Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1991, Side 52
e*-
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Í
i
í
LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1991.
Jóhanna Sigurðardóttir:
Ódrengilega að
mér vegið af
Karli Steinari
NEYDARHNAPPUR
FRA VARA
fyrir heimabúandi sjúklinga
og aldraða
91-293»
I
II/// Alhhðo
ön/ggisþjónusta
VARI síðan 1 969
LOKI
Gott er að eiga eina Sofflu
frænku í Kardemommubæ
Jóns baldna!
i
„Ég harma þaö mjög aö Karl Stein-
ar Guðnason skuli ráöast að mér meö
jafnómerkilegri og ómaklegri gagn-
rýni og hann gerir í viðtali við DV á
fimmtudaginn. Þar setur hann fram
fullyrðingar sem ekki standast og
hljóta að vera byggðar á misskiln-
ingi. Með ummælum sínum vegur
hann hins vegar svo ódrengilega að
mér að ég hlýt að taka þau til efn-
islegrar umræðu innan flokksins. Ég
vísa því hins vegar alfarið á bug að
ég hafi ekki sinnt vinnumarkaðinum
sem skyldi. Þvert á móti tel ég að
þessum málaflokki hafi ekki verið
eins vel sinnt í ráðuneytinu í íjölda-
rnörg ár,“ segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra.
í viðtalinu við Karl Steinar gagn-
rýnir hann Jóhönnu fyrir að hafa
með ólýöræðislegum hætti stillt
þingflokki Alþýðuflokks upp við
vegg við ráðherraval. Hann segir
Jóhönnu hafa á síðustu stundu neit-
að að taka að sér heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið eins og
rætt hafi verið um. Því hafi þing-
flokkurinn neyðst til að hætta við að
gera hann að félagsmálaráðherra
eins og formaðurinn fór fram á.
Einnig segir Karl Steinar að málefn-
um vinnumarkaðarins hafi ekki ver-
ið nógu vel sinnt í ráðuneytinu.
Jóhanna segir það ekki rétt hjá
Karli Steinari að búið hafi veriö að
ákveða að hún tæki að sér heilbrigö-
is- og tryggingamálaráðuneytið og
hann færi í félagsmálaráöuneytið.
„Það var ekki leitað eftir samþykki
mínu fyrir slíkri breytingu fyrr en
sama kvöld og flokksstjórnarfundur-
inn, sem samþykkti ráðherralistann
endanlega, fór fram,“ segir Jóhanna.
-kaa
Tvö 9 ára börn björguðu skólabróður sínum í sundlauginni á Höfn:
Drengurinn var orðinn
helblár og rænulaus
„Þetta var i leiktímanum. Strák-
urinn var að leika sér að því að
kafa í sundlauginni. Svo skeði eitt-
hvað. Það munaði pínulitlu aö
hann næði í bakkann en svo fór
hann að sökkva. Hann náði ekki
að kalla á hjálp en stundi einhvern
veginn. Þegar við tókum eftir hon-
um var hann að sökkva og við héld-
um að hann væri bara að leika sér.
Við þurftum aðeins að kafa til að
ná honum. Ég náði taki og Guðrún
kora meðfram bakkanum og tók
lika í hann. SíÖan sáum við Ólöfu
sundkennara og Guðbrand koma
fótbrotínn en liækjulausan hlaup-
andi,“ sagði Einar Páll Benedikts-
son frá Seljavöllum, 9 ára nemandi
í Nesjaskóla í Homafirði, í samtali
viðDV.
Einar Páll og bekkjarsystir hans,
Guðrún Arna Kristjánsdóttir í 4.
B, náðu að bjarga dreng úr 3. bekk
í sama skóla í sundlaug Hafnar-
hrepps á Höfn síðdegis á fnnmtu-
dag. Drengurinn var hætt kominn
og nánast hættur að anda þegar
honum var komið upp úr lauginni.
Ólöf Valgeirsdóttir sundkennari
var við hinn enda laugarinnar þeg-
ar hún sá að eitthvaö var að úti í
Mindlaugmm.
„Ég var að kenna börnunum
sund. Þau fá síðan að leika sér í
smástund áður en þau fara upp úr.
Ég var við hinn endann þegar ég
heyrði krakkana kalla frá djúpu
lauginni og þau náðu tvö taki á
honum. Strákurinn var orðinn hel-
blár og máttlaus þegar ég kippti
honum upp úr. Ég sneri honum við
og þá rann mikið vatn upp úr hon-
um. Þá jafnaði hann sig en þetta
mátti ekki tæpara standa. Það má
segja að hann hafi verið orðinn al-
veg rænulaus," sagði Ólöf.
Læknir var kallaður á staðinn en
þá var drengurinn búinn að ná sér.
Að sögn Ólafar var hann dálítið
máttlaus á eftir en hann náði scr
von hráðar. Hún sagði jafnframt
að ef krakkar lékju sér í sundlaug
þar sem þeir bohiuðu ekki væru
þeir fljótir að sökkva ef þeh' á ann-
að borð byrjuðu að gleypa vatn og
næðuekkiháldi neins staðar. -ÓTT
(
l
I
<
I
I
Karlmaður um þrítugt:
I
í gæsluvarð-í
haldivegna |
gruns um
dreifingu
fíkniefna
Vorið er komið með rigningu og súld. En börnin setja rigninguna ekki fyrir sig. Það er enda alveg bráðskemmtilegt
að sulla og drullumalla i pollunum. Þessar fallegu stúlkur voru þvi alsælar með sinar fötur og skóflur í Árbænum
j gær. DV-mynd Brynjar Gauti
Sakadómari í ávana- og flkniefna-
málum hefur úrskurðað rúmlega
þrítugan karlmann í gæsluvarðhald
til 6. maí vegna gruns um dreifingu
fíkniefna. Fíkniefnadeild lögregl-
unnar handtók manninn á götu í
Reykjavík á miðvikudag. Nokkuð
magn af amfetamíni og hassi fannst
í fórum hans.
Björn Halldórsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar, sagði við DV í gær
að hann vildi ekki tjá sig frekar um
málið. Maðurinn sem nú situr í
gæsluvarðhaldi hefur áður komið
við sögu fíkniefnalögreglunnar
vegna innflutnings og dreifingar á
fíkniefnum. -ÓTT
I
I
I
5°
6» (l\ V
T '
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Styttir upp á mánudag
Á sunnudag eru horfur á norðaustanátt á Vestfjörðum og á annesjum norðanlands en vestlægri eða suðvestlægri átt
um sunnanvert landið. Rigning veröur víða um land og hiti á bilinu 4-8 stig. Á mánudag styttir upp aö mestu með norðlægri átt, þó
má búast við skúrum sunnanlands fram eftir degi. Heldur kólnandi veöur.