Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Síða 26
38
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991.
iTAMA
Litir: hvítt,
svart og rautt.
Kynningarverð á RK 522X
trommusettum.
Staðgreiðsluverð 55.800.
Merming
'í .,.,’Á'p'!
Góðir
greiðsluskilmálar
m HLJOÐFÆRAVERSLUN
Æ PALMARS ARNA HF
ARMULA 38 105 REYKJAVIK SIMI 32845
# HanDEn
RENNIBEKKIRNIR KOMNIR AFTUR -1METRI
FRÁBÆRT VERÐ
TIL AFGREIÐSLU AF LAGER STRAX
is
BROT
Kaplahrauni 5, 220 Hafnarfjörður,
s. 653090, Fax 650120
SÖLUAÐILI: STRAUMÁS SF.
FURUVÖLLUM 1, AKUREYRI
Samtök um byggingu tónlistarhúss:
Sinfóníuhljómsveitin
gefur eina tónleika
Á aöalfundi Samtaka um byggingu
tónlistarhúss, sem haldinn var 21.
nóvember í fyrra, tilkynnti Oddur
Björnsson, formaöur Starfsmannafé-
lags Sinfóníuhljómsveitar íslands, aö
hljóðfæraleikarar vildu gefa eina
tónleika til styrktar byggingu tón-
leikahúss.
Laugardagurinn 26. október verður
haldinn hinn heföbundni tónlistar-
dagur og veröa tónleikar haldnir
daginn eftir í Háskólabíói og hefur
Petri Sakari, aðalhljómsveitarstjóri
Sinfóníuhljómsveitar íslands, til-
kynnt aö hann muni stjórna þessum
tónleikum án endurgjalds.
Einleikari á tónleikunum verður
17 ára kínversk-kanadísk stúlka,
Connie Shih, en hún hefur nú þegar
hlotiö mikið lof og vakið gífurlega
athygli fyrir píanóleik sinn þótt ung
sé. Hún frétti um fjársöfnun til bygg-
ingar tónlistahúss á íslandi og lét í
ljós ósk sína um að leggja henni lið.
Á tónleikunum veröa leikin þrjú
verk eftir tónskáld sem eiga merkis-
afmæli eöa ártíð á þessu ár: Mozart,
Dvorák og Prokofieff, píanókonsert
nr. 23 K 488 eftir Mozart, 3 slavensk-
Connie Shi pianóleikari frétti af fjár-
söfnuninni og bauöst til að leggja
henni liö.
ir dansar eftir Dvorák og Rómeó og
Júlía, svíta nr. 2 eftir ProkofieíT.
Connie Shih, sem hingað kemur
gagngert til aö leika á þessum tón-
leikum, fæddist í Kanada 1974. Hún
hóf píanónám mjög ung og kom fyrst
fram opinberlega aðeins sex ára
gömul. Hún kom fyrst fram sem ein-
leikari með hljómsveit 1983 og lék
þá píanókonsert nr. 1 eftir Mend-
elsohn með Sinfóníuhljómsveitinni í
Seattle. Hún hefur unnið til margra
verölauna og viðurkenninga. Und-
anfarið ár hefur hún verið nemandi
hins heimsþekkta ungverska píanó-
leikara og kennara György Sebök,
en hann kom til íslands síðastliðiö
vor og hélt hér tónleika og námskeiö.
Connie Shih hefur þegar komiö fram
víða í Bandaríkjunum bæði á ein-
leikstónleikum og meö nokkrum
helstu þarlendum hljómsveitum og
alls staðar vakið athygli ekki einung-
is fyrir frábæra tækni, einnig fyrir
þroskaðar tónlistargáfur.
Fyrir ári var gert átak í að fjölga
styrktarfélögum Samtaka um bygg-
ingu tónlistarhúss og bættust um
4000 manns í hópinn. Þeim sem hafa
styrkt byggingu tónlistarhúss á síð-
astliðnu ári er gefinn kostur á miðum
á tónleikana á hálfvirði gegn fram-
vísun kvittunar. Þess má svo að lok-
um geta að Vladimar Ashkenazy hef-
ur boðist til halda styrktartónleika
hér heima.
-HK
Glæsileg farandsýning opnuð í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í skugga válegra tíðinda:
Rekstrargrundvelli
kippt undan safninu
- segir Birgitta Spur. Á fjárlögum er aðeins gert ráð fyrir 2 milljónum til safnsins
Forseti Islands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir, mun opna í dag í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar farandsýning-
una Danmörk-ísland 1991. Hér er um
að ræða yfirlitssýningu á verkum
Sigurjóns sem heíúr verið sett upp í
þremur söfnum í Danmörku í sum-
ar, Kastrupgárdssamlingen á Ama-
ger og borgarlistasöfnunnm í Vejle
og Silkeborg, en hiö síðastnefnda er
kennt við málarann Asger Jorn.
Sýning þessi er opnuð í kjölfar
þeirra válegu tíðinda að aðeins er
gert ráð fyrir að Listasafnið fái 2
milljónir króna á fjárlögum, en í
fyrra var safninu úthlutaö 5,2 millj-
ónum króna.
„Þessi litla úthlutun ef af verður
hefur i fór með sér að við verðum
að loka safninu. Úthlutunin nægir
ekki fyrir byggingarskuldum og upp-
hitun á húsinu," segir Birgitta Spur,
framkvæmdastjóri Listasafnsins.
„Það tók okkur þrjú ár aö byggja upp
safniö og fengum við þá styrki frá
ríki og borg og eins einstaklingum
og fyrirtækjum. Þá öfluðum viö
tekna með því að selja afsteypur af
listaverkum Sigurjóns. Við opnuðum
safnið 1988 og það verður hver og
einn að dæma um það hvort safnið
eigi tilverurétt eða ekki en mikið
hefur verið lagt í aö byggja það upp
sem menningarstað. Ég vil taka það
fram að Listasafnið er sjálfseignar-
stofnun og þar með getur enginn átt
það og það nýtist því eingöngu í al-
mennings þágu.“
Hin glæsilega farandsýning, sem
opnuð verður, hefur fengið mjög lof-
samlega dóma og hafa danskir fjöl-
miðlar meðal annars rifiað upp um-
ræður frá þeim tíma er Sigurjón var
meöal róttækustu framúrstefnu-
manna í norrænni myndlist. Meðal
annars sem sýningargestum gefst í
fyrsta sinn tækifæri til að sjá á sýn-
ingunni í Laugarnesi er frummyndin
að verkinu Börn aö leik sem gerö er
í gifs 1938. Mynd þessa hefur safniö
nýlega eignast. Fyrir þessa mynd
hlaut Sigurjón fyrstu verðlaun í hug-
myndasamkeppni um listskreytingu
fyrir Hús barnanna í Tívolí. Þetta
hús var aldrei reist, en tveimur ára-
tugum síðar vann listamaðurinn
veggmyndir í Landsbanka íslands út
frá sömu hugmynd.
-HK
wbu- 06 mzTisMpm
Gcrð: RF 181/80 - Verð kr. 41.900.- stgr. !!
ISKALT HAUSTTILBOÐ #<333
ATLAS
íf ÍSSKÁPAR Rúmmál lítrar Haeð cm Verð V staðgreitt
MR 284 með innbyggðu frystihólfi 280/27 145 36.900
MR 243 með innbyggðu frystihólfi 240/27 122 31.900
VR 156 með innbyggðu frystihólfi 150/15 85 26.900
KÆLISKÁPAR
RR 29 ( án frystihólfs 280 143 34.900
RR 247 án frystihólfs 240 120 29.900
RR 154 án frystihólfs 150 85 24.900
KÆLI- / FRYSTISKÁPAR
RF 365 tviskiþtur, frystir að ofan 300/60 160 44.900
MRF 289 tviskiptur, frystir að ofan 280/45 145 39.900
RF 181180 tviskiþtur, frystir að neðan 280/80 144 41.900
FRYSTISKÁPAR ■H-fTJ’i
VF-223 fimm hillur 220 145 39.900
VF 123 fjórar hillur 120 85 29.900
Nýkomin
sending af Atlas
kælitækjum á
einstöku verði!
RÖNNING
SUNDABORG 15
T9I -685868
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar er glæsileg bygging sem hýsir verk lisfa-
mannsins, auk þess sem þar fer fram fjölbreytt menningarstarfsemi.