Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Blaðsíða 3
FIMMTUDA'GUR 3/ÖKT6RER Tim..r 3 < DV Fréttir HONIG^® ^seS*gSSss>4 HONKT iplrall ‘HQÍ«Í5 Samband norrænna blikksmiðjueigenda hefur ákveðið að veita hönnuðum ráðhússins í Reykjavík sérstök verðlaun fyrir hönnun á þaki hússins. Norrænir blikksmiðjueigendur: Verðlauna hönnuði fyrir þak ráðhússins Samband norrænna blikksmiðju- eigenda hefur ákveðið að veita hönn- uðum ráðhússins í Reykjavík, starfs- mönnum arkitektastofunnar Stúdíó Granda, sérstök verðlaun fyrir hönn- un á þaki hússins. Verða verðlaunin afhent í Reykjavík seinna í október. Verðlaunaafhending þessi er árlegur viðburður en nokkur verk frá öllum Norðurlöndum eru árlega tilnefnd til verðlauna þessara. í ár deila íslensku hönnuðirnir verðlaununum með sænskum starfsbræðrum sínum. „Meiningin með þessum verðlaun- um er að hvetja og verðlauna hönn- uði sem nota sérstaklega mikið af málmi í hönnun sinni og vekja eftir- tekt blikksmiða fyrir skemmtilega og spennandi útfærslu. Dómnefnd- inni þótti hönnun á þaki ráðhússisns mjög spennandi og djörf. Þetta var eitthvað nýtt sem dómnefndin hafði ekki séð áður og þótti vísa til framtíð- ar,“ sagði Gylfi Konráðsson, formað- ur Félags blikksmiðjueigenda, í sam- tali við DV. Gylfi sagði dómnefndina hafa hrif- ist mjög af hönnun bygginga hér- lendis og haft á orði að í þeim efnum stæðum við mjög framarlega. -hlh AIIKUG4RDUR hf. HtllOVERSlUN FM90-9TM1ö:)2 AÐALSTÖÐIN FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR^ Lögregla kom á slysstað við IngólfsQall án þess að stansa og kanna meiðsl: Ók fram hjá þrem- ur meðvitundar- B orðstofuhúsgögn í miklu úrvali. lausum piltum - yfírlögregluþjónn á Selfossi framkvæmdi óformlega rannsókn HONIG DAGAR í verslunum um land allt 23. sept. - 5. okt. 1991 Yfirlögregluþjónn á Selfossi hefur á undanfömum dögum framkvæmt athugun á atburði sem varð aðfara- nótt sunnudagsins þegar 5 ungmenni slösuðust í bílveltu. Athugunin var gerð vegna kvörtunar sem lögð var fram af foreldri eins ungmennanna eftir að lögreglubíll hafði komið að slysstað skömmu eftir óhappið án þess að stansa og athuga ástand fólksins. Þegar lögreglubílhnn ók fram hjá lágu þrjú ungmennanna meðvitundarlaus á slysstað. Slysið varð með þeim hætti að fimm ungmenni, 4 piltar og stúlka, voru að koma af dansleik í Aratungu um klukkan fjögur aðfaranótt sunnudagsins. Óku þau áleiðis til Selfoss eftir Biskupstungnavegi und- ir Ingólfsfjalli. Bílstjórinn dottaði undir stýri með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á ökutækinu sem valt út fyrir veg og gjöreyðilagöist. Tveir piltanna köstuðust út úr bíln- um - bílstjórinn og farþegi úr aftur- sæti. Þeir misstu báðir meðvitund og annar þeirra höfuðkúpubrotnaði. Piltur, sem var farþegi í framsæti og var í bílbelti, missti einnig meðvit- und. Fjóröi pilturinn og stúlkan sluppu hins vegar minna slösuð. Pilt- urinn fór síðan upp á veg til að leita hjálpar. Lögreglubíll með 2 lögreglu- þjónum ók fljótlega fram hjá slys- staðnum með blikkandi ljósum. Ver- ið var að flytja slasaðan pilt sem hafði fengið spark í brjóstkassan á dansleiknum í Aratungu og gekk blóð upp úr honum. Lögreglubíllinn tilkynnti um bílveltu í gegnum fjar- skiptakerfi en nam ekki staðar við slysstað. Bíllinn lá gjörónýtur fyrir utan veginn en ljósin loguðu ennþá. Annar lögreglubíll fór síðan á stað- inn. Ekki er þó fullljóst hve langur tími leið frá því fyrsta hjálp barst. Tveir af þeim sem misstu meðvitund í slysinu vöknuðu upp um það leyti sem sjúkrabíll kom en sá þriðji man ekkert eftir slysinu. Ungmennin eru öll að ná sér, einnig pilturinn sem höfuðkúpubrotnaði. Hann þurfti að gangast undir aðgerð í Reykjavík. Engin formleg kæra Jón Guðmundsson, yílrlögreglu- þjónn á Selfossi, segir að engin form- leg kæra hafi verið lögð fram á hend- ur lögregluþjónunum tveimur sem óku fram hjá slysstaðnum án þess að fara út úr bílnum og kanna ástand ungmennanna. Samkvæmt heimild- um DV var vitni að þessum atburði - pilturinn sem verið var að flytja frá Aratungu. „Lögreglubíllinn lét umsvifalaust vita en hann gat ekki meiru á sig bætt þarna því að það var verið að flytja slasaðan mann,“ sagði yfirlög- regluþjónninn í samtali viö DV. „Það er rétt að það var beðið um skoðun á þessu máli. Við höfum framkvæmt hana. Það er kannski hægt að segja að eðlilegt hefði verið fyrir lögreglu- bílinn að stansa þarna. En þegar ver- ið er að flytja mann sem blóð gengur upp úr verður að taka það alvarlega. Þetta er spurning hvort þeim sem er að sinna einu slysi sé gert að sinna öðru um leið. Það var annar lög- reglubíll á Austurvegi á Selfossi og hann kom fljótlega á slysstaðinn. Málið stendur þannig að við erum búnir að fara yfir þetta mál óform- lega. Þegar upp er staðið veit ég ekki til að þarna sé hægt að draga upp mjög svarta mynd. Ég á ekki von á að úr þessu verði neinn málarekst- ur,“ sagði Jón Guðmundsson. -ÓTT hqwo HQHm . : # HONIG i HONIG«Sírj KYNNINCARAFSLÁTTUR VERÐLAUNA oTi o: um besta HONIG réttinn Við leitum að skemmtilegum uppskriftum þar sem HONIG spaghetti og pastavörur eru notaðar við matargerðina. Frestur til að skila uppskriftum rennur út 10. október næstkomandi. Nánari upplýsingar og þáttökureglur í næstu verslun. Daglega meðan á HONIG dögunum stendur verður í þættinum "Morgunhænur" á Aöal- stöðinni kynnt HONIG uppskrift dagsins. Sendið uppskriftir merkt: Aöalstöðin - HONIG uppskrift. Aðalstræti 16, 101 Reykjavík. Á HONIG dögum eru kynntar nýjar og bragö- góðar HONIG pakkasúpur. Meðan á HONIG dögum stendur eru HONIG vörur seldar með verulegum kynningarafslætti. Margar tegundir af HONIG pastavörum sem auka fjölbreytni í matreiðslunni. Fást í verslunum um land allt. 3.10. VERDLAUN HONIG vörur. HONIG - ÓTELJANDI MÖGULEIKAR í MATREIÐSLU I. VERÐLAUN Stórborgarferð fyrir tvo til Amsterdam með Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. 2.VERÐLAUN Stórborgarferð fyrir tvo til Glasgow meö Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. Wien borðstofuborð + 6 stólar aðeins kr. 115.860,- Komið í stærstu Húsgagnaverslun landsins og sjáið hið mikla alþjóðlega úrval af húsgögnum. GÓÐ GREIÐSLUKJÖR IkíQ iiaiiMiBIS BlLDSHÖFÐA 20-112 RE YKJAVÍK - SÍMI91-681199 - FAX 91-673511

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.