Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Blaðsíða 17
16
FIMMTUDAGUR 16. MAl 1991.
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991.
25
Iþróttir
Iþróttir
Sport-
stúfar
Hl
¥
ítalskur saksóknari
hefur kraílst þess að
argentínski knatt-
spymumaðurinn Di-
ego Maradona mæti fyrir rétt í
Napólí vegna ásakana um neyslu
og dreiíingu eiturlyfja. Hann hef-
ur áöur kallað kappann fyrir sig
í tengslum við eiturlyíja- og
vændismál. Krafa saksóknarans
verður lögö fyrir dómara áður en
dagsetning yfirheyrslunnar verð-
ur ákveðin. Maradona dvelst sem
kunnugt er í heimalandi sínu eft-
ir að hann var dæmdur í 15 mán-
aða keppnisbann vegna neyslu
kókaíns. Þar var hann handtek-
inn með kókaín í fórum sínum
en sleppt lausum gegn tryggingu.
Lakers og Portland
mætast i úrslitum
Los Angeles Lakers og
Portland Trail Blazers
leika til úrslita um
meistaratitil vestur-
deildar bandarísku NBA-deildar-
innar í körfuknattleik. Lakers
sigraði Golden State Warriors,
124-119, eftir framlengingu i
fyrrinótt og vann því einvígi lið-
anna, 4-1. Portland sigraði Utah
Jazz, 103-96, og vann einnig 4-1 í
því einvígi. í austurdeildinni er
Chicago Bulls komið í úrslit eftir
sigur á Philadelphia 76ers, 100-95,
alls 4-1, og mætir þar Detroit Pist-
ons eða Boston Celtics, sem eru
jöfn, 2-2.
Rússar hættir við
vetrarólympíuleikana
Rússneska borgin Sochi, sem er
við rætur Kákasusfjalla, hefur
dregið til baka umsókn sína um
að halda vetrarólympíuleikana
árið 1998. Taliö er aö efnahags-
ástandið í Sovétríkjunum hafi
ráöið úrshtum um það. í júni
verður keppnisstaöur ákveðinn
en til greina koma Salt Lake City
í Bandaríkjunum, Nagano í Jap-
an, Aosta á Ítalíu, Ostersund í
Sviþjóð og Jaca á Spáni. Þá var
tilkynnt í gær aö Mílanóborg á
Ítalíu myndi sækja um sumar-
ólympiuleikana árið 2000. Áður
hafa Peking í Kína, Berlín i
Þýskalandi, Manchester á Eng-
landi og Sydney í Ástralíu sótt
um þá leika.
Ajax upp að hlið PSV
Ajax frá Amsterdam tókst í gær
að komast upp að hlið PSV í efsta
sæti í hollensku 1. deildinni í
knattspymu. Ajax sigraði þá FC
Twente á útivelli, 0-1. PSV og
Ajax eru bæöi með 47 stig að
Ioknum 30 leikjum og í 3. sæti er
Groningen með 42 stig eftir 29
leiki.
Blikar leika á
sandgrasinu í sumar
Nú er orðið Ijóst að Breiðablik,
sem eru nýliðar í 1. deild, leika
alla sína heimaleiki á sandgras-
vellinum í Kópavogi í sumar. Frá
því í september á síðasta hausti
hefur verið unnið við endurnýjun
á yfirborði Kópavogsvallar viö
Fifuhvamm. Menn lifðu í voninni
að leika mætti á vellinum þegar
líða tæki á sumarið en völlurinn
þarf mun lengri tíma til að jafna
sig svo megi leika á honum. Sand-
grasvöllurinn er staðsettur viö
suðurenda Kópavogsvallar, á
hinu nýja félagssvæði Breiða-
bliks í KópavogsdaL Á vellinum
verða stæði fyrir tæplega 800
hundruö áhorfendur, auk að-
stöðu á akvegi sem nær hringinn
í kringum völlinn. Aðkoma fyrir
vallargesti er sú sama og að
Kópavogsvelli. Bifreiðastæöi eru
við Fífuhvammsveg og aðgöngu-
miöasala er við norðurhlið Kópa-
vogsvallar.
Mótabók KSÍ komin
Mótabók KSÍ er komin út og get-
ur fólk nálgast hana á skrifstofu
KSÍ í Laugardal.
KSÍ og Visa standa
saman að landsátaki
- þar sem knattspymumenn eru hvattir
til aö sýna prúðmannlega framkomu
Visa Island mun í ár standa með
Knattspyrnusambandi íslands að
sérstöku landsátaki þar sem knatt-
spyrnumenn og íþróttafólk almennt
er hvatt til aö sýna prúðmannlega
framkomu og drengilegan leik undir
kjörorðinu Höfum rétt við.
Einar Einarsson, forstjóri Visa, og
Eggert Magnússon, formaður KSI,
undirrituðu í gær samning Visa og
KSÍ um fjárstuðning Visa til Knatt-
spyrnusambands íslands og á þessu
ári mun Visa ísland veita 1,5 milljón-
ir króna til átaksins með kynningu,
gerð auglýsinga- og áróðursefnis og
fleiru. Þá mun Visa veita verölaun
og viðurkenningar þeim leikmönn-
um, liðum og þjálfurum, bæði í 1.
deild og öðrum deildum, og yngri
flokkum innan knattspymunnar
sem bera af hvaö prúðmennsku
áhrærir og fyrir háttvísa framkomu.
í hverju felst átakið?
Hér er um aö ræða hluta alþjóðlegs
átaks innan knattspyrnuhreyfingar-
innar til að draga úr grófum leik en
mddamennska á leikvelli hefur því
miöur aukist heldur en hitt hin síð-
ari ár. Markmiöið með átakinu er að
fá fram jákvæða viöhorfs- og hugar-
farsbreytingu hjá knattspyrnufólki
og öðru íþróttafólki og hvetja þaö til
umhugsunar og til að bæta ráð sitt í
þessu efni.
í DV verður keppni
á milli félaga
í DV verður í gangi sérstök keppni
þar sem liðin í 1. deild keppa sín á
milli um að fá sem allra fæst rauð
og gul spjöld. Vikulega verður birt
súlurit í blaðinu sem sýnir stöðu lið-
anna með hliðsjón af gulum og rauð-
um spjöldum. I hófi 1. deildar félag-
anna í haust verða svo veitt verðlaun
til leikmanna, liða og þjálfara ársins
sem skarað hafa fram úr fyrir góða
framkomu. í samvinnu við alla fjöl-
miðla verður mánaöarlega útnefnd-
ur prúðasti leikmaður mánaðarins,
prúðasta lið mánaðarins og prúðasti
þjálfari mánaðarins og fá þessir aöil-
ar sérstakar viðurkenningar frá KSÍ
og Visa. í 2. deild og neöri deildum
karla og kvenna verða veittar viður-
kenningar fyrir prúömannlegan leik
og í yngri flokkum verða veitt verð-
laun til þjálfara, liða, einstaklinga og
jafnvel foreldra á hliðarlínunni.
-GH
Flóðljósin 1 Laugardal:
Knappur tími að Ijósin
komi upp fyrir haustið
- tilboð í verkiö opnuö í gær
I gær voru opnuö tilboð vegna
framkvæmda við uppsetningu á
flóðljósum á aöalléikvangi Laugar-
dalsvallar. Við fyrstu athugun
virðist tíminn mjög knappur að það
náist aö koma flóðljósunum í gagn-
ið fyrir leikina sem fram fara á
vellinum á hausti komanda þegar
birtu fer að bregða.
ívar Þorsteinsson, yfirmaður
tæknimála hjá Rafmagnsveitum
Reykjavíkur, sagði í samtali við DV
í gærkvöldi að engin niðurstaða
væri fengin ennþá í þetta mál. Raf-
magnsveitan ynni höröum hönd-
um í þessum máli og þeir myndu
gera allt sem í þeirra valdi stæði
til aö koma upp flóðljósunum í
tæka tíð fyrir haustið.
„Sá þáttur verksins, sem myndi
tefja uppsetninguna, snýr að
möstrunum en lýsingabúnaður
ætti hins vegar ekki að seinka
verkinu. Uppsetning á möstrunum
er tímafrekur verkþáttur í tilboð-
inu sem við skoðuðum í gær. Viö
sjáum einn möguleika í stöðunni
en hann er sá að kaupa möstrin fá
öðrum verktaka en í tilboðinu sem
við opnuðum i gær. Þennan mögu-
leika munum við skoða á næstu
dögum og þangað til veröum við
að vona það besta,“ sagði ívar Þor-
steinsson hjá Rafmagnsveitum
Reyjavíkur viö DV í gærkvöldi.
-JKS
Kef Ivíkingar sömdu við Gosan
• Knattspyrnuráð ÍBK og gosdrykkjaframleiðandinn Gosan hf. hafa gert
með sér samning til þriggja ára. Allir flokkar Keflvikinga munu auglýsa
pepsí á búningum sínum. Þetta er einhver stærsti auglýsingasamningur
sem ÍBK hefur gert. Á myndinni er Magnús Böðvar Eyþórsson, fram-
kvæmdastjóri Gosan, til vinstri, að handsala samninginn ásamt Jóhanni
EHertssyni, formanni knattspyrnuráðs ÍBK. DV-mynd Ægir Már
• Mark Hughes, hetja Man. Utd, Bryan Robson fyrirliði og Paul Ince fagna hér sigrinum á Barcelona í gærkvöldi. Þeir hlaupa hér sigurhring á leikvanginum i
Rotterdam með Evrópubikarinn. Simamynd Reuter
Manchester United Evrópumeistari bikarhafa 1 knattspymu
Hughes fór illa með
sína gömlu félaga
- skoraði bæði mörk United þegar liðið sigraði Barcelona, 2-1
Manchester United varð í gær Evr-
ópumeistari bikarhafa í knattspyrnu
þegar liðiö sigraði Barcelona, 2-1, í úr-
slitum en leikurinn fór fram á heima-
velli Feyenoord í Rotterdam í Hollandi.
Sigur Manchester United var sann-
gjarn og liðið var mun sterkara en hin-
ir nýkrýndu Spánarmeistarar. Það var
Mark Hughes sem var hetja United liðs-
ins og skoraði hann bæði mörkin. Það
fyrra skoraði Hughes á 68. mínútu og
það síðara á 74. mínútu en hollenski
landsliðsmaöurinn Ronald Koeman
minnkaði muninn fyrir Börsunga 10
mínútum fyrir leikslok.
Manchester United varð Evrópu-
meistari bikarhafa árið 1968 og því eru
23 ár síðan liðið hampaði þessum meist-
aratitli síðast. Ensk félagsliö hafa ekki
leikið í Evrópukeppninni síðustu 5 árin
vegna harmleiksins mikla í Belgiu þeg-
ar Liverpool og Juventus léku til úrslita
en í ár var banni aflétt og tóku tvö ensk
lið þátt, Aston Villa og Man. Utd. Eng-
lendingar voru hræddir fyrir þennan
úrslitaleik í gær um að til óeiröa kæmi
en að sögn lögregluyfirvalda í Rotterd-
am fór allt vel fram og enskir áhorfend-
ur voru til fyrirmyndar enda í sigurv-
ímu.
Mark Hughes, sem fyrir skömmu var
útnefndur knattspyrnumaður ársins í
Bretlandi, fór á kostum í leiknum í gær
og var að öðrum ólöstuöum besti maður
vallarins. Hughes lék með Barcelona
tvö keppnistímabil árin 1988 og 1989 og
það má því segja að hann hafi farið illa
með sína gömlu félaga.
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
United, var að vonum kampakátur þeg-
ar úrshtin lágu fyrir. „Þetta er stærsta
stund á mínum ferli og fyrir félagið er
þetta stórkostlegt eftir 23 ára bið,“ sagði
Ferguson en undir hans stjórn varð
skoska félagið Aberdeen Evrópumeist-
ari bikarhafa árið 1983.
Johan Cruyff, þjálfari Barcelona, var
ekki eins ánægður og Ferguson. „Þetta
var ekki góður leikur knattspymulega
séð en Manchester United liðiö var
betra og uppskar sigur," sagði Gruyff.
-GH
og Júgóslava
var frestað
Einar Kristjánsson, DV, Færeyjum;
Leik Júgóslava og Færeyinga í
undankeppni Evrópumóts landsliðs
í knattspyrnu i gærkvöldi var frestað
vegna úrshtaleiksins í Evrópukeppni
bikarhafa í gærkvöldi. Úrslitaleikn-
um milli Manchester United og Barc-
elona var sjónvarpað beint til Júgó-
slavíu og báðu forráðamenn júgó-
slavneska knattspyrnusamabands-
ins um frestun á leiknum því þeir
töldu að beina útsendingin myndi
koma niður á aösókn.
UEFA skildi afstöðu Júgóslavanna
og fékk frestun og veröur leikurinn
háður í Belgrad í kvöld og ríkir mik-
il eftirvænting í Færeyjum vegna
leiksins sem verður sjónvarpað beint
til eyjaskeggja.
Bordeaux dæmt í 2. deild
- félög 1 Frakklandi hafa sýnt Arnóri Guðjohnsen áhuga
Dómstóll í Frakklandi kvað upp
þann dóm í gær að franska 1. deildar
félagiö Bordeaux yrði dæmt til að
falla í 2. deild. Arnór Guðjohnsen
landsliðsmaður gerði samning viö
Bordeaux í nóvember síðastliðnum
og hefur síðan leikið með liðinu. Eins
og margoft hefur komið fram í frétt-
um hefur Bordeaux átt við í miklum
fjárhagserfiðleikum og nema skuldir
félagsins nú um þremur milljörðum
íslenskra króna.
í undirrétti var Bordeaux dæmt í
2. deild en forráðamenn liðsins áfrýj-
uðu dómnum en í gær kvað hæsti-
réttur upp sinn endanlega dóm. Fjár-
hagserfiðleikar félagsins hafa komið
niöur á árangri liðsins í vetur og
lengi vel var liðið í hópi neðstu liða
en á síðustu vikum hefur liðið náð
að rétta úr kútnum.
Oft í vetur hafa leikmenn ekki feng-
ið greidd laun sín á tilsettum tíma
og á dögunum fengu leikmenn til aö
mynda laun eftir tveggja mánaða bið.
Skipt var um forseta félagsins á
miðju tímabili og var ætlun hans að
rétta fjárhaginn við og í því sam-
bandi að semja við lánardrottna.
Þetta hefur verið mun erfiðara verk-
efni en haldið var í fyrstu.
Vegna dómsins í gær má telja víst
að einhverjir leikmenn fari nú fram
á sölu. Arnór Guðjohnsen hefur
ákvæði í sínum samningi um að ef
liðið fellur í 2. deild sé honum frjálst
aö fara frá félaginu. DV hefur fyrir
því heimildir að nokkur félög, þar á
meðal í Frakklandi, hafa sýnt áhuga
á aö fá Arnór í sínar raðir. Arnór
hefur þegar verið í viðræðum við
eitthvertþeirra. -JKS
Stofnf undur Stuðningsmannaklúbbs KSÍ
• Stofnfundur Stuðningsmannaklúbbs KSÍ var haldinn í gær í fundarsal Úrvals-Útsýnar. Þar hittust fyrrum knattspyrnu-
menn og áhugamenn um iþróttina og áttu góða stund saman. Á myndinni sjáum við hluta af Stuðningsmannaklúbbnum og
eru þarna Vikingar og KR-ingar í meirihluta. DV-mynd S
GULLMOLAR
✓
Söfnunarstórhátíð á Hótel Islandi 26. maí
vegna Olympíuleika þroskaheftra.
Tökum höndum sainan og geruin þroskaheftum Islendingum í fyrsta sinn kost á að taka þátt í
Special Olympics, Olympíuleikum þroskaheftra, sem fram fara í Minneapolis 19.-27. júlí.
Þar verða 18 íslenskir íþróttamenn í hópi 6000 þroskaheftra keppenda frá 90 löndum.
Glæsilegasta skemmtun ársins!
Landslið matreiðslumeistara, listamanna og skemmtikrafta.
Yeislustjórar: Edda Andrésdóttir og Stefán Jón Hafstein.
Hótel ísland opnar kl. 18:00
Boðið verður uppá fordrykkinn "Gulldropa" og horðhald hefst kl: 19:00 stundvíslega.
Einstakur ólympíumatseðill:
Klúbbur matreiðslumeistara frá bestu veitingastöðum landsins kemur saman og töfrar fram
fjórréttaðan kvöldverð, sem á engan sinn líkan liér á landi:
Kofareykt laxarós rned kavíar og fylltu eggi.
Jurtakrydd-grafinn lambavöbvi meö heitri vinagrett sósu.
Ólympíuhumar að hœtti Kanadamanna með sjávardýratríói.
Eldristaðir Gullmolar með ferskum ávöxtum, vanilluís og Sabayonsósu.
Maraþon skenuntidagskrá:
Helstu listamenn og gleðigjafar þjóðarinnar leggja sitt að mörkuin án endurgjalds
til að gera kvöldið ógleyinanlegt og bjóða upp á ótrúlega dagskrá:
Sigrún Hjálintýsdóttir, Björgvin Halldórsson, Jónas Daghjartsson og Jónas Þórir, Pálmi
Gunnarsson, Veislutríóið: Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurður Ingvi Snorrason, Egill
Olafsson, Asa Hlín Svavarsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson, Tríó Reykjavíkur: Guðný
Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran og Halldór Haraldsson, Reynir Jónasson, Savanna tríóið;
Björn G. Björnsson, Troels Bendtsen og Þórir Baldursson, Monika Abendroth og Gunnar
Kvaran, Þorsteinn Gauti Sigurðsson, Sigrún Eðvaldsdóttir, Sigríður Beinteinsdóttir og
Stjórnin, Ríó tríó; Agúst Atlason, Helgi Pétursson, Olafur Þórðarson og félagar, Helena
Jónsdóttir og Hrafn Friðbjörnsson frumflytja dans við "Nocturne" Gunnars Þórðarsonar,
Anna og Ragnar Islandsmeistarar í Suðuramerískum dönsum, Ömar Ragnarsson, fulltrúar
Spaugstofunnar og hver veit nema fleiri hætist í hópinn.
Sérstakir gestir:
Paui Anderson framkvæmdastjóri Evrópusaintaka Special Olympics, ráðherrar og fleiri
velunnarar þroskaheftra verða sérstakir gestir kvöldsins.
Dansleikur:
Að lokinni dagskrá verður stiginn dans við valda Vínartónlist til kl. 01:00.
Verð aðgöngumiða kr. 10.000
Miðinn er um leið viðurkenning fyrir veittan stuðning. Fordrykkur, kvöldverður og
skemintidagskrá innifalið í miðaverði. Engin önnur fjársöfnun fer fram á hátíðinni.
Miðasala:
Miðasala og borðapantanir á skrifstofu Iþróttasainhands Fatlaðra í síma 686301. Niðurröðun
horða ræðst af röð pantana.
Einstæður viðburður í íslensku samkvæmislífi!
Láttu þig ekki vanta!