Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1991, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.08.1991, Blaðsíða 32
44 MÁNUDAGUR 12. ÁGÚST 1991. Sviðsljós Það þurfti að saga gat á handriðið til að koma Mitch niður. Slökkviliðsmenn, sjúkraflutningamenn og aðrir hjálpar- menn kanna hér aðstæöur. Tröllvaxinn sjúklingur v Sjúkraflutningamenn í Redwood City í Kaliforníu lentu í miklum erf- iðleikum er þeir fóru í útkall til að sækja mann sem hafði dottið og þurfti lífsnauðsynlega að komast á sjúkrahús. Sjúklingurinn var yfir 350 kg aö þyngd og bjó á annarri hæð. Nú voru góð ráð dýr því fjórir sjúkraflutningamenn gátu ekki lyft honum og því síöur komið honum niður. Yfirmaður sjúkraflutninga og slökkviliðsins í Redwood, Steve Ca- vallero, tók þá ákvörðun að kalla út aukalið frá slökkviliðinu og fá auk þess til liðs við sig lyftara til að hífa hann niður. „Það var eina leiðin til að ná honum niður,“ sagði Steve. „Við vorum hræddir um að -^steintröppurnar, sem liggja niður frá íbúð hans, mundu ekki þola þessa miklu þyngd, auk þess er erfitt fyrir marga menn að athafna sig með ein- ar börur í þröngum stiga.“ Vinur stóra Mitch, sem býr í næstu íbúð, hringdi á sjúkrabíl er hann heyrði hann hrópa á hjálp. Hann hafði fallið á gólfið þegar hann sneri sig illa á fæti og gat ekki staðið upp. Húsgögnin voru fyrst öll færð í burtu svo að björgunarmennirnir fengju meira svigrúm. Rúmdýna var lögð á stórt bretti og Mitch var síðan dreginn upp á hana og vafinn inn í teppi. Slökkviliðsmaður þurfti að Eftir tvo og hálfan tíma tókst loks að ná Mitch niður og koma honum inn í sjúkrabíl. taka hurðina af og saga gat á járn- handrið á svölunum til að geta kom- iö honum niður. Steve Cavalero sagði „Við drógum Mitch út til að koma honum á lyftar- ann og það tók tvo og hálfan tíma og tólf menn auk mín að koma hon- um niður. Þetta er einkennilegasti sjúkraflutningur sem ég hef tekið þátt í og hef ég þó tekið þátt í mörg- um.“ Ekið var með stóra Mitch, sem er fjörutíu og tveggja ára, á Sana Mateo County spítalann og er líðan hans eftir atvikum góð. Jarðarfarir Jón Stefánsson, Blikahólum 10, Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, mánudaginn 12. ágúst, kl. 13.30. Jón Arinbjörn Lárusson verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið- vikudaginn 14. ágúst kl. 13.30. Jóhanna G. Björnsdóttir, Ásvalla- götu 65, sem lést 4. ágúst, verður jarðsungin frá kapellunni í Fossvogi miðvikudaginn 14. ágúst kl. 15. Grímur E. Thorarensen frá Sigtún- um, sem andaðist 3. ágúst sl„ verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 13. ágúst kl. 13.30. Valdemar Guðmundsson, Grænu- kinn 7, Hafnarfirði, verður jarösung- inn frá Fossvogskapellu á morgun, þriðjudaginn 13. ágúst, kl. 15. LEGSTEINAR Helluhrauni 14 220, sími 652707 Opið 9-18. Laugardaga 10-15. Andlát Hendrik Rasmus, Hlíðarvegi 62A, Kópavogi, lést 4. ágúst sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Marin Magnúsdóttir frá Akurhúsum, Garði, andaðist á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Skjóli 8. ágúst. Tónleikar „Gospel“-tónleikar á Hótel íslandi. Hjálpræðisherinn efnir til „gospel“-tón- leika á Hótel Íslandi mánudaginn 12. á- gúst kl. 20.30. Þar mun einn þekktasti söngvari á þessu sviði frá Noregi syngja og leika ásamt um 50 manna unglingakór frá íslandi, Færeyjum og Noregi sem um helgina hefur tekið þátt í unglingasöng- mótinu „Gleðitónum" sem haldið hefur verið í Fíladelfíu. Aðgangseyrir er kr. 500 og eru þetta síðustu tónleikarnir sem haldnir verða með þessu tónlistarfólki hér í þetta sinn. Myndgáta dv Hljómsveitin lclandica í Norræna húsinu í kvöld, laugardagskvöldið 10. ágúst, heldur hljómsveitin Islandica tónleika í fundarsal Norræna hússins kl. 21. Tón- listin er í þjóðlagastíl. Þau Gísli Helgason og Herdis Hallvarðsdóttir skipa hljóm- sveitina ásamt Guðmundi Benediktsyni og Inga G. Jóhannssyni. Aðgangur er ókeypis. Tilkyimingar Fyrirlestrar um fiskeldi Miðvikudaginn 14. ágúst munu þrír þekktir skoskir sérfræðingar í ýmsum greinum fískeldis halda fyrirlestra hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins á Keldnaholti. Þeir starfa allir að rann- sóknum og kennslu við háskólann í Stirl- ing í Skotlandi. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 13 í fundarsal Rannsóknastofnunar iandbúnaöarins og eru öllum opnir. Skosku sérfræðingarnir eru hér vegna námskeiðs sem haldið verður á Flúðum um næstu helgi, þ. e. 16.-18. ágúst, þar sem margir af þekktustu sérfræðingum heims í eldi á bleikju og urriða munu gefa yfirlit yfir þær rannsóknir sem stundaðar háfa verið á því sviði. Fyrir- lestramir fara fram á ensku. Steinerskóli Mánudaginn 29. júlí sl. var haldinn um- ræðufundur í kaffistofu Hlaðvarpans sem hópur áhugafólks um uppeldisfræði Rudolfs Steiner stóö fyrir. Hrafnkell Karlsson, kennari við Steiner-skóla í Sví- þjóð, greindi frá reynslu sinni og áhersl- um í starfi. Lögð er áhersla á að skapa börnunum skilyrði til alhliða þroska og er tilfinningum, vfija og vitsmunum gert jafnhátt undir höfði. Margir eru áhuga- samir um svona skóla hér og eru fram- haldsumræður mánudagana 12. og 19. ágúst kl. 20 í kaffistofu Hlaðvarpans. All- ir eru velkomnir. Leiðsöguskólinn Kennsla hefst 11. sept. nk. í Menntaskól- anum í Kópavogi. Kennsludagar: mánu- daga og miðvikudaga kl. 18.30-22.30 og laugardaga kl. 10-12 frá september 1991 til maí 1992. Leitaö er eftir fólki sem hef- ur gott vald á minnst tveimur erlendum tungumálum til að geta fiutt fyrirlestra frá eigin bijósti um land og þjóð. Mest eftirspum er eftir leiðsögumönnum sem tala þýsku. frönsku, ítölsku og/eöa Norð- urlandamál auk ensku. Ákjósanlegt er að umsækjendur þekki skil á landinu og eigi auðvelt meö að umgangast fólk og stjóma hópi. Umsóknareyðublöð og upp- lýsingar fást í Menntaskólanurn í Kópa- vogi og á skrifstofu Ferðamáláráðs en frestur rennur út 15. ágúst nk. Skátadagar í Arbæjarsafni Sunnudaginn 11. ágúst verður haldinn skátadagur í Árbæjarsafni á vegum safnsins og Skátasambands Reykjavíkur. Umgjörð dagsins er opnun Væringjaskál- ans sem var upphaflega vígður 5. sept- ember árið 1920 og notaður lengi eða þar til hann var fluttur í Árbæjarsafn árið 1962. Messa verður i kirkju safnsins kl. 11 en opnunarathöfnin hefst kl. 14 meö fánahyllingu. Margt verður gert til skemmtunar og dagskrá lýkur með varð- eldi kl. 16.30. Tapað-fundið Gleraugu fundust við gamla kirkjugarðinn, Hringbrautar- megin. Gleraugun em mjög sterk, greini- lega fyrir sjóndapra persónu. Umgjörð er svört með hvítum yrjum. Uppl. í s. 40940. Lyklar fundust rétt við Hampiðjuna. Þeir em á af- greiðslu DV hjá símastúlkum. Sviðsljós Hann gæti hæglega verið súmó- glimumaður þessi. Svo er þó ekki hetdur er þetta viröulegur afi að spila á spll við afabarn sitt. Myndin er tekin á götu i Peking i Kina þar sem fólklð gerir sér ýmisiegt tíl dundurs. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.