Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991.
Fréttir
Risna og ferðakostnaður ríkisins 1989:
Svarar til þess að allir
Hafnfirðingar
hefðu f arið til Glasgow
- og drukkið rúmlega 250 þúsund flöskur af freyðivini
Þaö heföi mátt kaupa 15.310 ferðir
til Glasgow fyrir þann kostnað við
ferðalög til útlanda sem ríkið þurfti
að bera árið 1989. Að höfðatölu
svarar þessi tala til íbúafjölda í
Hafnarfirði. Miðað er við ferðir á
venjulegu fargjaldi fyrir einstakl-
ing.
Risna samkvæmt ríkisreikningi
fyrir það sama ár var heldur ekki
skorin við nögl. Fyrir hana hefði
mátt kaupa tæplega 251 þúsund
flöskur af freyðivíni af þokkalegri
tegund. í þessum samanburðar-
tölum er miðað við verðlag eins og
það var 1. ágúst 1991.
Eins og DV greindi frá í gær nam
heildarferðakostnaður ríkisins ár-
ið 1989 ríflega einum milljarði, eða
1004 milljónum króna. Þar af var
kostnaður viö ferðir innanlands
542,4 milljónir og erlendis 462 millj-
ónir. í ferðakostnaði innanlands
munar mest um samgönguráðu-
neytið. Undir því ráðuneyti eru
stórir liðir eins og Vegagerð ríkis-
ins, Vita- og hafnamál og Ferða-
málaráö.
Ef litið er á risnu ríkisins fyrir
sama tímabil þá nemur fastur
risnukostnaöur samtals 17,2 millj-
ónum króna. Svonefndur „annar“
risnukostnaður, það er tilfallandi
kostnaður, er allmiklu hærri, eða
Ferðakostnaður
ráðuneytanna
1989
0
a>
<o
V—
o
E
CÖ
c
c
0
u vJ u u kJ u
U) 1* u_ c k_ cO <o C0 c <J) D) 0 £ *E 3 • L5T cn E C/) O) co D) D)
3 '3 u_ E5 '0 D)
5 _Q T5 C ca cO > 'CO^ ■O 05 Q o LL O u JQ
_j U) 0
X
'CÖ
samtals 130,4 milljónir króna. Það ar sem vekja athygli. Áfengis- og með eitt þúsund krónur í fasta
eru ekki einungis háu risnutölurn- tóbaksverslun ríkisins er til dæmis risnu. -JSS
45 ára Reykvíkingur dæmdur 1 tveggja mánaða fangelsi:
Smyglaði 350 grömm-
um af hassi í endaþarmi
- afrakstur af fíkniefnasölu gerður upptækur til ríkissjóðs
Dómsyfirheyrslur standa yfir i Saka-
dómi Reykjavíkur vegna sakborn-
inganna i svokölluöu Ávöxtunar-
máli. Forsvarsmönnum Ávöxtunar
sf. er meðal annars gefiö aö sök að
hafa lokkað og blekkt almenning til
kaupa á ávöxtunarbréfum með
háum vöxtum umfram verðbólgu
sem þeir gátu ekki staðið skil á.
Kröfur í þrotabúið nema um 500
milijónum og eru 170 kröfuhafar ein-
staklingar. Á myndinni er Ármann
Reynisson, fyrrverandi forstjóri
Ávöxtunar sf., að ganga í dómsal f
gær. Hann hefur látið að því liggja
fyrir dómi að kollegi sinn, Pétur
Björnsson, hafi borið ábyrgð á þvi
hvernig fór fyrir verðbréfafyrirtæk-
inu.
DV-mynd Brynjar Gauti
Sakadómur í ávana- og fíknefna-
málum hefur dæmt 46 ára Reykvík-
ing í tveggja mánaða fangelsi fyrir
innflutning á 350 grömmum af hassi
og sölu á hluta efnisins. Manninum
var einnig gert að greiða 60 þúsund
krónur í sekt til ríkissjóðs. Auk þess
var hann dæmdur til að greiða rúm-
lega 60 þúsund krónur í sakarkostn-
að. Bjami Ásgeirsson kvað upp dóm-
inn.
Lögreglan handtók manninn er
hann var á ferð í bifreiö sinni í des-
ember 1988. Við handtöku framvísaöi
hann litlum hassmola og reykjarpípu
en við leit í bílnum fannst hassmoli
sem falinn hafði verið í öryggisbelta-
festingu.
Við yfirheyrslur sagðist maðurinn
hafa flutt inn 5 grömm af hassi frá
London. Þegar húsleit var gerö fund-
ust tæplega 195 grömm af hassi hjá
manninum. Eftir þaö sagðist honum
svo frá að efnið væri „afgangur" af
200 grömmum sem hann keypti í
Tælandi. Sakbomingurinn marg-
breytti framburði sínum en viður-
kcnndi að lokum að hafa flutt inn 355
grömm af hassi frá Hollandi. Honum
sagðist svo frá að hann helði keypt
efnið fyrir 1750 gyllini ytra og smygl-
að þvi í endaþarminum til íslands.
Maðurinn viðurkenndi að hafa selt
140 grömm af hassi til ýmissa ótil-
greindra aðila í Reykjavik. Sjálfur
kvaðst hann hafa reykt 20 grömm af
efninu.
Grammiö kvaðst maðurinn hafa
selt á 1.200 krónur. Lögreglan lagði
hald á um 60 þúsund krónur í fórum
hans en peningana sagði maðurinn
vera afrakstur af sölu á hassinu.
Með skýlausri játningu taldist
fullsannað aö maðurinn hefði flutt
inn 350 grömm af hassi og selt af því
140 grömm. í ljósi þess að maðurinn
seldi efnið til margra aöila var það
virt honum til refsiþyngingar. Pen-
ingarnir, sem lögreglan lagði hald á
við rannsókn málsins, voru gerðir
upptækir til ríkissjóðs í dóminum.
Refsingin var ákveðin 2 mánaða
fangelsi, auk 60 þúsund króna sekt-
ar. Umræddur maður hafði á árun-
um 1975-1980 hlotið fjóra fíkniefna-
dóma. Þeir voru allir afgreiddir með
sektargreiðslum. -ÓTT
Innbrotiö Laugavegi 5:
Bræddu
hluta af
skartgripun-
um í gull-
klumpa
Rannsóknarlögregla ríkisins
telur sig hafa upplýst innbrotið í
skartgripaverslun Jóns Sig-
mundssonar við Laugaveg 5 fyrr
í mánuðinum og er rannsóknin á
lokastigi. Fram hefur komiö í
málinu að þeir sem stóöu að inn-
brotinu létu bræða upp gull-
hringa og aðra skartgripi. Ljóst
þykir aö fara átti með gullklump-
ana úr landi þar sem átti að koma
þeim í verð. Þjófarnir hafa meira
eða minna komið við sögu flkni-
efnamála.
Fjórir menn sátu í gæsluvarð-
haldi vegna málsins og veröur
þeim síðasta sleppt út í dag. Sam-
tals fimm menn á þritugsaldri
tengdust málinu en upplýst er að
þrír þeirra stóðu að sjálfu inn-
brotinu. Þeir aftengdu þjófavarn-
arkerfl og stalu verðmerktum
skartgripum, mestmegnis úr sýn-
ingarglugga. Rannsóknarlögregl-
unni tókst að hafa uppi á tals-
verðum hluta af þýflnu. Smásölu-
andvirði þess sem stolið var er
metið á tæplega 5 milljónir króna.
Hluta af þýfinu, sem fannst, var
búið að bræða í gullklumpa hér
á iandi. DV hefur ekki fengið
upplýst hve stóran hluta af þýf-
inu lögreglan hefur fundið. Ljóst
er þó að það var ýmist í formi
klumpa, sem búið var að bræða,
eða skartgripa. Sýnt er að með
því að bræöa skartgripina hafa
mikil verðmæti farið forgörðum.
Fimmmenningarnir hafa meira
eða minna komið áður við sögu
flkniefnamála, ýmistinnflutníng,
dreifingu eöa neyslu, auk inn-
brota og þjófnaðarmála. Að sögn
Jóns Snorrasonar, deildarstjóra
hjá RLR, verður málið bráðlega
sentríkissaksóknara. -ÓTT
Slippstöðin á Akureyri:
Grandatogararí
„andlitslyftingu“
Gyifi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
„Slippstöðin bauö I þessi verk-
efni ásamt Járntækni. Við vorum
með lægsta tilboðið og erum því
að vinna verkið," segir Gunnar
Arason, framleiðslustjóri hjá
Slippstöðinni á Akureyri, en þar
er nú veriö að vinna af krafti við
Grandatogarann Ottó N. Þorláks-
son.
„Þetta er sams konar verk og
við unnum við Ásbjörn, annan
togara sem Grandi á, og vinnan
snýst fyrst og fremst um það að
endumýja allt á millidekkí. Það
er allt hreinsað af millidekkinu
og vinnsludekkinu og það sand-
blásiö, klætt upp á nýtt og fiskm-
óttaka stækkuð. Auk þess er um
að raeða nokkur viöhaldsverk-
efni. Ég reikna með að þessi við-
gerð muni standa yfir í um fjórar
vikur,“ sagði Gunnar.
Áfengistolidfrá
karlakórunum
Gyifi Kristjánsaon, DV, Akureyri:
Þeir höfðu ekki mikið upp úr
krafsinu, þjófarnir sem brutust
inn í Lón, húsnæði karlakóranna
á Akureyri. Þjófamir fóm um
húsið og gengu illa um, bmtu
hurðir og fleira í þeim dúr. En
tilgangurinn var aö stela, ogupp-
skera þeirra var l kassí af bjór,
hálf flaska af vodka og önnur
hálf af gini. Er þvl óhætt aö segja
að ekki séu allar ferðir tll fjár.
Hilmar Á. Hilmarsson hjá Kvótamarkaöinum:
Hjá okkur gilda markaðslögmálin
„Hjá okkur gilda markaðslögmál-
in, framboð og eftirspum. Þörfin fyr-
ir uppboðsmarkaði á kvóta er ótví-
ræð. Frá því við auglýstum í gær
hafa sjö aöilar falið okkur að selja
kvóta. Það er engin spuming hvort
þetta er löglegt enda hefur kvótinn
gengið kaupum og sölum lengi. Það
er hins vegar nýtt að hann sé seldur
á opnum og fijálsum markaði," segir
Hilmar A. Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri Kvótamarkaöarins.
Kvótamarkaðurinn er nýstofnað
fyrirtæki sem hyggst standa reglu-
lega fyrir uppboði á kvóta, Gert er
ráð fyrir að fyrsta uppboðið fari fram
mánudaginn 30. september.
Hilmar segist vera andvígur því aö
ríkið standi sjálft fyrir uppboði á
kvóta miðað við núverandi fyrir-
komulag. Kvótinn, eins og honum
hafi verið úthlutað, sé eign sem eig-
endur geti ráðstafað að vild.
Að sögn Hilmars er hann bjartsýnn
á viötökur útgeröaraðila. Töluverð
eftirspurn sé nú eftir kvóta en fram-
boðið að sama skapi lítið. Segir hann
líklegt að verðið muni hækka á næst-
unni. Til dæmis megi reikna með að
á næsta uppboði hækki verð á
þorskkvóta um 25 prósent, eða úr 160
krónum kílóið í 200 krónur.
-kaa