Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Blaðsíða 3
T MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991. ___________________________________________Fréttir Framkvæmdastjóri Landsbjargar um samnma björgunarsveita: Nýtum kraftana betur Þórunni Sveinsdóttur breytt í f rystiskip? Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyrr Útgerðarmenn Þómnnar Sveins- dóttur VE, sem keypt var frá Slipp- stöðinni á Akureyri á þessu ári, eru væntanlegir til viöræðna við for- svarsmenn Slippstöðvarinnar á næstunni, en til stendur að breyta skipinu í frystiskip. Nýja skipið leysti af hólmi eldra skip útgerðarinnar sem bar sama nafn og var eitt mesta aflaskip í flot- anum um árabii. Ástæða þess að nú er hugað að því að breyta nýja skip- inu þannig að hægt verði aö frysta aflann um borð er fyrst og fremst kvótaskerðing sem útgerðin hefur orðið fyrir. „Það hefur lengi verið talað um að sameina hjálparsveitimar allar eða að hluta. Það voru kannski skiptar skoðanir um sameininguna áður en hún varð en nú held ég að enginn efist um að ákvörðunin um aö sameinast hafi verið hárrétt. Með því að sameinast undir einum hatti nýtum við krafta okkar miklu betur en áður. Við erum ekki að gera sömu hiutina hver í sínu horni, þjálfa mannskap, reka skóla, gefa út blað og allt sem þessari starfsemi fylgir. Nú náum við að gera alla hluti öflugar en áður,“ sagði Bjöm Hermannsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, í samtah við DV. Landsbjörg er landssamband 30 björgunarsveita um allt ísland. Samtökin voru stofnuð á Akureyri 28. september síðastliðinn, daginn eftir aðalfundi Landssambands hjálparsveita skáta og Landssam- bands flugbjörgunarsveita. Björn sagði að sameiningin þýddi ekki beinlínis neina byltingu fyrir eðh starfseminnar sem slíkrar þar sem landssamböndin hefðu áður starfað í svipuðum farvegi og Landsbjörg gerir nú. Helsta breyt- ingin fælist í því að starfsemin yrði öflugri og stefnufastari en áður. „Samstarf sveitanna í björgunar- aðgerðum hefur aha tíð verið mjög gott þannig að samruninn sem slík- ur hefur ekki nein teijandi áhrif á þann þátt starfseminnar. Þau verk- efni, sem við blöstu fyrst eftir stofn- un Landsbjargar, voru meðal ann- ars að gefa út blað sem reyndar er komið út. Þá fór björgunarskólinn í fullan gang en dagskrá hans var eðblega löngu ákveðin. Þátttaka í námskeiðum hans er betri en nokkru sinni. Þegar öllu er á botn- inn hvolft hefur stofnun Lands- bjargar breikkað þann farveg sem landssamböndin voru í áður. Hins vegar erum við með ýmislegt nýtt á prjónunum sem tengist þessum þáttum. Th dæmis förum við með námskeiðin meira út á land sem tryggir góða þátttöku og skilar sér mjög vel þegar á þarf að halda.“ Misdugleg sveitarfélög - Hvað með peningahliðina, verð- ur ekki mikill sparnaður af samr- una landssambandanna? „Það verður kannski ekki svo mikill sparnaður heldur verður nýting þeirra fjármuna, sem við höfum til umráða, miklu betri.“ Landsbjörg hefur aðallega tekjur af flugeldasölu, sölu sjúkrabúnað- ar fyrir bíla, heimili og vinnustaði og af árlegum happdrættum. Þá er fjáröílunarátak að jafnaði sett í gang. Ekki hefur verið um bein framlög frá ríkinu að ræða en á næsta ári er þó búist við fimm milljóna króna framlagi sem renn- ur beint til sveitanna. Það þýðir um 160 þúsund krónur á hveija sveit sem rétt dugir fyrir hálfum dekkj- aumgangi á björgunarbíl. „Það má ekki gleyma stuðningi sveitarfélaga. Sum sveitarfélög eru mjög myndarleg í stuðningi sínum við hjálparsveitirnar. Að öðrum ólöstuðum vh ég nefna Hafnarfjörð sérstaklega. Síöan eru reyndar 30 hjálparsveitir sem standa að Landsbjörg. Virkir meðlimir eru um 1200 talsins. Frá upphafi hafa hátt á sjötta þúsund manns verið skráðir í björgunarsveitirnar. Þá er ótalinn fjöldi manna sem sótt hefur ýmis námskeið björgunars- veitanna og getur orðið að liði á ýmsan hátt. í Landsbjörg eru 70 svokallaðir undanfarar en það eru sérþjálfaðir menn sem geta brugðist við á skömmum tíma og leyst þau verk- efni sem upp koma. Undanfarar eru ætíð til taks og má líkja þeim við úrvalssveit björgunarmanna. Kafarar eru 23 og fallhlífastökkvar- ar 26. Landsbjörg hefur yfir 21 björgun- arstöð að ráða en þrjár eru i bygg- ingu. 57 bílar eru á vegum samtak- anna, 18 snjóbhar, 72 vélsleðar, 5 stórir bátar, 8 slöngubátar, um 400 talstöðvar af ýmsum gerðum og 46 farsímar. -hlh Stjörnutindur SU 159 kom til Djúpavogs á dögunum með 97 tonn af stórri og fallegri síld sem veiddist í Berufjarðarál. Síldinni var landað i körum og söltuð hjá Búlandstindi hf. sem gerir Stjörnutind út. Sildin verður seld til Póllands. DV-mynd Hafdis Erla Bogadóttir, Djúpavogi Björn Hermannsson, fram- kvæmdastjóri Landsbjargar. DV-mynd GVA önnur, sum vel stæð, sveitarfélög sem standa sig miður vel hvað þetta varðar.“ 1200 virkir meðlimir Yfir 2000 manns eru skráðir í þær Vinir okkar í Húsgagnahöllinni allt fyrir létta og netta og stóra og þunga. Bf LDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SfMI 91-681199 - FAX 91-673511 Góður árangur: Epal-sófar til Japans Fyrirtækið Epal hefur undirritaö samning um sölu á sófum th Japans. Þetta er í fyrsta skiptið sem íslend- ingar selja húsgögn th Japans. Það er japanska vöruhúsið Tobu sem kaupir sófana. Að sögn Eyjólfs Pálssonar, eiganda Epals, er um að ræöa tveggja sæta sófa sem danski arkitektinn Ole Kortzau hannaöi fyrir Epal fyrir um þremur árum. Hér heima gengur sófinn undir heitinu Epal-sófmn en erlendis er hann kallaður Ole-sófinn vegna þess hve arkirtektinn Ole Kortzau er þekktur. Hann er víða með sambönd, meðal annars í Japan, og það eru einmitt þessi viðskiptasambönd hans eystra sem eru upphafið aö pöntun Japana. „Við sendum einn sófa til sýnis til Japans fyrir um þremur árum. Ekk- ert gerðist. En mér var sagt aö Japan- ir væru lengi að hugsa máhð og ég yrði bara að bíða rólegur,“ segir Ey- jólfur. „Þetta er ekki mjög stór pöntun en engu að síður mjög 'góð fyrir okkur. Þá er þessi pöntun vonandi vísir á meira og því jákvæð fyrir okkur." Epal-sófinn hefur verið seldur bæði til Færeyja og Danmerkur. Auk þess er Epal að þreifa fyrir sér á markaðn- um í Los Angeles í Bandaríkjunum með sófa sem málarinn Tolh hann- aði. -JGH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.