Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1991, Síða 25
FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 1991.
33
Afmæli
Óðinn og Þór Sigþórssynir
Tvíburabræðumir Óðinn Sig-
þórsson, b. og hreppstjóri að Ein-
arsnesi í Borgarhreppi í Mýra-
■sýslu, og Þór Sigþórsson, forstjóri
Lyfjaverslunar ríkisins, Bollagörð-
um 9, Seltjarnarnesi, eru fertugir í
dag.
Starfsferill Óðins
Óðinn fæddist að Einarsnesi í
■ Borgarhreppi og ólst þar upp. Hann
lauk prófi frá Samvinnuskólanum
í Bifröst 1970, stundaði bankastörf
við Landsbanka íslands til 1971 og
vann í bókhaldsdeild Eimskipafé-
lags íslands til 1972. Þá stundaði
hann framhaídsnám við The Lon-
don School of Foreign Trade
1972-73.
Óðinn hefur verið b. að Einars-
nesi frá 1974. Hann er hreppstjóri
Borgarhrepps frá 1980 og formaður
í Veiðifélaginu Hvítá frá 1989. Óð-
inn hefur tekið virkan þátt í störf-
um Sjálfstæðisflokksins, m.a. átt
sæti á framboðslista flokksins til
tveggja þingkosninga, átt sæti í
miðstjóm hans um fjögurra ára
skeið og setið í landbúnaðarnefnd
flokksins í rúman áratug.
Fjölskylda Óðins
Óðinn kvæntist9.10.1971 Björgu
K.B. Jónsdóttur, f. 10.10.1951 en
foreldrar hennar eru Soffía Karls-
dóttir og Jón H. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri í Keflavík.
Óðinn og Björg eiga sjö börn. Þau
eru Þórunn María, f. 29.5.1972,
nemi í MR; Kristín Birna, f. 19.6.
1974, nemi í MR; Sigríður Þóra, f.
9.3.1981; Jón Karl, f. 20.1.1983; Soff-
ía Björg, f. 14.8.1985; Guðmundur
Bergmann, f. 27.6.1988; Þórarinn
Halldór, f. 18.3.1990.
Starfsferill Þórs
Þór ólst upp í Einarsnesi, lauk
stúdentsprófi frá MA1971, fyrri-
hlutaprófi í lyfjafræði lyfsala við
HÍ1973 og kandidatsprófi í lyfja-
fræði frá Danmarks Farmaceu-
tiske Hejskole 1976.
Hann starfaði við lyfjafram-
leiðslu í Ingólfs apóteki 1976-77, var
yfirlyfjafræðingur í Laugavegs
apóteki 1977-86 og var skipaður
forstjóri Lyfjaverslunar ríkisins
sumarið 1986 en því starfi hefur
hanngegntsíðan.
Þór sat í stjóm Lyfjaf'ræðingafé-
lags íslands 1978 og 79 er hann var
varaformaður, sat í stjórn Stéttar-
félags íslenskra lyfjafræðinga 1985
og 8Þ6 er hann var varaformaður.
Hann hefur verið fulltrúi Stéttarfé-
lags íslenskra lyfjafræðinga í stjórn
Lífeyrissjóðs apótekara og lyfja-
fræðinga, var fulltrúi í stjórnskip-
aðri nefnd til undirbúnings laga
um lyfjadreyfingu 1979-80, í eitur-
efnanefnd frá 1987 og formaður
hennarfrál989.
Fjölskylda Þórs
Þór kvæntist 24.8.1974 Guðnýju
Björgu Þorgeirsdóttur, f. 30.10.
1952, húsmóður, en hún er dóttir
Þorgeirs Jónssonar, b. í Gufunesi,
og Guðnýjar Guðlaugsdóttur hús-
freyjuþar.
Börn Þórs og Guðnýjar Bjargar
eru tvíburamir Jóhanna og Salvör,
f. 1.9.1973, og Sigþór Karl, f. 12.12.
1978.
Systkini og foreldrar
Systkini Óðins og Þórs eru Þórar-
inn Sigþórsson, f. 22.11938, tann-
læknir, kvæntur Ragnheiði Jóns-
dóttur danskennara; Guðmundur,
f. 20. október 1940, skrifstofustjóri
í landbúnaðarráðuneytinu, kvænt-
ur Herborgu Árnadóttur; Helga f.
23. janúar 1943, viðskiptafræðing-
ur, gift Þórði Steinari Gunnarssyni
hrl.: Jóhanna, f. 10. ágúst 1949,
blaðamaður hjá DV, gift Hjalta Jóni
Sveinssyni, blaðamanni; Sigríður,
f. 30. júní 1953, arkitekt, gift Hallm-
ari Sigurðssyni leikhússtjóra.
Foreldrar Óðins og Þórs eru: Sig-
þór Karl Þórarinsson, f. 28. janúar
1918, d. 23. janúar 1981, b. og hrepp-
stjóri í Einarsnesi í Borgarhreppi,
og kona hans, Sigríður Guðmunds-
dóttir, f. 11. desember 1917. Faðir
Sigþórs var Þórarinn, skipstjóri í
Rvík, Jónsson, b. á Svarfhóli í
Hraungerðishreppi, Sigurðssonar,
b. í Brekkum í Holtum, Runólfsson-
ar. Móðir Þórarins var Gyðríður
Steinsdóttir, skipasmiðs á Eyrar-
bakka, Guðmundssonar. Móðir
Óðinn Sigþórsson.
Sigþórs var Sigríður Gísladóttir,
búfræðings í Hlíð í Kollafirði,
Björnssonar. Móðir Gísla var Þór-
dís Guðmundsdóttir, b. á Kleifum
á Selströnd, Einarssonar, dbrm. í
Kollafjarðarnesi, Jónssonar, fóður
Ragnheiðar, langömmu Torfa, fv.
tollstjóra, og Snorra skálds Hjart-
arsona. Móðir Sigríðar var Þórdís
Jónsdóttir, b. á Sæbóli í Dýrafirði,
Bjarnasonar og Guðrúnar Skær-
ingsdóttur.
Sigríður er dóttir Guðmundur,
b. og hreppstjóra á Valbjarnarvöll-
um í Borgarhreppi, Jónssonar,
bróður Guðrúnar, ömmu Jóhanns
Hjartarsonar skákmeistara. Móðir
Sigríðar er Þórunn Jónsdóttir, b.
og pósts í Galtarholti í Borgar-
Þór Sigþórsson.
hreppi, Jónssonar, b. í Galtarholti,
Jónssonar. Móðir Jóns í Galtar-
holti var Þórunn Kristófersdóttir,
bókbindara á StóraFjalh, Finn-
bogasonar, bróðir Jakobs, langafa
Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir
Þórunnar var Sigríður Guðmunds-
dóttir, gullsmiðs á Kvíum, Stefáns-
sonar, og konu hans, Þórunnar,
systur Þórdísar, ömmu Halldórs
Þorbjarnarsonar hæstarréttar-
dómara og langömmu Þorsteins
skálds frá Hamri. Þórdís var dóttir
Þorbjarnar, b. á Helgavatni, Sig-
urðssonar og konu hans, Margrét-
ar Halldórsdóttur „fróða“, b. á Ás-
bjarnarstöðum, Pálssonar.
Þór og Óðinn verða að heiman á
afmælisdaginn.
Dýrflnna Helga Klingenberg
Dýrfinna Helga Khngenberg Sig-
urjónsdóttir ljósmóðir, Hraunbæ
75, Reykjavík, er sextug í dag.
Starfsferill
Dýrfmna Helga fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp. Hún lauk ljós-
mæðraprófi frá Ljósmæðraskóla
íslands 1952.
Dýrfinna Helga var ljósmóðir á
fæðingardeild Landspítalans
1953-54, við mæðradeild Heilsu-
vemdarstöövar Reykjavíkur
1956-77 og hefur starfað á Fæðing-
arheimili Reykjavíkur frá 1977. Þá
hefur hún jafnframt verið starfandi
ljósmóðir í Reykjavík frá 1956 og
tekið á móti börnum í heimahúsum
í Reykjavík og nágrannabyggðar-
lögum.
Fjölskylda
Dýrfmna Helga giftist 12.6.1954
Sigurði Ingvari Jónssyni, f. 23.1.
1927, iðnaöarmanni en hann er son-
ur Jóns Sigfúsar Hermannssonar,
fyrrv. b. að Sæbóli í Aðalvík, er nú
dvelur að Hrafnistu í Hafnarfirði,
og Elínóm Guðbjartsdóttur hús-
móður sem nú er látin.
Börn Dýrfinnu Helgu og Sigurðar
Ingvars: Elínborg Sigurðardóttir,
f. 27.10.-1953, kennari að Iðu III í
Biskupstungum, gift Guðmundi
Ingólfssyni og eiga þau fimm börn;
Elínóra Inga Sigurðardóttir, f.
20.12.1954, jarðfræðingur og hjúkr-
unarfræðingur í Reykjavík, gift
Júhusi Valssyni og eiga þau þrjú
börn; Magnús Jóhannes Sigurðar-
son, f. 27.3.1957, húsasmíðameist-
ari í Kópavogi, kvæntur Margarítu
R. Raymondsdóttur og eiga þau tvö
börn; Þórey Stefanía Sigurðardótt-
ir, f. 17.7.1961, garðyrkjufræðingur
í Olfusi, gift Gunnari Þór Hjalta-
syni og eiga þau tvö börn; Sigríður
Helga Sigurðardóttir, f. 14.4.1963,
hárgreiðsludama í Kópavogi, gift
Guðmundi Vernharðssyni og eiga
þau tvö börn; Jón Helgi Sigurðarr
son, f. 6.7.1969, sölumaður í Reykja-
vík, kvæntur Guðrúnu Birnu
Gylfadóttur; Sigrún Jóna Siguröar-
dóttir, f. 6.7.1969, nemi í Reykjavík.
Systkini Dýrfmnu Helgu: Sigríð-
ur Sigurjónsdóttir, f. 16.10.1929,
húsmóðir í Reykjavík, gift Birni
Onundarsyni og eiga þau sex börn;
Ingibjörg Sigurjónsdóttir, f. 31.10.
1933; Jörgen J.H. Sigurjónsson, f.
12.11.1935, atvinnurekandi í Mos-
fellsbæ, kvæntur Önnu Ingólfsdótt-
ur og eiga þau eitt barn; Magnús
Tómas Sigurjónsson, f. 12.11.1937,
verslunarmaður í Reykjavík,
kvæntur Sigrúnu Ingimarsdóttur
og eiga þau fimm börn; Jón Oddur
Sigurjónsson, f. 5.5.1942, atvinnu-
rekandi í Reykjavík, kvæntur
Helgu Snorradóttur og eiga þau
þrjúbörn.
Foreldrar Dýrfmnu Helgu: Sigur-
jón Jónsson, f. 6.8.1907, verkamað-
ur í Reykjavík, og kona hans, Elín-
borgTómasdóttir, f. 16.9.1906, hús-
móðir.
Ætt
Sigurjón er sonur Jóns Odds,
verkamanns í Reykjavík, Jónsson-
ar, hreppstjóra í Galtarholti í Borg-
arfirði, Jónssonar, b. þar, Jónsson-
ar. Móðir Jóns hreppstjóra var Ses-
selja Guðmundsdóttir. Móðir Jóns
Odds var Þórunn Kristófersdóttir,
b. á Stórafjalli, Finnbogasonar, og
Helgu Pétursdóttur. Móðir Sigur-
jóns var Ingibjörg Gilsdóttir, b. í
Krossnesi í Álftaneshreppi á Mýr-
um, Sigurðssonar, og Guðrúnar
Andrésdóttur.
Elínborg er dóttir Tómasar, gest-
gjafa á Borðeyri, Jörgenssonar, b.
á Borðeyri, Jörgenssonar, b. á Elín-
arhöfða á Akranesi, Magnússonar,
húsmanns á Ehnarhöfða, Jörgens-
sonar, b. á Elínarhöfða, Hanssonar
Klingenbergs, b. á Krossi á Akra-
nesi, ættfóður Klingenbergsættar-
innar. Móðir Jörgens Hanssonar
var Steinunn Ásmundsdóttir, syst-
ir Sigurðar langafa Jóns forseta.
Móðir Tómasar var Dýrfinna
Helgadóttir, b. í Hundadal í Miðdöl-
um, Sigurðssonar, b. í Fremri-
Hundadal, Bjarnasonar, b. á Gilla-
stöðum í Laxárdal, Sigurðssonar,
b. á Gillastöðum, Jónssonar. Móðir
Dýrfmnu var Dýrfinna Jónsdóttir,
b. í Lækjaskógi, Guðmundssonar.
Dýrfinna Helga Klingenberg.
Móðir Jóns var Kristín Magnús-
dóttir, prests á Kvennabrekku,
Einarssonar, og konu hans, Helgu
Oddsdóttur, prests í Keldnaþing-
um, Þórðarsonar.
Móðir Elínborgar var Þórunn
Kristjánsdóttir Fjeldsted.
Dýrfinna Helga tekur á móti fólki
eftir klukkan 18.00 á afmæhsdag-
inn að Skipholti 70.
Páll Vígkonarson
Páll Vígkonarson framkvæmda-
stjóri, Aratúni 40 í Garðabæ, er sex-
tugurídag.
Starfsferill
Páh er fæddur og uppahnn í
Reykjavík. Hann lauk gagnfræða-
skólaprófi í Reykjavík 1948. Prófi í
prentsmíði 1953, síðar í prentmynda-
ljósmyndun og fékk meistarabréf
1966. Páh var við prentiðnaðarstörf
íKaupmannahöfn 1953-1954.'
Hann var verkstjóri í prent-
myndagerðinni Litrófi 1955-1957.
Páh var stofnandi og framkvæmda-
stjóri Myndamóta hf. 1957-1989 þar
til hann seldi Árvakri hf. (Morgun-
blaðinu) fyrirtækið 1989. Nú rekur
Páll fyrirtækið H. Pálsson hf. ásamt
syni sínum, Hákoni, og er hann jafn-
framt framkvæmdastjóri þess.
Páll sat í stjórn Félags prent-
myndagerðareigenda 1964-1971 og í
stjóm Félags ísl. prentiðnaðarins
1971-1981. Hann var í stjórn Lífeyr-
issjóös prentara 1976-1981, auk ann-
arra félaga og fyrirtækja. Páll var
formaður prófnefndar í prent-
myndasmíði 1965-1985.
Fjölskylda
Páll kvæntist 28. júlí 1956 Ernu
Arnar, f. 21.9.1930, skrifstofustjóra.
Foreldrar hennar eru Rannveig
Þórarinsdóttir Arnar, f. 6.9.1909,
húsmóðir og Bernhard B. Arnar, f.
6.10.1903, kaúpmaður.
Börn Páls ogErnu: Dr. Bernhard
Öm, f. 1957, prófessor í lífefnaverk-
fræði við University of Wisconsin,
Ann Arbor USA. Kona hans er Lilja
Mahsid, f. 1957, efnaverkfræðingur.
Börn þeirra eru Shireen María, f.
1982, og Sirus Bernhard, f. 1985.
Hákon rafmagns- og tölvuverkfr.,
f. 1959, ókvæntur, starfar við eigið
fyrirtæki í Reykjavík; Rannveig f.
1952, sjúkraþjálfari í Reykjavík, gift
Birni Júhussyni bútæknifræðingi.
Börn þeirra eru Sigríður, f. 1979,
Sveinn Júlíus, f. 1980 og Páll Þórar-
inn, f. 1982.
Páll Vígkonarson.
Háfbróðir Páls er Þórður Vígkon-
arson, kaupmaður í Reykjavík.
Foreldrar Páls voru Vígkon Hjör-
leifsson, f. 1.12.1895 á Eyrabakka,
d. 1968, húsasmíðameistari og Sig-
ríður Pálsdóttir, f. 2.10.1893, Páls-
dóttir bónda, útgerðarmanns og
skipstjóra, Kirjubóli í Korpudal í
Önundarfirði, d. 1983, húsmóðir.
Þau bjuggu lengst af í Reykjavík.
Páll verður að heiman í dag.
Pálmi Alfreð Júlíusson
Pálmi Alfreð Júhusson, Syðra-
Skörðugili, Seyluhreppi í Skaga-
firði, er sjötíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Pálmi fæddist að Á í Unudal í
Hofshreppi í Skagafirði og ólst upp
í foreldrahúsum til tólf ára aldurs
en flutti þá að Grindum í Deildardal
til Sólveigar Júlíusdóttur og Jóns
Júlíussonar sem þar bjuggu. Sólveig
og Jón voru hálfsystkini Pálma af
fyrra hjónabandi föður hans en
móðir þeirra var Guðný Jónsdóttir.
Pálmi var að Grindum til 1961 en
flutti þá að Syðra-Skörðugih á Lang-
holti til Sigrúnar systur sinnar og
Sigurjóns og hefur hann átt þar
heima síðan. Pálmi hlaut vinnu-
hjúaviðurkenningu frá Búnaðarfé-
lagi Íslandsl975.
Alsystkini Pálma: Sigrún Júlíus-
dóttir, f. 5.6.1907, húsfreyja að
Syðra-Skörðugili í Skagafirði, gift
Sigurjóni M. Jónassyni, b. þar;
Anna S. Júliusdóttir, f. 11.7.1910,
d. 22.8.1968, húsfreyja, var gift Jó-
hannesi H. Jóhannessyni, fyrrv. b.
að Neðri-Vindheimum í Eyjafirði;
Sigurjóna Jóhanna Júlíusdóttir, f.
22.12.1912, húsmóðir á Eskifirði,
ekkja eftir Ingvar G. Jónasson sjó-
Pálmi Alfreð Júiíusson.
mann, d. 22.5.1985; Dagmar Aðal-
heiður Júlíusdóttir, f. 14.9.1914,
húsmóðir á Akureyri, ekkja eftir
Stefán J. Jóhannesson, d. 29.11.1955,
bifreiðastjóra; Halldór J. Júhusson,
f. 14.8.1918, d. 21.10.1943; Gestur
Júhusson, f. 18.8.1919, d. 29.10.1961.
Foreldrar Pálma voru Gunnlaug-
ur Júlíus Jónsson, f. í Hólkoti í
Unadal 15.7.1870, d. 24.6.1957, b. í
Skagafiröi og síðar verkamaður á
Dalvík, og kona hans, Aðalbjörg Sig-
urjónsdóttir, f. í Gljúfurárkoti í
Skíðadal 21.5.1884, d. 10.4.1964, hús-
freyja.