Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Side 10
10
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991.
Útlönd
Vísindamenn íengja bein
Hópur japanskra vísindamanna hefur þróað nýja aðferð til að lengja
hand- og fótleggi um meira en 25 sentímetra með sérstakri bónskurðarað-
gerð og vélknúnu tæki, að því er dagblað í Japan skýrðí fi-á í gær. Hin
nýja aðferð þykir henta fyrir aðgerðir á dvergvöxnu fólki og þeim sem
verða fyrir því að útlimír þeirra styttast eftir slys.
Tæknin hefur verið notuð á um 40 sjúklingum á aldrinum 4 til 57 ára
á undanfómum tveimur áram. Dagblaðið sagöi frá 16 ára stúlku, hverrar
vinstri fótleggur var styttri en sá hægri vegna æxlis, sem nýju tækninni
var beitt við og óx fótleggur hennar um 35 sentimetra.
Aðferðin er í tveimur þrepum. í því fyrsta er beinið í limnum sem á
að lengja skorið og beinið læst í fastri stöðu utanfrá. Eins millímetra bil
er síðan myndað þar sem beinið var skorið og nýtt bein vex og reynir
að sameina hlutana tvo. Vélknúna tækið er notað til að víkka bilið.
Sjúklingar þurfa að liggja á sjúkrahúsi í tvo mánuði eftir að beinið er
skoriö.
Samiðumfiugvöll í Hong Kong
John Major, forsaetísráðherra vegar r tyiu yiu au næa ™ æiígio
Bretfands, fer til Kína til að undir- ?ö vera meö t raðum og neituðu að
rita samkomulag um umdeildan legBa Wessun sína yfir verkiö þo
flugvöll við Hong Kong. svo aö ™verandi flugvöliur Hong
Teiknlng Lurle Kong sé að verða allt of litill.
Kostnaðurinn við gerð nýja flugvallarins er áætlaður verða sem svarar
um þúsund milljörðum íslenskra króna. Reuter
Fleiri kjarnorkueftirlitsmenn til íraks
Sameinuðu þjóðirnar ætla að senda fleiri kjarnorkueftirhtsmenn til
fraks til að leita að tækjabúnaði sem nota má við kjarnavopnafram-
leiðslu. Alhstair Livingston, umsjónartnaður SÞ með eyðileggingu á
vopnabúri íraka, sagði í gær að 37 eftirhtsmenn til viðbotar mundu koraa
til íraks í næstu viku.
Nefnd háttsettra embættismanna Sameínuðu þjóðanna fór frá Bagdad
á miðvikudag eftir árangurslausar tilraunir til að fá að skoða tæki og
staöi þar sem grunur leikur á aö írakar smíði kjamavopn á laun.
Stjómvöld i Washington hafa sakað íraka um aö reyna að fela tæki til
kjarnasprengjugerðar og að hafa ekki skýrt rétt frá efnavopnum og lang-
drægum flugskeytum sínum.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur væntanlega saman til fundar
í dag tii að ræða hvernig þvinga megi íraka til að veita eftirhtsmönnum
ótakmarkaöan aðgang og til að hlýða á skýrslu sendinefndarinnar.
Kenýaf orseti varar við fjölflokkatali
Daniel arap Moi, forseti Kenýa, vill ekki heyra minnst á fjölflokkakerfi
I landlnu.
Daniel arap Moi, forseti Kenýa, hefur fyrirskipað iöndum sínum aö
minnast ekki einu orði á eins árs afmæli óeirða sem urðu um allt land
þegar íbúamir kröföust fjölflokkakerfis.
„Ég hef fyrirskipað öiium lögregluþjónum og hermönnum að fylgjast
vel með því hvort einhveijir tah um 7. júlí,“ sagöi Moi viö opnun markaðs-
torgs í Nairóbí, höfuðborg Kenýa, á miðvikudag. „Það er lögbrot að segja
7. júh. Það þýðir að viðkomandi hafi verið viðstaddur.“
Að minnsta kosti tuttugu manns létust í óeirðunum á síðasta ári sem
blossuðu upp þegar Moi neitaði að fyigja fordæmi annarra Jeiðtoga Afríku-
ríkja og koma á fjölflokkakerfi. Aöeins einn flokkur hefur verið leyfður
í Kenýa frá 1982.
Evrópubandalagíd kannar símaokur
Evrópubandalagið hefur haflð formlega rannsókn á þvl hvort símafélög
bandalagsríkjanna selji raiililandaslmtöl sín of dýrt.
I yfiriýsingu, sera var gefin út í Brassel í gær, sagði að bráðabírgðakönn-
un gæfi tii kynna að neytendur borguðu of mikið fyrir símtöl til landa
utan EB ef miðað væri við það sem þjónustan kostaði í raun.
Rannsókninni er ætlað að tryggja að íbúar landa Evrópubandalagsins
fái eitthvaö fyrir sinn snúö og að símafélögin fari eftir samkeppnisreglum.
Reuter
Bresk og kínversk stjórnvöld
hafa komist að samkomulagi um
að byggja nýjan flugvöll i bresku
nýlendunni Hong Kong sem fellur
aftur undir stjóm Kínveija 1997.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, mun fara til Kína til að
undirrita samkomulagið.
John Major var sagður fagna
fréttunum um samkomulagið sem
gert var opinbert í morgun en mikl-
ar deilur hafa staðið um fyrirhug-
aðan flugvöh um langt skeið.
Breska síjórnin í Hong Kong átti
frumkvæðið að flugvallarbygging-
unni 1989 til að auka trúnað manna
á nýlendunni eftir aö Kínverjar
brutu lýðræðishreyfinguna á bak
aftur á Torgi hins himneska fr iðar.
Kínversk stjórnvöld fóru hins
Steinar Bastesen, formaður Hrefnuveiðifélags Norður-Noregs, heldur grilluðu hrefnukjöti og skutli á lofti.
Simamynd Reuter
Norskir hrefnuveiðimenn:
Héldu hvala-
grillveislu
- til að mótmæla veiðibanni
Norskir hvalveiðimenn héldu í
gær grillveislu þar sem boðið var upp
á grillaðan hval í mótmælaskyni við
fimm ára hrefnuveiðibann í ábata-
skyni. Veiðimennirnir buðu gestum
og gangandi í höfninni í Svolvær í
Norður-Noregi að smakka hvalkjöt
og renna því niður meö bjór.
Norska ríkisstjórnin hafði farið
þess á leit við hvalveiðimenn aö eng-
ir hvahr yrðu veiddir í ár þar sem
það væri ólöglegt.
Stjómvöld sögöu í gær að hvalkjöt-
ið, sem boðiö var upp á í veislunni,
væri örugglega af nokkrum dýram
sem festu sig í fiskinetum um síöustu
helgi en hvalveiðimennimir neituðu
því. „Við veiddum í þessa veislu á
venjulegan máta með skuth. Dýrin
deyja fljótt og örugglega en það sama
er ekki hægt að segja um þau sem
veiðast í net. Það kjöt, sem við buðum
upp á þarna, er allt af hrefnum sem
veiddar hafa veriö á þessu ári, sumt
var frosið en sumt ferskt," sagði
Steinar Bastesen, formaður Hrefnu-
veiðifélags Norður-Noregs.
Fyrr í vikunni hætti Hrefnuveiðifé-
lagið við fyrirhugaðar skipulagðar
hrefnuveiðar í ábataskyni en lét
hverjum og einum meðlimi félagsins
eftir að taka ákvörðun þar að lútandi.
Noregur sagðist ætla að taka úr-
sögn úr Alþjóðahvalveiðiráðinu til
vandlegrar athugunar eftir að ráðiö
samþykkti í maí síðastliðnum áfram-
haldandi hrefnuveiðibann þrátt fyrir
aö vísindanefnd ráðsins segði að
hrefnustofninn væri nægjanlega stór
og legði til að takmarkaðar veiðar
yrðu leyfðar.
Reuter
Gorbatsjov:
Vesturlönd eiga ekki að þvinga okkur
Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, sagði í gær að Vesturlönd
ættu ekki að þvinga eigin þróunar-
hugmyndum upp á Sovétríkin. Hann
sagði Carlos Sahnas de Gortari, for-
seta Mexíkó, sem er í opinberri heim-
sókn í Moskvu, að hvorki kapítalism-
anum né sósíalismanum hefði enn
tekist að leysa vandamál mannkyns-
ins.
„Við erum greinilega á leið inn í
einhverja nýja menningu og að henni
verður engin ein fyrirmynd," hafði
Tass-fréttastofan eftir honum. „Jafn-
vel börn sömu móður eru ekki eins.“
Gorbatsjov sagði að hann mundi
bera upp þær hugmyndir sínar aö
þörf væri á nýrri skipan alþjóðlegrar
samvinnu þegar hann hittir leiðtoga
sjö helstu iðnríkja heims í London
um miðjan mánuðinn.
„Við erum ekki að tala um neina
góðgerðarstarfsemi heldur um sam-
starf sem báðir aðilar hagnast á. Það
er vonandi að leiðtogar Vesturlanda
hafi visku og hugmyndaflug til að
taka þetta allt með í reikninginn því
það er mjög mikilvægt að ástandið
fari ekki úr böndunum, að per-
estrojkunni miði áfram."
Leiðtogar vesturveldanna eru
reiðubúnir að bjóða Gorbatsjov að
koma honum í samband við alþjóð-
legar fjármálastofnanir og gefa hon-
um góð ráð um endurskipulagningu
sovésks efnahagslífs en þeir munu
ekki veita honum mikla fjárhagsað-
stoð á fundi þeirra í London.
Breskir embættismenn sögðu að
Gorbatsjov skildi það að íjárhagsað-
stoð væri ekki á dagskránni og þeir
byggjust við því að ekki yrði komið
með slíkar óskir á fundinn.
„Það sem ég held að leiðtogar iðn-
ríkjanna óski eftir eru uppbyggilegar
og opinskáar viðræður við Gorbatsj-
ov,“ sagði einn breskur embættis-
maður.
Talið er að á fundinum verði þeirri
hugmynd hreyft að veita Sovétríkj-
unum aukaaðild eða sérstök tengsl
viö Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Al-
þjóðabankann.
Reuter
Friður næst milb Líbanonhers og Palestinumanna:
PLO lætur bækistöðvar sínar af hendi
Ríkisstjóm Líbanons og PLO lýstu
því yfir í gær að tekist hefði að semja
um endalok stríðsins sem staðið hef-
ur á milli stjórnarhers Líbanons og
skæruhða PLO síðustu fjóra daga.
PLO samþykkti að beygja sig undir
líbanska yfirstjóm eftir að hafa notið
nokkurs konar sjálfsstjómar í Suð-
ur-Líbanon fyrir utan lög og reglur
líbanska ríkisins í tvo áratugi.
„Við náðum samkomulagi um öll
málefni og nú vonum við aö ekkert
muni hindra útfærslu þessa samn-
ings,“ sagði Yasser Arafat, leiðtogi
PLO, en hann er nú staddur í Túnis.
Samningurinn felur í sér að líb-
anski herinn tekur við yfirráðum í
Suður-Líbanon en PLO lætur þar
Yasser Arafat fagnaði friðarsam-
komulaginu. Simamynd Reuter
með af hendi síðustu bækistöðvar
sínar í landinu. Að sögn Arafats hafa
líbanskir ráðamenn fengið loforð
fyrir því að Bandaríkjamenn muni
nú beita ísraela þrýstingi til að þeir
yfirgefi svokallað öryggissvæði,
syðst í Líbanon.
PLO hefur fengið loforð líbönsku
ríkisstjórnarinnar fyrir því að öryggi
tvennra flóttamannabúða þeirra,
Miyeh Miyeh og Ain al-Hilwe, veröi
tryggt. Örfáum klukkustundum eftir
aö tilkynnt var um friðarsamkomu-
lagiö þagnaði sprengjugnýrinn um-
hverfis flóttamannabúðimar.
Bardagamir kostuðu líf 65 manns,
aðallega óbreyttra borgara.
Reuter