karlakórn- um Vísi á Siglufirði í tuttugu ár, í Karlakór Miðnesinga og í Karlakór Keflavíkur. Fjölskylda Maron kvæntist 1936 Þórunni Fjólu Pálsdóttur, f. 7.2.1916, d. 28.11. 1981, húsmóður, en hún var dóttir Páls Pálssonar, b. ogformanns í Hólshúsi á Miðnesi, og Helgu Páls- dóttur. Börn Marons og Þórunnar Fjólu eru Þórir Sævar Maronsson, f. 15.1. 1937, yfirlögregluþj ónn í Garðabæ, kvæntur Védísi Elsu Kristjánsdótt- ur og eiga þau fimm börn; Björn Guðmar Maronsson, f. 2.7.1939, verslunarmaður í Sandgerði, kvæntur Lýdíu Egilsdóttur og eiga þau þrjú börn; Viggó Hólmar Mar- onsson, f. 3.9.1942, verkamaður í Hafnarfirði, kvæntur Erlu Sigrúnu Sveinbjörnsdóttur og eiga þau íjög- ur börn; Helgi Brynjar Maronsson, f. 16.8.1945, byggingastjóri í Njarð- vík, kvæntur Þórunni Haraldsdótt- ur og eiga þau tvö börn; Margrét Dorothea Maronsdóttir, f. 24.9.. 1946, ritari á Vopnafirði, gift Magnúsi Jónssyni og eiga þau þrjú börn. Stjúpsonur Marons er Páll Grétar Lárusson, f. 11.12.1934, sjómaður í Reykjavík, kvæntur Stellu Einars- Afmælisfréttir eru einnig ábls. 63 Ingibjörg Jónsdóttir og Óskar Jónsson bernsku, og Hermína Jónsdóttir. Börn Ingibjargar og Óskars: Rannveig Óskarsdóttir, f. 19.11. 1944, sjúkraliði á Akureyri, gift Einari Björnssyni, fulltrúa hjá bæj- arfógeta, og eiga þau fjögur börn; Hákon Óskarsson, f. 6.7.1946, menntaskólakennari í Reykjavík; Daníel Óskarsson, f. 17.4.1948, for- ingi í Hjálpræðishernum og deild- arstjóri íslands og Færeyja; Óskar Óskarsson, f. 3.10.1953, forstöðu- maður afvötnunarheimilis í Ósló; Miriam Óskarsdóttir, f. 27.6.1960, foringi í Hjálpræðishernum og trú- boðiíPanama. Barnabörn Ingibjargar og Óskars erunútólftalsins. Foreldrar Ingibjargar: Jón Jóns- son, oft nefndur Jón prestur, bæj- arstarfsmaður á Akureyri, og Rannveig Sigurðardóttir húsmóð- ir. Maron Bjömsson Maron Björnsson. dóttur og eiga þau eitt barn. Systkini Marons eru öll látin en þau voru Ágústína Björnsdóttir, Guðbjörg Björnsdóttir og Sigurður Björnsson. Foreldrar Marons: Björn Péturs- son, bóndi og verkamaður á Hofsósi og á Siglufirði, og Þórey Sigurðar- dóttir húsmóðir. Maron tekur á móti gestum í Slysavarnafélagshúsinu í Sandgerði á afmælisdaginn frá klukkan 17.00- 19.00. 85 ára Karl Bergmann Sveinsson, Njörvasundi 9, Reykjavik. Indiana Albertsdóttir, Fannborg 1, Kópavogi. Guðlaug Sigurbergsdóttir, Skólabraut 3, Stöðvarfiröi. Björn Vilhelm Magnússon, Dalsgerði 3a, Akureyri. 50ára Sverrir Hjaltason, Hlíðarvegi 12, Hvammstanga. Axel Iljelm, Brautarholti 22, Reykjavík. Jytte A. Hjaltested, Heiðargeröi 120, Reykjavík. 70ára JónMagnússon, Arnarholti v/Vesturlandsbraut, Reykjavík. Guðmundur Halldórsson, Ásmundarnesi, Kaldranancs- hreppi. Margrét Þorgeirsdóttir, Unnarbraut Y2, Seltjarnarnesi, ara Ólöf Jenny Eyland, Steinahlíð lj, Akureyri. Albert Sigurðsson, Hringbraut9, Hafnarfirði. Sveinn Benónýsson, Mánagötu 6, Hvammstanga. Sigurður Örn Haraldsson, Hellu, Reykdælahreppi. Þórdís Ólafsdóttir, Hjallabraut 72, Hafnarfirðí. Ágúst Marinósson, Skagfirðingabraut 35, Sauðárkróki. Sigrún Ásgeirsdóttir, Ríp 3, Rípmbreppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.