Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Side 27
MÁNUDAGUR 21. OKTÖBER 1991. 39 • Menning Bryan Adams - Waking Up the Neighbours: Þægilegur rokkari en óspennandi Kanadíski rokkarinn Bryan Adams hefur átt mikilli velgengni að fagna að undanfómu og er ástæðan flutningur hans á laginu (Everything I Do) I Do It For You, sem setið hefur á toppi flestra vmsældalista. Adams hefur fylgt þessum vinsældum eftir með útgáfu á nýjum diski sem hann kallar Waking Up the Neighbours. Þar er að finna fimmtán lög sem öll eru skrifuð af honum og þar á meðal hið vinsæla fyrrnefnda lag sem hann samdi fyrir kvikmyndina Hrói höttur, prins þjófanna sem sýnd er um þess- ar mundir í Regnboganum. Tónlist Adams á Waking Up the Neighbo- urs er blanda af rólegum lögum og léttrokk- uðum og era þægilegheitin í fyrirrúmi, engin áreitni eða þungmeltar melódíur, en því miö- ur ekki ýkja merkilegar heldur. Sjálfsagt eiga nokkur lög eftir aö verða vin- sæl enda sum eins og samin fyrir vinsælda- lista. öallin er bara sá að Bryan Adams er frekar einhæfur lagahöfundur. Hann hittir stundum á laglegan lagstúf sem hann nýtir til hins ýtrasta en til að fylla út rúmlega sjö- tíu mínútur þarf meiri tilþrif og hefði að ósekju mátt fækka um nokkur lög á diskn- um, lög sem í fljótu bragði eru nánast eftirlík- ingar af öðrum. Þegar komið var að síðustu lögunum fannst mér eins og um enduróm af fyrstu lögunum væri að ræða og fór til baka til að sannfæra mig um að ekki væri um sömu lög að ræða í örlítið breyttum út- setningum. Hljómplötur Hilmar Karlsson Ballöðurnar á Waking Up the Neighbours eru besti hlutinn, lög eins og Thought I’d Died and Gone to Heaven, Do I Have top Say the Words og svo að sjálfsögðu (Everything I Do) I Do It For You eru faflegar melódíur og mjög vel fluttar af Adams. í harðari lögun- um leynir sér ekki að það er tíl kraftur rokk- arans í Bryan Adams, en einhvers staðar á leiðinni brást honum bogaiistin og kannski sjálfsgagnrýnin í leiðinni og því verður Wak- ing Up the Neighbours ein langdregin og óspennandi heild. Bryan Adams, kanadískur rokkari sem hefur átt upp á pallborð vinsældalistanna aö undanförnu. ' < í beinni útsendingu á Stöö (É) annan hvern þriðjudag. SPENNANW! 29.0KT., I2.NOV., 26.NOV., I0.DES., 7.JAN., 21JAN., 4.FEB., 18.FEB., 3.MARS .... -efþúáttmiða!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.