Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Qupperneq 4
26
MÁNUDAGUR .1. JÚLÍ1991.
íþróttir
karla II
2. deild karla
ÍA~Fylkir...
Þór - SelfoSs .3-1
Þróttur - Tindastóll .3-0
Haukar - ÍR. .1-4
IBK-Grindavík ,2-2
Akranes ..6 6 0 0 20-1 18
Þróttur.R ..6 4 11 10-4 13
Þór, Ak ..6 4 11 12-9 13
ÍR ..6 3 12 12-8 10
Keflavik ..6 2 2 2 10-8 8
Selfoss ..6 2 1 3 10-10 7
Grindavfk ..6 2 2 2 9-7 8
Fylkir ..6 0 4 2 6-9 4
Haukar ..6 0 1 5 6-2 1
Tindastóll ..6 0 1 5 4-21 1
Markahæstir:
Amar Gunnlaugsson, ÍA ....5
JúlíusTryggvason, Þór ....5
Einar Daníelsson, Grindavík... ....5
BragiBjömsson,ÍR ....4
Þórður Guöjónsson, ÍA ....4
Goran Micic, Þrótti ....4
1. deild
o kvenna
l.deild kvenna
KR-Þróttur,N..............2-0
ÍA~Þróttur,N.............5-0
KR............6 5 0 1 19-7 15
Akranes.......6 4 1 1 22-3 13
Valur.........5 4 1 0 20-3 13
UBK...........5 3 1 1 9-6 10
Þróttur, N....6 1 0 5 6-16 3
Þór.Ak........4 1 0 3 3-16 3
Týr...........4 0 1 3 2-21 1
KA............4 0 0 4 4-13 0
• Hlé verður nú gert á íslands-
mótinu vegna landsleikja.
Stórsigur ÍR
í Haf narfirði
Haukar töpuðu enn eina ferðina í
2. deildinm á fostudagskvöldið er
þeir fengu ÍR-inga í heimsókn. Breið-
hyltingar sigruðu auðveldlega, 1-4,
og staða Haukanna er nú vægast sagt
hrikaleg en Uðiö vermir botninn
ásamt TindastóU.
ÍR-ingar gerðu út um leikinn með
því aö skora 3 mörk á nokkurra mín-
útna kafla í fyrri háUleik. Tryggvi
Gunnarsson gerði tvö fyrstu mörkin
og Kjartan Kjartansson það þriðja.
Tryggvi var síðan enn á ferðinni i
síðari hálfleik en Kristjáni Kristjáns-
syni tókst að laga stöðuna fyrir Hafn-
firðinga meö marki 5 mínútum fyrir
leikslok.
-RR
Fjórðisigur
DV
Skagamenn halda
uppteknum hætti
- sigruðu Fylki, 2-0, og eru með fimm stiga forystu í 2. deild
Sigurgeir Sveinsson, DV, Akranesi:
Skagamenn gerða það ekki enda-
sleppt í 2. deildinni en að loknum
sex umferöum er Uðiö meö fuUt hús
stiga og hefur aðeins fengið á sig
eitt mark. Fylkismenn komu í
heimsókn á Akranes á föstudags-
kvöldið og var þetta önnur viður-
eign liðanna í vikunni en þau átt-
ust einnig við í bikarkeppninni
þremur dögum áður. Skagamenn
sigruðu, 2-0, í viðureigninni og
voru bæöi mörkin skoruð í fyrri
hálfleik.
Fyrra markið kom aðeins eftir
þriggja mínútna leik og átti Alex-
ander Högnason allan heiðurinn
af því marki. Alexander gaf laglega
sendingu á Karl Þórðarson sem
skaut aö markinu en markvörður
Fylkis hélt ekki knettinum sem
barst tfl Þórðar Guðjónssonar sem
skoraði af stuttu færi.
Skagamenn gerðu eftir markið
harða hríö að marki Fylkismanna
og annað mark lá í loftinu. Alex-
ander Högnason kom heimamönn-
um í 2-0 eftir skot sem markvörður
Fylkis hélt ekki og átti Alexander
ekki í miklum erfiðleikum að koma
knettinum í markið af stuttu færi
Fylkismenn voru mun ákveönari
í síðari hálfleik en á sama tima
voru Skagamenn mjög daufir. Þrátt
fyrir talsverða ógnun tókst Fylkis-
mönnum ekki að koma knettinum
í markið. Guðmundur Baldursson
komst næst því að skora en Kristj-
án Finnbogason, markvörður
Skagaliðsins, varði vel skallabolta
Guðmundar.
Fylkismenn eru því enn án sigurs
í deildinni, hafa gert fjögur jafn-
tefli og sitja í þriðja neðsta sæti
deildarinnar.
Tindastóll
auðveld bráð
- tapaði fyrir Þrótti, 3-0
Þróttarar eru enn á sigurbraut í
2. deild eftir 3-0 sigur á slöku liði
Tindastóls á föstudagskvöldið. Leik-
urinn var ekki mikið fyrir augað
framan af, heldur mikið um háspyrn-
ur og tuð í dómaranum og það var
eins og leikmenn heföu minnstan
áhuga á að spila fótbolta. Tindastóls-
menn fengu fyrsta færið á 15. mínútu
þegar Björn Sigtryggsson skaut í
þverslána og þetta var reyndar eina
færi Stólanna í leiknum. Hinum meg-
in fékk Goran Micic dauðafæri á
markteig en klúðraði því. Á lokamín-
útu fyrri hálfleiks náðu Þróttarar
forystunni þegar Micic var felldur í
teignum og Sigurður Hallvarðsson
skoraði af öryggi úr vítaspymunni.
Síðari hálfleikur var betur spilaður
og Þróttarar héldu undirtökunum.
Micic var enn í dauðafæri en skaut
í stöngina og þaðan fór boltinn til
Ingvars Ólafssonar sem skallaði rétt
framhjá. Þegar 15 mínútur voru til
leiksloka bætti Theódór Jóhannsson
öðru markinu við með viðstöðulausu
skoti sem hafnaði efst í bláhtíminu.
Fimm mínútum síðar innsiglaði
Micic síðan öraggan sigur Þróttara
með góðu marki.
Óskar Óskarsson var bestur hjá
Þrótturum en hjá Stólum var Stefán
Stefánsson markvöröur besti maður-
inn og bjargaði liði sínu frá enn
stærra tapi.
-KG
• Hraustlega tekist á í viðureign Þróttar og Tindastóls. Þróttur sigraði
leiknum, 3-0. DV-mynd G
Jaf ntef li í nágrannaslag
• Gestur Gylfason skoraði síðara
mark Keflvíkinga.
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
Keflvíkingar fengu óskabyrjun í
nágrannaslagnum gegn Grindvík-
ingum. Júgóslavinn Marco Tanasic
skoraði úr vítaspyrnu strax á fyrstu
mínútu leiksins. Vítaspyrnuna fengu
Keflvíkingar eftir að Kjartan Einars-
son var felldur innan vítateigs.
Keflvíkingar héldu áfram að sækja
og bættu við öðm marki á 8. mínútu
og var Gestur Gylfason þar að verki
eftir glæsilega stungusendingu frá
Kjartani Einarssyni. Keflvíkingar
fengu nokkur tækifæri til að bæta
við fleiri mörkum en færðu sér þau
ekki í nyt.
Aftur á móti minnkuðu Grindvík-
ingar muninn á 24. mínútu. Baráttu-
jaxhnn Hjálmar Hallgrímsson skor-
aði beint úr aukaspymu af 30 metra
færi - sannarlega frábært mark.
Hjálmar var snöggur aö taka auka-
spyrnuna því að Keflvíkingar vom
að stilla upp varnarvegg þegar
Hjálmar lét skotið ríöa af.
Framan af síðari hálfleik sóttu liðin
á víxl en það var síðan Einar Daníels-
son sem jafnaöi metin fyrir Grind-
víkinga á 60. mínútu leiksins. Þórar-
inn Ólafsson gaf sendinu á Einar sem
sneri af sér vamarmenn Keflvíkinga
og skoraði af öryggi. Ekki urðu
mörkin fleiri í leiknum og verða
þetta þegar á heildina er litið að telj-
ast sanngjörn úrslit.
Jakob Jónharðsson var bestur
Keflvíkinga í leiknum en ef ÍBK ætl-
ar aö blanda sér í baráttuna um efstu
sætin í 2. deild verða leikmenn liðs-
ins að nýta tækifærin betur. Hjá
Grindvíkingum var Hjálmar Hall-
grímsson bestur og Einar Daníelsson
er stórhættulegur leikmaður en
stundum eigingjarn á holtann.
Þórsara
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
. Þórsarar unnu sinn fjórða sigur í
2. deild þegar þeir lögðu Selfoss að
velh á Akureyri, 3-1. Fátt markvert
gerðist framan af leiknum en Halldór
Áskelsson kom heimamönnum á
sporið á 30. mínútu leiksins. Mis-
tök áttu sér stað í vörninni hjá Sel-
fyssingum sem Halldór nýtti sér til
fulls.
Bjarni Sveinbjömsson kom Þór í,
2-0, sex mínútum síðar með skoti af
stuttu færi og þannig var stöan í
hálfleik. Þórsarar fengu nokkur
tækifæri til að auka forskotið á upp-
hafsmínútum síðari hálfleiks en allt
kom fyrir ekki.
Átta mínútum fyrir leikslok gerði
Júlíus Tryggvason þriðja mark Þórf
úr vítaspymu eftir að Áma Þór
Ámasyni haföi verið felldur innan
vítateigs. Selfyssingum tókst að laga
aðeins stöðuna strax í næstu sókn>
þegar Sigurður F. Guðmundsson
skallaði knettinum laglega í netið.
KR-stúlkur í efsta sætinu
KR skaust aö nýju í toppsæti 1. ogvarjafnræðimeðliðunumífyrri Þróttárstúikur náðu aldrei að ur nú þegar sjö leikjum er lokið. •
deildar kvenna um helgina er liðið hálfleik. Þróttarstúlkur voru nærri skapa sér nein hættuleg færi og var Fimm af fastamönnum liðsins eru
sigraði Þrótt, Neskaupstaö, 2-0, á því aö skora er Inga Bima Hákon- eíns og þeim tækist ekki að hnýta á sjúkralista.
föstudag. Þróttarstúlkurnar léku ardóttir komst ein inn fyrir vörn endahnútinn á sóknarlotur sínar. „Víð eram búin að spila sjö leiki
einnig gegn ÍA á Akranesi og sigr- KR en skot hennar fór 1 stöngina, Það tókst Skagastúlkunum hins á 20 dögum eða tæpa þijá leiki á
uðu Skagastúlkur örugglega, 5-0. í síðari hálfleik náði KR undir- vegar og þegar flautað var til leiks- viku að meðaitali," sagði Smári
tökunum í leiknum og á 14. mínútu loka höfðu þær skoraö 5 mörk án Guðjónsson, þjáfíari LA, í viðtali við
KR enn í toppsætinu skoraði Anna Steinsen glæsflegt þess að Þrótti tækist að svara fyrir DV.„Égerekkiaðkennameiöslum
„Þetta var lélegur leikur af okkar mark með skalla eftir fyrirgjöf frá sig. um að við höfum verið að tapa stig-
hálfu,“ sagði Karitas Jónsdóttir, Guðrúnu Jónu Krisfjánsdóttur. Friðgeröur Jóhannsdóttir skor- um en þaö er hins vegar ijóst að
þjálfari Þróttar, í viðtali við DV Guörún Jóna var siðan sjálf aö aði tvö mörk fyrir ÍA og Laufey svona álag skilar sér í meiðslum.
eftir leikinn gegn KR. „Víð náðum verki skömmu síðar er hún fékk Sígurðardóttir gerði sér litiö fýrir En nú eram við að fara í 10 daga
ekki að skapa okkur nógu góð færi stungusendingu inn fyrir vöm og skoraði þrjú mörk. Annað mark frí og vonandi verða allar orðnar
og okkur tókst því ekki að skora. Þróttar og skoraði af öryggi. hennar var stórglæsilegt, fyrirgjöf góðar þegar við spilum næst.“
Stefnan hjá okkur er að halda okk- kom fyrir markiö þar sem Laufey Þrír leikir fóru fram i 2. deild
ur i deildinni og við förum í alla Laufey gerði þrennu tók boltann á bringuna og hamraði kvenna. í c-riðli sigraöi Súlan
leOú með því hugarfari að vinna,“ Skagastúlkur áttu ekki í miklum hann síðan viðstöðulaust efet í Austra, 3-0, og Valur, Reyðarfirði,
sagði Karitas. vandræðum með Þrótt á sunnudag. markhomið. sigraði Einherja, 5-1. í a-riðli sigr-
Leikurinn var ágætlega leikinn Fyrri hálfleikur var þó jafh en SjúkralistiÍAerorðinnansiiang- aöiStjamanHauka,7-l. -ih