Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Page 22
22 MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991. Merming Sólfarlýstupp: Umdeildar súlurrísa fyrir framan listaverkið Þeir sem eiga leiö um Sæbrautina hafa tekið eftir tveimur súlum sem risið hafa fyrir framan listaverkið Sólfar eftir Jón Gunnar Árnason myndhöggvara. Hafa menn verið að undrast hvaða súlur þetta væru og eru margir listunnendur og listfræð- ingar mjög óánægðir með súlurnar sem þeir segja að skyggi á listaverkið og að þær hafi ekki veriö geröar með samþykki listamannsins, en Jón Gunnar Árnason lést í fyrra. Til að fá úr þessu skorið hvaöan súlurnar koma var haft samband viö Baldur Svavarsson, arkitekt hjá teiknistofunni Úti og inni, en teikni- stofan sér um skipulagningu á Sæ- brautinni. „Þessar súlur eru til- komnar vegna lýsingar á listaverkið. Efst á súlunum verða kastarar. Það er mjög vandasamt að lýsa upp lista- verk eins og Sólfar svo vel fari. Ef kastaranir væru settir í jörðina er hætta á að fá ljósið beint í augun og eftir að búið var að rannsaka málið og útiloka til dæmis venjulega ljósa- staura var lausnin að byggja súlur og er þaö gert í samráöi við dætur Jóns og Kristin E. Hrafnsson mynd- höggvara." - Nú hefur okkur veriö tjáð að þess- ar súlur séu ekki gerðar í'samráði við ættingja listamannsins? „Það er vitleysa. Við áttum fund með dætrum Jóns í vor og þá fórum við yfir teikningarnar með þeim og var Kristinn þeim innan handar og gerðum við breytingar samkvæmt þeirra tillögum vegna þess að þau höfðu áður ekki alveg áttað sig á út- færslunni. Má segja að eftir þennan fund hafi verkið verið hannaö upp á nýtt. Súlurnar eru ekki eingöngu hugsaðar út frá lýsingunni. Þetta er einnig hugsað sem ákveðin hugmynd um að skilja að bílaumferðina sem er um Sæbrautina og staðinn sem listaverkið situr á. Til hliðar við þess- ar súlur eru minni pallar þar sem eiga að koma útsýnisskífur og upp- Súlurnar umdeildu fyrir framan Sólfar á Sæbrautinni. Efst á þeim verður komið fyrir kösturum sem munu lýsa listaverkið upp. DV-mynd S lýsingum. Meö því að skilja lista- verkið frá bílaumferðinni þarf fólk aö koma aö verkinu til að sjá það, en ekki eingöngu aö skoða það úr bíl á ferð.“ - Hvenær verða svo ljósin tendruð? „Þetta átti allt að verða tilbúið 18. ágúst, en af ýmsum ástæðum hefur verkið tafist en nú er þaö aðeins dagaspursmál hvenær verður kveikt á köstúrunum." -HK Ljón í síöbuxum, nýtt, íslensk leikrit: Grátbrosleg kómedía og grimmileg örlagasaga Leikfélag Reykjavíkur mun frum- sýna næstkomandi fimmtudag á stóra sviði Borgarleikhússins nýtt íslenskt leikrit, Ljón í síðbuxum, eft- ir Björn Th. Bjömsson listfræðing. Byggir Björn leikrit sitt á hluta úr skáldverki sínu Haustskipi sem kom fyrst út árið 1975 og var endurútgefið 1976 og seldist upp í bæöi skiptin. Áætlaö er að gefa Haustskip út í þriðja skiptið í ár. Ljón á síöbuxum er grátbrosleg kómedía um leiö og hún er grimmileg örlagasaga um ást og kærleika. Fjall- ar verkið um ungan, islenskan mann sem dæmdur er til lífstíðarfangelsis í kóngsins Kaupmannahöfn fyrir að villast undir pils hjá fullorðinni konu. Einn góðan veðurdag er hann leigður út sem húsþræll til ríkrar ekkju. Hún tekur hann til sín og veit- ir honum skjól við lítinn fögnuð og hrifningu hárra sem lágra og hefur örlagasaga þeirra afdrifaríkar afleið- ingar. Með helstu hlutverkin fará Helgi Björnsson, Margrét Helga Jóhanns- dóttir, Sigurður Karlsson, Árni Pétur Guðjónsson, Þórey Sigþórsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Margrét Ól- afsdóttir, Steindór Hjörleifsson, Jak- ob Þór Einarsson, Guðrún Ásmunds- dóttir, Ragnhéiður Tryggvadóttir og . Saga Jónsdóttir. Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir, Hlín Gunnarsdóttir ger- ir leikmynd og búninga og Þorkell Sigurbjömsson frumsemur tónlist við leikritið. -HK Björn Th. Björnsson er hér fyrir miöri mynd. Honum á vinstri hönd er Asdis Skúladóttir leikstjóri. Aörir á myndinni eru leikarar og má þar þekkja Helga Björnsson og Jón Sigurbjörnsson. DV-mynd GVA Ókunndufl filbúintil sýningar Ókunn dufi, hálftíma kvikmynd Sigurbjöms Aðaisteinssonar, verður framsýnd i Háskólabíói um næstu helgi. Sigurbjöm segir um mynd sína að skilgreina Ókunn dufl sem- grínmynd sé að ofureinfalda hlutina ogþess vegna hefur nýr flokkur verið fundinn upp, geggjun, og Ókunn dufl er því geggjuð mynd i eðlilegum lit- um. Tvö hlutverk era í myndinni og eru það leikaramir Þröstur Leó Gunnarsson og Valdimar Örn Flygenring sem leika þau. Sigur- björn kvaðst hafa valið þá vegna hins góða samieiks þeirra 1 leikrit- inu Dagur vonar sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi 1987. íslandsbókin ájapönsku íslandsbók sem Fjölvi hefur gefið út með litmyndum Spiegel- halters hefur verið gefin út á mörgum tungumálum og er enska útgáfan nú uppseld og sú þýska á þrotum. Auk þess sem verið er að prenta meira á þess- um tungumálum verður bókin gefin út á næstunni á japönsku. Að sögn Þorsteins Thorarensens, útgefanda bókarinnar, er einnig verið að undirbúa útgáfu bókar- innar á sænsku, spænsku og ít- ölsku. Bernskuminn- ingarómars í fyrra komu út bernskuminn- ingar Megasar og vöktu mikla athygli. Megas ólst upp í Norður- mýrinni og Holtunum og þar gerðist sagan að mestu. Annar þekktur Islendingur, sem ólst upp á sömu slóðum, aðeins á und- an Megasi var Ómar Ragnarsson sem átti heima í Stórholtinu. Ómar hefur nú skráð bemsku- minninga sínar og mun þær verða ein af jólabókunum hjá Fróða heitir bókin einfaldlega Heitirðu Ómar? Þar bregður Ómar upp mynd af Reykja vík eft- irstríðsáranna og lifsbaráttu al- þýðufólks á þeim árum. Hann segir einnig frá veru sinni í sveit og að sjálfsögðu óteljandi prakk- arastrikum. Sextetteftir Karólínu Eiríksdóttur frumfluttur Á tónleimu Blásarkvintetts Reykjavíkur i Listasafni Sigur- jóns annað kvöld veröur frum- fiuttur sextett fyrir sembal og blásarakvintett eftii- Karólínu Ei- ríksdóttur. Gestur tónleikanna er sembal- og píanóleikarinn Robyn Koh. Hún er fædd í Malasíu en býr nú og starfar i Englandi. Hún mun einnig leika á píanó í sextett eftír Francis Poulenc. Önnur verk á tónleikunum eru eftir Je- an Francaix og Jacques Ibert Tónleikar þessir era þeir fyrstu af flórum sem Blásarakvintettínn áætlar í vetur. Auk tónleikahalds hér heima hefur kvintettínn ferð- ast mikið og er hann nýkominn úr Ameríkuför og á næstunni era fyrirhugaðar tónleikaferðir, meðal annars til Ítalíu, Frakk- lands og Englands. Blásarakvint- ett Reykjavíkur skipa Bemharð- ur Wilkinson, flauta, Daöi Kol- beínsson, óbó, Einar Jóhannes- son, klarínett, Jósef Ognibene, horn, og Hafsteinn Guðmunds- son, fagott. Þess má geta að kvint- ettinn hefur gert samning við Chandos útgáfufyrirtækið um gerð sex hljómdiska á næstu árum og verður sá fyrsti unninn næsta sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.