Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Side 37
kWVWWWWWWW MÁNUÐAGUR 21. OKTÓBER 1991. Fréttir Siglf irðingar vilja halda svæðisnúmeri ÞórhaBur Ásmundsson, DV, Noröurl. vestra: Siglufjöröur og Fljótin veröa áfram inn á svæöi 96 þó breyting veröi á símaleið til Siglufjarðar von bráöar. Ljósleiðari hefur verið lagður frá Siglufirði út á Sauðanes, þaðan fer sambandið með örbylgju til Fells í Sléttuhlíð og þaðan í Sauðárkróks- stöðina. Að sögn Ársæls Magnússonar, umdæmisstjóra Pósts og síma, var leitað eftir umsögn Siglfirðinga hvort þeir vildu flytjast yfir á 95 svæðið. Bæjarstjórn Siglufjarðar óskaði eftir að vera áfram á 96 svæöinu, enda hefðu bæjarbúar mun meifrvlðskipti við Akureyri en Sauðárkrók í gegn- um útibú KEA á Siglufirði. Ársæll sagði líklegt að farið verði að óskum Siglfiröinga þó Fljótamenn hefðu sennilega kosið að hafa það á hinn veginn vegna viðskipta við Sauðárkrók. Siglufjöröur og Fljótin éru á gjaldsvæöi tvö, þannig að þeir þurfa að greiða minna fyrir símtöl á 95 svæðið en aðrir notendur utan þess svæðis. Sauðkrækingar hafa óskað eftir því að skattstofan verði sett á grænt númer. Þess má geta aö gamla símaleiðin til Siglufjarðar var um Grímsey til Húsavíkur. Smáauglýsingar - Sími 27022 ■ Ymislegt Armstrong rall 2. nóvember '91. Skráning hefst í kvöld kl. 20 á lægra keppnisgjaldi til kl. 23. Skráningu lýkur 28.10. kl. 22. Rásröð birt 28.10. kl. 22.30. BÍKR, Bíldshöfða 14, sími 91-674630. Tökum aö okkur trefjaplastvinnu: Trefjaplasthús og skúffa á Willys, hús á Toyota extra cab, double cab og pick-up bíla. Toppar á Ford Econo- line. Áuka eldsneytistankar í jeppa. Boddí-hlutir, brettakantar, skyggni og brettakantar á Isuzu Trooper 2 dyra, ódýrir hitapottar og margt fleira. Reynið viðskiptin - veljið íslenskt. ■ Þjónusta Knauf gifspússning. Gerum föst verð- tilboð í innihúðun með gifsi, auk allr- ar undirbúningsvinnu (hleðslu og ein- angrunar), einnig múrviðgerðir. Hafið samband við auglþj. DV í síma 91-27022. H-1583. Viltu grennast og komast í flott form? Nýtt ilmolíusogæðanudd, sem vinnur á appelsínuhúð, bólgum og þreytu í fótum, auðveldar þér að grennast fljótt og trimmform kemur síðan lín- unum í lag. Tímapantanir í World Class, Skeifunni 19, opið frá kl. 9-21.30, sími 35000, Hanna Kristín. Stjórnarmenn bridgefélaga á ársþingi Bridgesambandsins að störfum. Talið frá vinstri, Ólafur Lárusson, Brynjólf- ur Gestsson, Örn Arnþórsson úr HM bridgelandsliðinu, Sævar Þorbjörnsson og Hjalti Eliasson, fyrrum landsliðs- þjálfari. DV-mynd Hanna Ársþing Bridgesambands íslands: Ganga bridgespilarar í íþróttasambandið? Bridgesamband íslands hélt árs- þing sitt síðastliðinn sunnudag og lagði fram reikninga síðasta spilaárs. Forseti Bridgesambandsins, Helgi Jóhannsson, og allir stjórnarmenn gáfu kost á sér til endurkjörs fyrir næsta spilaár. Þeir voru allir sam- róma kosnir „rússneskri" kosningu' með lófaklappi, enda kom fram mikil ánægja með störf stjórnarinnar á yfirstandandi spilaári. Forseti íþróttasambandsins ís- lands, Ellert B. Schram, mætti á fundinn og færði Bridgesambandinu ávísun að upphæð 39 þúsund krónur frá ÍSÍ. íþróttasambandið hafði heitið á bridgelandsliðið þúsund krónum fyrir hvern impa sem liðið yrði yfir í lok leiksins við Pólverja ef sigur ýnnist í leiknum. Auk þess færði hann BSÍ sérprentaðar forsíður DV aö gjöf, en þær voru undirlagðar fréttum af mótinu síðustu vikuna sem það stóð yfir. Ellert varpaði þeirri spurningu fram á þinginu hvort Bridgesambandiö hefði hug á að ganga í ISÍ. Samþykkt var á þing- inu að gefa stjórn BSÍ umboð til þess að kanna hvort grundvöllur væri fyrir því. í tilefni þess að landslið íslands í bridge varð heimsmeistari á dögun- um, voru spilararnir úr liðinu fengn- ir til þess að mæta á ársþingið og sitja fyrir svörum fundarmanna. Var greinilegt að fundarmenn kunnu því vel og meistararnir voru spurðir spjörunum úr. Ársreikningar BSÍ voru lagðir fram og kom í ljós að velta sambands- ins nær tvöfaldaðist frá árinu á und- an. Mestu munar um þátttöku ís- lands á HM í Japan, en auk þess hefur þjónusta við aðila innan bridgehreyfingarinnar aukist tölu- vert og veltan í samræmi við þaö. -ÍS AUKABLAÐ Tíska Miðvikudaginn 30; október nk. mun aukablað um tískuna fylgja DV. í blaðinu verður m.a. fjallað um fatatísku fyrir konur, karla og krakka, hártískuna, förðun og snyrtivörur o.fl. o.fl. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í blaðinu, hafi samband við auglýsingadeild DV hið fyrsta í síma 27022. Vinsamlegast athugið að skilafrestur auglýsinga er til fimmtudagsins 24. október. ATH.! Hýtt símfaxnúmer okkar á auglýsingadeild er 626684. Auglýsingar Þverholti 11 - Reykjavík sími 91-27022 - fax 91-626684 Gamla kirkjan á Djúpavogi var reisl 1894. DV-mynd Hafdís Gamla kirkjan á Djúpavogi er of lítil Hafdís Erla Bogadóttir, DV, Djúpavogi' Gamla kirkjan á Djúpavogi, sem byggð var 1894, er orðin allt of lítil fyrir það safnaðarstarf sem þar fer nú fram. í sumar var byrjað á að reisa nýja kirkju á staðnum og hefur verið gengið frá grunninum. Þaö var 21. júlí í sumar sem fyrsta skóflustungan var tekin og í fyrsta áfanga var áætlað að klára sökkul- inn. Kirkjan verður 300 m2 að grunn- fleti og 1500 rúmmetrar. Bjöm Krist- leifsson, arkitekt á Egilsstöðum, teiknaði nýju kirkjuna en um fyrsta áfanga verksins sér Hlifar Ágústs- son. MÁNUDAGUR‘21. ökTÓBER 1991'. 49j Merming Nýlega var hús Karen Blixen opnað almenningi. Það er í Rungstedlund, um hálftíma lestarferð noröur frá miðju Kaupmannahafnar. Húsið er að stofni frá 17. öld, rétt við ströndina og sér yfir Eyrarsund út um skrifstofuglugga Blixen. í noröurálmu hússins er íbúö skáldkonunnar eins og þegar hún bjó þar, falleg göm- ul húsgögn, afrískir munir á veggjum og svo þessi undarlegu hvítu gluggatjöld sem liggja hálfan metra inn á gólfið. í suðurálmunni er kaffistofa opin út að fallegum garði, bóksala, og á efri hæð er bókasafn Blixen, þ. á m. helstu útgáfur af bókum hennar með upplýsinum um tilurð þeirra og sögu, auk þess skyggnumyndasýn- ing með skýringum á segulbandi. Það er gaman að koma í þetta hús, en ekkert er það þó hjá ánægjunni af að lesa bækur Blixen. Hún fór í rauninni seint af staö sem rithöfundur. Birti fáeinar smásögur milli tvitugs og þrítugs, giftist um þrítugt og fluttist þá til Kenýa rétt fyrir fyrri heimsstyrjöld. Eftir skammvinnt hjónaband stýrði hún þar miklum búgarði í áratug en fór á hausinn í kreppunni miklu og varð aö flytjast heim til móður sinnar í fyrrnefnt hús í Rungstedlund. Og þá hófst rithöfundarferill hennar fyrir alvöru, þeg- ar hún var komin undir fimmtugt. Hún skrifaöi á ensku og þótt erfitt reyndist aö fá útgefanda aö fyrstu bókinni, Sjö furðusögum (1934), þá seldist hún mjög vel, og Blixen varð fræg í Bandaríkjunum og Bret- landi undir duinefndi sínu, Isac Dinesen. Reyndar var Dinesen ættarnafn hennar þangað til hún giftist Svían- um Blixen barón. Næst skrifaði hún bókina Jörð í Afríku (1937) sem birtist á íslensku fyrir fáeinum árum. Hún hefur veriö kölluð minningabók og byggist vitaskuld á endurminningum hennar frá Kenýa en er þó umfram alit skáldskapur, eins og sést á saman- burði við bréf hennar frá Afríku en safn þeirra fæst í kilju. Jörð í Afríku er af mörgum talin besta bók Blixen en meira af svo góðu er í Skygger pá græsset (frá 1960), hún er fjórðungur af lengd hinnar. Meginhluti verka Blixen er af öðru tagi. Það eru frá- sagnir, skáldrit sem hvorki geta talist til venjulegra skáldsagna né smásagna. Auk fyrrnefndra furðusagna eru íjögur sagnasöfn frá hennar hendi; Vetrarævintýr (1942), Sidste fortællinger (1957) og Skæbneanekdoter ári síðar. Eftir dauða hennar 1962 birtist svo Eft- erladte fortællinger, fyrst 1975, en fyllri útgáfa á aldar- afmæli hennar, 1985. Þetta eru samanlagt um fimm tugir sagna, um 100 bls. þær lengstu, en margar mun styttri. Aö sjálfsögðu eru þær misgóðar, en margar heillandi. Almennt einkenni þeirra er fjarlægð frá samtímaaðstæðum höfundar, stundum í rúmi, en eink- um í tíma, margar sagnanna gerast í Danmörku fyrir 100-200 árum. Þetta þótti nú ekki góð latína þegar sög- umar birtust, ríkjandi viðhorf var að bókmenntir ættu að fjalla um samfélagsvandamál og afhjúpa þær frumhvatir fólks sem réðu gerðum þess í raun undir siöfáguðu yfirborði. En eins og margir módemistar á millistríðsáranum var Blixen andsnúin því að rök- hyggja réði ferðinni í bókmenntum. Fjarlægðin frá samtímanum þótti henni gagnleg til að draga fram goðsöguleg öfl sem mótuðu fólk. Persónur hennar era oft rólegir einæðingar ef svo mætti segja, stefna að því æðsta sem þær geta náð, hver með sínum hætti. Því verður tilvera þeirra þrungin merkingu. Þetta minnir á trúarlegt viðhorf eða örlagahyggju, en er þó hvor- ugt, því guö er hvergi skynjanlegur, persónan verður á éigin spýtur aö finna lífi sínu þann tilgang sem blund- ar í henni sjálfri. Allt er þetta sagt í myndríkum stíl og meitluöum, fjölbreyttum í gamni og alvöru. Ekki er aö undra aö bækur Blixen eru sívinsælar, stöðugt verið að endurútgefa þær, ófáanlegar fáeinum árum síðar. Og nú á dögunum var að birtast bók eftir hana sem stingur mjög í stúf viö önnur verk hennar. Það er hefðbundin skáldsaga, þrefalt lengri en lengstu frásög- ur hennar. Þar segir frá ungri og fallegri stúlku á ensku sveitasetri. Hún er illa stödd, setið um hana af verstu fólum með fals og fagurgala. Blixen hefur stúlk- urnar reyndar tvær, og lætur söguna fyrst gerast á ensku sveitasetri, síöan frönsku. Ekki skortir á reyf- arakennd atvik, ótrúlegar tilviljanir, rómantískar ást- Bókmenntir Örn Ólafsson ir og spennu. Þaö fylgir hefðinni, að þetta er nokkuð langdregið, töluvert af óþörfum lýsingum og atvikum. Sagan er auk þess svo sundurlaus, að fyrirmyndin virðist vera framhaldssaga. En þetta er vel skrifað, þokkalegur reyfari. Blixen gaf þessa sögu, Gengældelsens veje, út undir dulnefni, Pierre Andrézel, árið 1944 og neitaði lengi vel að vera höfundur hennar. Hún sagðist síðar hafa skrifað hana sér til afþreyingar í einangrun og óvissu hemámsáranna. Önnur skýring er að hún hafi hrein- lega þurft að vinna fyrir sér með auðveldum hætti þyí hemámið tók fyrir mestan hluta af tekjum hennar, sem kom frá enskumælandi löndum. Einnig þessi bók seldist vel og varö fjórða bók Blixeri í Bókaklúbbi mánaðarins í Bandaríkjunum. En þetta tiltæki kom Blixen illilega í koll áratug síð- ar. Þá gaf ungur kunningi hennar út skáldsögu sem í öllu var í stíl Blixens. Höfundarnafn var augljóslega dulnefni, Alexis Hareng (=síld), og forlagið lét spyrj- ast að þar væri Blixen enn á ferð. Og nú þýddi ekkert fyrir hana að afneita bókinni, fólk sagðist vita hve mikið væri að marka slíkar yfirlýsingar. Bókin flaug víða um lönd og birtist m.a. á íslensku þegar árið eft- ir, Rauðu regnhlífamar, þó undir réttu nafni höfund- ar, Kelvin Lindémann. Blixen var æf, og þó reiðust gagnrýnendum og lesendum að sjá ekki mumnn á sannri Blixen og eftirlíkingu. En hún haíði eiginlega sjálf útmáð þann mun með fyrmefndri skáldsögu sinni. Vegir hefndarinnar lágu loks tveimur árum síð- ar til Rómar, þar sem Blixen naut þeirrar ánægju að fleygja handriti þessarar hötuðu sögu Lindemann í Tíber svo sem Judith Thorman rekur í ævisögu henn- ar. Fáanlegar bækur Blixen eru nú helst Vetrarævin- týr og Sjö furðusögur auk Afríkubókanna. Kmn fkclúm Fellagörðum - Breiðholti III (í dansskóla Heiðars) Ný námskeið að hefjast I Almenn námskeið KARON-skólinn kennir ykkur: Rétta líkamsstöðu, rétt göngulag, fallegan andlits- og handsnyrtingu, hárgreiðslu, fata- og litaval, mataræði, hina ýmsu borðsiði og alla almenna framkomu o.fl. Innritun og upplýsingar daglega frá kl. 16-19 í síma 38126 Hanna Frímannsdóttir Lögmanns- & fasteignastofa REYKJA VÍKUR Skipholti 50C, sími 678844 Fasteign er okkar fag Einbýli - raðhús Grafarvogur. 146 fm neðri hæð í tví- býli ásamt bílskúr. Afhendist tilbúið undir tréverk. Útsýni. Ca 20 km frá Rvík, einbýlishús, ca 200 fm, ásamt 150 fm skemmu. í nágrenni Reykjavíkur er laust mjög gott, fullbúið raðhús með séríbúð í kjall- ara. Arinn, parket, garðhús, gróinn garður. Mjög góð lán áhvílandi. Einbýli í miðbæ. Töluvert endurnýjað einbýlishús á rólegum stað. 4 svefnher- bergi og setustofa í risi. Parhús í Grafarvogi. Húsin eru á 2 hæðum með innb. bílskúr, alls ca 180 m2. Afbendast fokheld með járni á þaki. Til afh. strax. Verð 7,3 millj. 2-5 herb. Sérhæð vesturbæ. 3 herb. gérhæó úsamt kjaljara í nýtcfr>i t.vfbýlis- húsL Suðurgata, Hafnarfirði. 4 herb. + bíl- skúr. íbúðin er stórglæsileg, í íjórbýli, aíhent fullbúin að utan, tilbúin undir tréverk að innan. Ath.! Til afhendingar strax. í hjarta borgarinnar Ibúðir fyrir 55 ára og eldri! 2ja og 3ja herbergja stórglæsilegar fullbúnar íbúðir. Stutt í alla þjónustu. Hagstæð kjör og greiðsluform við allra hæfi. All- ar upplýsingar og öll þjónusta við vænt- anlega kaupendur. Grafarvogur. Stórglæsileg 5-7 herb. íbúð á tveimur hæðum, fullbúin sam- eign. Ibúð tilbúin undir tréverk. Til afb. strax. Hafnarfjörður. 2, 3 og 4 herb. íbúðir, tilbúnar undir tréverk. Til afb. strax. Alfheimar. Stórgta'sileg 3ia herb. íbúð. Ibúðin er óll parketlögð og með nýjum innréttíngum. íbúðin er íaus til afhendingar strax. Stangarholt. Ca 80 fm, 3 herb. íbúð í nýlegu húsi á 1. hæð. Sér garður. íbúðin er öll parketlögð. Laus fljótlega. Piparsveinaibuð í miðbæ Glæst- ieg, 50 fm íbúð í steinhúsi.Allt nýit, iaus fljótiega. Góð kiör. Nýtt á sölu. Gamli bærinn, Hafnarfirði. 50 fm jarðhæð, frábær kjör. Verð 3,5. Þverholt. Ca 75 fm íbúð ásamt bíl- skýli. íb. afhendist tilb. undir tré- verk. Til afhendingar strax. Miðbær, Nýleg. œjög sérstæð og skemmtileg íbúð i nýlegu húsi. Áhv. i a 4.6 Álftamýri. Stórgóð 3 herb. íbúð á 2. hæð. Ibúðin er öll endurnýjuð. Frábær staður. Mjög góð lán. Austurströnd - vesturbær. Mjög góð ca 85 fm íbúð ásamt bílgeymslu. Veðd. 2,3. Engihjalli. 80 fm stórglæsileg 3 herb. íbúð. Öll endurnýjuð. Háaleiti. Ca 110 fm endaíbúð í blokk. Gott útsýni. Suðursvalir. Vestast í vesturbæ. Stórgóð 110 fm íbúð á 2 hæðum. Gott útsýni, bílskýli. Eignaskipti koma til greina. Miðbær. Glæsileg ca 110 fm 5 herb. íbúð. Allt nýtt. Parket á gólfum, tvennar svalir, frábært útsýni. Klassaeign. Nýtt á sölu. Kóþavogur. 3-4 herb. risíbúð í tvíbýli. Smekkleg eign. Verð 5,6. Kaplaskjólsvegur. .2 herb., ca 60 fm. Mjög góð eign. Mikil sarr.eign, gufubað og fl. Annað Hesthús. 15 hesta stórgott hús í Víði- dal. Söluturn með góðri veltu. Vel staðsett- ur. Blóma- og gjafavöruverslun. Vel stað- sett í austurbæ. í Skeifunni. Verslunar- og skrifstofu-' húsnæði. Hver hæð ca. 415 m2. Vel stað- sett hús. Nánari upplýsingar á skrifst. 7 hektara land liggur að sjó. Nánari uppl. á skrifstofunni. Verslunarhúsnæði við Laugaveg. Ólafur Örn, Friðgerður Friðriksdóttir og Sigurberg Guðjónsson hdl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.