Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Qupperneq 24
32
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 1991.
KENNITALA: HÚN 111111-11111 HANN 1 1 1 1 I I ~ I I I I I
HEIMILISFANG/ SÍMI____________________
VÍGSLUSTAÐUR
DAGUR/TÍMI__
BORGARALEG VÍGSLA/PRESTUR_
NÖFN FORELDRA______________
SENDIST TIL
ÞVERHOLTI 11, 105 REYKJAVÍK.
NAFN BRÚÐHJÓNA:
DV
BRUÐAR
gjöfin
Þessár upplýsingar verða birtar í DV á fimmtudegi fyrir
brúðkaupið og þurfa að berast í síðasta lagi á þriðjudegi.
Fréttir
Línuveiöar aö heflast á Hofsósi:
Kvóti tvöf aldast á
öllum krókaveiðum
Þórhallur Asmundsscm, DV, Sauðárkróki;
Línuveiðar eru að heíjast frá Hofs-
ósi. Að sögn Jóns Tryggva Jökuls-
sonar, skrifstofustjóra frystihússins,
er ekki enn ákveðið hvaða bátar
i
stundi veiðarnar. Þeir verði 3-4 og
það þarf að minnsta kosti 10 karla í
beitninguna. Aðspurður hvernig
línufiskiríið hafl komiö út á síðasta
hausti sagði Jón:
„Við skulum segja að þetta sé ger-
legt. Það er nauðsynlegt að reyna á
einhvern hátt að auka hráefnið yfir
þennan daufasta tíma. Svo eru línu-
veiðarnar líka freistandi upp á aukn-
ingu kvóta en hann tvöfaldast á öll-
um krókaveiðum frá byrjun nóv-
ember til febrúarloka."
SeLfoss:
l Slátursala með
| alminnsta méti
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Að sögn sláturhússtjóranna hjá
Höfn hér á Selfossi, Haralds og Guð-
jóns Gestssona, gengur slátrunin vel
og verður lokiö í næstu viku. Þeir
hafa verið í fjölda ára.hjá Höfn.
Systurnar María og Sigurbjörg
Óskarsdætur, sem einnig hafa unnið
lengi hjá fyrirtækinu, sögðu mér að
slátursalan hefði verið litil fram að
þessu, með alminnsta móti. Þær sjá
um fjármál í sláturhúsinu í sam-
bandi við slátur og kjötsölu. Það
J kemur mjög vel út hjá þeim, enda eru
í þær ómenntaðar; gera aldrei mistök.
Chevrolet Scottsdale '87 5,0 litra, ek. 58
þús. míl.,_ sjálfskiptur, Cruise contr.
vsk-bíll. Útsala 1150 þús. staðgreitt.
Uppl. Bílasala Rvíkur, sími 678888.
Gullfalleg Honda Accord EX ’83,3ja
dyra, sjálfsk., overdrive, vökvastýri.
Allur nýyfirfarinn (ný skipting, lakk,
púst o.fl.) Verð 390 þús. Staðgreitt 280
þús. Ath. skipti ódýrari. S. 92-11592.
Toyota Carina II, árg. '88, til sölu, ekin
66 þús. km. Uþpl. í síma 91-642190.
Bílasala Kópavogs. Verið velkomin.
Subaru Legacy 1800, árg. '91, bein-
skiptur, beige sanseraður, ekinn 100
km, (nýr). Uppl. í síma 91-30262.
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltið!
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
-----
■ Sumarbústaðir
Nú er rétti tíminn að panta fyrir vorið,
við getum þó ennþá útvegað nokkur
hús fyrir veturinn. Heilsárshúsin okk-
ar eru vel þekkt, vönduð og vel ein-
angruð. 10 gerðir. Þetta hús er t.d. 52
m2 og kostar fullbúið og uppsett
2.650.000. Teikningnar sendar að
kostnaðarlausu. Greiðslukjör.
RC & Co hf„ sími 670470.
Varahlutir
Brettakantar á Pajero og fleiri bila,
einnig lok á Toyota double cab skúff-
ur. Boddíplasthlutir., Grensásvegi 24,
sími 91-812030.
Bílar til sölu
MMC Pajero Wagoon, árgerð '88, dökk-
blár, gullfallegur bíll, 5 gíra, ekinn 76
þúsund km, 31" dekk, brettakantar,
krómfelgur, útvarp, segulband, drátt-
arkrókur með rafmagni, nýlega yfir-
farinn og með '92 skoðun. Verð kr.
1.850.000, skipti á ódýrari.
Til sýnis hjá Brimborg hf., Faxafeni
8, sími 91-685870, eða upplýsingar í
síma 91-624205.
MMC L-300,árg. '87, afturdrifin, skoð-
aður '92, ekinn 63 þús., 6 manna, með
lausum bekk, vsk-bíll, lítur mjög vel
út og í góðu lagi, verð 760 þús með
vsk. Uppl. í síma 91-30262.
Chevrolet Suburban, árg. '79, til sölu,
8 cyl., sjálfskiptur. Upplýsingar á
Bílasölu Kópavogs, sími 91-642190.
Verið velkomin.
Til sölu M. Benz '87, ekinn 128 þús.,
ný sumar- og vetrardekk, mikið end-
urnýjaður, toppbíll. Uppl. í síma
91-79938 og 985-25518.
GMC Jimmy, árg. '85, til sölu. Uppl. á
Bílasölu Kópavogs, sími 91-642190.
Verið velkomin.
VW Golf, árg. '86, til sölu, ekinn 74
þús., mjög fallegur bfll, verð 550 þús.
Uppl. í sítna 91-650541.
Líkamsrækt
Trimmform, kr. 5.500 10 timar.
Við bjóðum einnig upp á svæða- við-
bragðspunkta-, óléttu- og slökunar-
nudd með ilmolíu, ekta vatnsgufa.
Nuddstofan Klask, Dalseli 18,
sími 91-79736.
Tímarit fyrlr alla
á næsta sólustaó • Askriharsimi 62-60-10
Menning
Beethoven í
Bústaðakirkju
Kammermúsíkklúbburinn hélt tónleika í Bústaðakirkju í gærkvöldi þar
sem Sinnhoffer strengjakvartettinn lék verk eftir Ludwig van Beethoven.
Þetta voru aðrir tónleikar kvartettsins í Bústaðakirkju að þessu sinni.
Um sl. helgi lék hann verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Það er útbreidd skoðun að strengjakvartettinn í cís moll op. 131 sé sá
besti af mörgum frábærum strengjakvartettum Beethovens og eitthvert
það magnaðasta verk sem samið hefur verið yfirleitt fyrir þennan hljóð-
færahóp. Til þess að ná markmiðum sínum hristi Beethoven af sér allar
þær hömlur sem honum þótti þurfa með þeim afleiðingum að út kom
nýtt tónlistarform. Verkið er í sjö þáttum. Það hefst á harmsöng, en lýkur
á háðsglósu. Þar á milli er heill heimur, fagur og auðugur, heimur Beetho-
vens. Samningu verksins lauk 1826, en upphafsstef fúgunnar í fyrsta
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
þætti er þó að finna í samræðubók Beethovens frá 1825. Verkið er i hópi
sex kvartetta sem ganga undir nafninu Síðustu kvartettar Beethovens
og hvílir svo mikil helgi á að til eru þeir tónlistarmenn sem fara aldrei
af bæ án þess að hafa eintak af þeim í farteskinu. Þegar Beethoven sendi
útgefanda sínum cís moll kvartettinn lét hann fylgja áritun þar sem hann
sagðist hafa klambrað verkinu saman úr stolnum bútum úr ýmsum átt-
um. Útgefandinn var ekki betur að sér en svo að hann.tók gríni Beetho-
vens alvarlega og varð tónskáldiö að rita sérstaklega til aö taka af vafa
um að þetta frumlegasta í hópi frumlegra verka væri hans.
Það var vel til fundið að velja kvartettinn í D dúr op. 18 nr. 3 til mótvæg-
is á efnisskránni.Þrátt fyrir númerið er það álit fræðimanna að þessi sé
fyrsti strengjakvartettinn sem Beethoven samdi. Það er enginn byrjenda-
bragur á verkinu þrátt fyrir það heldur er það hið fegursta, þótt langur
vegur sé milli þess og cís moll kvartettsins.
Meðal þess sem menn hafa dáðst að í strengjakvartettum Beethovens
er hve samhljómur hljóðfæranna öflugur og fagur og sýnir það hve tón-
skáldið hefur veriö þeim gjörkunnugt. Sjálfsagt hefur það hjálpað til að
Beethoven átti sjálfur hljóðfæri í fullskipaðan kvartett eftir úrvalssmiði,
fiðlu eftir Guarneri og eftir Amati, víólu eftir Ruger og selló eftir Guarn-
eri. Vinur hans Lichnowsky prins gaf honum þessa dýrgripi og eru þeir
enn til.
Flutningur þessara verka krefst mikils af flytjendum, bæöi listrænt og
tæknilega. Komst Sinnhoffer kvartettinn ágætlega frá verkinu og veitti
áheyrendum sínum ánægjulega kvöldstund. Á stöku stað brá fyrir óhrein-
um leik en í heild var spilamennskan leyst af hendi með alúð og tilfinn-
ingu.