Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1991, Page 28
36 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1991. Afmæli Einar Nikulásson Einar Nikulásson forstjóri, Breiða- gerði 25, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Einar fæddist í Doktorshúsinu, Vesturgötu 25 í Reykjavík, en ólst upp við Hringbrautina. Hann er raf- virkjameistari að mennt. Einar stofnaði eigið fyrirtæki árið 1945, E.N. lampa hf., og hefur rekið það síðan en það er nú til húsa að Skeifunni 3B. Hann er fyrstur manna í Evrópu til að framleiða flúrlampa en hann hefur hannað lampa fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins. Þá hefur hann flutt út lampa, m.a. til Noregs. Einar var stjórnarmeðlimur í Exmarco í Chicago 1975-85 og situr í stjórn Promatex í Belgíu frá 1973. Hann stofnaði bátafélagið Snarfara og sat í stjórn þess í mörg ár, auk þess sem hann hefur verið virkur félagi í Stangaveiðifélagi íslands. Fjölskylda Einar kvæntist 2.12.1944 Kristínu Þórarinsdóttur, f. 6.9.1922, húsmóð- ur og píanókennara, en hún er dótt- ir Þórarins, b., bókara og rithöfund- ar af Revkjaætt, Árnasonar prófasts Þórarinssonar og konu Þórarins, Rósu, húsmóður og kirkjuorganista, Lárusdóttur, prests á Breiðabólstað, Halldórssonar, af Hjarðarfellsætt. Börn Einars og Kristínar eru Rósa, f. 17.3.1945, húsmóðir og fata- hönnuður, gift Guðmundi Ingi- mundarsyni viðskiptafræðingi og eiga þau þrjú börn; Ragnar Már, f. 5.9.1947, framkvæmdastjóri, kvænt- ur Þórdísi Ólafsdóttur, laganema og húsmóður, og á Ragnar Már einn son frá fyrra hjónabandi; Þórhildur, f. 13.11.1953, og eignaðist hún fimm börn; Nikulás, f. 2.3.1955, tölvu- tæknir, kvæntur Sigrúnu Unn- steinsdóttur og eignuðust þau þrjú börn. Systkini Einars: Stefán, f. 23.4. 1915, nú látinn, viðskiptafræðingur, var kvæntur Sigrúnu Bergsteins- dóttur og eiga þau eitt barn; Ragn- heiður, f. 4.8.1917, húsmóðir, gift Magnúsi Pálssyni glerslípunar- manni; Halldór, f. 22.6.1919, raf- virki; Unnur, f. 21.1.1924, húsmóðir og píanóleikari, gift Einari Eyfells vélaverkfræðingi; Halla, f. 17.5.1931, húsmóðir, gift Þórði Þorvarðarsyni deildarstjóra. Foreldrar Einars: Nikulás Friö- riksson, f. 29.6.1887, d. 1947, raf- magnsumsjónarmaður í Reykjavík, og kona hans, Ragna Stefánsdóttir, f. 6.4.1889, d. 29.3.1974, húsmóðir. Ætt Nikulás var sonur Friöriks, b. á Litluhólum í Mýrdal, bróður Er- lends, afa Erlends Einarssonar, fyrrv. forstjóra SÍS. Friðrik var son- ur Björns Bergsteinssonar, b. á Dyr- hólum, bróður Þuríðar, langömmu Bergsteins brunamálastjóra og Ól- afs G. Einarssonar menntamálaráð- herra. Móðir Friðriks var Ólöf Þor- steinsdóttir, b. í Eystri-Sólheimum, Þorsteinssonar, bróður Finns, lang- afa Péturs Guðflnnssonar, fram- kvæmdastjóra ríkissjónvarpsins, og afa Lárusar, afa Erlends Lárusson- ar, forstöðumanns Tryggingaeftir- lits ríkisins. Móðir Nikulásar var Halldóra Magnúsdóttir, b. í Dyrhólahjáleigu, Ólafssonar, og Sigríðar Sigurðar- dóttur, b. á Hrauni, Árnasonar. Móðir Sigríðar var Halldóra Run- ólfsdóttir. Ragna var dóttir Stefáns, héraðs- læknis í Vík í Mýrdal, Gíslasonar, b. á Laugum í Flóa, Gunnarssonar. Móðir Stefáns var Halla, systir Guö- rúnar, móður Markúsar, afa Harðar Ágústssonar, myndlistarmanns og fyrrv. skólastjóra, en Markús var einnig langafi Markúsar Arnar Ant- onssonar borgarstjóra. Þá var Guð- rún móðir Guðjóns, afa Árna Geirs Stefánssonar lektors og Unnars Stefánssonar hjá Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga, fóður Krist- jáns Más, fréttamanns á Stöð 2. Önnur systir Höllu var Ingibjörg, langamma Eðvalds Sigurðssonar, alþingismanns og formanns Dags- brúnar. Halla var dóttir Jóns, b. í Galtafelli, Björnssonar, b. í Vorsabæ, Högnasonar, lrm. á Laug- arvatni, Björnssonar, bróður Sigríð- Einar Nikulásson. ar, móður Finns Jónssonar biskups. Móðir Jóns í Galtafelli var Bryn- gerður Knútsdóttir, systir Sigríðar, ömmu Tómasar Guðmundssonar skálds og Hannesar þjóðskjalavarð- ar og Þorsteins hagstofustjóra Þor- steinssona. Móðir Rögnu var Ragnheiður Guðrún Einarsdóttir, verslunar- stjóra í Reykjavík, Jafetssonar og Guðrúnar Jónsdóttur. Einar verður að heiman á afmæl- isdaginn. Til hamingju með 85 ára Sigdór Hallsson, Löngumýri 8, Akureyri. Guðrun Þorvaldsdóttir, Laugateigi 10, Reykjavík. 80 ára Tryggvi Jónsson, Naustahlein5, Garðabæ. Marvin Guðmundur Hallmunds- son, Hraunbraut47, Kópavogi. Óttar Gunnlaugsson, Vallholti31, Selfossi. Hróðmar Gissurarson, Kleppsvegi4, Reykjavík. Hróðmar verður ekki heima á af- mælisdaginn. Anna Gerður Bergmark, Brekkubyggð 61, Garðabæ. Hallur Ólafsson, Merkurgötu 5, Hafnarflrði. Þórey Ólafsdóttir, Reykjaskóla, Staðarhreppi. 75 ára Sigurður Finnbogason, Mávahlið 35, Reykjavík. Einar Oddberg Sigurðsson, Ásvallagötu 55, Reykjavík. Guðbrandur Halldórsson, Víðimel49, Reykjavík. Gunnar P. Óskarsson, Sólvallagötu 4, Reykjavik. 50ára Rafn Sveinsson, Borgarhlíð 3a, Akureyri. Ingi Sigurður Helgason, Miðleiti 4, Reykjavík. Ibsen Angantýsson, Heiðargaröi 13, Keflavík. María Lúðvíksdóttir, Hlíðarvegi 46, Njarðvík. 70 ára Kristján Guðmundsson, Skáldsstöðum, Reykhólahreppi. Einar Nikulásson, Breiðagerði 25, Reykjavík. 40 ára 60 ára Sigrún Guðmundsdóttir, Álfhólsvegi 147, Kópavogí. Sigrún tekur á móti gestum á heim- ili sínu, laugardaginn 5.10. klukkan 16.00. Sólfríður Guðmundsdóttir, Hrauntungu 53, Kópavogi. Jóhanna Björnsdóttir, Álfaskeiði 100, Hafnarfirði. Stefán Gunnarsson, Esjugrund23, Kjalameshreppi. Edda Hlín Hallsdóttir, Funafold 105, Reykjavík. Gerður Garðarsdóttir, Ljósabergi 32, Hafnarfirði. Ásgeir Höskuldsson Asgeir Höskuldsson póstvarðstjóri, Álfheimum 38, Reykjavík, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Starfsferill Ásgeir fæddist að Hallsstöðum í Nauteyrarhreppi við Djúp og ólst þar upp til sjö ára aldurs en fluttist þá með foreldrum sínum að Tungu í sömu sveit. Ásgeir kynntist snemma öllum sveitastörfum þess tíma. Hann stundaði nám við MA1933-36 en fór aftur heim og gerðist ráðsmaður hjá móður sinni er faðir hans lést. Hann tók síðan við búskap í Tungu og bjó þar til 1942 er hann gerðist kaupa- maður og síðan ársmaður, m.a. á Laugabóli og Kirkjubóli í Langadal. Hann gerðist síðan ráðsmaður að Lundi í Lundarreykjadal hjá Herluf Clausen 1944 en lenti þá i slysi er íbúðarhúsið að Lundi brann 9.11. 1944. Hann var þá fluttur til Reykja- víkur og hefur búið þar síðan. Ásgeir hóf störf hjá Pósti og síma 1945, var póstburðarmaður þar í nokkra daga, síðan póstafgreiðslu- maður, varð póst- og símstöðvar- stjóri á Keflavíkurflugvelli 1946-47, varð yfirpóstafgreiðslumaður og loks póstyarðstjóri. Ásgeir sat í hreppsnefnd Nauteyr- arhrepps 1938-42, sat í stjórn deildar KÍ í Nauteyrarhreppi 1940-42, í stjórn Ungmennafélagsins Huld um árabil. Hann sat í stjórn Póstmanna- félags íslands 1945-56 og var for- maður þess 1968-70. Ásgeir sat í stjórn Norræna póstmannaráösins 1968-70 og var formaður þess 1969. Ásgeir starfaði í Framsóknar- flokknum 1940-51, var einn af stofn- endum Þjóðvarnarflokks íslands og var tvisvar í framboði fyrir flokkinn í Norður-Isafjarðarsýslu. Hann var varaborgarfulltrúi í Reykjavík 1962-66. Þá var hann formaður Öldrunardeildar Póstmannafélags íslands 1982-86. Fjölskylda Ásgeir kvæntist 21.6.1941 Ingileifi. Guðbjörgu Markúsdóttur, f. 23.4. 1918, d. 8.8.1976, húsmóður en hún var dóttir Markúsar Kr. Finn- björnssonar, útvegsb. á Sæbóli í Aðalvík, og konu hans, Herborgar Árnadóttur frá Skáladal í Sléttu- hreppi. Synir Ásgeirs og Ingileifar: Hösk- uldur Borgar Ásgeirsson, f. 3.12. 1941, d. 9.11.1944; Ásgeir Ásgeirsson, f. 14.4.1941, d. 15.8.1941 (kjörsonur); ÁsgeirÁsgeirsson, f. 1.9.1951, sjó- maður í Kópavogi, kvæntur Ástu Halldórsdóttur húsmóður (kjörson- ur); Höskuldur Borgar Ásgeirsson, f. 29.3.1952, forstjóri fyrir Iceland Seafood Ltd. í Frakklandi, kvæntur Elsu Þuríði Þórisdóttur húsmóður (kjörsonur). Barnabörn Ásgeirs og Ingileifar eru núsjötalsins. Systkini Ásgeirs: Jón Kristinn Höskuldsson, f. 24.3.1918, lengst af leigubílstjóri í Kópavogi, kvæntur Kristrúnu Magnúsdóttur frá Arn- þórsholti og eiga þau þijá' syni; Guð- mundur Höskuldsson, f. 18.6.1919, lengst af fulltrúi hjá Samvinnu- tryggingum, kvæntur Guðnýju Ás- geirsdóttur húsmóður og eiga þau fimm börn; Aðalsteinn Höskulds- son, f. 23.8.1920, d. 17.4.1987, starfs- maður hjá Seðlabankanum, var kvæntur Karólínu Sigríði Jónsdótt- ur úr Hrútafirði en slitu samvistum og eru synir þeirra tveir en seinni kona Aðalsteins var Björk Friðriks- Asgeir Höskuldsson. dóttir úr Reykjavík og eignuðust þau fjögur börn; Níelssína Steinunn, f. 10.1.1927, d. 1929. Foreldrar Ásgeirs voru Höskuldur Kristinn Jónsson, f. 24.12.1888, d. 14.7.1936, b. á Hallsstöðum og í Tungu, og kona hans, Petra Guð- mundsdóttir, f. 9.6.1888, d. 7.6.1958, húsfreyja og ljósmóðir. Bróðir Höskuldar var Jón, faðir Höskuldar, forstjóraÁTVR. Hösk- uldur var sonur Jóns, b. í Hlíðar- húsum á Snæfjallaströnd, Egilsson- ar, sjómanns á Snæfjallaströnd, Þorgrimssonar. Móðir Höskuldar var María Kristjánsdóttir, vinnu- manns á Laugalandi. Petra var dóttir Guðmundar, hús- manns í Þernuvík, Sveinssonar og Petru Guðmundsdóttur, b. í Rima í Laugardal á Barðaströnd, Ólafsson- ar. Ásgeir tekur á móti gestum að Laugavegi 45, á staðnum Tveir vinir og einn í fríi, milli klukkan 17.00 og 19.00 á afmælisdaginn. Leiðrétting sviðsijós Tilkynningar um brúðkaup Ákveðið hefur verið að veita brúöhjónum ókeypis áskrift að DV í þrjá mánuði eftir vígsluna. Til- vonandi brúðhjón, sem áhuga hafa á kynningaráskriftinni, þurfa að fylla út eyöublað sem liggur frammi á afgreiðslu DV en þar yrði getið um nafn brúðhjónanna, kennitölur þeirra, heimilisfang, síma, vígslustað og tíma, nafn prests (embættismanns) og nafn foreldra brúðhjónanna. Þessar upplýsingar yrðu síðan birtar á ættfræðisíðu DV á fimmtu- degi fyrir brúðkaupið en þær þurfa þá að berast blaðinu í síðasta lagi á þriðjudegi í sömu viku. Áskriftartilboðið stendur frá 12.10. nk. ogútárið. í afmælislista DV, miövikudaginn 2.10. urðu þau slæmu mistök að til- kynning um gestaboð voru eignuð öðrum en til stóð. Þar stendur að Lilja Jóhannesdóttir taki á móti gestum á Seltiarnarnesi á laugar- daginn kemur. Þetta er ekki rétt. Rétt er tilkynningin svona: Guðrún Sigríður Magnúsdóttir, Dvalarheimilinu Felli, Skipholti 21, Reykjavík, varð níræð miðvikudaginn 2.10. Guðrún Sigríður tekur á móti gest- um laugardaginn 5.10. frá klukkan 15.00-19.00 hjá systurdóttur sinni, Rósu Tómasdóttur, og manni henn- ar, Gunnari Bjarnasyni, að Látra- strönd 3, Seltjarnarnesi. Viökomandi aðilar eru beðnir vel- virðingar á þessum mistökum. Nemendur Fjölbrautaskólans í Breiðholti héldu fyrir nokkru málverka- og myndlistarsýningu i skólanum. Sýnd voru fjölbreytt verk eftir nemend- ur skólans þar sem sköpunargleðin fékk að njóta sin. Þessar ungu stúlk- ur voru á meðal sýningargesta. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.