Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Side 15
Hvað sögðu Framarar?
Auðvitaðerég
svekktur
- sagði Ásgeir Elíasson
„Þetta var allan tím-
ann mjög erfltt enda
voru aðstæöur óhag-
stæðar fyrir okkur.
Mikill hiti, Grikkirnir grófir og
dómari leiksins fyrir neðan allar
hellur. Svona vill þetta oft verða
á útivöllum en annars gerðu
strákamir sitt besta. Auðvitað er
ég svekktur að detta út úr keppn-
inni en við áttum að klára þetta
dæmi í iyrri leiknum heima. Það
er umfram allt hægt að læra af
þessu og strákarnir eru reynsl-
urrni ríkari," sagði Ásgeir Elías-
son, í samtali viö DV frá Aþenu..
eftir leikinn í gærkvöldi.
„Gríska liðið var raunar aldrei
líklegt til að skora í leiknum og
vítið sem þeír fengu var út í hött
að mínu mati. Það er erfitt að
taka einstaka leikmenn út því
allir stóðu þeir vel fyrir sinu,“
sagði Ásgeir Eliasson sem stjórn-
aði Fram-liðinu i síðasta skipti en
nú mun hann alfarið snúa sér að
þjálfun íslenska landsliðsins.
Baldur Bjarnason
„Það var mikil upplifun að taka
þátt í þessum leik og stemningin
ólýlanieg. Það var pressa frá
þeim í byrjun en eftir þvi sem á
leið gekk ekkert upp hjá gríska
liðinu. Vítið sem þeir fengu var
alveg út 1 bláinn. Við ætluðum
okkur áfram í keppninni en því
miður tókst það ekki að þessu
sinni. Við munum bara gera bet-
ur næsta haust," sagði Baldur
Bjarnason eftir leikinn.
Halldór B. Jónsson
„Vonir um að komast áfram i
keppninni brugðust í fyrri leikn-
um í Reykjavik. Það var mjög
erfitt fyrir liðið að leika við þess-
ar aðstæður í Aþenu. Á heildina
litið er ég annars ánægður með
jafnteflið og strákarnir gerðu
hvað þeir gátu,“ sagði Halldór B.
Jónsson, formaður knattspyrnu-
deildar Fram.
Hvað sögðu Valsmenn?
Sýndum góðan leik
- sagði Bjarni Sigurðsson
„Ég er virkilega svekktur með
úrslit leiksins. Við vorum ekki
langt frá því að knýja fram fram-
lengingu. Við náðum á köflum aö
sýna góðan leik enda vorum við
ákveðnir að selja okkur dýrt í
þessum leik. Það var ósanngjarnt
að tapa leiknum heima og það
kom okkur í koll í þessum leik.
Það var stuð i mannskapnum í
leiknum, aðstæður góðar og við
vorum hársbreidd frá að ná fram-
lengingu og jafhvel vítaspyrnu-
keppni. Hana heföum við unnið
enda vanir að sigra í henni þegar
svo hefur borið undir,“ sagði
Bjarni Siprðsson markvörðin í
samtali við DV eftir leikinn gegn
Sion í gærkvöldi.
Gunnlaugur Einarsson
„Ég hitti boltann sérlega vel og
það var gaman að sjá á eftir hon-
um í netiö. Við lékum vel og átt-
um að klára þetta með smá-
heppni. Það var mjög svekkjandi
að fá á okkur jöfnunarmarkið,"
sagði Gunnlaugur Einarsson,
Ieikmaður Vals i samtali við DV
eftir leikinn, en hann skoraði
mark Vals í gær með glæsilegu
skoti af um 25 metra færi.
-JKS
Evrópukeppni meistaraliða í knattspymu:
Hetjuleg barátta
Fram dugði ekki
- markalaust jafntefli gegn Panathinaikos og Fram er úr leik
Þrátt fyrir hetjulega baráttu voru
Framarar slegnir út úr Evrópu-
keppni meistaraliða í gærkvöldi er
Fram og gríska liðið Panathinaikos
skildu jöfn á ólympíuleikvanginum í
Aþenu, 0-0.
Fyrri leiknúm í Reykjavík lyktaði
með jafntefli, 2-2, og fer því gríska
liðið áfram á mörkum skoruðum á
útivelli svo tæpara gat það ekki ver-
ið. Þegar tekið er tillit til aðstæðna í
Aþenu verður árangur Framara að
teljast góður.
Um 30 gráða hiti var meðan á leikn-
um stóð og til að að gera róðurinn
enn þyngri var dómrari leiksins dæ-
migerður heimadómari er hann kom
frá Albaníu eins og línuverðirnir sem
voru ekki skárri.
Panathinaikos sótti
meira í byrjun
Eins og vænti mátti sótti Panthinai-
kos meira í byrjun leiksins en skap-
aði sér að sama skapi fá marktæki-
færi. Vörn Fram með Pétur Ormslev
í broddi fylkingar varðist vel og átti
gríska liðið í mestum erfiðleikum að
finna glufu á henni. Eftir því sem á
fyrri hálfleikinn leið komust Fram-
arar meira inn í leikinn. Grísku leik-
mennimir voru mjög grófir og þurfti
Anton Björn Markússon að yfirgefa
leikvöllinn eftir fimmtán mínútna
leik og tók Ríkharður Daðason sæti
hans í framlínunni.
Vafasöm vítaspyrna
dæmd á Framara
Á upphafsmínútum síðari hálfleiks
fékk Panathinaikos dæmda víta-
spyrnu og mótmæltu Framarar
henni kröftuglega en allt kom fyrir
ekki og dómarinn stóð fast á sínum
dómi. Segja má að réttlætinu hafi
verið fullnægt því Dimitri Sarava-
kos, markahæsti leikmaðurinn í
grísku knattspyrnunni, skaut hátt
yfir markið.
Fram lék vel
í síðari hálfleik
Eftir þetta komu Framarar meira
fram á völlinn og áttu þá í fullu tré
við gríska liðið. Pétur Arnþórsson
átti tívegis góð skot að markinu en
markvörður Panathinaikos varði vel
í bæði skiptin. Fram réð lengi vel
spilinu úti á vellinum en allt kom
fyrir ekki. Grísku áhorfendurnir létu
óánægju sína óspart uppi og púuðu
á goðin sín allan síðari hálfleikinn.
Lið Fram var samstillt í leiknum
og eiga allir hrós skilið. Birkir Krist-
insson var öruggur í markinu. Bald-
ur Bjarnason var mjög ógnandi á
vinstri vængnum og klöppuðu grísk-
ir áhorfendur honum oft lof í lofa.
Fram var ekki langt frá því að kom-
ast áfram í keppninni og segja má
að leikurinn í Reykjavík hafi komið
í veg fyrir það. Sá leikur heföi í öllu
falli átt að vinnast.
Mikil stemning var á leiknum á
ólympíuleikvanginum í Aþenu og
voru áhorfendur um 46 þúsund.
-JKS
Þorvaldur örlygsson gefur sig hvergi i baráttunni við Grikkjann Gorghakopa-
los í liði Panathinaikos i leik liðanna i Aþenu í gærkvöldi. Þorvaldur komst
vel frá leiknum. Simamynd Reuter
Evrópukeppni bikarhafa í knattspymu:
Valsmenn komu á óvart
- frábært mark Gunnlaugs Einarssonar en Sion slapp fyrir hom
Valsmenn voru hársbreidd frá því
að knýja fram framlengingu í síðari
leik sínum gegn svissneska félaginu
Sion í Sviss í gærkvöldi í Evrópu-
keppni bikarhafa. Valsmenn, sem
höfðu tapað fyrri leiknum í Reykja-
vík með einu marki, náðu forystunni
í leiknum í gærkvöldi en svissneska
liðið bjargaði andlitinu með því að
jafna þegar tíu mínútur voru til
leiksloka, 1-1, og urðu það lyktir
leiksins. Frammistaða Valsmanna
var mjög góð í leiknum en með smá-
heppni hefðu þeir jafnvel náð lengra
í keppninni.
Sion sótti stíft í byrjun leiksins en
marktækifæri voru hins vegar fá
sem hðið fékk. Bjarni Sigurðsson var
öryggið uppmálað í marki Vals-
manna þegar eitthvað reyndi á hann
en Bjarni átti eftir að koma meira
við sögu í síðari hálfleik. Valsmenn
fengu nokkrar hættulegar skyndi-
sóknir í fyrri hálfleik sem ekki nýtt-
ust.
Sævari Jónssyni
vikiðaf leikvelli
í síðari hálfleik færðist aukin harka
í leikinn en mótlætið fór í taugarnar
á liösmönnum svissneska liðsins.
Þegar sjö mínútur voru liðnar af síð-
ari hálfleik lentu Sævar Jónsson og
fyrirliði Sion í samstuði og vísaði
portúgalski dómari leiksins þeim
báðum út af og þótti mörgum það
ansi strangur dómur. Eftir þetta at-
vH$ dró ekkert úr hörkunni í leikn-
um.
Draumamark hjá
Gunnlaugi Einarssyni
Á 67. mínútu leiksins dró til tíðinda.
Baldur Bragason fékk knöttinn fyrir
utan vítateig og renndi honum fyrir
fætur Gunnlaugs Einarssonar sem
kom aðvífandi og þrumaði boltanum
í stöng og inn af 25 metra færi - sann-
kallað draumamark og óverjandi fyr-
ir markmann Sion.
Eftir markið urðu leikmenn Sion
alveg æfir og lögðu allt í sóknarleik-
inn en Bjarni Sigurðsson varði hvað
eftir annað meistaralega í markinu.
Þegar um tiu mínútur voru til leiks-
loka náði Sion að jafna og var svolít-
ill heppnisstimpill á því marki. Einar
Páll virtist hindraður inni í víta-
teignum, knötturinn fór yfir hann
og fyrir fætur Davids Orlando, sem
skoraði af stuttu færi. Leikurinn
hélst síðan í jafnvægi allt til leiks-
loka.
Bjarni Sigurðsson besti
maður vallarins
Bjarni Sigurðson var bestur leik-
manna vallarins í þessum leik, átti
hreint stórkostlegan leik. Valsliðið
var heilsteypt og alhr börðust vel
fyrir sínu.
Valsmenn létu mjög vel af öllum
aðstæðum og vöhurinn var sérlega
góður. Á sjöunda þúsund áhorfendur
fylgdust með leiknum í Sion í gær-
kvöldi.
-JKS
Gunnlaugur Einarsson kom Vals-
mönnumm yfir gegn Sion meö sann-
kölluðu draumamarki af 25 metra
I færi. Boltinn fór i stöng og þaðan í
netið.