Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 4. MAI 1991. roor | / !A r íirn ifcrrg / : r , Útlönd DV Hundruð þúsunda manna létust í versta hvirfilbyl 1 sögu Bangladesh: Milljarða króna þarf Jerzy Kosinski látinn, 57 ára Hinn kunni, pólski rithöfundur Jerzy Kosinski fannst í gær látinn í íbúð sinni í New York. Kosinski hjó um árabil í Banda- ríkjunum og ritaði þar ijölmargar bækur sem náðu hylli almenn- ings. Sem barn kynntist hann í neyðarhjálp strax hörmungum stríðsins í Póllandi og notaði það efni gjarnan í sög- um sinum. Lögreglatt í New York segir að Kosinski hafi framið sjálfsmorð og telur ástæðulaust að grafast frekar fyrir um málið. Hann fannst i baðkari með plastpoka - allar líkur á að sömu hörmungar dynji yfir þegar á næsta ári Yfirvöld í Bangladesh viðurkenna Versti hvirfilbvlur í söaunni yfir höfðinu. Hann varð 57 ára gamall. Reutei nú aö yfir 100 þúsund menn hafi lát- iðlífið í hvirfilbylnum ógurlega sem gekk yfir landiö síöasta þriðjudag. Því fer fjarri að þessar tölur séu end- anlegar og er allt eins gert ráð fyrir að helmingi fleiri hafi farist. Björgunarmenn segja ófagrar sög- ur af ástandinu í strandhéruðum landsins. Við austurströndina, um- hverfis hafnarborgina Chittagong, er vitað að um 60 þúsund menn látna. Á eyjum þar í grenndinni er mann- tjón gífurlegt og sumstaðar hefur helmingur íbúanna látið lífið. Þannig er ástandi t.d. á eyjunni Kutubdia. Eyjaskeggjar voru 80 þúsund fyrir flóðið en eru nú 40 þúsund. Einn embættismaöur sagði yið fréttamann Reuters á svæðinu að tölur um fjölda látinna gætu orðið nánast hverjar sem væru því í raun og veru vissi enginn neitt með vissu um mannskaðann. Milljarða vantar í neyðaraðstoð Rauði krossinn hefur beðið þjóðir heims að bregðast vel við neyðarkall- inu frá íbúum Bangladesh. í höfuð- stöðvum samtakanna var í gær sagt að nú þegar væri þörf á sem svaraöi til fimm milljarða íslenkra króna til að sinna bráðustu neyðarhjálp. Er þá átt við lyf, mat og fatnað fyrir þá sem lifðu hamfarirnar af. Nú er talið að um 10 milljónir manna hafi misst heimili sín í hvirfil- bylnum. Þetta fólk er nú á vergangi í óshólmum og eyjum við Suður- strönd landsins. Því kann svo að fara að enn fleira fólk eigi eftir að láta lífið næstu daga vegna hungurs og sjúkdóma. Paer Stenbaeck, framkvæmda- stjóri Rauða krossins, segir að tölur um flölda látinna séu ágiskanir einar og trúlega verði aldrei vitað hve margir létu lífið í hvirfilbylnum eða vegna afleiðinga hans. Vindhraðinn náði um 230 kílómetr- um á klukkustund þegar verst lét. Flestir hinna látnu drukknuðu í flóð- bylgju sem hvirfilvindurinn ýtti á undan sér. Mest af frjósamasta landi Banglasdesh nær rétt upp fyrir sjáv- armál og hefur raunar veriö að myndast vegna framburðar stórfljót- anna Ganges og Brahmaputra á síð- ustu árum og áratugum. Spánverjar brennaeftir- mynd Maradona íbúar í þorpinu Murieta á Spáni hafá samþykkt í almennri at- kvæðagreiðalu að láta gera eftir- mynd af Maradona úr hálmi, láta hana sæta almennum svívirðing- um á aðaltorgi þorpsins i mánuö og brenna hana síðan. Þetta er gert til að sýna hver hugur raanna er til knaítspyrnukapp- ans eftir síðustu hneyksli. Maradona verður þó ekM í slæmum félagsskapþama á torg- inu því áður hafa þorpsbúar brennt eftirmyndir Margrétar Thatcher, Paco Buyo, markvarð- ar Real Madrid og J.R. Ewing, skúrkslns alræmda úr Dallas. Það hefur lengi verið venja í Murieta að svíviröa þekkt fólk á hverju vori. Keuter v ) Hvirfilbylurinn í Bangladesh Vindurinn í hvirfilbylnum, sem gekk yfir Bangla- desh á þriðjudaginn, náði allt að 230 kílómetra hraða á klukkustun. Bram«Putra INDLAND ....^tí!: iiliilllll X INDLANÐ fellibytsins Dác'ct^ \ Y >' Noakhalíf áhOlaey < j J JÉK CHittagorj Jazar i Myanmar Flóðbylgjan Yfirborð sjávar rís vegna fallandi loftþrýstings í miðju hvirfilbylsins. Við það myndast flóðbylgja sem vindurinn ýtir á undan sér þannig að sjórinn gengur á land Ríkjandi vindátt Landið er ekki nema í tveggja til þriggja metra hæð yfir sjávarmál og fer því allt á kaf þegar sex metra há flóðbylgja æðir yfir. Við þær aðstæð- ur verður engu forðað. Vitað var um hvirfilbylinn með nokkrum fyrir- vara en ógerningur er að flytja íbú- ana á strandsvæðunum á brott á ein- um eða tveimur dögum. Þó tókst að flytja á brott allt að 350 þúsund manns af verstu hættusvæðunum og á örugga staði. Á liðnum árum hafa hvirfilbyljir gert töluverðan usla í Bangladesh ár hvert. Bylyrinn nú er þó trúlega sá versti í sögunni og hefur valdið meira tjóni en miklar hamfarir sem gengu yfir landið árið 1970. Þá létu 100 þús- und menn lífið. Eftir hörmungamar þá var bið í nokkur ár á því að mjög alvarlegir byljir gengju yfir landið. Sá næsti stóri kom árið 1987 og árið eftir kom annar síst vægari. Árin 1989 og 1990 Sluppu íbúamir að mestu við ham- farir en landsmenn voru enn að fást við afleiðingar síðustu bylja þegar þessi reið yfir nú á þriðjudaginn. Sérfræðingar segja að það taki mörg ár og mikla fjármuni að bæta fyrir það tjón sem nú hefur orðiö. Því megi ganga út frá því sem vísu aö nýjar hörmungar gangi yfir áður en þessar verða að baki. Fólk sest jafnharðan að á hættusvæðunum íbúar Bangladesh lifa á því sem fijósamur jarðvegurinn í óshólmun- um gefur af sér. Þetta er þó sennilega eitt harðþýlasta land heims því gera verður ráð fyrir að mannskæðar hörmungar gangi yfir í það minnsta einu sinni á ári. Þegar vel árar látast aðeins nokkur þúsund manns í ham- förum. Það þykir vart fréttaefni. Tahð er að um helmingur þeirra 110 milljóna manna sem búa í Bangladesh séu án jarönæðis. Þetta fólk nemur land í óshólmunum um leið og þeir myndast við framburð stórfljótanna. Landnemamir í óshólmunum eru síðan fyrstir til að falla þegar hörm- ungar eins og hvirfilbyljir ganga yfir. Þeir sem eftir lifa eiga þó engan ann- an kost en að nema hólmana að nýju og bíða þess sem næsti hvirfilbylur ber í skauti sér. Reuter Irakar mega flytja inn mat - griðland Kúrda í Norður-írak stækkar óðum Öryggisráð Sameinuðu þjóöanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að það sé undir einstökum ríkjum kom- ið hvort þau heimili írökum að kaupa mat og aðrar lífsnauðsynjar fyrir fjármuni sem allt frá upphafi Persa- flóadeilunnar hafa verið frystir í er- lendum bönkum. Skýrt er þó tekið fram að þessi heimild nái aðeins til kaupa á nauðsynjum. Málið var rætt í gær í þeirri nefnd Öryggisráðsins sem fjallar um við- skiptaþvinganir. Þar var engin af- staða tekin til óska íraka um að fá aö selja olíu fyrir einn milljarð Bandaríkjadala til að kaupa mat og lyfí útlöndum. Bandaríkjamenn hafa eindregið lagst gegn þessari ósk ír- aka og er ekki talið að hún hljóti náð fyrir augum fulltrúanna í ráðinu. Heimild er í raun gefm í vopnahlés- skilmálunum frá 3. maí til að veita írökum á ný aðgang að innstæðum sem þeir eiga í erlendum bönkum leggist viðkomandi ríki ekki gegn því. íraka hafa hins vegar ekki getað notað sér þessa heimild vegna þess að óheimilt hefur verið að flytja varning til landins. Bandamenn héldu áfram í gær að stækka verndarsvæöi Kúrda í Norð- ur-írak. Svæðiö nær nú nokkur hundruð kílómetra inn í landið og er ekki að sjá fararsnið á hermönn- um bandamanna þótt stefna sé að sveitir frá Sameinuðu þjóðunum taki við hlutverki þeirra. í gær fóru hermenn bandamanna fram hjá sumarhöll Saddams Huss- ein og hafa nú svæðið umhverfis hana á valdi sínu. Saddam hafði áður boðið hermönnum sínum að sprengja höllina í loft upp til að koma í veg fyrir að hún yrði notuð sem bækistöð fyrir erlenda hermenn. Þegar til kom hættu írakar við að eyðileggja höllina og mátti í gær sjá fjölda hermanna við hana. Sumar- höllin er 120 kílómetra fyrir innan landamæri íraks og hafa Irakar ekki veitt bandamönnum viðnám á leið þeirra um landið. Þó hefur Saddam ítrekað lýst því yfir að nærvera er- lendra hermanna sé ógnun við sjálf- stæði og fullveldi landsins. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR innlAnúverdtr. (%) hæst Sparisjóðsbækur ób. Sparireikningar 4,5-5 Lb 3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp 6 mán. uppsögn 5,5-8 Sp Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sp Sértékkareikningar VlSITÖLUB. REIKN. 4,5-5 Lb 6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Nema Ib 15-24mán. 6-6,5 Ib.Sp Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisb. reikningar í SDR6.8-8 Lb Gengisb. reikningar í ECU8.1 -9 Lb ÓBUNDNIR SERKJARAR. Vísitölub. kjör, óhreyfðir. 3 Allir Óverðtr. kjör, hreyfðir BUNDNIR SKIPTIKJARAR. 10,25-10,5 Nema Ib Vísitölubundin kjör 5,25-5,75 Bb óverðtr. kjör INNL.GJALDEYRISR. 12,25-13 Bb Bandaríkjadalir 5-5,25 Bb Sterlingspund 11-11,1 SP Vestur-þýsk mörk 7,75-7,8 Sp Danskarkrónur 8-8,6 Sp ÚTLÁNSVEXTIR ÚTLÁN ÓVERÐTR. (%) lægst Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldaöréf 15,25-15,75 Lb Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir , Hlaupareikningar(yfirdr.) UTLAN VERÐTR. 18,75-19 Bb Skuldabréf AFURÐALÁN 7,75-8,25 Lb Isl. krónur 14,75-15,5 Lb SDR 9,75-9,9 Nema Sp Bandaríkjadalir Sterlingspund Vestur-þýsk mörk 8-8,5 14-14,25 10,75-10,8 4,5 Lb Lb Lb.lb.Bb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR óverðtr. apríl 91 Verðtr. apríl 91 15,5 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala maí 3070 stig Lánskjaravísitala april 3035 stig Byggingavisitala maí 581,1 stig Byggingavísitala maí 181,6 stig Framfærsluvísitala april 151 stig Húsaleiguvisitala 3% hækkun 1 . april Gengi bréfa verðbréfasjóöa Einingabréf 1 5,560 Einingabréf 2 2,998 Einingabréf 3 3,646 Skammtímabréf 1,861 Kjarabréf 5,462 Markbréf 2,918 Tekjubréf 2,094 Skyndibréf 1,623 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,668 Sjóðsbréf 2 1,866 Sjóðsbréf 3 1,848 Sjóðsbréf 4 1 'öoö Sjóðsbréf 5 1114 Vaxtarbréf 1 's852 Valbréf i7613 Islandsbréf 1,158 Fjórðungsbréf 1 'o87 Þingbréf i’i57 öndvegisbréf 1,144 Sýslubréf ij68 Reiðubréf 1,130 Heimsbréf 1 063 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun: KAUP 6,10 5,45 2,30 1.72 1,58 2,32 1,62 3,86 1,55 1.73 5.45 2.45 1,00 5,77 2.35 1.35 4,20 2,15 1,00 1,05 0,995 1,06 2,52 Sjóvá-Almennar hf. Eimskip Flugleiðir Hampiðjan Hlutabréfasjóðurinn Eignfél. Iðnaðarb. Eignfél. Alþýðub. Skagstrendingur hf. Islandsbanki hf. Eignfél. Verslb. Olíufélagið hf. Grandi hf. Tollvörugeymslan hf. Skeljungur hf. Ármannsfell hf. Fjárfestingarfélagiö Útgerðarfélag Ak. Olís Hlutabréfasjóður VlB Almenni hlutabréfasj. Auðlindarbréf Islenski hlutabréfasj. Sildarvinnslan, Neskaup. SALA 6,40 5,67 2.39 1,80 1,66 2.40 1.70 4,05 1,60 1,80 5.70 2,55 1,05 6,00 2,45 1.42 4.40 2,25 1,05 1,09 1,047 1,11 2,65 (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og skiptaskuldabréfum, útgefnum af þ aöila, er miðað við sérstakt kaupg< kge. Skammstafanir: Bb = Búnaöarban lb = Islandsbanki Lb=Landsban Sb = Samvinnubankinn, Sp = Spari: irnir. Nánarl upplýsingar um peningamar inn birtast í DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.