Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Page 8
8 'MÁNTÍDkGUU 21. ÓKTÓBBR 1991. Útlönd Bændurvilja kanínubana Bændur á Nýja-Sjálandi hafa sótt um innflutningsleyfi á veiru- tegund til aö útrýma tugþúsund- um kanína. Notkun veirunnar, myxomatosis, hefur veriö harð- lega gagnrýnd af dýraverndunar- hópum sem telja hana valda sárs- aukafullum dauðdaga. Bændur telja hana aftur á móti siðasta hálmstrá sitt. Kanínur eyðileggja stór rækt- arlönd og segja bændur aö engin önnur árangursrík leið sé til til að stöðva fjölgun þeirra. Landbúnaðarráöherra Nýja- Sjálands sagði að umsóknin um innflutning á veirunni og fiónni sem ber hana yrði skoðuð af ráðuneytinu og almenningi áður en ákvörðun yröi tekin. Öfgamenn í bólsaman Breskir hægrisinnaðir öfga- menn og nýnasistar í Þýskalandi eru að efla vináttutengsl sín í milli. Breska dagblaöið Inde- pendent sagði í morgun að það hefði komist að því að breskir öfgamenn hefðu fariö í þjálfunar- búðir í skóglendi í útjaðri Vínar- borgar, höfuðborgar Austurríkis. Blaöið sagðist hafa sannanir fyrir því aö búðir þessar væru reknar af hreyfmgunni Beweg- ung sem er heiídarsamtök þeirra sem þrá aö koma á Fjórða rikinu. I frétt Independent kom fram að lögregla í Bretlandi og Þýska- landi hefði áhyggjur af þessum nýju tengslum. Leiðtoga Bewegung hefur verið boðið á fund evrópskra nýnasista á leynilegum stað í Bretlandi í næsta mánuði. Reagan kominn afbruggurum Ronald Reagan, fyrrum Banda- ríkjaforseti, var gerður að heið- ursforseta i félagi áhugamanna um skoskt viski viö hátíðlega at- höfn í Blair kastala í Skotlandi. Reagan virtist þó ekki hafa hug- mynd um að einn af forfeðrum hans var Johnnie nokkur Blue, síðasti landabruggari á Kintyre- skaga. Skotarnir höfðu þó grafið þetta upp fyrir hann. Til að vera tekinn inn í áhuga- mannafélagiö verður viðkomandi að hafa mikla ást á Skotlandi og skosku viskíi. Meðal annarra stórmenna við athöfnina i gær var Caspar Wein- berger, varnarmálaráöherra Bandarikjanna i tíð Reagans. Fyrr í Skotlandsferð sinni sem farin er í leit að forfeörunum hafði Reagan klæðst skotapilsi og sungið bandarískt þjóðlag í kirkj- unni þar sem langalangafi hans og langalangamma gengu í hjóna- band árið 1807. Færeyingarvígja fótboltavöllinn Nýi knattspyrnuvöllurinn í Tóftum í Færeyjum var vígður í gær að viöstöddu miklu ljöl- menni. Upphaflega stóð til að færeyska landsliðið léki á móti breska lið- inu Nottingham Forest í vígslu- leiknum en eftir að Bretarnir höfðu hvað eftir annað farið fram á frestun leiksins var ákveöiö aö hafa leikinn milli Færeyinga. Landsliðiö lék því viö úrval annarra heimamanna og fóru leikar þannig að hvort lið skoraöi þijú mörk. Knattspyrnuleikvangurinn i Tóftum kemur til meö að kosta um 150 milljónir króna fullbúinn. Hann var byggður að frumkvæöi íþróttafélagsins á staðnum með stuöningi landstjómarinnar og bæjarfélagsins. Reuter og Itit7.au Þúsundir norskra sjómanna hafa tekið þátt i mótmælunum gegn stefnu stjórnarinnar í fiskveiðimálum. Níu hafnir eru lokaðar, þar á meðal þessi í Egersund. Símamynd NTB Norskir sjómenn loka níu höfnum til að mótmæla samningum um EES: Fórna ekki miðunum Mikil röskun er fyrirsjáanleg a flutningum um norskar hafnir vegna þess að ævareiðir sjómenn hafa lok- að níu þeirra til að mótmæla stefnu Gro Harlem Brundtland forsætisráö- herra í samningunum um evrópska efnahagssvæðið. Úrslitlotan í samn- ingum hefst í Lúxemborg í dag. I tillögu Norðmanna til lausnar á deilumálum um frjálsan aðgang með fisk að mörkuðum í ríkjum Evrópu- bandalagsins er gert ráð fyrir að skip frá bandalaginu fái að veiða nokkur þúsund lestir í norskri fiskveiðilög- sögu. Jafnvel er talað um á annan tug þúsunda tonna. Þessu vilja norskir sjómenn ekki una og benda á að þeir einir verði að fórna af hagsmunum sínum en ekki t.d. íslendingar þótt þeir eigi einnig að njóta góðs af væntanlegu tollfrelsi í fiskversluninni. Sjómennirnir lokuöu höfnunum níu i gær og ætla að halda aðgerðum sínum áfram í dag. Mikil reiði er víða meðal þeirra en afli hefur dregist saman í Noregi mörg undanfarin ár og nú er fyrirsjáanlegt að svo verður enn ef ætla á skipum Evrópubanda- lagsins kvóta við Noregsstrendur. Talsmenn sjómanna segja að margar fjölskyldur hafi undanfarin ár mest lifað á sparifé sínu og nú blasi ekk- ert annað en gjaldþrot við. Norska fréttastofan NTB segir að mótmæli norsku sjómannanna hafi komið til umræðu í hópi Efta-ráð- herranna í Lúxemborg. Þar voru menn þó þeirrar skoöunar að þessi andstaða mundi ekki hafa áhrif á viðræðurnar. Gro Harlem Brundt- land, forsætisráðherra Noregs, ætlar að halda fast við sína stefnu enda gæti samkomulag milli Efta og EB oltið á því að hugmynd hennar verði að veruleika og útlendingum verðK hleypt í norska landhelgi. Brundtland veit þó að hún stendur höllum fæti heima. í síðustu sveitar- stjórnarkosningum kom fram mjög sterk andstaða við stefnu hennar. í Noregi situr minnihliitastjórn sem Honningsvág » Tromsö Svolvær m • Hamarsöy Bognes •* '~1 Bodö • • 5 41111 Þrándheimur Kristiansuncf • Alasund • Egersund • • ^ fip; Tl* 1 DVJRJ ísraelsmenn slepptu fjórtán aröbum í morgun: Bandaríkjamanni sleppt á næstu klukkustundum ísraelsmenn leystu fjórtán arab- íska fanga úr haldi í Suöur-Líbanon í morgun til að greiða fyrir væntan- legri lausn bandarísks gisls í Líban- on. Útvarpsstöð bandamanna ísraels í suðurhluta Líbanons rauf dagskrá sína til að skýra frá þessu. Líbanskir mannræningjar sem fylgja írönum að málum höfðu áður tilkynnt að þeir mundu leysa banda- rískan gísl úr haldi innan eins sólar- hrings eftir að Sameinuðu þjóðirnar höfðu talið ísraelsmenn á að sleppa arabískum föngum. Mannræningjar í Líbanon sendu frá sér vélritaða yfirlýsingu og með henni fylgdi ljósmynd af Bandaríkja- manninum Jesse Turner. Hann er annar tveggja Bandaríkjamanna sem samtökin Heilagt stríð íslams halda föngnum. Samtökin sögðu að þau ætluðu aö leysa Bandaríkjamanninn úr haldi til að sýna vilja sinn til að fara eftir því samkomulagi um heildarlausn gísladeilunnar sem unnið væri að. Ein helsta krafa líbanskra mann- ræningja hefur verið sú að ísraels- menn sleppi arabískum föngum. Manræningjar í Libanon sendu frá sér mynd af Bandaríkjamanninum Jesse Turner í morgun með yfirlýs- ingu um að einum vestrænum gísl yrði sleppt á næstu klukkustundum. Simamynd Reuter Heimildir hermdu að sveit frá Al- þjóða Rauða krossinum ætlaði að fara til suðurhluta Líbanons snemma í morgun til að ganga frá fangalausninni. Upplýsingamiðstöö SÞ í Beirút skýrði frá því í gær að Javier Perez de Cuellar, aðalritari SÞ, hefði lagt mikiö á sig á undanförnum dögum til að leysa málið. Sameinuðu þjóðirnar eru að reyna að fá allt að níu vestræna gisla i Lí- banon og um 350 arabíska fanga í haldi ísraelsmanna leysta úr haldi í áföngum. Uri Lubrani, aðalsamningamaður ísraels í gísladeilunni, sagði í gær að hann vonaðist til að allir gislar í Lí- banon yrðu frjálsir feróa sinna um jólaleytið. ísraelsmenn hafa sagt að þeir muni því aðeins leysa arabíska fanga úr haldi aö þeir fái í staðinn upplýsingar um hermenn sína sem saknað er í Líbanon. Þeir skýrðu frá því á laug- ardag aö fengist hefðu óyggjandi upplýsingar frá SÞ að einn þeirra, Yossi Fink, væri látinn. Reuter gæti falliö á skömmum tíma ef mót- mælin gegn henni breiðast út. Norges fiskerlag, samtök sjávarút- vegsins í Noregi, ætlar nú að freista þess að fá sjómenn í öllum byggðum á strandlengju landsins til að taka þátt í mótmælunum, leggja niður vinnu og loka höfnum. Því kann svo að fara að þótt Brundtland telji að tekist hafi að höggva á hnútinn í við- ræðunum um evrópska efnahags- svæðið þá reynist erfiðara að fá stuðning við hugmyndir hennar heima. Mest er reiði sjómanna í Norður- Noregi. Þar hafa menn líka orðið verst úti í aflasamdrætti síðustu ára. Því þykir mönnum nógu um þótt ekki verði enn gengið á hagsmuni þeirra. Takist ekki að ná samkomulagi um evrópska efnahagssvæðið nú eru menn sammála um að hugmyndin komi ekki á dagskrá aftur í bráð. NTB Indland: Óttastað rúmlega SOOhafi farist Indverskar herþyrlur héldu af stað í morgun til afskekktra þorpa sem óttast er að hafi farið illa í öflugum jarðskjálfta sem vitað er að varð meira en 330 manns að bana í gær. Jarðskjálft- inn varö í Uttar Pradesh-fylki, viö rætur Himalajafjallanna. Lögreglan sagði aö tala látinna gæti hækkað verulega þegar þyrlurnar ná til svæða þar sem hætta er á aurskriðum. Fundist hafa 334 lík, flest á svæöum við landamærin að Kína og Nepal. „Við ættum að hafa skýrari mynd síðar í dag þegar þyrlumar hafa farið yfir fjallaþorpin og áhafnimar gefið skýrslu um ástandið," sagði háttsettur maður innan lögreglunnar. Jarðskjálftinn, sem var 6,1 stig á Richterkvaröa, braut raf- magnsstaura og olli skriðuföll- um. Brýr hrundu og vegir spillt- ust. Vitað er að meira en tvö þús- und manns slösuðust í skjálftan- Um. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.