Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1991, Side 51
LAUGARDAGUR 31. XCÚST 1991.
Skák
Skákþing íslands í Garðaskóla:
Helgi efstur fyr-
ir lokasprettinn
- Glæsiskák Júsupovs gegn Ivantsjúk
Helgi Ólafsson stórmeistari varð síðast skákmeistari íslands árið 1981.
Tekst honum að endurtaka leikinn nú, tiu árum siðar?
Teflt hefur veriö býsna fjörlega á
skákþingi íslánds í Garðaskóla í
Garðabæ og á stundum er allt lagt
undir. Óvænt úrsbt hafa sett svip á
- þau óvæntustu eru sigur Halldórs
Grétars á Jóhanni Hjartarsyni á
fimmtudag og í lokaumferðunum
getur svo sannarlega allt gerst.
Slakt gengi Héðins, íslandsmeistar-
ans frá því í fyrra, kemur einna mest
á óvart en engu er líkara en að kepp-
endur vandi sig sérstaklega gegn
honum! Á hinn bóginn hefur yngsti
keppandinn, Helgi Áss, komið
skemmtilega á óvart, en hann er að-
eins 14 ára gamall. Hann fór reyndar
hægt af stað, notaði gjaman mikinn
tíma á skákir sínar og tók tímahrak-
ið sinn toll. En í síðustu umferðum
hefur hann sótt sig og hafði 50%
vinninga eftir sjö umferðir.
Helgi Ólafsson stórmeistari var
einn efstur með 5,5 v. Jón L. Árnason
og Karl Þorsteins höfðu hálfum vinn-
ingi minna. Þeir áttu að tefla saman
í áttundu umferð, sem fram fór í
gær. Níunda og tíunda umferð verða
tefldar um helgina og heflast kl. 17
báða dagana. Á mánudag eiga kepp-
endur frí en mótinu lýkur á þriðju-
dag.
Skoðum dæmigerða skák Helga
Ólafssonar úr fyrstu umferð er bisk-
upamir vinna verk sitt vel í endatafl-
inu. Helgi Áss náði að standa lengi
jafnfætis stórmeistaranum í skák-
inni, þrátt fyrir stirðleika í byrjun
mótsins. Þetta er fyrsta kappskák
hans við einn íslensku stórmeistar-
anna en þær eiga áreiöanlega eftir
að verða miklu fleiri ef fram heldur
sem horfir.
Hvítt: Helgi Áss Grétarsson
Svart: Helgi Ólafsson
Drottningarindversk vörn.
1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. Rc3 Bb7
5. Bg5 h6 6. Bh4 g5!?
Skarpur leikur, sem leiðir til tví-
sýnnar stöðu. Svörtum stóð til boða
traustur leikmáti, 6. - Be7; eða 6. -
Bb4, sem gefur Nimzo-indverskt tafl.
7. Bg3 Rh5 8. e4!?
Og nú átti hvítur þess kost að tefla
traust með 8. e3 eða glæfralega með
8. Be5!? fB 9. Dd3 fxe5 10. Dg6+ Ke7
11. Dxh5 exd4 12. Rxd4 Bg7 13. 0-0-0
með tvieggjuðu tafli.
8. - Rxg3 9. hxg3 Bg7 10. Dd3 g4 11.
Rd2 Rc6 12. Rb3 a5 13. a4 Rb4
Til greina kemur 13. - Dg5 strax til
að hindra langa hrókun. Eða 13. -
h5 og þoka h-peðinu enn lengra.
14. Dd2 Dg5!?
Svartur hyggst freista gæfunnar í
endatafli og hefur þá biskupana sína
tvo í huga, sem gætu vaknað til lífs.
Enn sem komið er á hvítur þó ekki
að þurfa svo mjög að óttast.
15. Dxg5 hxg516. Hxh8 Bxh817. Kd2 f5
Stórmeistarinn var óánægður með
þennan leik eftir skákina en 17. -
0-0-0 18. f3 gefur hvítum kost á að
losa um stöðuna.
18. Hel
E.t.v. er 18. exf5 exf5 19. Hel +
sterkara.
18. - 00-0 19. f3?!
Eftir þetta fær svartur visst frum-
kvæði. Betra er 19. exf5 exf5 20. He7
með virkari stöðu en í skákinni.
19. - gxf3 20. gxf3 Hf8 21. Be2 Rc6 22.
e5?!
Það er freistandi að „stinga upp í“
biskup svarts á h8 en einfaldlega 22.
Kd3 er hyggilegra.
22. - d6 23. f4 dxe5 24. dxe5 Bg7 25. Bf3?
Eftir þetta fær Helgi Áss ekki við
neitt ráðið, enda staðan óskemmtileg
og tíminn að renna út. Hann varð
að reyna 25. Hhl! og áfram gæti teflst:
25. - Rd4 (ekki 25. - Rxe5? vegna 26.
Hh7 og eitthvað verður undan að
láta) 26. Rxd4 Bxhl 27. Rxe6 Hf7 28.
Rxg7 Hxg7 29. Bd3 og með peð og
riddara gegn hrók hefur hvítur
þokkalega jafnteflismöguleika.
25. - gxf4 26. Bxc6
Nauðsynlegt, því að ef 26. gxf4 Bh6
27. Re2 Rxe5 er peð fallið. En nú verða
svörtu biskuparnir allsráðandi.
26. - Bxc6 27. gxf4 Hh8 28. Rd4 Bd7 29.
Hgl Hh2+ 30. Rde2 Bh6 31. Ke3 Kb7
32. Hg6 Bf8 33. b3 Bb4 34. Kd4
Hvítur var nú í miklu tímahraki
og leikur því sem hendi er næst.
Staðan er erfið.
34. - Bc6
Einnig var 34. - Be8 og setja biskup-
inn á h5 mögulegt. Ekki gengur 35.
Skák
Jón L. Árnason
Hxe6?? Hh3! með býsna óþægilegri
máthótun á c5.
35. Hg3 Ba3 36. Kd3 Bb2 37. Rdl(?)
Be4+ 38. Kd2 Ba3 39. Rdc3 Bb4 40.
Ke3 Bc2!
Tímamörkunum er náð en hvítur
stendur uppi með tapað tafl.
41. Rb5 Bel!
Einfaldast. Hvítur gafst upp, því aö
hann kemst ekki hjá liðstapi.
Júsupovtefldi
meistaralega
Óhætt er að segja að Artur Júsupov
sé vel að sigrinum kominn í einvíg-
inu gegn Vassily Ivantsjúk. Tafl-
mennska hans í síðustu skákunum
var stórglæsileg. Það er raunar langt
síðan önnur eins tilþrif hafa sést í
heimsmeistarakeppninni.
Júsupov náði að jafna meö því að
vinna áttundu skákina. Hann blés
þar strax til sóknar, fórnaði hrók og
riddara og tókst að véla drottninguna
af Ivantsjúk - eins og viö sáum í síð-
asta helgarblaöi DV.
Þetta var gott veganesti í bráöaban-
ann, sem fram fór fyrir réttri viku.
í fyrri skákinni bætti Júsupov um
betur - fórnaði hrók og riddara á
nýjan leik og biskup að auki. Aftur
varð Ivantsjúk að láta drottninguna
en sókn Júsupovs var óstöðvandi.
í seinni skákinni hafði Júsupov
hvítt og nú skyldi maður ætla að teflt
yrði traust til jafnteflis. En það fór á
annan veg - Júsupov hélt upptekn-
um hætti. Nú fórnaði hann að vísu
ekki nema skiptamun og síöan bisk-
up en hann var heldur ekki að tefla
til vinnings. Ivantsjúk mátti gera sér
að góðu að gefa hrók fyrir frelsingja
Júsupovs og táflið leystist upp í jafn-
tefli.
Júsupov mætir Timman í undan-
úrslitum, sem fram fara á fyrri hluta
næsta árs. Short teflir viö Karpov.
Þetta verða áreiðanlega spennandi
einvígi en ef Júsupov verður í þess-
um ham áfram má Kasparov fara að
gæta sín.
Skoðúm fyrri skák bráðabanans.
Vert er að geta þess að þeir höfðu
einungis 45 mínútur til umhugsunar
á 60 leiki. Kannski hefði Ivantsjúk
fundið vöm meö meiri tíma?
Hvítt: Vassily Ivantsjúk
Svart: Artur Júsupov
Kóngsindversk vöm.
1. c4 e5 2. g3 d6 3. Bg2 g6 4. d4 Rd7
5. Rc3 Bg7 6. Rf3 RgfB 7.0-0 0-0 8. Dc2
He8 9. Hdl c6 10. b3 De7!?
Með breyttri leikjaröð er fram
komin þekkt staða úr kóngsind-
verskri vörn. Svartur hefur oftast
leikið hér strax 10. - e4 og eftir 11.
Rg6 e3!? 12. fxe3 De7 hefur hann færi
fyrir peöið. Leikur Júsupovs er allrar
athygli verður. Ivantsjúk bregst ekki
rétt við.
11. Ba3?! e4 12. Rg5 e3 13. f4
Hótar 14. Rge4 og þrýsta á d6-peðið
en Júsupov á einfalt svar við þessu.
Peð hans á e3 er sem fleinn í stöðu
hvíts og það á eftir að leika stórt hlut-
verk.
13. - Rf8 14. b4
Riddaraleikur á e4 væri misráðiö
vegna Bc8-f5 með leppun.
14. - Bf5 15. Db3 h6 16. Rf3 Rg4 17. b5
g5!
Hvítur leitar fyrir sér á drottning-
arvæng en svartur hyggst sækja á
kóngsvæng, enda gerir framvörður-
inn á e3 samgöngumál hvíts erfið.
18. bxc6 bxc6 19. Re5?!
Eftir 19. fxg5 hxg5 og næst Rg6, Rf2
og g5-g4 nær svartur að byggja upp
sóknarstöðu en hvítur er ekki án
gagnfæra á hinum helmingi borðs-
ins. Leikur Ivantsjúks leiðir til mik-
illa sviptinga en sóknarmöguleikar
svarts virðast vænlegir.
19. - gxf4 20. Rxc6 Dg5 21. Bxd6 Rg6
22. Rd5 Dh5 23. h4 Rxh4!?
Fyrsta sprengjan fellur! Lakara er
23. - fxg3 24. Bxg3 er biskupinn kemst
í vörnina.
24. gxh4 Dxh4 25. Rde7 + Kh8 26. Rxf5
Dh2+ 27. Kfl He6!
Hvað er nú til ráða? Svartur hótar
að vippa hróknum á g6.
28. Db7?
Hér mátti reyna 28. Rce7!? með
óljósum afleiðingum.
28. - Hg6!! 29. Dxa8 Kh7
Kannski hefur Ivantsjúk nú talið
30. Rce7 mögulegt með máthótun á
g8 og drottningin kemst í vörnina um
leið - valdar biskupinn á g2. Þá hefur
hann uppgötvað sér til skelfmgar, að
svartur svarar með 30. - Dhl +!! 31.
Bxhl Rh2+ 32. Kel Hgl mát! Gegn
þessari aðalhótun svarts er engin
vörn.
30. Dg8+ Kxg8 31. Rce7+ Kh7 32.
Rxg6 fxg6 33. Rxg7 Rf2!
Hótar 34. - Rh3! með óverjandi
máti.
34. Bxf4 Dxf4 35. Re6 Dh2 36. Hdbl
Rh3 37. Hb7+ Kh8 38. Hb8+ Dxb8 39.
Bxh3 Dg3!
Lokahnykkurinn. Mát á Í2 blasir
við, svo að Ivantsjúk varð að gefast
upp. -JLÁ
EFST Á BAUGI:
Al ÍSLENSKA LFRÆ3 ÐI
ORDABÚKIN
Pólland
Opinb. heiti:
Polska Rzecz-
pospolita (Lýð-
veldið Pólland)
Stjórnarfar:
lýðveldi
Höfuðborg:
Varsjá, 1,66
miljó. íb.
Stærð:
312 683 km!
Ibúafjöldi:
37,9 miljó.
Ibúadreif.:
121,1 íb/km!
Æv///lrur.karlar 66,8 ár, konur 75,2 ár
Helstu trúflokkar: rómversk-kaþólskir 94%
Tungumál: pólska (opinb.)
Helstu útflv.: vélar, flutninga- og farartæki,
eldsneyti og orka, afurðir efnaiðnaðar
Helstu viðskiptal.: Sovétr., V-Þýskal„ A-
Þýskal., Tékkóslóvakfa
VÞF é lb.: 8 7200
63
Veður
Suðvestankaldi og léttir til á Norðaustur- og Austur-
landi en skúrir verða sunnanlands og vestan. I fyrra-
málið er gert ráð fyrir heldur vaxandi suðaustanátf.
og fer þá að rigna á nýjan leik, fyrst suðvestanlands.
Hiti verður allt að 17 stig að deginum norðaustan
lands en verður annars staðar á bilinu 7-13 stig.
Akureyri skýjaö 14
Egilsstaðir skýjaö 16
Kefla víkurflug völlur rigning 10
Kirkjubæjarklaustur skúr 11
Ftaufarhöfn skýjað 15
Reykjavik rigning 10
Vestmannaeyjar súld 11
Bergen skýjaö 14
Helsinki hálfskýjað 19
Kaupmannahöfn skýjaö 18
Osló hálfskýjað 23
Stokkhólmur skýjað 20
Þórshöfn alskýjað 14
Amsterdam heiðskírt 22
Barcelona þokumóöa 28
Berlin skýjað 19
Feneyjar heiðskirt 24
Frankfurt léttskýjaö 23
Glasgow mistur 21
Hamborg hálfskýjað 21
London léttskýjað 24
Lúxemborg heiðskírt 22
Madrid léttskýjað 28
Malaga léttskýjað 30
Mallorka léttskýjað 32
Nuuk rigning 4
Róm léttskýjað 28
Valencia rykmistur 29
Vín léttskýjað 21
Gengið
Gengisskráningnr. 164.-30. ágúst 1991 kl.9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 61,130 61,290 61.720
Pund 103,126 103,396 03,362
Kan. dollar 53,559 53,700 53,719
Dönsk kr. 9,1035 9,1273 9,0999
Norsk kr. 8,9857 9,0093 9,0155
Sænsk kr. 9,6771 9,7024 9,7044
Fi. mark 14.4532 14,4911 14,5996
Fra. franki 10,3496 10.3767 10,3423
Belg. franki 1,7073 1,7118 1.7089
Sviss. franki 40,2039 40,3091 40,3004
Holl. gyllini 31,1959 31.2776 31,2151
Þýskt mark 35,1352 35,2272 35,1932
ft. líra 0,04708 0,04721 0,04713
Aust.sch. 4,9912 5,0043 4,9998
Port. escudo 0,4106 0,4117 0,4101
Spá. peseti 0,5642 0,5657 0,5616
Jap. yen 0,44707 0.44824 0.44668
frskt pund 93,997 94,243 94,061
SDR 81,7528 81,9668 82.1172 ,
ECU 72,1792 72,3682 72,2463 <
Fiskmarkaðimir
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
30. ágúst seldust alls 8,578 tonn.
Magn í Verö í krónum
tonnum Meðal Lægsia Hæsta
Lax
Smáufsi
Lýsa
Blandað
Þorskur
Smáýsa
Smár þorskur
Lúða
Langa
Koli
Karfi
Ýsa
0,202
0,039
0,011
0,019
0,848
0,025
0,239
0,045
0,020
0,009
0,034
7,075
304,43
30,00
38,00
20,00
87.10
51,00
74,00
430,00
50,00
40,00
38.10
105,09
295,00
30,00
38,00
20,00
82,00
51,00
74,00
430,00
50,00
40,00
19,00
50,00
310,00
30,00
38,00
20,00
95,00
51.00
74,00
430,00
50,00
40,00
46,00
122.00
Fiskmarkaður
30. ágúst seldust alls 31,1
Lýsa
Skarkoli
Steinbftur
Skötuselur
Hlýri/steinb.
Lúða
Ýsa
Ufsi
Þorskur
Langa
Keila
Karfi
Blandað
Blálanga
0,016
0,010
0,240
0,065
0,200
0,092
2,779
14,793
7,303
1,070
0,490
3,998
0,613
0,113
Suðurnesja
858 tonn. £
48.00
91,00
104,42
111,54
101,00
464,02
97,27
63,81
93,87
52,64
40,51
40,20
48,00
62,00
48,00 48,00
91,00 91,00
101,00 121,00
100,00 125,00
101,00 101,00
405,00 475,00
72,00 125,00
53,00 66,00
50,00 103,00
10,00 63,00
29,00 49,00
25,00 51,00
48,00 48,00
62,00 62,00
Fiskmarkaðurinn í Þorlákshöfn
30. ágúst seldust 17,235 tonn.
Karfi
Keila
Langa
Lúða
Öfugkjafta
Skata
Skarkoli
Skötuselur
Sólkoli
Steinbítur
Þorskur, sl.
Þorskur, smár
Ufsi
Undirmál.
i,sl. /
0,340
0,107
0,840
0,021
0,435
0,365
2,098
0,164
0,305
0,329
1,845
0,177
3,974
1,447
4.788
47,63
39,00
57.10
465,00
20,00
100,00
79,14
180,00
89,00
76,00
89,90
72,00
61,30
64,06
103,57
47,00
39,00
30,00
465,00
20,00
100,00
79,00
180,00
89,00
76,00
80,00
72.00
48,00
48,00
71,00
50,00
39,00
72,00
465,00
20,00
100,00
80,00
180,00
89,
76,00
92,00
72.00
65,00
66,00
120,00
Fiskmarkaður isafjarðar
30. ágúst seldust alls 3,747 tonn.
Grálúða
Lúða
Öðuskel
Skarkoli
Beitukóngur
Ýsa
Þorskur
1,050
0,034
0,050
0,047
0,027
2,047
0,492
83,00 83,00 83,00
365,00 365,00 365,00
15,00 15,00 15,00
65,00 65,00
15,00 15,00
90,00 1 Q3.00
66,00 71,00
65,00
15,00
97,17
67,73
Fiskmarkaður Tálknafjarðar
30. ágúst seldust alls 0,068 tonn.
Ýsa
Lúða
0,052
0,016
95,00 95,00 95,00 M
345,00 345.00 345,00
freeMmz
MARGFELDI 145
PÖNTUNARSÍMI ■ 653900 *