Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.1991, Qupperneq 28
36 FIMMTUDAGÚR 17. OKTÖBER 1991. Afmæli Pétur Jónsson Pétur Jónsson, fyrrv. forstjóri, Þórunnarstræti 103, Akureyri, er áttræðurídag. Starfsferill Pétur fæddist að Svertingsstöðum í Öngulsstaðahreppi en ólst upp að Hallgilsstöðum í Arnarneshreppi. Hann stundaði nám við Hérðasskól- ann á Laugarvatni 1936-38. Pétur hefur verið bílstjóri frá 1930. Hann stundaði fyrst akstur við mjólkur- og fólksflutninga innan héraðs en fór sína fyrstu ferð til Reykjavíkur 1935. Hann stofnaði ásamt Valdimar, bróður sínum, flutningafyrirtækið Pétur og Valdi- mar hf. árið 1943 og var forstjóri þess til 1983 er fyrirtækið var selt. Pétur var formaður Vöruflutn- ingamiðstöðvarinnar í Reykjavík í sjö ár, var stjórnarmaður í Þórs- hamri á Akureyri um árabil og lengi félagi í Karlakór Akureyrar. Árið 1981 kom út hjá Almenna bókafélaginu bókin Fimmtán gírar áfram - saga af Pétri á Hallgilsstöð- um og öðrum brautryðjendum á langferðaleiðum eftir Indriða G. Þorsteinsson. Fjölskylda Börn Péturs með Rögnu Bene- diktsdóttur á Akureyri eru Kristján Viðar, f. 25.10.1943, ókvæntur og búsettur í Bandaríkjunum; Hólm- fríður Breiðfjörð, f. 23.10.1946, bú- sett í Hveragerði, gift Sigurði Þor- steinssyni. Systkini Péturs: Unndór Jónsson, f. 6.6.1910, nú látinn, var kvæntur Guðrúnu Símonardóttur og eru börn þeirra fimm; Ragnheiður, f. 2.1.1914, búsett á Siglufirði, gift Sig- urjóni Sæmundssyni og eiga þau tvö börn; Valdimar, f. 27.8.1916, búsett- ur á Akureyri, kvæntur Guðbjörgu Valdimarsdóttur og eiga þau eitt barn; Stefán, f. 27.2.1918, búsettur á Akureyri, kvæntur Þóru Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn; Dýrleif, f. 11.10.1919, búsett á Akureyri, gift Ólafi Þorbergssyni og eiga þau fjög- ur börn; Eggert, f. 16.10.1928, búsett- ur á Akureyri, kvæntur Rögnu Jó- hannsdóttur og eiga þau eitt barn. Foreldrar Péturs voru Jón St. Melstað, f. 29.10.1881, d. 17.4.1968, b. að Hallgilsstöðum í Arnarnes- hreppi, og kona hans, Albína Pét- ursdóttir, f. 11.11.1883, d. 26.11.1969, húsfreyja. Ætt Föðursystkini Péturs voru Eggert, fyrrv. slökkviliðsstjóri á Akureyri; Halldór, læknir á ísafirði og í Reykjavík, faðir Skúla tónskálds, fóður Magnúsar arkitekts: Guðrún Sigurlaug, amma Ólafs Dýrmunds- sonar ráðunautar; Jósefma Antonía er giftist dönskum klæðskera, Viggo ÖQord, og Egill, faöir Jóhannesar sem hefur rekur Egilssíld á Siglu- firði. Jón Melstað var sonur Stefáns, b. á Fossi í Vesturhópi, Jónassonar, b. í Múla í V-Húnavatnssýslu, Sigurðs- sonar. Móðir Jóns var Margrét Egg- ertsdóttir, smiðs og b. á Fossi, bróð- Pétur Jónsson. ur Helgu, langömmu Björgvins, föð- ur Bryndísar og Ellerts Schram. Eggert var sonur Halldórs, prófasts á Melstað Ámundasonar, smiðs og málara í Syðra-Langholti, Jónsson- ar, fóður Guðrúnar, langömmu Jó- hanns Hjartarsonar stórmeistara. Móðir Margrétar var Ragnheiður Jónsdóttir, b. og stúdents á Leirá, Árnasonar. Móðir Jóns stúdents var Halldóra Kolbeinsdóttir, prests og skálds í Miödal, Þorsteinssonar, langafa Péturs Sigurgeirssonar biskups. Foreldrar Albínu voru Pétur Þor- kell Hallgrímsson, b. á Svertings- stöðum í Kaupangssveit, og kona hans, Dýrleif Randversdóttir, af Randversættinni. Pétur tekur á móti gestum á heim- ili sínu frá klukkan 18.00 á afmælis- daginn. Brúðkaup á næstunni Aldís Jónína Höskuldsdóttir og Kristófer Zalewski, til heimilis að Aflagranda 17, Reykjavík, verða gefln saman hjá Veginum i Kópa- vogi laugardaginn 19.10. kl. 14 af Birni Inga Stefánssyni. Aldís er dóttir Ólafar Benedikts- dóttur og Höskuldar Jónssonar. Kristófer er sonur Helgu Kristó- fersdóttur og Gísla Júh'ussonar. Borghildur J. Kristjánsdóttirog Hafsteinn Ó. Þórisson, tilheimilis að Hrafnakletti 4, Borgamesi, verða gefin saman í Borgarnes- kirkju laugardaginn 19.10. kl. 14 af sr. ÁrnaPálssyni. Borghildur er dóttír Svövu G. Sig- mundsdóttur og Kristj áns Jó- hannssonar. Hafsteinn er sonur Júhönnu S. Hálfdánardóttur og Þóris V. Ormssonar. Grima E. Ársælsdóttir og Ólafur Sæmundsson, til heimilis að Kleif- arseli 16, Reykjavík, verða gefin saman f Háteigskirkju laugardag- inn 19.10. kl. 15afsr. GíslaKol- beinssyni. Gríma er dóttir Rannveigar Árnadóttur og Ársæls Kóps Svein- bjömssonar. Ólafur er sonur Aðal- heiðar Kolbeinsdóttur og Sæmund- arKristjánssonar. Jenný Magnúsdóttir og Andrés Guðni Ándrésson, til heimilis að Grenibyggð 7, Mosfellsbæ, verða gefin saman í Mosfellskirkju laug- ardaginn 19.10. kl. 14 af sr. Jóni Þorsteinssyni. Jenný er dóttir Lovísu Ólafar Guðmundsdóttur ogMagnúsar Jó- hannssonar. Andrés Guöni er son- ur Margrétar Sigurðardóttur og Andrés Guðnasonar. Jónína Óskarsdóttir og Sigurður Svavar Steingrímsson, til heimhis að Suðurgötu 16, Sandgerði, verða gefm saman í Hvalneskirkju laug- ardaginn 19.10. kl. 16 af sr. Hirti M. Jóhannssyni. Jónína er dóttir Valborgar Jóns- dóttur og Óskars Hhðberg. Sigurð- ur Svavar er sonur Vordísar Val- garðsdóttur og Steingríms Svav- arssonar. Andlát Jón Ingvarsson bifreiðarstjóri, Kaplaskjólsvegi 27, Reykjavík, lést 15. október. Sigurveig Vigfúsdóttir, Freyjugötu 38, andaðist að heimili sínu 15. októb- er. Rósa Svanfríður Oddsdóttir, Ljós- heimum 18a, lést í Borgarspítalanum 16. október. Jarðarfarir Guðmundur Valdimarsson, Bárustíg 3, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 19. október kl. 11. Ragnar Arnar Hjaltason, Skála, Fær- eyjum, sem lést 9. október sl„ var jarðsettur 13. þessa mánaðar. Haukur Jónsson, Þverholti 26, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fostudaginn 18. okt- óber kl. 10.30. Útfór Karls Ó. Jónssonar, fyrrv. út- gerðarmanns frá Sandgerði, fer fram frá Fossvogskirkju fostudaginn 18. október kl. 13.30. Kveðjuathöfn um Guðríði Helgadótt- ur, Mávahlíð 15, Reykjavík, verður í Fossvogskapellu í dag, 17. október, kl. 15. Jarðsett verður í Sauðlauksdal laugardaginn 19. október. Þorbjörg Sigurjónsdóttir frá Blöndu- ósi verður jarðsungin frá Blönduós- kirkju laugardaginn 19. október kl. 14. Guðrún Hjörleifsdóttir, frá Mel í Staðarsveit, Álfaskeiði 64, Hafnar- firði, verður jarðsungin föstudaginn 18. október kl. 15 frá Hafnarfjarðar- kirkju. Unni Börde Kröyer andaðist í Osló 8. október 1991. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Kristín Ingibjörg Kristinsdóttir, fyrr- um húsmóðir, Bæ, Höfðaströnd, verður jarðsungin frá Sauðárkróks- kirkju laugardaginn 19. október kl. 14. Greftrun fer fram í heimagrafreit að Bæ. Pálmi Helgi Ágústsson kennari, Hringbraut 69, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 17. október, kl. 13.30. Benedikt Bjarnason lést 3. október. Hann fæddist að Brún á Stokkseyri 23. desember 1915. Hann starfaði lengst af sem vörubifreiðarstjóri en síðustu starfsárin var hann starfs- maður á Borgarspítalanum. Eftirlif- andi eiginkona hans er Ólafía Sig- urðardóttir. Útfór Benedikts verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Tilkyimingar Vinningar í aðgöngumiða- happdrætti jeppasýn- ingarinnar í Reiðhöllinni Upp komu eftirtalin númer: 1. 3790, 2.' 4912, 3. 3008, 4. 5799, 5. 4597, 6. 3657, 7.-17. 5933, 5356, 4111, 3590, 1021, 5221, 4321,465, 3343, 1786, 4352. 18. 2899. Vihninga má vitja hjá viðkomandi fyrirtækjum. Nán- ari upplýsingar gefnar í síma 677262. Þar má einnlg vitja óskilamuna. Fyrirlestur um umhverfis- fræðslu Wolfgang Brunner flytur fyrirlestur um umhverfisfræðslu í Norræna húsinu kl. 20.30 í kvöld, fimmtudagskvöld. Hann kemur frá Visby á Gotlandi og hefur starfaö þar sem eðlis- og efnafræðikenn- ari í u.þ.b. 15 ár. Hann hefur vakið mikla athygh fyrir hugmyndir sínar í umhverf- isfræðslu, bæði í Svíþjóð og víðar, eink- um á Norðurlöndum. Félag eldri borgara Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Bridge og frjáls spilamennska. Kóræfing kl. 17. Fréttatilkynning frá sendiráði Svíþjóðar Vegna fráfalls Per Olof Forshell, sendi- herra Svíþjóðar á íslandi, sem andaöist þann 14. október sl„ mun liggja frammi bók á heimili sendiherrans að Fjólugötu 9, Reykjavík, í dag, 17., og fóstudaginn 18. október milli kl. 14 og 15.30 þar sem þeir sem þess óska geta vottað samúð sína. Námsstefna Félags handa- vinnuleiðbeinenda Félag handavinnuleiöbeinenda gengst fyrir námsstefnu fóstudaginn 18. október kl. 13 í Borgartúni 6. Markmið námsstefn- unnar er að veita handavinnuleiðbein- endum innsýn í þann heim er fylgir því að eldast, bæði andlega og likamlega. Námsstefnustjóri er Þuríður Ingimund- ardóttir hjúknmarforstjóri. Framsöguer- indi flytja: 1. Sigurbjöm Bjömsson lækn- ir: „Að vera aldraður". 2. Þóra Amfinns- dóttir geðhjúkrunarfr. „Samskipti viö aldraða". 3. Anna Greta Hansen iðju- þjálfi „Hugur og hönd, hjálpartæki". 4. Guðrún Jónsdóttir, kennslustjóri HÍ, „Konur og öldmn“. Námsstefnan er öll- um opin og áætlað er að henni ljúki um kl. 16. Aðgangseyrir er kr. 1.500 en kr. 500 fyrir ellilífeyrisþega. Kaffi innfalið. Myndgáta_______________dv Ferðalög Ferðafélag íslands Á mörkum hausts og vetrar í Land- mannalaugum 18.-20. okt. Á þessum tíma eru miklar andstæður í landslagi á Landmannalaugasvæðinu, snævikrýndir fjallatoppar, kolsvört hraun og litskrúðugir líparíthamrar. Laugin er best á þessum árstíma. Það er hægt að komast á gönguskíði á hærri slóðum, t.d. á leiöinni í Hrafntinnusker. Allra síðasta Landmannalaugaferö árs- ins. Takmarkað pláss. Góð gisting í sælu- húsinu. Uppl. og farm. á skrifstofunni Öldugötu 3, símar: 19533 og 11798. Munið fjölskylduferð á Selatanga sunnudaginn 20. okt. kl. 13 og kvöldgöngu á fullu tungli miðvikudaginn 23. okt. kl. 20. Fundir Kynningarfundur I. ráðs ITC verður haldinn á Hótel Lind, Rauöarár- stíg 18, Reykjavík, í kvöld og hefst kl. 20. Dagskrá fundarins er í höndum félaga úr ITC deildunum Björkinni, Hörpunni, Korpu og Ýr og mun hún gefa góða inn- sýn í starfsemi ITC. Stef fundar: „Vilji er allt sem þarf“. Fundurinn er öllum opinn og kaffiveitingar í hléi. Digranesprestakall Kirkjufélagsfundur verður í safnaðar- heimilinu, Bjamhólastíg 26, í kvöld, fimmtudag kl. 20.30. Sumarferðalagið riijaö upp og María Einarsdóttir sýnir myndir frá Róm. Kaffiveitingar. Fundin- um lýkur á helgistund. Tónleikar Stórtónleikar á Hótel íslandi Stórtónleikar með Les Satellites - Babyl- on Fighters og Risaeðlimni á Hótel ís- landi í kvöld. Bæði Les Satellites og Ba- bylon Fighters þykja sérlega góðar tón- leikasveitir eins og Risaeðlan sem nú mun koma fram í fyrsta skipti hérlendis um nokkurt skeið eftir mannabreytingar og vel heppnaöa tónleikaför til Danmerk- ur. KK-band á Púlsinum í kvöld, fimmtudagskvöld, heldur KK- band tónleika á Púlsinum eftir langt hlé, sem þeir félagar hafa notað til aö vinna hljómplötu, sem nú er fullbúin og kemur á markað í nóvember. Sérstakir gestir þetta kvöld eru vinir KK og Þorleifs: Leo Gillespie farandsöngvari, ljóð & tónskáld, ásamt Mick M„ látbragðsleikara & sjón- hverfingamanni. Áskriftatónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands Fyrstu áskriftartónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar íslands á þessu hausti verða haldnir í Háskólabíói í kvöld, 17. október, kl. 20. Þessir tónleikar eru í gulri tón- leikaröð. Á efnisskránni verða þijú verk: Sinfónia nr. 38 - Prague - eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Fine 1 eftir Jón Leifs og Konsert fyrir hljómsveit eftir Béla Bartók. Hljómsveitarstjóri verður Petri Sakari, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu- hljómsveitar íslands. Sala áskriftarskír- teina stendur yfir á skrifstofu hljómsveit- arinnar í Háskólabiói. Þar fer einnig fram sala lausamiða á tónleika í vikunni. Sími 622255.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.