Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.1991, Side 26
26
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1991.
Menning
Bókmenntir, tónlist,
listasaga og kvikmyndir
- eru meðal grelna á kvöldnámskeiðum Háskóla íslands
Endurmenntunarnefnd og heim-
spekideild Háskóla íslands hafa frá
síðastliönu hausti verið með kvöld-
námskeið í bókmenntum, heimspeki,
tónlist, kvikmyndum og sagnfræði
fyrir áhugafólk og verður eins í ár.
Með þessum námskeiðum er reynt
að koma til móts við margs konar
áhugamál íslensks almennings sem
með þessum hætti fær innsýn í frjótt
og áhugavert starf fjölda íslenskra
fræðimanna.
í haust verða ellefu námskeið í
boði og er ekki að efa að mörgum
finnast þau forvitnileg. Meðal annars
veröur námskeið í myndhst, Tileink-
un cg sköpun í íslenskri myndlist á
20. öld. Þar er farið yfir listasögu 20.
aldar og kannað hvemig íslenskir
myndlistarmenn hafa tileinkað sér
ólík myndmál í gegnum tíðina og
hvemig þeir hafa kunnað í verkum
sínum aö brjóta sér persónulegar
leiðir. Leiðbeinandi á þessu nám-
skeiði er Gunnar B. Kvaran.
Kína og kínversk menning er nám-
skeið þar sem fjallað er um Kína og
fólkið sem þar býr, sögu þess og
menningu. Staðnæmst verður við
ákveðin atriði og leitast við að fjalla
ítarlega um þau. Umsjón með þessu
námskeiði hefur Hjörleifur Svein-
björnsson blaðamaður en fyrirlesar-
ar em nokkrir.
Rýnt og spáð í kvikmyndir er nám-
skeið sem Agúst Guðmundsson kvik-
myndaleikstjóri er leiðbeinandi á.
Þar verða sex kvikmyndir grand-
skoðaðar í því skyni að læra eitt og
annað um byggingarlag þeirra og
stílbrögð. Einkum verður hugað að
mótun verksins á handritsstiginu.
Kvikmyndirnar, sem greindar verða,
eru Samúrajarnir sjö eftir Akira
Kurosawa, Citizen Kane eftir Orson
Welles, Jules og Jim eftir Francois
Truffaut og E.T. eftir Steven Spiel-
berg. Aðrar kvikmyndir verða vald-
ar í samráði við þátttakendur.
Ámi Bergmann, magister og rit-
höfundur, verður leiðbeinandi á
námskeiði sem kallast Til hvers
skrifa Rússar? Rússneska skáldsag-
an og rússneskt samfélag. Stiklað
verður á stóru um framvindu rúss-
nesku skáldsögunnar allt frá fyrri
hluta nítjándu aldar. Meðal höfunda
á dagskrá eru Lermontov, Gogol,
Túrgenév, Dostojevskíj, Tolstoj og
Gorkíj.
Djass - gamall og nýr og nokkrir
fróðleiksmolar er námskeið sem Jón
Múh Árnason, djassfrömuður og
stjórnandi djassþátta í útvarpi um
árabil, verður leiðbeinandi á. Þar
mun Jón fjalla vítt og breitt um djass-
músík og iðkendur hennar fyrr og
síðar. Brugðið verður/upp tóndæm-
Jón Múli Árnason verður leiðbein-
andi á námskeiði þar sem fjallað
verður vitt og breitt um djass.
um sem merkust þykja á þeim slóð-
um og hugsanlega sýndar djasskvik-
myndir.
Konur og bókmenntir er námskeið
sem haldið er í samvinnu við rann-
sóknarstofu í kvennafræðum. Fjall-
að verður um bókmenntir eftir ís-
lenskar konur frá upphafi heimilda
til okkar daga. Meðal annars verður
rætt um helstu kenningar um menn-
ingu kvenna og stöðu þeirra í samfé-
lagi, bókmenntum og tungumáli. Þá
verður yfirlit yfir feminískar bók-
menntarannsóknir síðustu ára, eink-
um bandarískar og franskar. Leið-
beinandi er Helga Kress, prófessor í
almennri bókmenntafræði.
Auk þessara námskeiða, sem
greint hefur verið frá hér, má nefna
námskeiðin: Þingvehir - saga og að-
stæður, leiðbeinandi Björn Th.
Björnsson. Ríki Platóns: Mannssál
og samfélag, þekking og blekking,
leiðbeinandi Eyjólfur Kjalar Emhs-
son heimspekingur, og Ástir íslend-
inga 1550-1850, leiðheinandi Már
Jónsson, cand. mag. í sagnfræði.
í fyrra sóttu íjögur hundruð manns
námskeið endurmenntunarnefndar.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar
um námskeiðin, sem hefjast öll í
byrjun október, geta haft samband
við skrifstofu endurmenntunar-
nefndar í Háskólanum. -HK
Myndbandadans:
Listdans í víðtækasta f ormi
Frá opnun myndbandahátiðarinnar í Norræna húsinu í gær.
DV-mynd Brynjar Gauti
hér sé á ferðinni það besta sem fram-
leitt hefur verið á tímabihnu.
Fyrir utan evrópsku hstamennina,
sem kynntir verða, gefst áhorfendum
tækifæri til aö kynna sér verk
Bandaríkjamannsins Charles Atlas.
Hann hefur í meira en tvo áratugi
unnið með videodans og telst því.
brautryðjandi á þessu sviði. Fjórtán
af verkum hans, sem spanna tímabil-
ið 1975-1990, verða til sýningar á
hátíðinni og sýna þessi myndbönd
vel þróun þessarar hstgreinar, auk
þess að spegla vinnu fjölda dansara
og danshöfunda með mynd og hreyf-
ingu.
Myndböndin á myndabandahátíð-
inni í Norræna húsinu fjaha um dans
í víðtækustu merkingu þess orðs og
gefst hér einstakt tækifæri fyrir fag-
fólk sem starfar við leikhús og fleira
sem tengist hreyfhist að kynna sér
það besta sem gerist í myndbanda-
hst. -HK
Myndbandalist er ný hstgrein er
nýtur sífellt meiri viðurkenningar,
ekki síst á meginlandi Evrópu.
Videodans er sá angi þessarar hst-
greinar sem einna mesta athygli hef-
ur vakið og náð lengst í þróun. Dans-
höfundar og leikstjórar nýta mögu-
leika myndbandsins og nýjar stjöm-
ur skína.
Dancing Visual 1991 nefnist mynd-
bandahátíð sem hófst í Norræna hús-
inu í gær. Stendur þessi hátíð fram
á laugardag og verða sýnd á hveijum
degi myndbönd sem sameina fleiri
hstform í eina mynd. Samruni dans,
leikrænnar tjáningar, sviðsetningar
og videotækni gefa tjáningunni nýja
vídd og ótæmandi möguleika. Það er
Video gaheriet í Kaupmannahöfn
sem á fmmkvæðið að þessari hátíð
sem er samnorræn listahátíö. Frá
íslandi fer hátíðin til Svíþjóðar, Finn-
lands, Noregs og að lokum til Dan-
merkur aftur.
Við val á myndböndum á hátíðina
var víða leitað fanga. Eftir sjö mán-
aða leit og eftirgrennslan bárust 250
myndbönd og vom 30 þeirra valin
úr, flest unnin á tímabilinu 1990-
1991. Má því ýkjulaust staðhæfa að
Dansinn tekur á sig ýmis form þegar myndbandið er notað til listsköpunar.
Menningí
húsnæði
Álafoss
Eins og kunnugt er hefur Ála-
foss hætt störfum í verksmiðju-
húsum sínum í Mosfehsbæ. Þar
er þó mannlíf þessa dagana og
mikið um að vera þvi tveir þjóð-
kunnir hstamenn ætla að opna
sýningu á myndverkum sínum
þar um næstu helgi. Em þetta
hstamennirnir Tolh (Þorlákur
Kristinsson) og Haukur Dór.
Leggja þeir undir sig hvor sína
hæöina og sagði Tohi að þetta
væm nokkur hundmð fermetrar
og hið ákjósanlegasta sýningar-
pláss.
Sexíslenskir
listamennsýna
íGautaborg
í Listasafni Gautaborgar stend-
ur nú yflr stór samsýning á verk-
um sex íslenskra listamanna
undir yfirskriftinni Figura Fig-
ura. Listamennimir, sem taka
þátt í sýningunni, era Brynhildur
Þorgeirsdóttír, sem sýnir högg-
myndir, Helgi Þorgils Friöjóns-
son, Hulda Hákon, Jón Óskar og
Kjartan Ólason, sem sýna mál-
verk, og Svala Sigurleifsdóttir
sem sýnir Ijósmyndir. Sýningin
er unnin í samvinnu Listasafna
Gautaborgar og Kjarvalsstaða en
sænski listamaðurinn Lena Boet-
hius sá um val verka og undir-
búning sýningarinnar. Markús
Örn Antonsson borgarstjóri opn-
aði sýninguna síðastliðinn laug-
ardag og voru ahir listamennirn-
ir, sem eiga verk á sýningunni,
viðstaddir opnunina. í tengslum
við sýninguna mun forstöðumað-
ur Kjarvalsstaða, Gunnar B.
Kvaran, flytja fyrirlestur rnn ís-
lenska samtímahst.
PéturÖstlund
íPúlsinum
Kunnasti trommuleikari okkar
íslendinga, Pétur Östlund, er í
stuttri heimsókn og mun gefast
tækifæri til aö hlusta á hann í
Púlsinum annað kvöld þar sem
hann mun leika með hljómsveit
Tómasar R. Einarssonar. Auk
þess sem Pétur hefur leikið með
öllum kunnustu djassleikurum
Svía hefur hann leikið með
heimsþekktum köppum á borð
við Red Mitchell, Árt Farmer og
Lee Konitz. Pétur kom síðast til
íslands í mars síðastliðnum og
þá til aö hljóðrita hina ágætu
plötu Tómasar, íslandsfór. í
hljómsveit Tómasar annaö kvöld
em Sigurður Flosason og Eyþór
Gunnarsson sem einnig vom með
í gerð íslandsfarar og munu þeir
félagar meðal annars leika lög af
Islandsför. Auk þessara fjögurra
kemur fram á þessum tónleikum
færeyski söngvarinn James Ols-
en en hann söng með hljómsveit
Tómasar á Jazz, Fólka ogBlúsfes-
tívalinu í Þórshöfn í ágúst síðastl-
iðnum.
AnnaFugaro
færir
sýningusína
Aö undanfomu hefur myndlist-
arkonan Anna Fugaro verið með
málverkasýningu i Menningar-
stoftiun Bandaríkjanna. Þar hef-
ur hún sýnt „collage“-verk sem
hún hefur unnið á undanfórnum
árum. Anna Fugaro býr í Banda-
ríkjunum en á íslenska móður og
bjó hér i þrettán ár og hélt nokkr-
ar sýningar. Síðast hélt hún sýn-
ingu 1987. Anna hefur nú fært
sýningu sína á Laugaveginn í hið
nýja og glæsilega hús þar sem
verslunin Sautján er til húsa. Þar
sýnir hún í kaffiteríunni og
stendur sýning hennar til októb-
erloka.