Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Side 10
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991.
Utlönd
Rudolfo Infante, er 28 ára gamall Texasbui. Hann (ór ásamt lagskonu sinni til Mexikó í þeim tilgangi að myrða
ungar stúklur. Lögreglan segir að Infanto viðurkenni að morðin hafi verið framin sér og vinkou sinni til skemmtun-
ar. Hér er hann í yfirheyrslu hjá lögreglunni. Simamynd Reuter
Dægradvöl hjónaleysa frá Texas:
Myrtu stúlkur sér
til skemmtunar
Bðmin gleyma
hvernig mjólk
erábragðið
íbúar í iðnaðarborginni Perm í
Úralíjöllum í Sovétríkjunum hafa
komið upp vegartálmum og lam-
að umferö í borginni af óánægju
með almennan skort á nauðsynj-
um. Þarna hafa jafnt eftirlauna-
þegar, verkamenn sem úngar
mæður látið til sín taka.
Mæðurnar segja að börnin
gleymi brátt hvemig mjólk er á
bragðiö því hún hefur verið ófá-
anleg í verslunum um langt
skeið. Þá er mikil óánægja með
að vodka er skammtað þannig að
hver maður fær tvær flöskur á
mánuði. Nóg er hins vegar af
vodka á svartamarkaðnum en
þar er verðið himinhátt og veig-
arnar ókaupandi fyrir venjulega
borgara.
í Perm átti Borís Jeltsín mikið
fylgi þegar kosið var til forseta á
síðasta ári. Nú má sjá mótmæl-
endur hafa upp kröfuspjöld þar
sem forsetinn er víttur.
Fékk 7,6 millj-
arða fyrir auga
Dómstóll í Chicago í Bandaríkj-
unum hefur úrskuröað að Meyer
Proctor skuli fá alls 124,6 milljón-
ir Bandaríkjadala í bætur frá
lyíjafyrirtækinu Upjohn vegna
skaða sem hann hlaut á auga við
að taka lyfið Depo-Medrol. Þetta
svarar til um 7,6 milijarða ís-
lenskra króna. Maðurinn missti
vinstra augað.
Talsmenn lytjafyrirtækisins
segja aö málinu verði áfrýjaö
vegna þess að bætumar, sem
manninum voru dæmdar, séu
fáránlega háar. í úrskurðinum
sagði að Upjohn hefði ekki gefið
út nægilega skýrar leiðbeiningar
um notkun lyfsins.
Kynferðisleg
áreitni gæti
hættmeðöllu
Kona að nafni Tan Sai Siong,
kunnur dálkahöfudur við
Sunday Times í Singapore, segir
í dálki sínum um helgina að mál
Clarenee Thomas hæstaréttar-
dómara í Bandaríkjunum gæti
orðið til þess að kynferðisleg
áreitni legðist meö öllu af á
vinnustöðum.
Hún segir að á sinum vinnustað
sé áreitni af þessu tagi algeng og
sjálfsögð í samskiptum starfs-
fólksins. Engin ástæða sé til aö
amast við henni enda fátt sem
létti mönnum meira lífið á erfið-
um vinnudegi en ofurlítil athygli
frálúnukyninu. Reuter
Lögreglan í landamærabænum
Matamoros í Mexíkó hefur nú í haldi
hjónaleysi sem í haust fundu upp á
þeirrí óyndislegu skemmtun að
myrða ungar stúlkur. Þegar athæfið
var stöðvað höfðu átta stúlkur á
unglingsaldri látið lífið.
Lögreglan segir að karlmaðurinn
hafi í yfirheyrslu talaö um morðin
eins og þau hefðu verið framin tii
dægrastyttingar. Þó voru stúlkurnar
allar rændar en lítil fjárvon er í að
ræna unglinga á þessum slóðum þar
sem fátækt er mikil. Maðurin heitir
Rodolfo Infante og er frá Texas.
Lögreglan segir að konan, sem var
í slagtogi með manninum, sé ein-
feldningur og hafi tekið þátt í leikum
í fávisku sinni. Hún heitir Ana Maria
Ruiz. Maðurinn sé hins vegar ill-
menn og fól. Líkum stúlknanna var
hent í ána Rio Grande á landamær-
um Mexíkó og Bandaríkjanna.
Hjónaleysin stunduðu iðju sína í
þrjá mánuði áður en lögreglan komst
á slóð þeirra. Þau lokkuðu stúlkurn-
ar til sín með því að bjóða þeim gull
og græna skóga en kyrktu þær síðan.
Af líkunum mátti sjá að nokkrum
hafðiveriðnauðgað. Reuter
Fimm sjómenn
heimtir úrhelju
Fimm bandarískir sjómenn,
sem fundust af tilviljun eftir að
þá hafði rekið vatns- og matar-
lausa i ellefu daga á fleka í Norð-
ur-Kyrrahafi, eru nú sem óðast
að ná sér á sjúkrahúsi.
Mönnunum var bjargaö af
fiskibáti og lýsti móðir eins þeirra
þvi sem algjöru kraftaverki.
„Við fréttum það fyrst á laugar-
dagskvöld að einhvers væri sakn-
að. Þeir lifðu þetta af með því að
safna regnvatní,“ sagöi Paula
Pendleton í gær.
Sonur hennar, Keith, var í
áhöfn fiskiskipsins Discovery
sem sökk þann 8. október, um 250
sjómilur norðvestur af Bresku
Kólumbíu á Kyrrahafsströnd
Kanada. Báturinn var á leið á
krabbaveiðar við Alaska.
Gömulflugvél
hrapaði og
slasaði þrjá
Japönsk flugvél, sem var teikn-
uð einum áratug áður en Wright-
bræður urðu fyrstir manna til að
koma vélknúinni flugvél á loft,
hóf sig til flugs í fyrsta sinn í
gær. Vélin hrapaði hins vegar
samstundis niður í hóp áhorf-
enda og slasaði þrjá þeirra.
Lögreglan sagði að í fyrstu til-
raun hefði vélin flogið í um eins
metra hæð um fimmtán metra
vegalengd. í annarri tilraun
komst vélin, sem er eins og skor-
dýrabjalla í laginu, meira en
fjörutíu metra áður en hliðar-
vindur þeytti henni inn í áhorf-
endaskarann.
Flugvélin hafði verið smíðuð af
rannsóknarhópi við Nipponhá-
skólann, samkvæmt uppdráttum
sem Chuhachi Ninomiya gerði af
vélinni árið 1893.
Tveiríhaldi
vegna BCCI
rannsóknar
Lögregla á Bretlandi hefur
handtekin einn þeirra manna
sem átti að rannsaka BCCI-
bankahneykslið. Lögreglan haföi
verið kölluð til að rannsaka
þjófnað og sölu leyniskjala um
hugsanlega málshöföun vegna
hneykslisins.
Annar maður var líka í haldi
vegna þessa. Þeir .verða báðir
leiddir fýrir dómara í dag þar sem
þeir voru ákærðir um helgina
fyrir samsæri um að hindra
framgang réttvisinnar.
Annar mannanna, sem í haldi
eru, er endurskoðandi hiá hinu
fræga fyrirtæki Coopers og Ly-
brand en hinn er sjálfstæður end-
urskoðandi.
Síðasta vopnahlé stóð stutt í Króatíu:
Sextán menn féllu um helgina
Heyra mátti fallbyssudrunur og
vélbyssuskothríð víðsvegar um
Króatíu um helgina þrátt fyrir að
vopnahlé ætti að heita í gildi. Á fóstu-
daginn fengu fulltrúar Evrópu-
bandalagsins deiluðila til að leggja
niður vopn og átti átökum að ljúka
á hádegi á laugardag.
Skamma stund var þó hljótt í land-
inu því Serbar og Króatar byrjuöu
nær jafnskjótt að beijast. Talið er að
í það minnsta sextán menn hafi fall-
ið. Meöal annars var enn barist af
heift um bæinn Dubrovnik á strönd
Adríahafsins. Þar var sagt að sex
menn heföu látið lífið.
Þá var enn barist um Vukovar en
þangað hafa hjálparsveitir komið til
að sinna særðum og sjúkum. Hjálp-
arliði tókst að flytja þaöan 109 sjúkl-
inga um helgina. Þá tókst að koma
sjúkragögnum til bæjarins sem hefur
verið í umsátri síðustu daga.
Reuter
Simkerfí fyrir stærri heimili
og smærri
fyrirtæki.
Goldstar GK 208 er tveggja
símkerO með 8 innanhúslínum
dyrasíma og kallkerfí. Kerfíð
býður upp á velþekkt þxgindi eins
og innbyggt minni ■ skammval á
öllum helstu símnúmcrum ■ endurval
valið var ■ hægt að læsa símanum fyrir hringingar utan svæðis
og/eða til útlanda ■ biðtónlist ■ hátalari er í símtxkjum o.fí.
Símkerfíð má auðveldlcga tengja við dyrasímann, við brunavarnarkcrfí
hússins og útihúsa s.s. bílskúr og/eða gripahús í sveit. þannig gctur
Goldstar GK 208 verið mikilvægur öryggisbúnaður.
TIIUmAI GK sfmstöð
I 11DOO ! oq 3 símtæki kr.
35.600,-S'
vsk.
SIÐUMULA 37 SIMI 687570
Fimm Kínverj-
arskotnirí
Kanada
Fimm Kínverjar, þar á meðal ungt
barn, fundust skotnir til bana í borg-
inpi Váncouver í Kanada á sunnu-
dag. Lögreglan telur að þetta sé
þriðja sinn á þremur dögum þar sem
um er að ræða morð og sjálfsmorð.
Lík fjórtán mánaða barns, tíu ára
drengs, foreldra þeirra og annars
manns fundust sundurskotin meö
vélbyssu í svefnherbergi húss í aust-
urhluta borgarinnar.
Lögreglan sagði að vopnið hefði
fundist undir líki annars mannsins.
Talið er að hann hafi skotið fjölskyld-
una áður en hann beindi vopninu að
sjálfum sér.
Á íöstudag skaut maður í nærliggj-
andi bæ fyrrum eiginkonu sína og
síðan sjálfan sig. Á laugardag drap
svo enn einn maðurinn nýjan kær-
asta fyrrum kærustu sinnar og sjálf-
an sig þar á eftir.
HægHmenní
Svissvinnaá
Hægrisinnaöir smáflokkar,
sem eru andvígir innflytjendum
og nánari tengslum við Evrópu-
bandalagið, unnu mikið á í þing-
kosningunum í Sviss í gær.
Ekkert benti þó til þess að úr-
slitin mundu breyta nokkru um
stöðu samsteypustjórnar flokk-
anna fjögurra sem hefur farið
með völd í landinu frá 1959.
Helsta viðfangsefni hennar á
næsta kjörtimabili verður hugs-
anleg innganga Sviss í Evrópu-
bandalagið.
Meira en helmingur sviss-
neskra kjósenda haföi ekki fyrir
því að greiða atkvæði í kosning-
unum.-En töl vuspár bentu til þess
að þeir sem kusu hafi veitt Bfla-
flokknum brautargengl. Hann
berst gegn aðild að EB og vill að
innílutningur fólks verði stöðv-
aður. Því var spáð aö Bílaflokkur-
inn fengi sjö þingsæti til viðbótar
við þau tvö sem hann haföi fyrir.
Reuter
Reuter