Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991. Utlönd______________________________________ Sögumar sem settu bandarískt þjóðlíf á annan endann í heila viku: Talaði um getnaðar- lim sinn og kyngetu - Clarence Thomas orðinn hæstaréttardómari en sögurnar um hann lifa „Hann sagði mér frá klámmyndum sem hann hefði séð og að þar hefðu sést menn með stóra kynlimi og kon- ur meö stór bijóst í alls kyns sam- farasenum. Þá sagði hann mér nokkrum sinnum frá eigin kyngetu og að limur hans væri óvenjustór," sagði lagaprófessorinn Anita Hill i leynilegum yfirheyrslum hjá banda- rísku alríkislögreglunni, FBI. Hill hafði áður látiö laganefnd öld- ungadeildarinnar vita að Clarence Thomas, verðandi hæstaréttardóm- ari, hefði áreitt sig kynferðislega þeg- ar þau unnu saman i Washington. Nokkrar setningur eins og sú sem vitnað var til hér að ofan urðu til að setja allt bandarískt þjóðlíf á annan endann í heila viku. Beðið við sjónvarpið eftir fleiri sögum Milljónir manna sátu sem límdar við sjónvarpstækin og biðu eftir nið- urstöðunni í deilu Thomas og Hill og jafnvel nokkrum æsilegum sögum til viðbótar. Vestra eru menn skipaöir póhtískt í æðstu stööur en þingnefndir hafa neitunarvald og geta hafnað einstök- um kandídötum standi þeir sig ekki við yfirheyrslur. Slíkt gerist alloft og hefur George Bush forseti tvívegis oröið afturreka með dómaraefni fyr- ir hæstaréttinn. Nú munaði litlu að Bush yröi enn að beygja sig fyrir öldungadeildinni þar sem andstæöingar hans úr flokki demókrata eru í meirihluta. Nokkrir þingmenn demókrata gengu þá til liðs við forsetann. Atkvæði féllu 52 gegn 48. Aður en Anita Hill hleypti öhu í bál og brand með framburði sínum gegn Thomas þann 6. október var talið að 57 þingmenn ætluðu að stað- festa tilnefninguna á dómaraefninu. í umróti liðinnar viku skiptu aðeins 5 þingmenn um skoðun og Thomas verður hæstaréttardómari. Leiða má að því líkur að allt sem Thomas geri hér eftir verði skoðað í ljósi fráságn- ar Hill af honum. Staðhæfing gegn staðhæfingu Thomas hefur alltaf neitað öllum sögum Hill. Hann svaraði spurning- um þingmanna á þann veg að hann heföi ekki gert það sem Hill segði og sér þætti það leitt ef framkoma hans meöan þau unnu saman hafi orðiö til þess að særa hana. Thomas benti einnig á að hann ætti mjög erfitt með að veija sig og afsanna mál Hill því að í reynd væri ómögulegt að vita hvað væri satt og hvað logiö í sögum af þessu tagi. Þá sagði hann einnig að blökkumenn væru öðrum fremur berskjaldaðir þegar á þá væru bornar sögur um kynóra því að í Bandaríkjunum væru þeir fordómar ríkjandi að blökkumenn hugsuðu ekki um ann- að en kynlíf. Anita Hill lagaprofessor. Sagði hún sannleikann? Þetta var í fyrsta sinn í yfirheyrsl- unum sem Thomas varði sig meö því að vísa til fordóma gegn blökku- mönnum. Thomas er andvígur því að blökkumenn njóti forréttinda vegna litarháttar síns eins og þegar settir eru kvótar við stöðuveitingar. Upphaflega stafaði andstaðan við Thomas af því að hann er íhaldssam- ur í skoðunum og andsnúinn róttæk- ari kynbræðrum sínum í réttinda- baráttu blökkumanna. Sú skýring hefur verið gefin á framburði Hill gegn Thomas að andstæðingarnir' hafi viljað beita örþrifaráðum til að hindra að hann hlyti embættið. Sannleikurinn sannleikans vegna Hill hefur hins vegar marglýst því yfir að hún hafi ekki boðist til að vitna gegn Thomas heldur hafi verið eftir því leitað. Þá hafi framburður hennar verið leynilegur en á vitorði þingmanna í hálfan mánuð áður en hann varð opinber. Þegar málið komst svo til fjölmiðla hafi Hill ekki rofið leyndina heldur einhveijir ókunnir menn tengdir þinginu. Hill fullyrðir því að hún hafi aðeins sagt sannleikann sannleikans vegna þeg- ar eftir því var leitað. Þótt öldungadeildarþingmenn hafi kveöiö upp úrskurð sinn og sam- þykkt tilnefningu Thomas í embætti Clarence Thomas hæstaréttardóm- ari. Sagði hann sannleikann? Símamyndir Reuter veit enginn meö vissu hvort sögur Hill um hann eru sannar eður ei. Þar stendur staðhæfing gegn staðhæf- ingu og verður svo trúlega um alla framtíð. Fórnarlamb „ný-McCartyismans“? Margir lagamenn segja að Thomas sé fremur illa að sér í ýmsum grein- um lögfræðinnar og verðskuldi því ekki að veröa dómari við hæstarétt- inn sem gegnir mjög þýðingarmiklu hlutverki við túlkun stjórnarskrár- innar. Hann vildi til dæmis aldrei láta uppskátt um afstöðu sína til fóst- ureyðinga. Fóstureyðingar hafa þó verið eitt helsta hitamálið vestanhafs um árabil. Almennt er gengið út frá að Thom- as sé á móti frjálsum fóstureyðingum en þrátt fyrir margra vikna yfir- heyrslur eru menn engu nær um það hvaða lagalegum rökum hann styður mál sitt. Þetta mál hefur einnig beint at- hygli manna að því hvort Thomas sé fórnarlamb svokallaös „ný-McC- artyisma". Það heiti hefur verið gefið ákafa kyennahreyfinga í að koma höggi á alla karla sem ekki taka und- ir með þeim í jafnréttisbaráttunni. í slíkum málum eru aðdróttanir um afbrigðilegt kynlíf notaðar til að gera karlana tortryggilega. Þannig hefur atburðarásin verið í máli Clarence Thomas frá því fyrst var farið að ræða tilnefningu hans í embætti dómara við hæstarétt Bandaríkjanna í sumar: 1. júlkGeorge Bush forseti tilkynnir að hann hafi ákveðið að tilnefna Thomas í dómaraembættið. 3. september:Fyrst leitað til Anitu Hill lagaprófessors um upplýsingar um Thomas en hún vann undir hans stjórn við ýmsar stjórnarstofnanir í Washington. 10.-20. september:Fyrstu yfirheyslur laganefndar öldungadeildarinnar yf- ir Thomas. 23. september:Hill sendir laganefnd- inni með faxi sögu sína um kynferð- islega áreitni Thomas við sig. 24. september:Alríkislögreglan yfir- heyrir Hill vegna ásakananna. 6. október:Saga Hill birtist í dagblað- inu Newsday og vekur gífurlega at- hygli. Starfsmenn þingsins grunaðir um að leka upplýsingum. 8. október:Kjöri um staöfestingu á skipun Thomas í embættið frestað. Sögulegar yfirheyslur í beinni út- sendingu hetjast. 15. október:Öldungadeildin staðfestir skipunina með fjögurra atkvæða mun. DV Klámsögur varða við lög Eftir bandarískum lögum varð- ar kynferöisleg áreítni á vinnu- stað við lög jafnvel þótt ekki sé um líkamlega snertingu að ræða. Mörg dómsmál hafa unnist vegna þess að konur sættu sig ekki við klámsögur starfsfélaga sirnia af hinu kyninu. Eitt frægasta dæmið er þegar Lindsay Allison, hundatemjari hjá lögreglunni á Long Beach í Kaliforníu, kærði vinnufélaga sína fyrir að segja klámsögur í hennar áheyrn í vinnutimanum. Þá sagði hún að þeir hefðu verið með klámblöð á lögreglustöðinni og jafnvel klámmyndbönd. Þá sagði hún að lögreglumennirnir hefði pissað að sér ásjáandi. Allison vann málið og fékk 1,4 milijónir dala í skaðabætur vegna niðurlægingarinnar sem hún sagðist hafa orðið fyrir. Það eru um 85 milljónír íslenskra króna. Kom Kennedy sögu Anitu Hill til fjölmiðla? Trúlega verður aldrei úr því skorið hvernig blöð í Washington komust yfir framburð Anitu Hill gegn Clarence Thomas. Fram- burðurinn átti að vera leynilegur en lak samt út. Starfsmenn þings- ins eru grunaðir um verkið og í umræðunum um málið var Ed- ward Kennedy öldungadeildar- þingmaður sakaður um að standa fyrir lekanum. Kennedy hefur staðfastlega neitaö þessum áburði og segir að stuðningsmenn Thomas reyni að klína sökinni á sig til að dreifa athyglinni frá sjálfú málinu. Kennedy hefur um langt árabil átt i erfiðleikum pólitískt vegna söguburðar um einkalíf sitt. Nú síðast í vor þegar sagt var að hann hefði sést nakinn á hlaup- um eftir kvenfólki á sveitasetri sínu í Flórída. Þessi kona þarfaðbiðja tilGuðs „Ég vildi benda þessari konu á aö biðja til Guðs. Hún þarf þess svo sannarlega með. Guð einn getur hjálpað henni að ná áttum. Hún særði son minn,“ sagðiLeola Williams, móðir Thomas dómara, þegar niðurstaða öldungadeildar- innar lá fyrir. Hún var mjög æst og hrópaði m.a. „Þakka þér, Jes- ús!“ Thomas er kominn af fátæku suðurríkjafólki þar sem trúín er sterk. Þar er hatrið líka sterkt og er talið að það hafi einkum verið suðurríkjaþingmenn demókrata sem gengu gegn flokki sínum og kusu Thomas með repúblikönum af ótta við aö missa ella sæti sín í næstu kosningum. Sjónvarpað til fjörutíu millj- óna heimila Talið er að á um 40 milljónum heimila í Bandaríkjunum hafi verið horft á yfirheyrslur laga- nefndar öldungadeildarinnar yfir þeim Thomas og Hill. Annað sjónvarpsefni féll algerlega í skuggann á meðan. Kannanir sjónvarpsstöðvanna sýndu að á meöan hver einn áhorfandi kaus að horfa á beinar útsendingar frá hafnaboltaleikj- um þá vildu þrír heldur sjá yfir- heyrslurnar. Mjög fátítt er að svona nokkuð gerist í Bandaríkj- unum, jafnvel þótt landsmenn eigi í styrjöld eins og við Persafló- ann fyrr á árinu. Nýskipaður hæstiréttur Bandarikjanna. Teikning Lurie

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.