Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1991, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 1991.
Fréttir
Foreldrar barna í Reykhólaskóla vilja skólastjórann burt:
Sakaður um ofstjórn
og ranglátan aga
- ásakaði son minn ranglega um skemmdarverk, segir eitt foreldranna
„Hann bar upp á drengina þær
sakir aö hafa skoriö á símakapal viö
skólann og og vera aö rífa niður
símasjálfsala. Síðan voru þeir lokað-
ir inni þar til foreldramir sóttu þá.
í stað þess aö leyfa þeim aö fara með
skólabílnum var foreldrunum gert
að sækja þá um langan veg í vondu
veðri. Síðar kom í ljós að engin
skemmdarverk höfðu veriö unnin.
Það eina sem haföi gerst var að eitt
tengi i símadós hafði losnað. Engu
að síður var þeim meinað aö koma í
skólann það sem eftir var vikunnar.
Og enn í dag hggja þessar sakir
ósannaðar á börnunum þrátt fyrir
ítrekaðar óskir okkar um að máhð
verði rannsakað. Skólastjórinn er
einfaldlega ekki þeim vanda vaxinn
að bera ábyrgð á börnum enda er
aðgæslu þörf í návist viðkvæmra
sálna,“ segir Þórarinn Sveinsson,
faöir eins þriggja drengja sem vísað
var úr skólanum síðastliðinn vetur.
Harðar deilur hafa risið milli for-
eldra og skólayflrvalda í Reykhóla-
skóla. Nýveriö rituðu 26 foreldri und-
ir skjal þar sem þess er krafist að
settur skólastjóri verði ekki endur-
ráðinn næsta skólaár. Ástæðan mun
vera óánægja með þá stjórnunar-
hætti sem hann hefur innleitt í skóla-
starfið á undanfórnum tveim árum.
Að sögn foreldra einkennast þessir
stjórnunarhættir af ranglátum aga
og ofstjóm. Inn í þessar deilur bland-
ast einnig tímabundinn brottrekstur
þriggja drengja úr skólanum vegna
meintra skemmdarverka og þess
fjórða fyrir meinta vímuefnaneyslu
á skólasvæðinu.
Meðal kennara og hreppsnefndar
nýtur skólastjórinn hins vegar
óskoraðs trausts og hefur hrepps-
nefndin meðal annars sent trausts-
yfirlýsingu við hann inn á hvert
heimili í hreppnum. Engu að síöur
hefur skólastjórinn ákveðið að
hætta. Sömu ákvörðun hafa aUir
kennarar skólans tekið, átta að tölu.
Steinunn Rasmus, formaður skóla-
nefndar, vildi í samtali við DV í gær
ekkert tjá sig um þetta mál. Málið
væri viðkvæmt og því óviðeigandi
af henni að tjá sig um það í fjölmiðl-
um fyrr en línur hefðu skýrst. Að-
spurð kvaðst hún heldur ekkert geta
sagt til um hvernig skólanefndin
ætlaði sér að bregðast við uppsögn-
um kennaranna. Þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir náðist ekki í skólastjó-
rann vegna þessa máls.
-kaa
Fimmtug kona hefur verið
dæmd í öryggisgæslu fyrir að
vera völd að dauða sambýlismans
síns fyrr í vetur. Konan stakk
sambýlismann sinn í brjóstið
með hnífi. Hún verður i öryggis-
gæslu þar sem sakhæfi hennar
er skert sökum geðheilsu hennar.
í dómnum kemur fram að hægt
hefði verið að koma í veg fyrir
atvikið ef hún hefði fengið þaö
eftirlit sem nauðsynlegt var.
-PÍ
íprófi
Óvæntur gestur mætti til próf-
töku í MR síðastliðinn föstudag.
í leikfimisal MR var verið að taka
vorpróf þegar rotta allstór birtist
og gerði talsverðan usla. Henni
var hins vegar meinuð próftaka
og á endanum tókst að vísa henni
á dyr. Nemendur gátu því kláraö
sin verkefni
-Pi
Skuggaráöuneyti Framsóknarflokksins:
Égálikajeppa
- sagði Steingrímur Hermannsson um umhverfismálin
Framsóknarmenn hafa ákveðið að
mynda eins konar skuggaráðuneyti.
Það þýðir í raun að ákveðnir þing-
menn flokksins annast ákveðna
málaflokka. Vegna alls þess gríns
sem verið hefur á lofti um jeppann
hans Júlíusar Sólness var Steingrím-
ur Hermannsson spurður hver yrði
skuggaráðuneytisumhverfismála-
ráðherra. Það kom hik á Steingrím
svo hann var þá spurður hvort þaö
yrði Stefán Guðmundsson, þingmað-
ur Norðurlands eystra, vegna þess
að hann á góðan jeppa?
„Ég á nú líka jeppa,“ svaraði þá
Steingrímur og brosti.
En grínlaust sagði Steingrímur að
þetta hefði verið ákveðið eftir sinni
tillögu. Um væri að ræða að þing-
flokkurinn skipti með sér verkum.
Menn tækju alveg að sér ákveðna
málaflokka. Þeir verða ábyrgir með
þeim sem eru í nefndum á þinginu
og sérfróðum mönnum utan þings-
ins.
„Þessir menn eiga að kynna sér
mjög vel og vinna í viðkomandi
málaflokkum. Ég vil nú ekki kalla
þetta skuggaráðuneyti heldur að hér
sé um að ræða talsmenn flokksins í
ákveðnum málaflokkum. Þeir eiga
að vinna að sínum málaflokkum
óháð því sem ríkisstjómin leggur
fram. Þeir eiga að móta þar eigin
mál og stefnur í samráði við aðila
utan þings og inpan," sagði Stein-
grímur Hermannsson.
Hann sagði að ekki væri búið að
ákveða enn hvaða málaflokka menn
tækju að sér. Hann sagðist eiga í
tösku sinni tillögur þar um þótt hann
ætlaði ekki að tala einslega við hvern
og einn eins og nú tíökaðist.
-S.dór
Vatnamót og Geir-
landsá gáf u 200f iska
„Vorveiðin 1 Geirlandsá og
Vatnamótum er búin í bili. Fiskur-
inn er næstum allur farinn niður f
sjó en Vatnamótin gáfu 160 fiska
og Geirlandsá 40 fiska,“ sagði
Óskar Færseth í Keflavík í gær og
bætti við: „Stærsti fiskurinn í Geir-
landsá var 13,5 punda og 9 punda
f Vatnamótunum.“
„Veiðin hjá okkur í Grenlæknum
gekk ágætlega og viö fengum á
milli 40 og 50 fiska, sá stærsti var
7 punda,“ sagði Jónas Th. Lilli-
endahl en hann var að koma úr
Grenlæknum í gærdag.
, ,Það er töluvert af fiski í læknum
en viö vorum á svæði fjögur," sagði
Jónas í lokin.
„Það kom skot í veiðina í Rangán-
um og veiðímaður, sem var fyrir
fáum dögum, veiddi 6 fallega fiska,
bleikjur og sjóbirtinga," sagði Örn
Hjálmarsson í gærdag.
„Þaö var Amar þór sem veiddi
fiskana og voru þeir stærstu 7
punda," sagði Örn ennfremur.
-G.Bender
Barátta við eldinn í húsinu við Lindargötu. Húsið verður flutt hvað sem tautar og raular.
DV-mynd S
Húsiö brann en verður flutt:
„Þýðir ekkert að gefast upp“
- Verður flutt þó að ég þurfi að sópa því upp
„Húsið er ekki ónýtt. Efri hæðin
er ónýt sem slík en það er ennþá
burður í húsinu sem hægt er að
styrkja þannig að hægt verði að flytja
það á grunninn sem ég er að byggja
núna. Ég tók þá ákvöröun í gær aö
húsið yrði flutt. Það þýðir ekkert að
gefast upp. Það eina sem ég á er hola
í jörðinni þarna vestur í bæ. Þó að
ég þurfi að sópa því upp þá flyt ég
það. Það verður byrjað að slá upp í
dag,“ sagði Kolbrún Mogensen, ann-
ar eigandi hússins við Lindargötu
sem brann á þriðjudagskvöldið.
Húsið, sem þau keyptu á 300.000
síðastliðið sumar, var ótryggt. Morg-
uninn áður en húsið brann byrjuðu
þau að grafa á lóð sem þau höfðu
keypt vestur í bæ.
„Eg hefði viljað að þessir drengir
fyndust. Ég veit aö ég hef enga kröfu
á þá en ég hefði viljaö ræða viö þá
og fá þá allavega niður í hús og fá
þá til þess að vinna í því. Ég held að
þeir hljóti að hafa samviskubit.
Ég er mest sjokkeruð yfir þessum
guttum. Ég hugsa mest um þaö. Svo
vorkenni ég húsinu alveg þrælmikið.
Það er búið að fara í gegnum svo
margt. Húsið er byggt 1886 þannig
að þaö er alveg hundgamalt. Ég vil
að lokum koma á framfæri þakklæti
til Slökkviliðsins. Það stóð sig alveg
frábærlega. -pj
Frumvarp til laga um þingsköp á Alþingi:
Ræðuf lutningur undir mikilli tímapressu
- aldursforseti sá sem hefur lengsta þingsetu að baki
Vegna þess að Alþingi verður
framvegis ein málstofa þarf að
breyta allnokkuð þingskapalögun-
um. Páll Pétursson, Framsóknar-
flokki, mælti í gær í neðri deild
fyrir frumyarpi til breytinga á
þingskapalögunum. í frumvarpinu
er gert ráð fyrir allmiklum breyt-
ingum á þingskapalögunum frá því
sem nú er.
Mestar eru breytingarnar varð-
andi ræðutíma þingmanna og má
eiginlega segja að þær muni fara
fram undir skeiðklukkumælingu,
samkvæmt frumvarpinu.
Heimilt verður að veita stutt and-
svör viö ræðum. Heildarræðutími
verður þá 15 mínútur og andsvar
hvers þingmanns 2 mínútur.
Ræðutími í þingskapaumræðu
veröur takmarkaður við 5 mínútur.
Við umræður utan dagskrár verð-
ur ræðutími málshefjanda og ráð-
herra 30 mínútur en annarra 15
mínútur. Enginn má tala oftar en
tvisvar. Þátttaka annarra en fyrir-
spyrjenda og ráðherra í umræðum
á fyrirspumafundum verður nú
leyfð formlega, ein mínúta einu
sinni fyrir hvern þingmann. Þá er
lagt til að heimilt veröi að ræða tvö
skyld mál í einu.
Gert er ráð fyrir að fastanefndir
þingsins verði 12 og að í öllum
nefndum sitji 9 menn í stað 7 núna.
Óafgreidd þingmál falla niður við
þinglok. Þá er gert ráð fyrir að
komiö verði upp rafeindabúnaði
sem komi í staðinn fyrir nafnakall.
Krafist verður aukins meirihluta
varðandi það að veita afbrigði frá
þingsköpum. Loks er mætinga-
skylda í fyrirspurnartíma afnumin.
Kveðið er skýrt á um að þingfor-
seti fari með æðstu stjórn þingsins.
Varaforsetar verða fjórir kosnir
listakosningu. Þeir ásamt forseta
mynda forsætisnefnd þingsins.
Mörkuð eru skýrari skil milli yfir-
stjórnar forseta og hinnar daglegu
famkvæmdastjórnar sem nú verð-
ur á hendi skrifstofustjóra.
S.dór