Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991.
5
Fréttir
Yfirlögregluþjónn um grjótkastið á vegköflum með ofaníburði:
Ökumenn virða ekki kæru-
leysislegar merkingar
„Merkingum er ábótavant, skilti
eru of fá og oft á tíöum er þeim
kæruleysislega stállt upp. Stundum
eru merkingar beinlínis rangar og
skilti standa þar sem þeirra er ekki
þörf. Einnig kemur fyrir að skilti
liggja í vegkantinum eöa þau eru
látin standa of lengi. Vegfarendum
hættir því til aö viröa ekki merk-
ingar og sjá stundum ekki þaö sem
á aö varast. Ástandið hefur aldrei
verið eins slæmt og nú. Við höfum
fengið gífurlega margar kvartanir
um skemmdir á bílum og vegna
ökumanna sem viröa ekki leyfileg-
an hámarkshraöa. Kaflarnir hafa
aldrei veriö eins margir og stuttir
og í ár. Vegfarendur hafa einnig
kvartað yfir hraðakstri vinnu-
flokkanna, ‘ sagði Þórður Sigurðs-
son, yfirlögregluþjónn í Borgar-
nesi, vegna ástandsins sem skapast
hefur í sumar á þjóðvegum þar sem
vegkaflar eru með ofaníburði - möl
sem lögð er yfir gamla slitlagið og
á að þrýstast niður þegar ekið er á
því.
Kaflamir eru mjög varasamir.
Lítil skilti með 35 eða 50 kílómetra
hámarkshraða standa oftast í veg-
kantinum til að vara ökumenn við.
Þegar bOar aka um skjótast stein-
amir í allar áttir af hörðu undirlag-
inu. Rykmyndun verður einnig
mikO.
„Við erum að reyna að bæta þetta
og fá vegfarendur í hð með okk-
ur,“ sagði Helgi HaOgrímsson að-
stoðarvegamálastjóri við DV.
„Sjálfsagt má gera betur. Varðandi
skiltin eru aðstæður oft gífurlega
erfiðar. Það þarf að færa til skilti
og þetta er ekki alltaf eins og best
verður á kosið. Flestir vegfarendur
taka vel í þetta en það sorglega er
að þeir sem aka skynsamlega fá
steinaausturinn frá þeim sem böðl-
ast,“ sagði Helgi. Hann sagði jafn-
framt að vaxandi þáttur í umfangi
vegamálastjóra væru yfirlagnir.
Aðspurður um hvort ekki ætti að
merkja vegaframkvæmdir betur, •
til samræmis við nágrannalöndin,
sagði Helgi: „Þetta er lengi hægt
að bæta. En erlendis eru reglur
mun strangari en hér. Við erum
hins vegar með ítarlegar skiltaregl-
ur. Ef vegkaflar eru merktir í sam-
ræmi við það eigum við ekki að
þurfa að hafa miklar áhyggjur."
Ökumenn sem verða fyrir tjóni
vegna grjótkasts fá sjaldnast úr því
bætt. Tjón vegna brotinna framr-
úða eru þó greidd hjá tryggingum.
Skemmdir á lakki, luktum og öðru
er aðeins bætt ef bílar eru í kaskó
en þá ber þess að gæta að eiganda
ber kostnað vegna sjálfsábyrgðar.
-ÓTT
láiig
Veður hefur leikið við landsmenn undanfarið en hvergi hefur hitinn náð þeim mörkum sem mteldust á Kirkjubæj
arklaustri. Menn töluðu um Spánarveður og spókuðu sig léttklæddir. DV-mynd Páll Péturssor
Heitasti dagur sumarsins á Kirkjubæjarklaustri:
Krafist rannsóknar á sorpbrennslunni í Hnífsdal:
Alla tíð án
starfsleyfis
„Það er ekki ljóst hvert framhaldið
verður, það verður bara að koma í
ljós,“ sagði Eyjólfur Bjarnason,
tæknifræðingur hjá ísafjarðarbæ, er
DV ræddi við hann um sorp- •
brennslustöðina í Hnífsdal.
MikOl styr stendur um stöðina sem
er á Skarfaskeri í Hnífsdal. Hafa íbú-
ar í Hnífsdal krafist opinberrar rann-
sóknar á starfsemi hennar. Embætti
ríkissaksóknara hefur málið nú til
meðferðar og er niðurstöðu að vænta
innan skamms.
Stöðin hefur alla tíð starfað án
starfsleyfis. Að sögn Eyjólfs Bjarna-
sonar var sótt um slíkt leyfi á sínum
tíma. Það fékkst ekki, en þó fóru
heilbrigðisyfirvöld ekki fram á að
henni væri lokað.
íbúarnir í Hnífsdal óttast að mikO
mengun komi frá sorpbrennslustöð-
inni. Eyjólfur sagði að öllum bruna
fylgdi mengun. Færi hún eftir því
hve mikOl hitinn væri.
„Við höfum farið fram á það við
Hollustuvernd ríkisins að stöðin
verði mengunarmæld. Hollustu-
vernd hefur ekki orðið við þeim til-
mælum enn sem komið er. Það má
kannski segja að enginn hafi gert
neitt til þess að grennslast fyrir um
hve mikO mengunin er.“
Sorpbrennslustöðin er ekki starf-
rækt þessa dagana. Er verið að bæta
„ytri mengunarvamir" hennar, þar
á meðal að hækka reykháfinn. Er
gert ráð fyrir að hún verði sett aftur
í gang í næstu viku.
-JSS
„Eins og að vera á Spáni“
Réttargeödeildin:
Óánægja í Ölf usi
Páll Pétuisson, DV, Vík í Mýrdal:
„Þetta er eins og að vera á Spáni"
sagði einn sundlaugargesturinn við
sundlaugina á Edduhótelinu á
Kirkjubæjarklaustri á heitasta degi
sumarsins til þessa, 2. júh. Þá komst
hitinn í 29 gráður og var fólk léttk-
lætt við leik og störf.
„Fólk er farið að synda í ám og
tjömum, sem er nóg af á þessu svæði,
og hitastigið í þeim er allt að 20 gráð-
ur þegar heitast verður," sagði Hörð-
ur Davíðsson, bóndi í Efri-Vík í Land-
broti.
Ólafia Jakobsdóttir, oddviti Skaft-
árhrepps, sagði að ferðamanna-
straumur á Klaustri hefði ekki auk-
ist í sumar miðað við oft áður og taldi
hún að það væri vegna þess að það
hefur verið gott veður nánast um
aOt land í langan tíma.
Það fer ekki hjá því að svona lang-
varandi þurrkur hefur áhrif á gróð-
urinn og er farið að bera verulega á
gróðurskemmdum á þessu svæði,
sérstaklega þar sem sandur er undir.
Má nefna að stórt tún austan við
Klaustur er svo brunnið að ekki eru
miklar líkur á að það verði slegið í
sumar. Annars gengur heyskapur
vel hjá flestum bændum og spretta
hjá þeim hefur verið góð í hitanum.
„Við höfum aftur á móti ekki haft
nein verkefni fyrir unglingavinnuna
hjá okkur hér á Klaustri því að gras-
ið sprettur svo hægt,“ sagði Ólafía
að lokum.
„Menn eru órólegir, það hefur ekki
verið upplýst hvers konar fólk á að
vera þarna eða hvort þetta verður
opin eða lokuð stofnun eða hvernig
framkvæmdin verður," sagði Guð-
mundur Hermannsson, sveitarstjóri
í Ölfusi. íbúar í Ölfusi eru óánægðir
með skort á upplýsingum varðandi
flutning réttargeðdeildar að Sogni og
er fyrirhugaður fundur vegna þessa.
„Menn hafa haft samband við mig
og lýst yfir óánægju sinni og ég hafði
samband við heilbrigðisráðherra í
gær. Það sem við erum fyrst og
fremst óánægð með er að við skulum
ekki vera upplýst um málið en það
eru engar aðgerðir fyrirhugaðar af
hálfu sveitarfélagsins. íbúar eru
óánægðir með að þurfa að lesa um
þetta í fjölmiðlum," sagði Guðmund-
ur Hermannsson, sveitarstjóri í Ölf-
ushreppi. .
-pj
Stefán Garðarsson, bæjarstjóri á Ólafsvík:
Erum með varanlegar lausnir í f arteskinu
„Við teljum okkur vera með var-
anlegar lausnir í farteskinu og um
það snýst máhð. Ég ætla ekki að
blanda mér í deilur Landsbankans
og útgerðarfélagsins Tungufehs
um það hvort bátunum fjórum hafi
verið stolið eða ekki. Það sem skipt-
ir mig máh er að koma þessu í þann
farveg að við getum haldið áfram
að lifa og stunda okkar vinnu í
Ólafsvík," segir Stefán Garðarsson,
bæjarstjóri á Ólafsvík
í gær gekk bæjarstjóm Ólafsvík-
ur á fund Davíðs Öddssonar og
gerði honum grein fyrir þeim erfið-
leikum sem komið hafa upp á
staðnum í kjölfar gjaldþrots Hrað-
frystihúss Ölafsvíkur. Nú þegar
eru um sextíu af starfsmönnum
frystihúsins skráðir atvinnulausir
og aht bendir til að þijátíu til viö-
bótar bætist við þegar uppsagnar-
frestur þeirra rennur út. Þá mun
bæjarsjóður neyðast á næstu dög-
um til að segja upp störfum á fjórða
tug ungmenna vegna minnkandi
tekna.
Að sögn Stefáns hefur Lands-
bankinn enn ekki svarað tilboði
bæjarstjómar og útgerðarfélagsins
Útvers frá 13. júní um að þessir
aðilar taki rekstur hraðfrystihúss-
ins á leigu. Þá hefur Landsbankinn
heldur sýnt viðbrögð við óformlegu
tilboði þessara aðila frá 27. júní um
að þeir kaupi frystihúsið, togarann
og þá báta sem Landsbankinn gerir
nú kröfu í.
„Einu svörin sem við höfum feng-
iö frá þeim hafa verið óformleg og
á þá leið að þeim lítist ekkert á
þetta. það hefur helst mátt skilja
orð þeirra á þann veg að eðhlegast
væri að togarin og bátarnir lönd-
uðu bara á Faxamarkaði í Reykja-
vík. Við höfum ítrekað óskaö eftir
að fá að tala við Sverri Hermanns-
son, sem er bankastjóri svæðisins,
en einhverra hluta vegna hefur
ekki getað orðið af slíku. Staðan er
því öll mjög óljós en vonandi ský-
rast málin eitthvað eftir þessa
fundi í Reykjavík. Það er skylda
okkar að geta sagt fólki sannleik-
ann um ástandið eins og það er.
Menn geta þá allavega tekið þá
ákvörðun að negla fyrir glugga og
flutt brott.“
-kaa