Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Page 40
52
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991.
Merming_________
íslensk
píanótónlist
Örn Magnússon píanóleikari hélt einleikstónleika-í
Geröubergi í gær og lék eingöngi íslenska píanótónl-
ist. yoru verk leikin eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
Pál ísólfsson, Jón Leifs, Misti Þorkelsdóttur, Hilmar
Þórðarson, Hróömar I. Sigurbjömsson, Þorkel Sigur-
bjömsson og Hjálmar H. Ragnarsson.
Örn Magnússon píanóleikari með honum á myndinni
er Óðinn Gunnar Óðinsson sem leikur á þverflautu.
Örn mun á næstunni fara í tónleikaferöalag til Jap-
ans og flytur þá sömu efnisskrá og var á þessum tón-
leikum. Leikur Amar á tónleikunum bar þess merki
aö hann hefur undirbúið sig mjög vel. Hann hefur af
alúð krufiö verkin til mergjar og undirbyggir túlkun
sína af skynsamlegu viti. Flutningurinn var að sama
skapi blæbrigðaríkur og mjög vel af hendi leystur.
Verkin voru vel valin til aö gefa yfirsýn yfir íslenska
píanótónlist. Mátti þar heyra hin margvíslegustu stíl-
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
tegundir allt frá rómantík aldamótamannanna til til-
raunastefnu samtímans. Efnisskráin var löng og gefst
ekki kostur hér að minnast á einstök verk. Þau voru
yfirleitt vel valin og ágætlega fallin til að vera sýnis-
horn af því sem best gerist á þessu sviði tónlistar á
íslandi. Skipta mátti tónskáldunum í 3-4 kynslóðir
eftir stíl og var svólítið athyglisvert að bera saman
afurðir kynslóðanna þótt ekki veröi að sinni kveðið
upp úr um hver kom best út.
Þettar framtak Arnar er mjög virðingarvert og er
honum óskað velgengni í tónleikaferðinni. Þess má
geta að væntanlegur er geisladiskur með píanóleik
hans og mun koma út á næstu dögum.
Andlát
Brynjólfur Hallgrímsson lést að
heimili sínu, Sunnubraut 37, Kópa-
vogi, föstudaginn 18. október.
Hjálmar Vilhjólmsson frá Hánefs-
stöðum, fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri, andaðist í Landspítalanum
laugardaginn 19. október.
Sigurveig Guttormsdóttir lést á
Reykjalundi 18. október.
Tyrfingur Einarsson frá Vestri-
Tungu, andaðist á Droplaugarstöð-
um 19. október.
Sigriður Sæmundsdóttir, Hjallabraut
13, Hafnarfirði, lést i Landspítalan-
um laugardaginn 19. október.
Björgvin Magnússon, Vesturvangi
38, Hafnarflrði, andaðist í Landspít-
alanum fóstudaginn 19. október.
Jardarfarir
Margrét Pálsdóttir, Hrafnistu, Hafn-
arfirði, áður Stigahlíð 24, Reykjavik,
verður jarðsungin frá Fossvogskap-
ellu þriðjudaginn 22. október kl.
13.30.
Útför Ásu Þorsteinsdóttur Kristens-
en, Lækjargötu 10, fer fram frá Dóm-
kirkjunni þriðjudaginn 22. október
kl. 10.30.
Rósa Svanfríður Oddsdóttir, Ljós-
heirnum 18a, verður jarðsungin frá
Fossvogskapellu þriðjudaginn 22.
október kl. 10.30.
Kolbrún Ámundadóttir verður jarð-
sungin frá Seljakirkju í dag, 21. októ-
ber, kl. 13.30.
Guðfinna Jónsdóttir frá Syðrigróf, til
heimilis á Háaleitisbraut 93, veröur
jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 22. október kl. 15.
Laufey Einarsdóttir frá Bjargi,
Grindavík, Hólmgarði 42, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju
í dag, 21. október, kl. 13.30.
Jón Ingvarsson bifreiðastjóri, Kapla-
skjólsvegi 27, Reykjavík, verður
jarösunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 23. októ-
ber kl. 13.30.
Andrew Þorvaldson, Hátúni 47,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju i dag, 21. október, kl.
15.
Fundir
Kvenféiag Kópavogs
Fundur fimmtudaginn 24. október kl.
20.30 í Félagsheimilinu. Kynning á
hreyfdist.
ITCdeildin Yr
heldur kynningarfund í kvöld. mánu-
dagskvöld, kl. 20.30 í Síðumúla 17. Allir
velkomnir. Nánari upplýsingar i símum
71507 Elsa og 34159 Kristín.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um ónæmis-
fræði beinfiska
Dr. Lars Pilström frá háskólanum í Upp-
sölum, Biomedical Center, Department
of Immunology, heldur fyrirlestur um
ónæmisfræði beinfiska á vegum líffræði-
skorar raunvisindadeildar Ilí i Odda,
stofu 101, þriöjudaginn 22. okt. kl. 17.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og
nefnist „Immunoglobuhn genes and their
expression in teleost fish with some evol-
utionary perspectives". Gestafyrirlestrar
við líffræðiskor eru hluti af námsefni
allra nemenda á 3. og 4. ári. Öllum er
heimiU aðgangur.
Tónleikar
Kórahátíð MS félagsins
Kórahátíð til styrktar húsbyggingarsjóði
MS félags .íslands verður haldin í Há-
skólabíói laugardaginn 2. nóvember kl.
15. Á þessum tónleikum koma fram eftir-
taldir kórar: Skólakór Kársness, Kór
Öldutúnsskóla, Dómkórinn, Kór Lang-
holtskirkju, Karlakórinn Fóstbræður og
Karlakór Reykjavíkur. Kynnir á tónleik-
unum verður Baldvin Halldórsson leik-
ari. Miðar verða seldir á eftirtöldum stöð-
um: Háskóiabíói, Hljóðfæraverslun Poul
Bemburg hf., Rauðarárstig 16, og Tóna-
stöðinni, Óðinsgötu 7. MS félag íslands
er félagsskapur sjúklinga, sem haldnir
eru MS (Multiple Sclerosis). Félagið rek-
ur sjúkradagvistun að Álandi 13. Þar em
aðeins aðstæður fyrir 25 manns, en rúm-
lega 200 manns em haldnir þessum sjúk-
dómi á íslandi. Félaginu hefur verið út-
hlutað lóð viö Sléttuhlíð, þar sem þaö
áformar að koma sér upp nýju húsnæði.
Allir þeir, sem koma fram á Kórhátíöinni
gefa húsbyggingarsjóði MS félagsins
vinnu sína og einnig lánar Háskólabíó
salinn endurgjaldslaust.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Bridge
og frjáls spilamennska. Silfurlinan svar-
ar alla virka daga kl. 16-18 í síma 616262.
Félagsvist
Spiluð verður félagsvist í Þinghól,
Hamraborg 11, í kvöld, 21. október kl.
20.30. Allir velkomnir.
Stórhátíð hestamanna 1991
Fyrsta vetrardag, laugardaginn 26. okt.
nk., gengst Hestamannafélagið Gustur í
Kópavogi fyrir lokahófi 42. þings Lands-
sambands hestamanna sem haldið er í
Kópavogi. Jafnframt veröur þetta árshá-
tíð félagsins. Samkoman fer fram í
íþróttahúsinu „Digranesi" í Kópavogi.
Aðgöngumiðar em seldir í versl. Ástund
og Hestamanninum, félagsheimili Gusts
í Glaðheimum, og á skrifstofu Fáks, einn-
ig geta þingfulltrúar keypt aögöngumiða
á þingstað.
r##m\
wm
Blaðafulltrúar ITC
ITC samtökin, þjálfun í mannlegum sam-
skiptum, hafa þá sérstöðu að á öllum
sviðum samtakanna er kosin ný stjóm
og skipað aftur í nefndir fyrir hvert
starfsár. Þetta er gert til að sem flestir
félagar njóti þjálfunar í stjómunarstörf-
um og séu virkir. Blaöafulltrúar ITC fyr-
ir þetta starfsár em: Guðrún Lilja
Norðdahl, s. 91-46751, Gunnjóna Guð-
mundsdóttir, s. 91-667169, Kristjana M.
Thorsteinsson, s. 91-41530, Gunnhildur
Arnardóttir, s. 91-36444. Símsvari ITC er
91-642105. Blaðafulltrúar veita upplýs-
ingar um starfsemi ITC og námskeiða-
hald á vegum samtakanna.
Skáldakynningar hjá
Félagi eldri borgara
Tvo undanfama vetur hafa á vegum Fé-
lags eldri borgara veriö haldiö uppi
skáldakynningu, og hefur verið fjallað
um 24 íslensk skáld og rithöfunda. Flutt
hafa verið erindi um skáldin og lesið úr
verkum þeirra. Aðsókn hefur verið mjög
góð. Þessari starfsemi verður framhaldið
í vetur og fer hún fram í Risinu, Hverfis-
götu 105, á þriðjudögum kl. 15-17. Öllum
öldmðum er heimill aögangur meðan
húsrúm leyfir. Skáldakynningin hefst
þriðjudaginn 22. október. Þá mun Gils
Guðmundsson fialla um Hannes Hafstein
og leikararnir Amar Jónsson og Jón
Júliusson lesa úr verkum skáldsins.
Vinabæjarsamn-
ingur undirritaður
í tilefni af heimsókn William Norrie,
borgarstjóra í Winnipeg, til Reykjavíkur
undirrituðu hann og borgarstjórinn í
Reykjavík endurstaðfestingu á vinabæj-
arsamningi borganna. Athöfnin fór fram
12. október sl. í Höfða. Upphaflega undir-
rituðu Geir Hallgrímsson, þáverandi
borgarstjóri í Reykjavík, og Stephen Ju-
ha, borgarstjóri í Winnipeg, vinabæjar-
samninginn sem hefur nú verið í gildi í
tuttugu ár. Samningurinn hefur miðað
að því að efla samskipti borganna á sviði
mennta-, menningar-, iðnaðar- og efna-
hagsmála auk þess að stuðla að gagn-
Myndgáta DV
WV ww
kvæmum skilningi og vináttu íbúanna. vilja sinn og ásetning um að framfylgja
Með undirrituninni nú árétta borgar- hér eftir sem hingað til þeim markmiðum
stjórarnir í Winnipeg og Reykjavík, fyrir sem um er getið í áðurnefndum vinabæj-
hönd íbúa beggja borganna einlægan arsamningi.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
DÚFNAVEISLAN
eftir Halldór Laxness.
Tryggvadóttir, Saga Jónsdóttir, Sig-
urður Karlsson, Steindór Hjörleifs-
son. Þórey Sigþórsdóttir, Þröstur
Leó Gunnarsson o.fl.
Frumsýning limmtud. 24. okt.
2. sýning föstud. 25. okt. Grá kort
gilda.
3. sýning sunnud. 27. okt. Rauð kort
gilda.
13. sýning laugard. 26. okt.
14. sýning föstud. 1. nóv.
Litla svið:
ÞÉTTING
eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson
Föstud. 25. okt.
Laugard. 26. okt.
Sunnud. 27. okt.
LJÓN í SÍÐBUXUM
ettir Björn Th. Björnsson.
Leikmynd og búningar: Hlín Gunn-
arsdóttir.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Tónlist: Þorkell Sigurbjörnsson.
Leikstjori: Ásdís Skúladóttir.
Lelkarar: Árni Pétur Guðjónsson,
Gunnar Helgason, Guðmundur Ól-
afsson, Guðrún Ásmundsdóttir,
Helga Þ. Stephensen, Helgi Björns-
son, Jakob Þór Einarsson, Jón Sig-
urbjörnsson, Magnús Jónsson,
Margrét Helga Jóhannsdóttir,
Margrét Ólafsdóttir, Ragnheiður
Allar sýnlngar hefjast kl. 20.
Leikhúsgestir, athugið!
Ekki er hægt að hleypa inn eftir aö
sýning erhafin.
Kortagestir, ath. að panta þart sér-
staklega á sýningar á litla sviðlð.
Miðasala opin alla daga frá kl. 14-20
nema mánudagafrá kl. 13-17. Miða-
pantanir i sima alla virka daga frá
kl. 10-12.
Simi 680680.
ínan
(919100110:
Leikhúskortin, skemmtileg nýjung,
aðeins kr. 1000.
Gjalakortin okkar,
vinsæl tækifærisgjöf.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur.
Borgarlelkhús.