Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Blaðsíða 15
FIMMTUDAtJUR 17. OKTÓBER 1991. 15 Síðbúin vaxtalækkun „Hvað var þá bak við yfirlýsingar ráðherranna um lækkun vaxta með haustinu?“ Undanfarnar vikur hefur lang- þráð vaxtalækkun bankakerfisins litið dagsins ljós. Á sama tíma fer af stað umræða um afnám verð- tryggingar á út- og innlánum. Reynsla undanfarinna mánaða gefur ekki tilefni til að ætla að þaö sé fyllilega raunhæft að afnema verðtryggingu lána. Til þess þurfa að verða einhverjar frekari breyt- ingar á fjármagnsmarkaðnum en orðið hafa, t.d. erlend samkeppni og/eða stöðugra verðlag en verið hefur til þessa (hver svo sem ætlar að tryggja það). Það sem vekur þessar efasemdir er sú tregða bankakerfisins að lækka nafnvexti óverðtryggðra út- og innlána þegar verðbólguhrað- inn stefnir niður á við. Verðbólgan á hveijum tíma hefur að sjálfsögðu veruleg áhrif á vexti óverðtryggðra út- og innlána. Þannig hækka vext- ir slíkra lána þegar verðbólguspár Seðlabankans benda til þess að hún sé á uppleið. En þegar veröbólgu- hraöinn stefnir niður á við þá ger- ist ekkert fyrr en í fyrsta lagi þegar verðbólgan hefur haldist lág í nokkrar vikur og helst nokkra mánuði. Þannig var ljóst um mán- aðamótin júlí og ágúst að verðbólg- an var á niðurleið en þrátt fyrir það hækkuðu vextir óverðtryggðra út- og innlána og reyndar dráttarvetir líka sem Seðlabankinn ákveður. Þrátt fyrir verulega lækkun verð- bólgunnar síðan þá hafa vextirnir lítiö sem ekkert lækkað fyrr en núna allra síðustu daga. Reyndar hækkuðu þeir frekar en hitt á ákveðnu tímabili í haust (í ágúst og september). Nú benda spár til þess að verð- bólgan sé enn á niðurleið og í ljósi KjaUarinn Ragnar Jóhann Jónsson fulltrúi þess er núverandi lækkun banka og sparisjóða á vöxtum óverð- tryggðra út- og innlána eitthvað á eftir lækkun verðbólgunnar. Enda raunvextir slíkra lána með þeim hæstu sem orðið hafa hér á landi og jafnvel þótt víöar væri leitaö. Á sama tíma eru önnur ytri skilyrði atvinnulífsins verri en verið hafa lengi og spurning hvort sú atvinnu- grein sé til sem stendur undir nú- verandi ávöxtunarkröfum. Auk þess hlýtur hún að vera þungbær fyrir heimihn og launþega, sérstak- lega þá skuldsettari, að sjálfsögðu. Fyrirheit um vaxalækkun Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks tók við völdum síðastliðið vor hækkuöu almennir vextir í bankakerfinu ásamt ávöxtunarkröfu húsbréfa og annarra verðbréfa. Viö það tæki- færi lýstu ráðherrar þeirri skoðun sinni að vextir myndu lækka aftur með haustinu ásamt ávöxtunar- kröfu húsbréfa. Að vísu kom lítið fram um það hver ástæðan væri. Ein af forsendum síðustu al- mennu kjarasamninga (þjóðarsátt- arinnar) var að vöxtum yrði haldið niðri og þá sérstaklega vöxtum óverðtryggðra lána þegar verð- bólgan færi lækkandi. Með þessu móti átti að létta byrðinni bæði af atvinnulífinu og launþegum. Þann- ig yrði svigrúm atvinnulífsins meira til að mæta gerðum kjara- samningi við þröngar aðstæður og einnig drægi úr þörf launþega fyrir frekari kauphækkanir. Þessar ástæður eru í fullu gildi og því ljós nauðsyn þess að lækka vexti óverð- tryggðra lána enn frekar, sérstak- lega ef skapa á áframhaldandi for- sendur fyrir skynsamlega kjara- sámninga. Hafi verið þörf á slíkum kjarasamningi fram til þessa þá er hann algjör nauðsyn í dag og á komandi misserum. Hingað til hafa stjómvöld litið á þaö sem sína skyldu að tryggja þessar forsendur kjarasamning- anna. En það er ljóst í þessu máli sem svo mörgum öðrum að stefna núverandi ríkisstjórnar er að hafa engin afskipti af málefnum at- vinnulífsins, alla vega er tími sér- tækra aðgeröa liöinn ef marka má orð ráðherra. Hér á markaðurinn að ráða og þeir sem skulda eiga að taka afleiðingum gjörða sinna. Hér er við bankakerfið að sakast og það kemur stjórnvöldum ekkert við frekar en annað. Hvað var þá á bak við yfirlýsing- ar ráðherranna um lækkun vaxta með haustinu? Var síðasta kropp félagsmálaráðherra í húsbréfa- kerfið ákveðið í vor? Eða voru yfir- lýsingar ráðherranna bara skot út í loftið eins og áætlanir um bygg- ingarkostnað Perlunnar og ráð- hússins í Reykjavík þar sem farið var nokkrum kaffipökkum fram úr áætlunum? Kannski mátti öllum vera það ljóst að lítið sem ekkert var að marka yfirlýsingar ráöherr- anna um vaxalækkun frekar en fyrrnefndar kostnaðaráætlanir. Ragnar Jóhann Jónsson „Á sama tíma eru önnur ytri skilyrði atvinnulífsins verri en verið hafa lengi og spurning hvort sú atvinnugrein sé til sem stendur undir núverandi ávöxt- unarkröfum.“ Lýðrædisbylgja í svöitu Afríku „Fréttir (rá Afriku munu á næstunni bera þess merki að lýðræðisbylgjan er komin á skrið.“ Nú í síðustu viku bárust fregnir af því að óeirðir hefðu brotist út í Saír (Zaire), nú væri tekist á um stjórnartaumana þar í landi. Þegar þetta er skrifað lítur út fyrir að verið sé að hrekja einræðisherrann Mobutu, sem fram að þessu hefur notið velvildar vestrænna ríkja, frá völdum. Þá hefur einnig heyrst af mótmælum í Sambíu og fyrr í sum- ar voru mikil læti í Kamerún. Og þó Kamerún sé ekki lengur í frétt- um hefur öldurnar þar lítið lægt. Þá hafa eflaust flestir einnig heyrt af borgarastríðinu í Líberíu. Ný heimsmynd Það sem orsakar þessa ólgu er sú staöreynd að kalda stríðinu er lokið og með því sá áhugi sem austur og vestur höfðu á einræðisherrum í þriðja heiminum. Þá hafa vanda- máhn í Austur-Evrópu dregið til sín fjármagn sem hingaö til hefur farið í koffort einræðisherranna. Þá hefur hrun kommúnismans sem hugmyndakerfis aftur gefið frelsi- söflum í öllum heimshornum byr undir báða vængi. Af öllum þessum ástæðum hefur á undanfórnum árum grafið undan völdum harðstjóranna og þess vegna birtist það nú í mikilli ólgu í svörtu Afríku ásamt æ fleiri eft- irgjöfum til handa lýðræðisöflun- um. Ferskir vindar Ef við rennum yfir álfuna þvera frá vestri til austurs sjáum við að umfang breytinganna er ekki lítil- vægt. I Gíneu hefur herforingja- stjórnin lofað að gefa út kosninga- lög í janúar. í Sierra Leone hefur MoMoh forseti lofað fjölflokka- kosningum í byijun næsta árs. í Líberíu er háð blóðugt borgarastríð og í augnablikinu er þar allt í járn- um. í Búrkína Fasó (áöur Efra Volta) hefur herforingjastjómin lofað frjálsum forsetakosningum í Kjallarinn Ásgeir Baldursson nemi í þjóðfélagsfræði við Háskóla íslands desember.á þessu ári og þingkosn- ingum í byrjun næsta árs. I Gana lofar Jerry Rawhngs „lýðræöi" í lok næsta árs. Óvíst er að það sé nógu snemmt því stjómarandstað- an heimtar lögleiðingu stjórnmála- flokka hið fyrsta. í Togó hefur nokkurs konar þjóðfundur tekið völdin og í síðasta mánuði skipaði hann Joseph Kossigonforsætisráð- herra, án samráðs viö forsetann, Eyadema. í Níger hefur svipað gerst, þjóðfundur rak ríkisstjórn og hyggst boða til fjöHlokkakosn- inga. I Nígeríu hafa verið stofnaðir tveir flokkar og eiga þeir að byija að bítast um völdin í kosningum í desember næstkomandi. í Kamer- ún reynir Paul Biya forseti að spyrna við fótum, hann hefur látið loka dagblöðum stjórnarandstæð- inga og fiöldi fólks hefur verið handtekinn fyrir mótmælaaðgerð- ir. Óhætt er aö spá Biya falli á næsta ári. í Mið-Afríku-lýðveldinu hefur starfsemi stjórnmálaflokka verið leyfð og er það liður í lýðræð- isumbótum stjórnvalda þar. í Kongó lítur út fyrir að fyrstu fijálsu kosningarnar, sem halda átti þar í nóvember, muni frestast eitthvað. Kosningaskrá er ekki til- búin og kenna 80 stjórnarandstöðu- flokkar Denis Sassou-Nguesso for- seta um. í Zaire er Mobutu Sese Seko að missa völdin og virðist sem Etienne Tshisekedi ráði þar mestu í augnablikinu. Búast má við að efnt verði til kosninga þar í upp- hafi næsta árs. í Angóla er borgara- stríðinu lokið og mun stjórnin tak- ast á við skæruliða UNITA í kosn- ingum á næsta ári. í Sambíu hefur Kenneth Kaunda forseti verið neyddur til að boða til kosninga. í fyrirhuguðum þingkosningum i lok þessa mánaðar (þann 31.) mun sameinaði þjóðarsjálfstæðisflokk- urinn (UNIP) etja kappi við hreyf- ingu fyrir fiölflokka lýðræði (MMD) sem Sikota Wina fer fyrir. í Tansaníu er Ali Mwinyi forseti að gera þaö sem hann getur til að lægja umbótaraddir og þar hefur verið beitt handtökum á mótmæ- lendur. Lítil hætta er á öðru en að Tansanía feti í fótspor annarra Afr- íkuríkja er líða tekur á næsta ár. í Kenýa hefur Daniel Arap Moi ráð- ist af mikilli hörku gegn mótmæ- lendum sem hann kallar stjórn- leysingja. Telja má víst að Moi falli ekki fyrr en í byltingu, sennilega einhvern tímann á næstu 18 mán- uðum. í Eþíópíu var marxista- stjórninni steypt og þar verður boðið til kosninga á næstunni. Þá er borgarastríðið í Sómalíu óútklj- áð. Og að síðustu er Didier Ratsir- aka orðinn valtur í sessi á forseta- stól á eyjunni Madagaskar. Þar hefur verið mikið um fiöldafundi, verkföll og almenna andstöðu við forsetann. Þegar reynt er að lýsa ástandi í 18 löndum í einni svipan eru hlut- irnir að sjálfsögðu einfaldaðir. Til dæmis eiga friðsamlegar lýðræðis- umbætur í Togó og Níger fátt sam- eiginlegt með blóöugum borgara- stríðum í Líberíu og Sómalíu, eða kúgunaraðgerðum Moi í Kenýa, Biya í Kamerún og Mwinyi í Tansa- níu. Engu að síður eru þetta allt mismunandi birtingarmyndir á lýðræðiskröfum Afríkubúa. Betra líf? Þó svo að á næstu tveimur árum munum viö sjá að mestu fyrir end- ann á eins-flokksræði í svörtu Afr- íku má telja víst að leiðirnar að því marki verða ærið mismunandi og éins að nokkur ríki munu ekki fylgja fordæminu strax. Fréttir frá Afríku munu á næst- unni bera þess merki að lýðræðis- bylgjan er komin á skrið. Samfara því má gera ráð fyrir að ofbeldi muni veröa meira áberandi í Qöl- miölum á Vesturlöndum. Því mið- ur held ég að lýðræði muni ekki verða nein sæla fyrir Afríkubúa þar sem stjórnmálin snúast um persónulegar fyrirgreiöslur og ætt- bálkatengsl, jafnvel í ríkari mæli en þekkist annars staðar í heimin- um. Ásgeir Baldursson „Þá hafa vandamálin 1 Austur-Evrópu dregiö til sín fjármagn sem hingað til hefur farið í koffort einræðisherr- anna.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.