Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1991, Qupperneq 10
MÁNUDAGUR Á JÚLÍ J991. 2______ Iþróttir Kynbótahrossin vöktu sérstaka athygli fyrir óvenjumikla fegurð: „Ekki sést áður slíkur flokkur hryssna" - segir Þorkell Bjamason hrossaræktarráðunautur Kynbótahrossin á fjórðungsmótinu vöktu mikla athygli fyrir óvenju- mikla fegurð og þá ekki síður ganglipurð. Yngri hryssurnar þóttu sérlega góðar og telja menn að um framfarastökk sé að ræða í hrossa- ræktinni á Suðurlandi. „Ekki hefur sést áður slíkur hæfileikaflokkur fjögurra vetra hryssna á stórmóti, hvorki fjórðungsmóti né landsmóti, svo jafngoðar eru þær,“ sagði Þor- kell Bjarnason hrossaræktarráðu- nautur. Brekkudómarar virtust sam- mála Þorkeli. Tvær fjögurra vetra hryssur í 1. verðlaun Fjögurra vetra hryssurnar voru óvenjumargar eða fimmtán. Tvær þeirra komust í 1. verðlaun: Björk frá Hvolsvelli, sem hélt sinni einkunn, 8,02, og Hetja frá Reykjavík sem fékk forskoðuninni í vor. Djörfung frá Tóftum fékk hæstu einkunnina, 8,11. Mardöll frá Reykja- vík fékk 8,07, Dagrún frá Dallandi fékk 8,04, Jarþrúður frá Kjartans- stöðum fékk 8,03, Glóð frá Möðru- völlum fékk 8,00 og Ábót frá Neðra- Ási fékk 8,00. Hryssurnar voru mjög ólíkar að gerð og hæfileikum, sumar fínlegar, aðrar stæðilegar. Sama má segja um hæfileikana. Sumar voru svo vakrar að undrun vakti en aðrar hrifu menn með glæsilegum tölt- dansi. 70% sex vetra hryssna M.verðlaun Þær þijár hryssur, sem komu með hæstu dóma ársins inn á fjórðungs- mótið, röðuðu sér í efstu sætin. Flipa frá Nýjabæ kom inn með hæstu einkunnina, 8,21, hækkaði sig í 8,27 og stóð efst. Næst kom Venus frá Skarði, 8,26, en hún fékk hæstu hæfileikaeinkunn allra hryssnanna, 8,73, reyndar allra hrossa, en fimm vetra hryssan Glóð frá Möðruvöllum fékk hæstu byggingareinkunn allra hryssna, 8,43. í þriðja sæti kom Sprengja frá Ytra-Vallholti með 8,21. Alls fengu 24 hryssur af 341. verðlaun sem er öld- ungis frábær árangur, um 70%. Sex vetra hryssurnar voru nokkuð jafn- ar að byggingu, .en hæfileikamir skiptu sköpum. Til dæmis fékk Flipa frá Nýjabæ, sú sem stóð efst, 8,08 fyrir byggingu en 8,47 fyrir hæfi- leika, Venus frá Skarði fékk 7,80 fyr- ir byggingu og 8,73 fyrir hæfileika og Sprengja frá Ytra-Vallholti fékk 8,08 fyrir byggingu og 8,34 fyrir hæfi- leika. Sex vetra hryssurnar þurftu 7,90 til að komast inn á mótið og hækkuðu langflestar fyrir hæfileika en lítið var hreyft við byggingarein- kunnum, enda voru hrossaræktar- ráðunautarnir þrír búnir að dæma allar hryssurnar áður í vor. Úrvalsgóðar ættmæður Fimm hryssur voru dæmdar fyrir afkvæmi, þar af þrjár til heiðurs- verðlauna. Afkvæmi hryssnanna eru flest úrvalsgóð, frægir einstaklingar. Til dæmis eru á meðal afkvæma Gló- kollu frá Kjarnholtum stóðhestarnir Kolfinnur og Kolgrímur frá Kjarn- holtum og systir þeirra hestagullið Kolbrá. Þessi frægu afkvæmi nægðu Gló- kollu ekki í efsta sæti þeirra hryssna 8,01 og hækkaði sig frá því í forskoð- uninni úr 7,86. Sú þriðjairöðinni var Þema frá Vallamesi með 7,97. Fimm vetra hryssumar vom tutt- ugu. Sex þeirra fengu 1. verðlaun. Af þessum sex vora þijár sem hækk- uðu sig upp í 1. verðlaun, frá því í sem kepptu að heiðursverðlaunum því þangað leitaði Sjöfn frá Laugar- vatni með afkvæmi sín. Sjöfn fékk 8,05 í aðaleinkunn fyrir sjö afkvæmi: Ál, Lofh, Glímu, Þrúði, Dáð, Áka og Börk. Glókolia frá Kjamholtum fékk 8,03 fyrir afkvæmi sín: Kolbrá, Kátínu, Kolfinn, Kolgrím og Kötlu. Lipurtá frá Efri-Brú fékk 7,99 fyrir afkvæmi sín: Snarfaxa, Blökk, Gná, Börk og Emblu. Tvær hryssur kepptu að 1. verð- launum fyrir afkvæmi og náðu því báðar. Gnótt frá Brautarholti fékk 7,95 fyrir Gná, Gloríu, Hildi og Fiðlu og Vordís frá Sandhólafeiju fékk 7,8 fyrir Adam, Sædísi, Aldísi, Mánadísi og Herdísi. Þeir stóðhestar sem stóðu efstir í forskoðun í vor í hverjum flokki héldu sínum sætum. Toppur frá Eyj- ólfsstöðum kom inn með hæstu ein- kunn sex vetra stóðhestanna og bætti sig töluvert, úr 8,33 í 8,44 og stóð efst- ur þeirra sjö hesta sem voru dæmd- ir. Toppur hélt byggingareinkunn- inni 8,64, sem var hæsta byggingar- einkunn kynbótahross á fiórðungs- mótinu, en bætti hæfileikaeinkunn- ina úr 8,04 í 8,26. Næstir honum komu Reykur frá Hoftúnum með 8,28, Sörli frá Búlandi með 8,27, Kriki frá Hellulandi með 8,18 og Ás frá Ásatúni með 8,15, Nátt- ar frá Miðfelli meö 8,10 og Gustur frá Svanavatni meö 8,05. Sörli frá Bú- landi fékk hæstu hæfileikaeinkunn sex vetra stóðhestanna, 8,51. Fimm vetra stóöhestamir voru tólf. Þó svo að Orri frá Þúfu lækkaði örlítið frá því í forskoðun, úr 8,34 í 8,31, stóð hann efstur. Geysir frá Gerðum kom næstur með 8,17, Trost- an frá Kjartansstöðum fékk 8,14, Tíg- ur frá Álfhólum fékk 8,13, Helmingur frá Djúpadal fékk 8,03, Börkur frá Laugarvatni fékk 8,01, en sex hest- anna náðu ekki 1. verðlaunum. Orri fékk langhæstu hæfileikaeinkunn fimm vetra stóðhestanna, reyndar allra stóðhestanna, 8,54, en er þó skeiðlaus að mestu ennþá. Þorkell Bjamason sagði þó aö lítillega hefði verið hreyft við skeiði í Orra og verð- ur gaman að sjá tii hans þegar hann hefur numið þá hst. Sjö fiögurra vetra stóðhestar voru dæmdir. Tveir þeirra fengu 1. verð- laun: Páfi frá Kirkjubæ, sem hækk- aði úr 8,16 í 8,19, og Oddur frá Sel- fossi sem hækkaði úr 7,86 í 8,04. Stórt stökk það. Kjarnar frá Kjamholtum var þriöji í röðinni með 8,97 í aðalein- kunn. Einungis tveir stóöhestar voru dæmdir fyrir afkvæmi. Stígur frá Kjartansstöðum hlaut 1. verðlaun fyrir 20 dæmd afkvæmi og er hann með 129 stig í kynbótamati. Adam frá Meðalfelli hlaut 2. verð- laun fyrir 42 afkvæmi. Hann er með 118 stig í kynbótamatinu. -EJ i Sjöfn frá Laugarvatni fékk hæstu einkunn heiðursverðlaunahryssna fyrir afkvæmi. „Ollarnir" Þorkell, Gylfi, Bjarni og Hreinn sitja hestana og halda í. DV-myndir EJ • Toppur frá Eyjólfsstöðum fékk hæstu einkunn stóöhesta, sex vetra og eldri. Knapi er Sigurbjörn Bárðarson. Eiríkur Jónsson skrifarfráHellu flSTuno SÉRVERSLUN HESTAMANNSINS Háaleitisbraut 68 Austurver Sími 68 42 40 ^ £

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.