Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991. 25 Francesco Cossiga, forseti Ítalíu, í íslandsferð: Draugar fortíðarinnar elta forsetann - grunaður um tengsl við mafíuna og aðrar leynihreyfingar Francesco Cossiga hefur staðið höllum fæti siðustu mánuði. Hann ætlar þó að sitja kjörtímabilið á enda. Teikning Lurie Þótt ítölsk stjórnmál hafi áratug- um saman verið róstusöm og leið- togar þjóðarinnar sætt harkalegri gagnrýni þá hefur embætti forseta verið hafið yfir deilur - allt þar til Francesco Cossiga kom til valda fyrir fimm árum. Fyrstu ár hans í forsetaembætti voru að vísu friðsöm en undanfarið hefur Cossiga verið mjög tæpur á valdastóli. Nú síðasta árið hefur þráfaldlega verið rætt um að tími sé kominn til að hann segi af sér. Cossiga er hins vegar staðráðinn í að sitja út kjörtímabilið sem lýkur á næsta ári. Cossiga kom í dag hingað til lands í opinbera heim- sókn og fer aftur á morgun. Efast um geðheilsu forsetans Á Ítalíu er rætt um að Cossiga sé tæpast í andlegu jafnvægi. Það er sagt að hann fái þunglyndisköst en sé síðan ofvirkur þess á milli og sjáist þá ekki fyrir. Formlega eru völd ítalska forsetans hliðstæð völdum forseta íslands. Forseti hef- ur ekki bein afskipti af stjóm- málum en á að vera sameiningar- tákn þjóðarinnar hafinn yfir dæg- urþras. Fyrri forsetar hafa gætt þess vandlega aö fylgja þingræðishefð- inni en Cossiga hikar ekki við iáta álit sitt í ljósi. Nú síðast hugðist hann rjúfa þing og boða til kosn- inga þegar ríkisstjórn Andreottis féll í síðasta mánuði. Andreotti tókst þó að beygja forsetann undir sinn vilja og myndáði nýja stjórn án nýrra kosninga. Þetta er fimmtugasta stjórnin á Ítalíu frá lokum síðari heimsstyrj- aldarinnar. Heimamenn segja að líftími ríkisstjórna sé jafnlangur og meðgöngutími hryssu. Þrátt fyrir þetta fer hagur ítala batnandi, í það minnsta þeirra sem búa í norður- hluta landsins, en margt í opin- berri þjónustu er í lamasessi. Cossiga hefur ótvírætt látið í ljós þá skoðun að hann ætlist til að stjórn landsins nái árangri. Honum er vitaskuld heimilt að hafa skoðun á málinu en samkvæmt hefð hefur hann ekki rétt til að skipta sér af stjórn landins. Fortíðin er forset- anum erfið Þaö eru þó ekki ítölsk stjórnmál í nútíð sem eru Cossiga erfiðust. Fortíöin er honum erfiðari en hann á að baki langan feril í stjórn- málum og hefur ekki hreinan skjöld í öllum málum. Draugar for- tiðarinnar birtust Cossiga ljóslif- andi þegar bréf frá Aldo Moro, fyrr- um forsætisráðherra og lærifoður Cossiga, fundust fyrir tilviljun síð- asta haust. Moro var rænt af félög- um í Rauðu herdeildunum og hann myrtur árið 1978. Cossiga var þá innanríkisráðherra og átti að stjórna leitinni að Moro og rann- sókn morðsins. Meðan Moro var fangi hryðju- verkamannanna skrifaði hann hugleiðingar sínar í bréfum til ætt- ingja og samstarfsmanna. Þessi bréf voru aldrei send. Þegar þau loks fundust í fyrra ollu þau miklu upnámi því Moro fór hörðum orö- um um Cossiga og taldi hann draga lappirnar við rannsókn málsins. Hann taldi augljóst að stjórnin ætl- aði að fóma sér sem og kom á dag- inn. Mál Moros hefur alla tíð síðan hvílt þungt á Cossiga og hefur nú síðustu mánuði orðið til að ítalskir stjórnmálamenn og íjölmiðlar hafa grafið upp fleira misjafnt úr fortíð forsetans. Þar vegur þyngt að Coss- iga hélt á ráðherraferli sínum verndarhendi yfir leynisveitum sem gengu undir nafninu Gladio og var ætlað að standa fyrir and- spymu á Ítalíu - og raunar víðar í Evrópu - ef Sovétmenn hernæmu landið. Veit allt um starfsemi Gladio Cossiga var varnarmálaráðherra á árunum 1966 til 1970 og var vel kunnugur starfi sveitanna. Margir efast um að barátta gegn Sovét- mönnum hafi verið raunverulegt hlutverk Gladio heldur hafi sveit- unum verið ætlað að grafa undan áhrifum kommúnista á Ítalíu. Þetta þykir m.a. sannast af því að sveit- irnar héldu áfram að starfa þótt valdakerfi kommúista hryndi í Austur-Evrópu. Gladio á sér einnig aðra skugga- hlið. Þær störfuðu náið með P2, alræmdri leynireglu innan Frí- múrarareglunnar. Nú þykir sann- að að P2 hafi í reynd ekki verið annað en einn armur mafíunnar og hefur reglan nú verið bönnuö. Cossiga er þarna einnig í vondum málum því hann var félagi í P2. Þeir sem rannska Gladio hafa ít- rekað reynt að fá svör frá forsetan- um um starf sveitanna en orðið lít- ið ágengt. Margir haida því fram að komi öll kurl til grafar í málinu verði Cossiga ekki sætt á forseta- stóh öllu legnur. Um mennina í Gladio hefur hann sagt að þeir væru „fóöurlandsvin- ir“ og það heiti hefur hann einnig haft um félaga sína í P2. Þegar hann lét þau orð falla mátti engu muna að hann væri knúinn til að segja af sér. Ræðstgegn mafíunni í orði Opinberlega hefur Cossiga látið þung orð falla um mafíuna og sagði á síðasta ári að hún væri svo valda- mikil aö ríkisstjórnin hefði tæpast full völd í landinu. Þetta vakti að sjálfsögðu reiði innan stjórnarinn- ar. Allir vita þó að Cossiga hefur lítinn áhuga á að tengsl mafíunnar við ítalska stjórnmálamenn séu rannsökuð ítarlega. Cossiga réðst harkalega gegn Le- oluca Orlando, flokksbróður sínum og fyrrum borgarstjóra í Palermo á Sikiley, þegar hann tók aö sauma að mafíunni. Fyrir vikið hrökkl- aðist Orlando úr flokki Kristilegra demókrata en Cossiga flýtur enn á því að rannsókn á starfsemi maf- íunnareröllískötulíki. -GK REYKJAVÍKURHÖFN Frá Reykjavíkurhöfn Á geymslusvæði við öskuhaugana í Gufunesi eru 7 illa farnir nafnlausir smábátar sem fjarlægðir voru á síðustu árum af hafnarsvæði Reykjavíkurhafnar. Bát- arnir eru allir nafn- og númerslausir og ekki hefur tekist að hafa upp á eigendum þeirra. Vegna lokunar öskuhauganna í Gufunesi á næstunni verða bátar þessir urðaðir þar án frekari viðvörunar ef réttir eig- endur gefa sig ekki fram fyrir 21. maí nk. og greiða af þeim áfallinn kostnað. Upplýsingar um bátana veitir svæðastjóri Reykjavíkurhafnar. Reykjavíkurhöfn Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem hafa skemmst í umferðaróhöppum. Toyota Corolla 4x4 st. 1988 Lada 1200 1988 Lada Vaz 1987 MMC L-200 pick-up 1987 M M C Lancer 1500 G LX 1987 Lada Samara 1987 Skoda130 GL 1987 Lada 1500 st. 1987 Fiat Uno 60s 1986 Toyota Cressida 1984 Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 6. maí í Skipholti 35 (kjall- ara) frá kl. 9-15. Tilboðum óskast skilað fyrir kl. 16.00 sama dag til bifreiðadeildar Tryggingar hf., Laugavegi 178, Reykjavík, sími 621110. VERND6E8N VA TRYGGING HF LAUGAVEG1178 SIMI 621110 Hvítasunnukappreiðar Fáks 1991 Auglýsing um skráningu Mótið fer fram dagana 16. til 20. maí 1991. Skráningargjald verður kr. 3.000,00 í allar greinar fullorðinna en kr. 1.000,00 í barna- og unglingaflokk- um. Skráningargjald í kappreiðar kr. 2.000,00. Skrán- ingargjald greiðist við skráningu. Tekið verður við skráningum í eftirtaldar greinar. A flokk gæðinga B flokk gæðinga Unglingaflokk, aldur 13 til 15 ára. Barna- •flokk, 12 ára og yngri. Tölt 150 metra skeið Verðlaunafé: 1. kr. 20.000,00 2. kr. 10.000,00 250 metra skeið Verðlaunafé: 1. kr. 40.000,00 2. kr. 20.000,00 250 metra stökk Verðlaunafé: 1. kr. 10.000,00 2. kr. 5.000,00 350 metra stökk Verðlaunafé: 1. kr. 20.000,00 2. kr. 10.000,00 800 metra stökk Verðlaunafé: 1. kr. 40.000,00 2. kr. 20.000,00 300 metra brokk Verðlaunafé: 1. kr. 10.000,00 2. kr. 5.000,00 Tekið verður við skráningum frá 2. til 10. maí. á skrif- stofu Fáks milli kl. 13.00 og 18.00 virka daga. Dreg- ið verður um keppnisröð föstudaginn 10. maí kl. 20.00. Félagið áskilur sér rétt til að fella niður þær greinar sem næg þátttaka fæst ekki í. Hestamannafélagið Fákur mótanefnd

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.