Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Blaðsíða 6
FÍMMTUDAGUR 3. OKTÖBER Viðskipti________________ Á morgun segir markaðurinn Á alþjóðlegum mörkuðum er beðið eftir morgundeginum með mikilli spennu en þá verða birtar atvinnu- leysistölur í Bandaríkjunum. Það er mál manna að þær ráði ákvörðun Seðlabankans í Bandaríkjunum um frekari vaxtalækkanir. Kenningin er sú að vaxandi at- vinnuleysi verði til þess að Seðla- bankinn örvi atvinnulífið með því að lækka vexti. Vextalækkun þýðir að fjármagnskostnaður fyrirtækja lækkar, sem og auðveldara verður að stofna fyrirtæki. Blóðið streymir hraðar. Lækki vextir heldur dollar- inn áfram að lækka um allan heim. Vextir í Bandaríkjunum hafa ekki verið jafnlágir í áraraðir. Þannig eru nafnvextir á ríkisskuldabréfum til 30 ára um 8 prósent. Þetta eru ekki vext- ir umfram verðbólgu en verðbólga í Bandaríkjunum er um 5 prósent. í nokkra mánuði hafa alþjóðlegir peningamarkaðir búist við efnahags- legri uppsveiflu í Bandaríkjunum. En hún lætur standa á sér. Hjól at- vinnulífsins virðast eiga erfitt með að ná upp hraða. Undanfarnar tvær vikur hefur dollarinn veriö veikur. Það byggist á þeirri trú markaðarins að atvinnu- leysistölurnar á morgun verði slæm- ar og að Seðlabankinn lækki vexti í kjölfarið. Dollarinn var í gær um 1,6640 þýsk mörk. Fyrir nokkrum vikum var hann yfir 1,72 þýsk mörk. í Seðla- banka íslands við Kalkofnsveg var dollarinn í gær um 59,35 krónur. Hins vegar er ekki langt síðan hann vær í kringum 64 krónur. Þetta eru miklar sveiflur og ljóst að íslensk fyrirtæki, sem flytja út til Bandaríkjanna, hafa orðið fyrir gengistapi að undanfórnu. , Fyrirtæki, sem skulda í dollurum, hafa hins vegar grætt vegna lækkun- ar dollarans. Þau bíða morgundags- ins með óþreyju í von um frekari lækkun og að dollarinn verði jafnvel kominn niður fyrir 59 krónur eftir helgi. Af álmarkaðnum er það að segja að verö á áli heldur áfram að lækka ytra. Það er nú komið niður í 1.146 tonnið og ekki nema dagaspursmál hvenær það brýtur 1.100 dollara múrinn á niöurleið sinni. • Spáin er svört og svo getur farið að um áramótin verði álverð komið niður í 1.000 dollara tonnið. Aðvör- unarbjallan í samningi Landsvirkj- unar og Alusuisse er löngu búin að hringja en lágmarksorkuverð miðast við 1.250 dollara tonnið. Landsvirkj- un liggur því í björgunarnetinu núna. íslenska hlutabréfavísitalan HMARK er 793 stig. í síðustu viku var hún 794 stig og í vikunni á undan 793 stig. Eftirspurn á íslenskum hlutabréfamarkaði er því ekkert að aukast. -JGH Peningamarkaður INIMLÁNSVEXTIR (%) hæst INNLAN óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbundnar 4-7 Landsbanki Sparireikningar 3ja mánaða upþsögn 5,5 6,5 Sparisjóðirnir 6 mánaða uppsögn 6,5-7,5 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Allir Sértékkareikningar 4-7 Landsbanki VlSITÖLUBUNDNIR REIKNINGAR 6 mánaða uppsögn 3-3,75 Sparisjóðirnir 1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisbundnir reikningar í SDR 6,5-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsbanki ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Búnaðarbanki óverðtryggð kjör, hreyfðir 8-11 Landsbanki SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innantímabils) Vísitölubundnir reikningar 4-8 Landsbanki Gengisbundir reikningar 4-8 Landsbanki BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki Óverðtryggð kjör 15-16 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 3,75-4,1 Sparisjóðirnir Sterlingspund 8,25-8,8 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7,5-7,8 Sparisjóðirnir Danskar krónur 7,75-8 Sparisjóöirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst ÚTLAN OVERÐTRYGGÐ Almennir víxlar (forvextir) 17,5-21 Sparisjóðirnir Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf 18-22 Sparisjóðirnir Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 21 -24 Sparisjóðirnir ÚTLÁN verðtryggd Skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki afurðalAn islenskar krónur 17,5-21,25 Sparisjóðirnir SDR 9-9,5 Islandsbanki, Landsbanki Bandaríkjadalir 7,25-8,0 Sparisjóðirnir Sterlingspund 12-1 2,75 Lanosbanki Þýsk mörk 11 Allir Húsnœðlslán 4.9 Lifeyrissjóðsián 5 9 Dráttarvextir MEÐALVEXTIR Almenn skuldabróf september 21,6 Verðtryggö lán september 10,0 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala október l 3194stig Lánskjaravísitala september 3185 stig Byggingavísitala október 598stig Byggingavísitala október 187 stig Framfærsluvísitala september 1 58,1 stig Húsaleiguvífeitala 1,9% hækkun 1. október VERDBRÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF Gengi bréfa veröbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 5,947 Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40 Einingabréf 2 3,175 Ármannsfell hf. 2,33 2,45 Einingabréf 3 3,904 Eimskip 5,70 5,95 Skammtímabréf 1,984 Flugleiðir 2,05 2,25 Kjarabréf 5,566 Hampiöjan 1,80 1,90 Markbréf 2,984 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10 Tekjubréf 2,110 Hlutabréfasjóður VlB 1,01 1,06 Skyndibréf 1,732 Hlutabréfasjóðurinn 1,64 1,72 Sjóðsbréf 1 2,849 Islandsbanki hf. 1,66 1,74 Sjóðsbréf 2 1,929 Eignfél. Alþýðub. 1,68 1,76 Sjóösbréf 3 1,970 Eignfél. Iðnaöarb. 2,45 2,55 Sjóðsbréf 4 1,726 Eignfél. Verslb. 1,75 1,83 Sjóðsbréf 5 1,178 Grandi hf. 2,75 2,85 Vaxtarbréf 2,0078 Olíufélagið hf. 5,10 5,40 Valbréf 1,8822 Olís 2,05 2,15 Islandsbréf 1,242 Skeljungur hf. 5,65 5,95 Fjórðungsbréf 1,147 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05 Þingbróf 1,239 Sæplast 7,33 7,65 öndvegisbréf 1,221 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09 Sýslubréf 1,259 Útgeröarfélag Ak. 4,70 4,90 Reiðubréf 1,207 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42 Almenni hlutabréfasj. 1,12 1,17 Auðlindarbréf 1,03 1,08 Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20 Síldarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40 1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi. Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast í DV á fimmtudögum. Inriláii með sérkjörum Íslandsbanki Sparileiö 1 Óbundinn reikningur. Úttektargjald, 0,5%. Innfærðir vextir tveggja síðustu vaxtatimabila lausir án úttektargjalds. Grunnvextir eru 8,0%. Verðtryggð kjör eru 3,25% raunvextir. Sparileiö 2 Óbundinn reikningur. Úttektargjald, 0,25%, dregst af hverri úttekt. Innfærðir vextir tveggja síðustu vaxtatímabila lausir án úttektargjalds. Reikningurinn er í tveimur þrepum og ber stighækkandi vexti eftir upphæðum. Grunnvextir eru 8,75% í fyrra þrepi en 9,25% í öðru þrepi. Verðtryggð kjör eru 3,75% raunvextir í fyrra þrepi og 4,25 prósent raunvextir í öðru þrepi. Sparileíö 3 óbundinn reikningur. óhreyfð innstæða í 12 mánuði ber 11,25% nafnvexti. Verðtryggð kjör eru 6,0%'raunvextir. Úttektargjald, 1,5%, dregst ekki af upphæð sem staðið hefur óhreyfð í tólf mánuði. SparileiÖ 4 Bundinn reikningur í minnst 2 ár sem ber 7,5% verðtryggða vexti. Vaxtatímabil er eitt ár og eru vextir færðir á höfuðstól um áramót. Innfærðir vextir eru lausir til útborgunar á sama tíma og reikn- ingurinn. Búnaðarbankinn Gullbók er óbundin með 10% nafnvöxtum á óhreyfðri innstæðu. Verðtryggð kjör eru 4,0 prósent raunvextir. Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mánuði á 13% nafnvöxtum. Verðtryggð kjör reikningsins eru 7,0% raunvextir. • Landsbankinn Kjörbók er óbundin með 11,0% nafnvöxtum. Eftir 16 mánuði greiðast 12,4% nafnvextir af óhreyfðum hluta innstæðunnar. Eftir 24 mánuði greiðast 13,0% nafnvextir. Verðtryggð kjör eru eftir þrepum 3,5%,4,9% og 5,5% raunvextir með 6 mánaða bindingu. Landsbók Landsbók Landsbankans er bundin 15 mánaða verðtryggður reikningur sem ber 7,0% raunvexti. Hávaxtareikningur. Er orðin að Kjörbók Landsbankans. Hávaxtabók Er orðin að Kjörbók Landsbankans og ber sömu kjör. Sparisjóðir Trompbók er óbundinn reikningur með ekkert úttektargjald. Óverðtryggðir grunnvextir eru 9,25%. Verðtryggðir vextir eru 3,75%. Sérstakur vaxtaauki, 0,5%, bætist um áramót við þá upphæö sem hefur staöiö óhreyfö í heilt ár. Þessi sérstaki vaxtaauki er 0,75% hjá 67 ára og eldri. öryggisbók sparisjóöanna er bundin í *12 mánuði. Vextir eru 11,25% upp að 500 þúsund krónum. Verð- tryggð kjör eru 6,25% raunvextir. Yfir 500 þúsund krónum eru vextirnir 11,5%. Verðtryggð kjör eru 6,5% raunvextir. Yfir einni milljón króna eru 11,75% vextir. Verðtryggð kjör eru 6,75% raunvextir. Að binditfma loknum er fjárhæöin laus í einn mánuð en bindst eftir það að nýju í sex mánuði. Bakhjarler 24 mánaða bundinn verðtryggður reikningur með 7,75% raunvöxtum. Eftir 24 mánuði frá stofnun þá opnast hann og veröur laus I einn mánuð. Eftir það á sex mánaða fresti. Verðáerlendum mörkuðum Bensín og olía Rotterdam.fob. Bensín, blýlaust, .221$ tonnið, eða um......9,9 ísl. kr. lítrinn Verð í síðustu viku Um.........................228$ tonnið Bensín, súper....235$ tonnið, eða um......10,5 ísl. kr. lítrinn Verð í síðustu viku Um.........................244$ tonnið Gasolia....................200$ tonnið, eða um......10,0 ísl. kr. lítrinn Verð I síðustu viku Um.........................196$ tonnið Svartolía..................105$ tonnið, eða um......5,8 ísl. kr. lítrinn Verðísíðustuviku Um..........................99$ tonnið Hráolía Um...............21,20$ tunnan, eða um....1.258 ísl. kr. tunnan Verð I síðustu viku Um.......................20,55$ tunnan Gull London Um.........................353$ únsan, eða um....20.950 ísl. kr. únsan Verðísíðustu viku Um.........................353$ únsan Ál London Um.........1.146 dollar tonnið, eða um...68.015 ísl. kr. tonnið Verð í síðustu viku Um.................1.168 dollar tonnið Ull Sydney, Ástralíu Um.........4,60 dollarar kílóið eða um......273 ísl. kr. kílóið Verð í síðustu viku Um.........5,25 dollarar kílóið Bómull London Um..........71 cent pundið, eða um......98 ísl. kr. kílóið Verðísíðustu viku Um..........72 cent pundið Hrásykur London Um.......230 dollarar tonnið, eða um...13.829 ísl. kr. tonnið Verð í síðustu viku Um........230 dollarar tonnið Sojamjöl Chicago Um........190 dollarar tonnið, eða um...11.425 ísl. kr. tonnið Verð í síðustu viku Um........190 dollarar tonnið Kaffibaunir London Um..............63 cent pundið, eða um.......88 ísl. kr. kílóið Verðísíðustuviku Um...............63 cent pundið Verðáíslenskum vörum erlendis Refaskinn K.höfn., júní. Blárefur...........327 d. kr. Skuggarefur........288 d. kr. Silfurrefur........339 d. kr. BlueFrost.........-332 d. kr. Minkaskinn K.höfn, sept. Svartminkur....J...119 d. kr. Brúnminkur.........322 d. kr. Ljósbrúnn (pastel).141 d. kr. Grásleppuhrogn Um....1.025 þýsk mörk tunnan Kísiljárn Um.........652 dollarar tonnið Loðnumjöl Um.........605 doiiarar tonnið Loðnulýsi Um.........330 dollarar tonnið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.