Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Page 32
44
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991.
Helgarpopp
Hilmar Örn Hilmarsson tónlistarmaður og upptökustjóri: Við eigum fullt
af ungum og áræðnum tónlistarmönnum.
Hilmar Öm Hilmarsson stofnar hljómplötuútgáfu:
Sinnir áræðnu
tónlistarmönnunum
Ný hljómplötuútgáfa tekur til
starfa hér á landi innan skamms.
Platonic Records heitir hún og
verður sameign Skífunnar og
Hilmars Amar Hilmarssonar, tón-
listarmanns og upptökustjóra.
„Markmiðið með Platonic verður
að sinna fyrst og fremst tormeltari
og áræðnari hluta tónlistarinnar
sem verið er að skapa hér,“ segir
Hilmar Örn um nýja fyrirtækið.
„Hins vegar að markaðurinn fyrir
þessa óhefðbundnu tónlist er lítill
sem enginn hér á landi og því verð-
ur fyrirtækið að hafa það að leiöar-
ljósi að gefa aðeins það út sem einn-
ig á möguleika erlendis."
Hilmar Örn þekkir vel þennan
hiuta breska tónlistarmarkaðar-
ins. Hann hefur til dæmis nú ný-
verið komið hljómsveitinni Rep-
tilicus á markað 1 Bretlandi. Þótt
plata hennar hafí enn ekki selst
sérstaklega vel segir Hilmar Öm
árangurinn þó vel viðunandi miðað
við að platan hefur enn ekkert ver-
ið kynnt.
„Stofnun Platonic er í rauninni
rökrétt framhald þess sem ég hef
verið að gera,“ segir hann. „Við
eigum hér marga unga og áræðna
tónlistarmenn sem myndu kannski
í mesta lagi fara út í að gefa út efn-
ið sitt á kassettum hér heima en
eiga fullt erindi á Bretlandsmark-
að. Hvers vegna þá ekki að notfæra
sér sambönd sín og reyna að koma
þeim á framfæri?
Sambandið við Skífuna hjálpar
enn frekar því að hún er með gagn-
verkandi samninga við erlend fyr-
irtæki. Bjóðum við upp á eitthvað
nógu spennandi eigum við því góða
möguleika á höfundarréttar og út-
gáfuréttarsamningum og síðan því
að fara út í sameiginlega útgáfu
með þeim erlendis."
Blúsútgáfa
Einu útgáfusamningarnir sem
Platonic Records hafa gert enn sem
komið er eru við blúsmennina
Chicago Beau og Jimmy Dawkins
sem voru hér á landi á dögunum.
Hljómleikar þeirra og Vina Dóra á
Púlsinum voru hljóðritaðir með
plötu í huga.
„Það er frekar metnaður en
gróðasjónarmið sem ræður því að
við gefum þessa blúsplötu út,“ seg-
ir Hilmar Örn Hilmarsson. „Við
takmörkum okkur við fimmtán
hundruð eintaka upplag. En þessi
fyrsta plata verður vonandi upp-
hafið af meira samstarfi við hina
og þessa bandaríska blúsmenn sem
munu koma hingað á næstunni.
Blúsinn getur einnig orðið útflutn-
ingsvara og ég get nefnt sem dæmi
að þegar hefur komið beiðni um
útgáfuréttinn á Chicago Beau og
Jimmy Dawkins í Japan. Þar í landi
er blúsmarkaðurinn mjög stór.“
Hilmar Örn Hilmarsson er þessa
dagana að líta í kringum sig eftir
fleiri áræðnum tónhstarmönnum
sem lítt eru gefnir fyrir troðnar
slóðir. Hann segist ekki ætla að
ráða menn á báða bóga heldur
vanda valið vel, sinna fáum hlutum
en sinna þeim vel.
Eiríkur Hauksson berst á tvennum vígstöðvum:
Beintúr
Eurovision í
þungarokkið
vestanhafs
Eiríkur Hauksson söngvari og
keppandi fyrir Noregs hönd í
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva í Rómaborg segist alls
ekki mega sigra í keppninni í kvöld.
Slíkt myndi meö öllu raska fyrir-
ætlunum hans með þungarokk-
hjómsveitinni Artch.
„Ég fer á þriðjudaginn ásamt
trommuleikaranum í Artch til New
York þar sem við hittum íjölmiðla-
menn að máli vegna nýju plötunn-
ar okkar,“ segir Eiríkur. „Hún
heitir For The Sake Of Mankind,
hvorki meira né minna, og er ný-
komin út vestra.“
Artch er með hljómplötusamning
við Metal Blade útgáfuna banda-
rísku. Hún lætur Wamer Brothers
aftur á móti dreifa plötum fyrir sig.
„Enn sem komið er er platan ein-
ungis komin á markað í Bandaríkj-
unum,“ segir Eiríkur. „Reyndar
hefur eitthvað lítilsháttar verið
flutt af henni til Evrópu. Nú skilst
mér hins vegar að Metal Blade-
menn hafi tekið fyrir það því að
vonir standa til aö útgáfusamning-
ur fáist við breskt fyrirtæki. Hvað
úr því öllu verður kemur í ljós á
næstu dögum.“
Góðir dómar
Að sögn Eiríks Haukssonar hafa
dómar um For The Sake Of Man-
kind enn ekki birst í stóru músík-
blöðunum vestra. Nokkur smærri
Meöferöarheimilið í Krýsuvik sem Krýsuvíkursamtökin hafa unnið við
að koma á laggirnar að undanförnu.
Norsk-íslenska hljómsveitin Artch. Eiríkur Hauksson flýgur vestur um haf á þriðjudaginn til að kynna hana
bandarískum fjölmiðlamönnum.
blöð hafa íjallaö um hana og yíir-
leitt verið jákvæð í dómum sínum.
Fyrri plata Artch, Another Return,
fékk hins vegar prýðisdóma; til
dæmis fullt hús stiga í þungarokk-
blöðunum Kerrang! og Metal Forc-
es. Meðal annars voru þau orð látin
falla um Eirík að hann gæfi Bruce
Dickinson, söngvara Iron Maiden,
ekkert eftir. Það var gæðum Anoth-
er Return til dæmis að þakka að
samningar náðust við Metal Blade
útgáfuna.
Það er þvi ljóst að ferill Eiríks
Haukssonar sem þungarokkara má
illa við þvi að hann og norskir sam-
starfsmenn hans í Evrópusöngva-
keppninni nái toppárangri. En ef
þau sigra nú með lagið Mrs.
Thompson?
„Þá er ég í vondum málum,“ seg-
ir Eiríkur Hauksson. „Auðvitað set
ég stefnuna á að ná betri árangri
en með Gleðibankann forðum. Ætli
við segjum bara ekki að ég setji
stefnuna á annað til tíunda sætið.
Alls ekki það fyrsta!"
Um hundrað manns
á sömu plötunni
Hljómplatan Húsið er gefín út til styrktar Krýsuvíkursamtökunum
Platan Húsið er um það bil að
koma út eftir árs meðgöngu. Þetta
er átján laga gripur og eru flytjend-
ur laganna hátt í eitt hundrað tals-
ins. Allir gefa þeir vinnu sína til
styrktar meðferðarheimihnu í
Krýsuvík sem Krýsuvíkursamtök-
in hafa unnið við að koma á lagg-
irnar að undanfomu.
„Hugmyndin að þessari plötu
kviknaði þegar ein hljómsveitin,
Blautir dropar, kom í stúdíóið til
mín og ætlaði að taka upp lag sem
hún ætlaði að gefa Krýsuvíkur-
samtökunum. Ég spurði þá hvers
vegna við gerðum ekki heila plötu
og núna, um ári seinna, er hún að
veröa tilbúin," segir Axel Einars-
son útgefandi. Fyrirtæki hans,
Stöðin, stendur fyrir framtakinu.
Auglýst var eftir lögum á plöt-
una. Mikill fjöldi barst og síðan var
valið úr það áheyrilegasta. Einnig
var haft í huga að velja lög með
flytjendum sem víðast að af
landinu. Þar af leiöandi fáum við
að heyra á plötunni í hljómsveitum
úr öllum landsfjórðungum.
„Þarna er mikið af óreyndu
fólki," segir Axel. „Gæðin eru auð-
vitað upp og ofan en spilagleðin er
mikil. Mér finnst ekki fjarri lagi að
segja að platan Húsið sýni í hnot-
skurn það sem ungir tónlistar-
menn á aldrinum 18-25 ára hafa
verið að aðhafast hér á landi síö-
ustu mánuðina.
Um það bil vika er þar til platan
Húsið kemur í hljómplötuverslan-
ir. Hún verður gefrn út á geisla-
diski og kassettu.