Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Blaðsíða 13
■ FIMMTUBAGU-R >7: •0K15ÓBER 1991.
13
Sviðsljós
Fyrstu fjöimiðlafræðingarnir úr HÍ. Fremri röð f.v.: Þórdís Lilja Jensdóttir, Eva Magnúsdóttir, Vilborg Daviðsdóttir,
Jakobína Sveinsdóttir, Sigurrós Þorgrimsdóttir, Ragnhildur Zoéga, Hildigunnur Gunnarsdóttir og Sigrún Stefáns-
dóttir lektor. Aftari röð f.v.: Kristin Jónsdóttir, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir og Þórir Hrafnsson.
DV-mynd Björgvin Pálsson
Nemendur útskrifast í hagnýtri fjölmiðlun:
Skemmtilegt nám
- segir Ólöf Guðný Valdimarsdóttir
veröur haldið laugardaginn 19. október 1991 kl. 19:00
í Félagsheimili Fáks í Víðidal.
Þangað koma allir strákar sem vilja...
• smakka krásirnar á villibráðarhlaðborðinu
• hlusta á óbeislaðan ræðumann kvöldsins
• freista gæfunnar í happdrættinu
• syngja, tralla, og skemmta sér með öllum
hinum strákunum.
Viö verðum þar... en þú?
Forsala aðgöngumiða verður á
SKRIFSTOFU FÁKS
ÁSTUND
HESTAM ANNINUM
Nefndin
„Ég er mjög ánægð með námið, en
þetta var fyrsta árið og það komu
náttúrlega fram hlutir sem þyrfti að
breyta og bæta,“ sagði Ólöf Guðný
Valdimarsdóttir, einn fjórtán nem-
enda sem nýlega útskrifuðust úr hag-
nýtri fjölmiðlun frá Háskóla íslands.
Ólöf sagði að það hefði m.a. verið
almenn óánægja með íslenskunámið
því fjölmiðlanemendur voru settir á
námskeið með íslenskunemum sem
voru að læra þetta sem fræðigrein.
„Við þyrftum að fá meira hagnýtt
nám sem væri sniðið að okkar þörf-
um. Þetta var mjög mikil málfræði
og teoría.
Að öðru leyti var þetta mjög að
okkar skapi og virkilega skemmtilegt
og lifandi nám.
Stór hluti af námskeiðinu voru
fjölmiölastörf þar sem við vorum að
skrifa fréttagreinar, gera útvarps- og
sjónvarpsþátt og gefa út blað.
Þar vorum við með fingurinn á
púlsinum og þaö fannst mér gagnast
mér mest. Svo voru þarna ýmis nám-
skeið um þjóðfélagsmál, s.s. stjórn-
málafræði, heimspeki, lögfræði og
annað slíkt,“ sagði Ólöf.
Ólöf er arkitekt að mennt og hefur
skrifað svolítið um arkitektúr í sér-
hæfð tímarit en hefur að öðru leyti
ekki komið nálægt fjölmiðlum áður.
„Inntökuskilyrðið var fimm ára
starfsreynsla á fjölmiðli eða háskóla-
próf. Námið tekur eitt ár en síðan
tekur við þriggja mánaða starfsþjálf-
un á fjölmiðli.
Það hefði nú mátt endurskipu-
leggja þann þátt námsins líka svo við
hefðum öll fengið jafna þjálfun.
Fjölmiðlarnir voru misvel undir það
búnir að taka við okkur sem kemur
kannski til af því að þetta voru laun-
uð störf og ekki hægt að hjálpa og
kenna hverjum og einum.
Ég vann sem fréttamaður á Bylgj-
unni og þeir stóðu mjög vel að þessu,
Hljómsveitin Lexia. DV-mynd Júlíus Guðni
Hljómsveitin samein-
ingartákn í Húnaþingi
Júlíus Guðni Antonsson, DV, V-Hún.:
Hljómsveitin Lexía hefur nú hafið
17. starfsár sitt en hún hefur átt vin-
sældum að fagna í gegnum árin.
Starfsárið hófst með því að nýr hljóð-
færaleikari, Björn Traustason, gítar-
og saxófónleikari, gekk til liðs við
sveitina og er hún nú betur í stakk
búin til að bjóða upp á fjölbreyttara
efnisval fyrir unga sem aldna.
Hljómsveitin er nú fær í flest hvað
varðar ófærð, vond veður og þess
háttar. Hefur yfir að ráða fjallabíl af
Econohne gerð og er það stórbylting
frá því sem áður var þegar notast við
við eindrifsbíla sem dugðu skammt
þegar iha viðraði. Sem dæmi má
nefna eina ferð sem farin var á
Strandir og átti að leika á Drangs-
nesi. Á Hólmavík varð að feija menn
og hljóðfæri yfir í tvo fjallatrukka
sem skiluðu þeim á Drangsnes við
illan leik en til baka var ekki komist
öðruvísi en á bát daginn eftir.
Markaðssvæði hljómsveitarinnar
er aðallega Norður- og Vesturland en
hún hefur þó leikið allt frá Akureyri
til Keflavíkur. í henni eru: Marinó
Björnsson, bassi, Jón Sverrisson, gít-
ar, söngur, Elínborg Sigurgeirsdótt-
ir, hljómborð, söngur, Björn
Traustason, gítar, saxófónn, og Skuli
Einarsson, trommur, söngur.
Má segja að þarna sé um samein-
ingartákn milli Austur- og Vestur-
Húnavatnssýslu að ræða þar sem
Jón Sverrisson kemur frá Blönduósi
og lætur sig hafa að aka 60-70 km
leið til að komast á æfingar.
en manm var þó svolítið hent fyrir
björg og bara látinn synda," sagði
Ólöf að lokum.
SkApur
Br:<0icrn.
])•• 5ícm.
i
l
i