Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1991, Blaðsíða 8
8 MÁNUDÁGUR 12. ÁGÚST 1991. >jr^s,vr:wí—k'stt-w £ t \ 'i 7 él ? k': Ö1 7 >V >1 3 (I N 7i \. li? p Á i ?. W i N K J a aF E R SKEKKJA í DÆMINU? Getur veriö að þú sitjir ekki rétt við vinnu - að þú fáir ekki réttan stuðning við bakið - að afstaða milli baks og setu sé ekki rétt? Getur verið að þú sitjir á ómögulegum stól? ERO er stóllinn sem rúmlega 25 þúsund íslendingar sitja á við vinnu sína. Skýringin er augljós. ERO-stólarnir eru hannaðir í samvinnu við lækna og sjúkraþjálfara og hverjir vita betur en þeir hvernig góðir vinnustólar eiga að vera? ERO-stólana stillir hver og einn að eigin þörfum. . . Mismunandi stillingar á baki, setu og hæð. ERO-stólarnir tryggja vinnuveiténdum aukin og betri afköst starfsmanna sinna. ERO-stólarnir tryggja stuðning í starfi með líðan og meiri afköstum. ERO-stólarnir eru fáanlegir í 3 gerðum með margvíslegum aukaútbúnaði og mismunandi áklæði. ERO-stólarnir eru með 5 ára ábyrgð. ERO þýðir árangur í starfi. ERO tryggir þér öruggan SESS. SESS er nú með einkasöluleyfi á ER& stólunum og veitir fullkomna viðgerðaþjónustu.i a V u /. ’ < t h 5 > < ? § FAXAFENI 9 0 679399 V' K h N Zj IZ: C >< * i2k Utiönd Byrjar Fischer að tef la aftur? Gizur Helgason, DV, Kaupmaimahöfn: Sunnudagsútgáfa danska dag- blaösins BT skýrir frá því í gær aö Bobby Fischer, fyrrum heimsmeist- ari í skák, muni nú snúa aftur aö skákboröinu. Honum hafi verið boönar tvær milljónir Bandaríkja- dala fyrir ómakiö. Þaö svarar til um 120 milljóna íslenskra króna. Spænski auökýfmgurinn Luis Rentero, maöurinn aö baki Linar- ers-skákkeppninni, býöur féö. Frétt- ina hefur BT úr spænska sjónvarp- inu sem átti viðtal við Rentero í síð- ustu viku þar sem hann upplýsti um þátttöku Fischers. Bobby, sem nú er 48 ára gamall, á aö mæta öðrum stór- meistara í 10 skáka einvígi. Bobby varð heimsmeistari árið 1972 þegar hann sigraöi Boris Spassky í sögulegu einvígi á íslandi. Áriö 1975 lét hann einfaldlega ekki sjá sig til þess aö veija heimsmeist- aratitil sinn viö Anatoly Karpov. Lagði vöruf lutninga- bflnum á Strikið Gizux Helgason, DV, Kaupmaimahöfn: Ítalskur vöruflutningabílstjóri átti í vandræðum meö aö finna bílastæði í miðborg Kaupmanna- hafnar fyrir risastóran flutningabíl sinn sem auk þess var með tengi- vagn. Þetta var um það leyti sem mesta fólksmergðin var í miðborg- inni síðastliðinn laugardagsmorg- un. ítahnn tók þaö þá til bragös aö leggja bílnum á Strikiö því þar var nóg pláss, engir bílar, enda um fjöl- förnustu göngugötu í heimi aö ræöa. Þaö vissi Italinn bara ekki. Lögreglunni fannst tiltækið ekki sérlega snjallt en beið þó öku- mannsins um stund. Þegar ekkert bólaði á honum í tvo tíma var bif- reiðin fjarlægö. Vegna stæröar bif- reiðarinnar áttu löggæslumenn og dráttarmenn í erfiðleikum með að koma henni út af Strikinu og varö af mikið vandræðaástand. Síðdegis sama dag birtist bif- reiðastjórinn ítalski á lögreglustöö miðborgarinnar og tilkynnti aö bíl sínum hefði verið stoliö. Var maö- urinn að vonum ahæstur. Lögregl- unni tókst fljótt að róa hann. ítal- inn varö að greiöa fjögur þúsund króna sekt fyrir að leggja ólöglega og 10 þúsund til dráttarfyrirtækis- ins fyrir ómak þess. Hof búddatrúarmanna i Arizona stendur eitt úti á akri og þangaö koma fáir aðrir en trúmenn til að iðka trú sína. Símamynd Reuter Dularf ull morð á búddamunkum Sjö búddamunkar, gömul kona og tvítugur maöur fundust um helgina myrt í hofi búddasafnaðar nærri Phoenix í Arisona í Bandaríkjunum. Lögreglan stendur ráöþrota frammi fyrir morðunum og segir aö engin leið sé enn sem komiö er aö skýra hver var tilgangurinn með þeim. í fyrstu var talið aö moröingjarnir heföu ætlað aö ræna hofiö en rann- sóknin leiddi strax í ljós aö svo var ekki því mikil verðmæti í guhi og gimsteinum voru látin ósnert í hof- inu. Það eru einkum innflytjendur frá Thailandi sem koma í hofið sem er á akri skammt frá borginni. Líkin fundust öll í eldhúsi hofsins. Tals- menn búddasafnaöarins á svæöinu segja aö kynþáttahatur hafi ráöiö gerðum morðingjanna en allir hinna látnu voru innflytjendur. Lögreglan segir aö líkunum hafi veriö raðað upp á gólfi eldhússins og engin merki hafi verið sjáanleg um átök í húsinu. Reuter Útsalan hef st á morgun kl. 9.00 íToppskónum, Veltusundi Vörur frá: CTCIKIAD \A/A A/^C

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.