Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 199L Viðskipti Spariskírteini ríkissjóðs: Krafan á Verðbréfaþingi lækkar Avöxtunarkrafan á spariskírtein- um ríkissjóðs á Verðbréfaþingi ís- lands, sem er endursölumarkaður fyrir verðbréf og hlutabréf, hefur lækkað í þessari viku úr 8,35 í 8,30 prósent. Þetta er góður mælir á að vextir séu frekar að lækka núna en hækka. Ástæðan fyrir að ávöxtunarkrafan lækkar er mikil eftirspurn eftir gömlum ríkisskuldabréfum. Á nýj- um spariskírteinum er hæst hægt að fá 8,1 prósent þannig að þótt kaup- endur hafl lækkað kröfuna eru þeir enn að græða miðað við nýútgefm bréf. Úr 8,55 í 8,30 prósent Ávöxtunarkrafa af spariskírtein- um ríkissjóðs voru á Veröbréfaþingi íslands 8,55 prósent um mitt sumar. Hún féll síðan niður í 8,50 og eftir að eftirspurnin jókst og hefur haldiö áfram á niðurleið sinni. Nú er krafan komin niður í 8,30 prósent. Ávöxtunarkrafa kaupenda hús- bréfa hefur einnig lækkað á undan- fórnum mánuðum. Þessa vikuna er krafan 8,70 eftir að hafa komist upp í 9,0 prósent í haust. Kaupkrafa húsbréfa var 7,25 prósent í byrjun árs Ávöxtunarkrafa húsbréfa upp á 8,70 prósent á Verðbréfaþinginu er mjög há litið til langs tíma. í byrjun ársins var hún 7,25, fór í 7,75 í febrú- ar, 7,95 í mars og í apríl var hún komin í 8,40. í sumar hækkaði krafan áfram og komst hæst í 9 prósent í byrjun september. Vegna mikillar eftirspurnar eftir húsbréfum hefur krafan fallið síðan. Hráolían komin upp í 22,55 dollara tunnan Á erlendum mörkuöum er mjög athyglisvert hvað verð á hráolíu hef- ur hækkað undanfarnar vikur. Þannig er tunnan af hráolíunni Brent komin upp í 22,55 dollara sem er hæsta verð í marga mánuði. Ástæðan mun vera minna framboð af hráolíu á olíumörkuðum. Haldist þetta verð áfram mun verð á bensíni og olíu taka að hækka á næstunni. Raunar hefur verð á bens- íni verið að lækka að undanfórnu og heldur áfram að lækka þessa vikuna. Það gerir snarminnkuð eftirspurn. Verð á gasolíu og svartolíu hefur hins vegar hækkað að undanfomu. Svartolían er komin upp í 120 dollara tonnið. Venjulega er hún einhvers staðar á milli 90 og 100 dollara tonnið. Verð á gasolíu hefur einnig hækkað og er tonnið nú komið upp í 221 doll- ara. Þetta skiptir verulegu máli fyrir íslenska togaraflotann sem notar að stærstum hluta gasolíu. Brýtur álið 1.100 dollara múrinn í næstu viku? Verð á áli heldur áfram aö lækka og virðist enginn geta séð fyrir hvernig þau ósköp enda. Þessa vik- una er verðið komið niður i 1.115 dollara tonnið en var í síðustu viku á 1.128 dollara tonnið. í næstu viku gætu þau sögulegu tíðindi því gerst að álverð bryti 1.100 dollara múrinn. Svo lágt hefur álverð ekki verið í mörg ár. Lágt álverð stafar af því að framboð áls á þessu ári hefur aukist um 3 prósent í heildina á meðan eftirspurn hefur minnkað um 1 prósent. Gapið er því um 4 prósent. Markaðurinn svarar slíkum mun aðeins á einn hátt; með verðlækkun. Dollarinn á 60,24 krónur Dollarinn er enn á sömu nótum og í síðustu viku. Á íslandi var hann í gær 60,24 krónur og breska sterlings- pundið á 102,935 krónur. Hlutabréfavísitala Hlutabréfa- markaöarins, HMARKS-vísitalan, er enn eina vikuna 793 stig. Það að hún hreyfist ekki, hvorki til hækkunar eða lækkunar, sýnir vel að íslenski hlutabréfamarkaðurinn er stein- dauður, mjög lítil viðskipti eiga sér stað. -JGH Verðáerlendum mörkuðum Bensínog olía Rotterdam, fob. Bensín, blýlaust, .216$ tonnið, eða um......9,9 ísl. kr. lítrinn Verð í síðustu viku Um.........................221$ tonnið Bensin, súper....235$ tonnið, eða um......10,6 ísl. kr. lítrinn Verð í síðustu viku Um.........................232$ tonnið Gasolía....................221$ tonnið, eða um......11,3 ísl. kr. lítrinn Verð í síðustu viku Um.........................210$ tonnið Svartolía..................120$ tonnið, eða um......6,7 ísl. kr. lítrinn Verð í síðustu viku Um..................110$ tonnið Hráolía Um...............22,55$ tunnan, eða um....1.360 ísl. kr. tunnan Verð í síðustu viku Um.......................21,70$ tunnan Gull London Um.........................357$ únsan, eða um....21.552 ísl. kr. únsan Verð í síðustu viku Um.........................357$ únsan Ál London Um.........1.115 dollar tonnið, eða um...67.279 ísl. kr. tonnið Verð í síðustu viku Um.................1.128 dollar tonnið Ull Sydney, Ástralíu Um.........4,41 dollarar kílóið eða um.......266 ísl. kr. kllóið Verð í síðustu viku Um.........4,60 dollarar kílóið Bómull London Um............73 cent pundið, eða um........98 ísl. kr. kílóið Verð í síðustu viku Um............71 cent pundið Hrásykur London Um.......232 dollarar tonnið, eða um...13.975 ísl. kr. tonnið Verðísíðustuviku Um........230 dollarar tonnið Sojamjöl Chicago Um........193 dollarar tonnið, eða um...11.626 ísl. kr. tonnið Verð í síðustu viku Um........195 dollarar tonnið Kaffibaunir London Um..............63 cent pundið, eða um.......88 ísl. kr. kílóið Verðísíðustu viku Um...............63 cent pundið Verðáíslenskum vörum erlendis Refaskinn K.höfn., júní. Blárefur...........327 d. kr. Skuggarefur........288 d. kr. Silfurrefur........339 ,d. kr. BlueFrost..........332 d. kr. Minkaskinn K.höfn.sept. Svartminkur........119 d. kr. Brúnminkur.........322 d. kr. Ljósbrúnn (pastel).141 d. kr. Grásleppuhrogn Um....1.025 þýsk mörk tunnan Kisiljárn Úm.......652 dollarar tonnið Loðnumjöl Um...330 sterlingspund tonnið Loðnulýsi Um.......330 dollarar tonnið Peningamarkadur 1IM N LÁN S V EXTIR (%) hæst INNLAN ÖVERÐTRYGGÐ Sparisjóðsbækur óbundnar 3,5-4 Allir nema Sparisjóðir Sparireikningar 3ja mánaða uppsögn 4 6,5 Sparisjóðirnir 6 mánaða uppsögn 5-7,5 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Allir Sértékkareikningar 4-7 Landsbanki VlSITÖLUBUNDNIR REIKNINGAR 6 mánaða uppsögn 3,0 Allir 1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisbundnir reikningar í SDR 6,5-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsbanki ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Búnaðarbanki Óverðtryggð kjör, hreyfðir 8-8,5 Sparisjóðirnir SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innantimabils) Vísitölubundnir reikningar 4-8 Landsbanki Gengisbundir reikningar 4-8 Landsbanki BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki Óverðtryggð kjör 10,5-11 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 3,75-4,1 Sparisjóðirnir Sterlingspund 8,25-8,8 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7,5-7,8 Sparisjóðirnir Danskar krónur 7,75-8 Sparisjóðirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst ÚTLÁN ÖVERÐTRYGGÐ Almennir víxlar (forvextir) 16,5-19 Sparisjóðirnir Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf 17-20 Sparisjóðirnir Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 20-22,5 Sparisjóðirnir ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ Skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki AFURÐAIÁN 4 Islenskar krónur 16,5 19,25 Sparisjóðirnir SDR 9-9,5 IslanHsbanki, Landsbanki Bandarikjadalir 7,25-8,0 Sparisjóðirnir Sterlingspund 12-1 2,75 Landsbanki Þýsk mörk 11 Allir Húsnæöislán 4.9 Lifeyrissjóöslán 5 9 Dráttarvextir 30,0 MEÐALVEXTIR Almenn skgldabréf september 21,6 Verðtryggð lán september 10,0 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala október Lánskjaravisitala september Byggingavísitala október Byggingavísitala október Framfærsluvísitala september Húsaleiguvísitala 31 94 stig 31 85 stig 598 stig 187 stig 1 58,1 stig 1,9% hækkun 1. október VERÐBRÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF Gengi bréfa veröbréfasjóða Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 5,968 Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40 Einingabréf 2 3,186 Ármannsfell hf. 2,33 2,45 Einingabréf 3 3,919 Eimskip 5,70 5,95 Skammtímabréf 1,990 Flugleiðir 2,05 2,25 Kjarabréf 5,595 Hampiðjan 1,80 1,90 Markbréf 3,000 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10 Tekjubréf 2,123 Hlutabréfasjóður VlB 1,01 1,06 Skyndibréf 1,738 Hlutabréfasjóðurinn 1,64 1,72 Sjóðsbréf V 2,860 Islandsbanki hf. 1,66 1,74 Sjóösbréf 2 1,935 Eignfél. Alþýðub. 1,68 1,76 Sjóðsbréf 3 1,978 Eignfél. Iðnaðarb. 2,45 2,55 Sjóðsbréf 4 1,732 Eignfél. Verslb. 1,75 1,83 Sjóösbréf 5 1,183 Grandi hf. 2,75 2,85 Vaxtarbréf 2,0157 Olíufélagiö hf. 5,10 5,40 Valbréf 1,8896 Olís 2,05 2,15 islandsbréf 1,247 Skeljungur hf. 5,65 5,95 Fjórðungsbréf 1,131 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05 Þingbréf 1,244 Sæplast 7,33 7,65 öndvegisbréf 1,226 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09 Sýslubréf 1,265 Útgerðarfélag Ak. 4,70 4,90 Reiðubréf 1,211 Fjárfestingarfélagiö 1,35 1,42 Almenni hlutabréfasj. 1,12 1,17 Auðlindarbréf 1,03 1,08 islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20 Síldarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40 1 Viö kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aði er miðað við sérstakt kaupgengi. Innlán með sérkjörum íslandsbanki Sparileið 1 Óbundinn reikningur. Úttektargjald, 0,5%. Innfærðir vextir tveggja síðustu vaxtatímabila lausir án úttektargjalds. Grunnvextir eru 8,0%. Verðtryggð kjör eru 3,25% raunvextir. Sparileið 2 Óbundinn reikningur. Úttektargjald, 0,25%, dregst af hverri úttekt. Innfærðir vextir tveggja síðustu vaxtatímabila lausir án úttektargjalds. Reikningurinn er í tveimur þrepum og ber stighækkandi vexti eftir upphæðum. Grunnvextir eru 8,75% í fyrra þrepi en 9,25% í öðru þrepi. Verðtryggð kjör eru 3,75% raunvextir í fyrra þrepi og 4,25 prósent raunvextir í öðru þrepi. Spariieið 3 óbundinn reikningur. óhreyfð innstæða í 12 mánuði ber 11,25% nafnvexti. Verðtryggð kjör eru 6,0% raunvextir. Úttektargjald, 1,5%, dregst ekki af upphæð sem staðið hefur óhreyfð í tólf mánuði. Sparileið 4 Bundinn reikningur í minnst 2 ár sem ber 7,5% verðtryggða vexti. Vaxtatímabil er eitt ár og eru vextir færðir á höfuðstól um áramót. Innfærðir vextir eru lausir til útborgunar á sama tíma og reikn- ingurinn. Búnaöarbankinn Gullbók er óbundin með 10% nafnvöxtum á óhreyfðri innstæðu. Verðtryggð kjör eru 4,0 prósent raunvextir. Metbók er með hvert innlegg bundið í 18 mánuði á 13% nafnvöxtum. Verðtryggð kjör reikningsins eru 7,0% raunvextir. Landsbankinn Kjörbók er óbundin með 11,0% nafnvöxtum. Eftir 16 mánuði greiðast 12,4% nafnvextir af óhreyfðum hluta innstæðunnar. Eftir 24 mánuði greiðast 13,0% nafnvextir. Verðtryggð kjör eru eftir þrepum 3,5%,4,9% og 5,5% raunvextir með 6 mánaða bindingu. Landsbók Landsbók Landsbankans er bundin 15 mánaða verðtryggður reikningur sem ber 7,0% raunvexti. Hávaxtareiknlngur. Er orðin að Kjörbók Landsbankans. Hávaxtabók Er orðin að Kjörbók Landsbankans og ber sömu kjör. Sparisjóöir Trompbók er óbundinn reikningur með ekkert úttektargjald. Óverðtryggðir grunnvextir eru 9,25%. Verðtryggöir vextir eru 3,75%. Sérstakur vaxtaauki, 0,5%, bætist um áramót við þá upphæð sem hefur staöið óhreyfð í heilt ár. Þessi sérstaki vaxtaauki er 0,75% hjá 67 ára og eldri. öryggisbók sparisjóðanna er bundin í 12 mánuði. Vextir eru 11,25% upp að 500 þúsund krónum. Verð- tryggó kjör eru 6,25% raunvextir. Yfir 500 þúsund krónum eru vextirnir 11,5%. Verðtryggð kjör eru 6,5% raunvextir. Yfir einni milljón króna eru 11,75% vextir. Verðtryggð kjör eru 6,75% raunvextir. Að binditíma loknum er fjárhæðin laus í einn mánuð en bindst eftir það að nýju í sex mánuði. Bakhjarler 24 mánaða bundinn verðtryggður reikningur með 7,75% raunvöxtum. Eftir 24 mánuði frá stofnun þá opnast hann og verður laus í einn mánuð. Eftir það á sex mánaða fresti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.