Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991. 15 „Ekkert er fegurra...“ „Langur sólargangur og miðnætursól vekja mikla hrifningu erlends ferdafólks ... “ Þegar ég var ungur drengur að alast upp í Mývatnssveit rétt eftir 1960 söng Ragnar Bjamason þessa ljóðlínu við gullfallegt lag. Mér fannst þetta svo mikil vitleysa að ég vildi breyta ljóðlínunni í „ekkert er fegurra en vorkvöld í Mývatns- sveit“. Ég hef búið mestan part ævi minnar á þessum tveimur stöðum og finnst núna að metnaður minn á yngri árum fyrir hönd Mývatns- sveitar hafi verið örlítið bamaleg- ur. Hvor staður, Mývatnssveit og Reykjavík, hefur sitt aðdráttarafl, sína fegurð, sinn yndisþokka sem ekki er hægt að sannreyna með samanburði eða metingi. Jafnframt hafa staðirnir mótandi áhrif á smekk þess fólks sem þar elst upp eða býr um skeið. o „Akrafjall og Skarðsheiði... “ Þegar ég kom heim til íslands í byijun ágúst í sumar hafði ég að vísu misst af smnarsólstöðum. Engu að síður minnti heimkoman, snemma morguns, mig á þann tíma þegar „Akrafjall og Skarðsheiði (líta út) eins og fjólubláir draum- ar“ í miðnætursólinni úr norðri. Langur sólargangur á sumrin er margslungin náttúruauðlind. Sl. fimm vor hef ég búið í suðurhluta Wisconsinfylkis í Bandaríkjunum (á breiddargráðu sem er sambæri- leg við Norður-Ítalíu) en finnst erf- itt að venjast hlýjum vorkvöldum sem ekki eru björt. Birtuleysið þar vakti mér söknuð eftir vorkvöldum í Mývatnssveit og vomóttum í Reykjavík. Langur sólargangur og miðnætursól vekja mikla hrifningu erlends feröafólks sem kemur til íslands frá suðrænni löndum. Margt ferða- fólk langar til að vaka allan tímann KjaUarinn Ingólfur Á. Jóhanness. uppeldisfræðingur og fyrrv. landvörður í Mývatnssveit sem það dvelur á Islandi. Raunar hef ég séð það ráð gefið ferðalöng- um sem ferðast til íslands að sofa lítið í íslandsdvölinni! Reykjavíkurveðrið í Wisconsin er sjaldan rigning á vetuma því að það er miklu kald- ara en í Reykjavík. En í miklu móskuveðri þar sl. vor varð mér hugsað til þess aö ég heföi búið í tíu ár í Reykjavík og mild rigning minnti mig stundum svo mikið á Reykjavík að ég fékk heimþrá; hins vegar þyrfti ég sennilega að búa í Reykjavík í tíu ár til viðbótar til þess að læra að meta rok og rign- ingu! - Sumarið í Reykjavík býr yfir margbreytilegu veðri - allt frá mósku til sólskins og hita. Sem betur fer vantar bæði mývetnsku krapahríðina og 30-85 stiga hitann (á selsíus) með tilheyrandi raka í lofti sem herjaði á Wisconsin frá því um miöjan maí. Það er líka spennandi að vita hvort sólar- stundir verða fáar eða margar og þrátt fyrir allt er reykvíski vetur- inn mildari en við má búast á svo norðlægri breiddargráðu. Reykjavík sem umhverfi „Hlustar skáldið Jónas á þrast- anna ljóð“, heldur Ragnar áfram í söngnum. Umhverfiö í Reykjavík er miklu meira en styttur af löngu dauðum körlum „sem enginn nennir að horfa á“ (Spilverk þjóð- anna: platan Götuskór). Reykjavík er borg sem hefur bæði mamigert og náttúrlegt umhverfi af fjöl- breytilegum toga. Mest ber á manngerðu umhverfi og það sem er grænt er yfirleitt manngert líka, þ.e. grænar flatir og tré í görðum og skjólbeltum. Meira að segja það sem eftir er af Tjöminni eftir að ráðhúsi Davíðs var skellt þar ofan í er meira og minna breytt og end- urnar hálfgerð skrímsli (kannski „andfræðingar... vilja komast í (launaflokk) B4“, sbr. Spilverk þjóðanna: platan ísland) sém bíða eftir að brauði sé hent til þeirra. Þessi hluti umhverfisins er mikil- vægur engu síður en náttúrlegt umhverfi. Þessi hluti er menning- arlegt umhverfi sem ber að varð- veita. Það var m.a. þess vegna sem ráðhúsið hefði átt aö rísa annars staðar. En það þarf líka að vernda hraunið í borginni, engu síður en gömul hús, og opna Elliðaárdalinn fyrir fleirum en laxveiðimönnum á sumrin. Ef við viljum vernda óg umgangast íslenska náttúru er fátt íslenskara en hraun og birki. Hrauniö í Elhðaárdalnum og ann- ars staðar í borgarlandinu þarf að verja fyrir ágengni jarðýtna og út- lendra trjáa. Reykjavík, rík borg og sérstæð, hefur allar forsendur til að verða fyrirmyndarborg í sínum stærðar- flokki. Eða er það ekki? Ingólfur Á. Jóhannesson „Hvor staður, Mývatnssveit og Reykja- vík, hefur sitt aðdráttarafl, sína fegurð, sinn yndisþokka sem ekki er hægt að sannreyna með samanburði eða met- • • u Hllaga um úrbætur í heilbrigðismálum Geta fegrunaraðgerðir hér á landi hjálpað upp á fjárhaginn i heilbrigð- iskerfinu? Þær ógnvekjandi fréttir, að fólk deyi áður en það kemst í aðgerðir á sjúkrahús á íslandi í dag, eru til- efni þessara skrifa. Að biðhstar séu svo langir að ekki komist allir að í tæka tíð hlýtur að vekja þá spurn- ingu hvort hið fullkomna heh- brigðiskerfi hér á landi sé hðið undir lok. Framtíð í hugviti Sjúkrahúsin hafa verið rekin með tapi um langt skeið og mörgum aðgerðum beitt til að bæta úr, þó enn með litlum árangri. En þegar það kemur svo hart niður á þjóðfé- lagsþegnum þessa lands að um líf og dauða er að tefla geta þær að- gerðir ekki átt rétt á sér. En hvað er þá til ráða? Hvernig má reka hér læknaþjónustu fyrir aha lands- menn jafnt ríka sem fátæka þeim aö kostnaðarlausu ef ekki fæst fé til rekstursins? Það hefur verið sagt oftar en einu sinni að framtíð þessa lands hggi í hugviti vel menntaðra þegna þess og tel ég eins og fleiri að ekki sé vafi á því. Við höfum ekki margt að selja öðrum þjóðum þar sem framleiðni okkar er ekki mikil en við eigum betur menntað fólk og ef til vih fjölhæfara, ef litið er á mannfjölda, en aðrar þjóðir. Þann- ig má sjá að oftar en einu sinni hefur okkar afreksfólk getið sér orðstír á erlendri grund sökum vitsmuna og hæfni í starfi sínu. Ég áht að íslenskir læknar séu Kjállariim Margrét S. Sölvadóttir rithöfundur mjög góðir læknar, ekki aðeins vegna bókvits heldur líka vegna hæfni í störfum sínum. Við heyrum oft um afrek þeirra lækna sem starfa erlendis þar sem samkeppn- in er hörð og mannfjöldinn mikih og hljóta þá einstakir hæfileikar að sigra. Að auglýsa erlendis Ég vh því koma með þá thlögu að breyta skihi rekstri sjúkrahús- anna á þá lund að íslendingar fái sem fyrr sína þjónustu sér að kostnaðarlausu en að við auglýsum og seljum útlendingum okkar frá- bæru læknaþjónustu og góða umönnun dýru verði th að sjúkra- húsin hagnist og geti starfað eðli- lega ahan ársins hring. í framhaldi af shkum aðgerðum á útlendingum hér á landi má svo reka heilsuhæli og láta sjúkhnga jafna sig þar. Mótmæh við þessa thlögu hafa helst verið þau að þetta mundi að- eins lengja biðlistann og jafnvel setja íslendingana aftar á listann og líka það að ef við ætluðum að bjóða upp á slíka þjónustu fyrir útlendinga þá yrði að bæta allan fækjakost og því yrði ekki gróðinn mikih þegar upp væri staðið. Ég vh svara því th að tryggja yrði það að íslendingar gengju alltaf fyrir og varðandi tækjakaup mætti hugsa sér að ríkissijórnin hætti að toha og skatta innflutning á nauð- synlegum tækjum til sjúkrahús- anna þar sem Innkaupastofnunin flytur þau flest inn hvort eð er. Ég áht að mikið sé th af erlendu fólki sem ekki býr við góða læknis- þjónustu í sínu landi, en skortir ekki peninga til að greiða fyrir góða þjónustu. Eins er hægt' að hugsa sér að við auglýstum fegrunarað- gerðir fyrir fólk frá Hohywood, þar sem mikið hggur við að ekkert fréttist um shkar aðgerðir á við- komandi. Heilbrigðisráö á leik Við verðum aðeins að flytja mál okkar vel og sýna að við höfum hér starfsfólk og byggingar sem eru á heimsmæhkvarða og það höfum við. Þeir sem hafa heimsótt sjúkra- húsin í Bretlandi th dæmis hafa undrast það hversu ófullkomin þau eru miðað við þann aðbúnað og það hreinlæti sem við þekkjum hér. Þó tækjakostur sé þar góður, eins er á Spáni. Löngum sóttu íslendingar th Englands í hjartaaðgerðir. Því skyldi það vera svo óraunhæft að við gætum boðið öðrum þjóðum upp á shka þjónustu nú? Við erum. jafnvel betur sett en margar aðrar þjóðir meö það að flestir íslending- ar, sem á sjúkrahúsunum starfa, geta skihð eða gert sig skiljanlega á erlendum tungum. Nú segja lesendur mínir sjálfsagt að ekki sé nú einu sinni hægt að , anna eftirspurninni hér á landi hvað þá að bjóða öðrum að komast að, en þá spyr ég: Er það ekki vegna peningaskorts? Og verðum við ekki einmitt þess vegna aö finna leið th að nýta betur sjúkrahúsin, ekki aðeins til líknar heldur hka th fjár- mögnunar th þess að þau geti kom- ið að fuhum notum fyrir þegna þessa lands. Þessi hugmynd hefur verið reifuð manna á meðal í hehbrigðisgeiran- um en oftast orðið undir í rökfærsl- unni. En hefur hún nokkum tíma verið könnuð th hlítar? Heilbrigð- isráð ætti að gera það áður en hún verður lögð á hhluna eins og svo margar góðar tihögur sem komið hafa fram til bjargar sjúkrahúsun- um og eins og máhn standa í dag. Margrét Sölvadóttir „Eins er hægt að hugsa sér að við aug- lýstum fegrunaraðgerðir fyrir fólk frá Hollywood, þar sem mikið liggur við að ekkert fréttist um slíkar aðgerðir á viðkomandi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.