Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Síða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Síða 43
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991. 55 Sviðsljós liz Taylor: Brúður í átt- unda sinn Nú voru fyrstu brúðarmyndirnar að berast af brúðkaupi þeirra Elísa- betar Taylor og Larrys Fortensky, fráskilins byggingaverkamannsins sem heillaði Liz upp úr skónum. Brúðkaupiö var haldið á búgarði Michaels Jackson og á hans kostnað, en þar var saman komið allt fræga fólkið í henni Hollywood. Má þar fyrst nefna Michael Jack- son, sem var svaramaður brúðarinn- ar, Nancy Reagan, Brooke Shields, Evu Gabor, Merv Griffin og íleiri og fleiri. Það vakti athygh að fyrrum Bandaríkjaforsetar Reagan og Ford sáu sér ekki fært að mæta og Ma- donna var ekki boðin. Hvergi var til sparað til þess að gera þetta að eftirminnilegum degi. Jackson lét garðyrkjumenn sína grafa upp öll blómabeðin við búgarð- inn og.planta þar hvitum blómum. Einnig sló hann upp gríðarstóru hvítu tjaldi, alskreyttu silkiborðum, þar sem tekið var á móti gestunum, og lét þekja „altarið" með dýrindis blómaskreytingum. Einnig var hundrað manna gæslulið á staðnum. Bara brúðarkjólinn er talinn hafa kostað í kringum eina og hálfa millj- ón en öll veislan kostaði í kringum 90 milljónir króna. Liz leit út eins og feimin smástelpa er hún gekk upp að altarinu í áttunda sinn, en ekki fór á milli mála að stjarnan var yfir sig ástfangin af Larry sem er tuttugu árum yngri. Brúöhjónin yfirgáfu veisluna um klukkan hálfellefu um kvöldið og gistu á búgaröi Michaels Jackson á brúðkaupsnóttina. Fjölskylda Larrys segir það vera sjaldgæft að sjá hann brosa og þvi hafi það verið augljóst að hann var ánægður á brúðkaupsdaginn. Hvekktar stórstjömur Það getur verið þreytandi þegar ast daglega og fyrir kemur að því er Meðfylgjandi myndir voru teknar ljósmyndarar elta mann á röndum daginn út og daginn inn. Það fær fræga fólkið aö reyna nán nóg boðið og það lætur allt flakka, hvort sem það eru fúkyrði eða hrein- lega grettur. við slík tækifæri og sýna þau augna- blik þegar stjörnurnar fá nóg en eftir því bíða ljósmyndararnir einmitt. Roger Moore. Kirstie Alley úr Cheers. Donald Trump fjármála- braskari. Brooke Shields. Lisa Bonet ur Fyrir- myndarfööur. Mónakó- prinsessa leikur í kvik- mynd Stefanía, hin grannvaxna prinsessa af Mónakó, skrifaði nýlega undir 120 milljóna króna kvikmyndasamning um að leika í myndinni Don’t Tell Sam, eða ekki segja Sam, og verður það frumraun hennar sem leikkonu. Myndin fjallar um kynþokka- fulla söngkonu sem ákveður að fara í kynskiptaaðgerð til þess að breyta sér í mann! Daginn áður en aðgerðin á að fara fram hittir hún hins vegar draumaprinsinn, leikarann Ger- ard Depardieu (sem lék í Græna kortinu), og hættir við allt saman. Marlon Brando í megrun Marlon Brando býðst nú að leika hinn mikia Shah í íran í kvikmyndinni The Fall of the Peacock Dynasty, eða fall Pe- acock-veldisins, en með einu skil- yrði þó. Skilyrðið er að hann missi rúm- lega 30 kíló en þetta fyrrum kyn- tröll hvíta tjaldsins vegur nú hátt í 160 kílógrömm! Brando eru gefnir sex mánuðir til þess að ná takmarkinu og heyrst hefur að hann borði nú ekkert annað en hráan fisk og gufusoöiö grænmeti. Féll fyrir Sophiu Loren Kvikmyndaleikkonan Sophia Loren lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Hún var á gangi ásamt systur sinni á verslunargötu í Róm í síðustu viku þegar þjófur skaust úr felum og hrifsaði til sín veski systurinnar. Á örskotsstundu tókst Sophiu að skjóta út fætinum og fella þjóf- inn. Systurnar kölluðu því næst á hjálp og hjálpsömum vegfar- anda tókst aö halda þrjótnum þar til lögreglan kom á vettvang. Fjölmiðlar Gott framtak Það var úr nógu aö velja í dagskrá sjónvarpsstöövanna þessa helgina, í það minnsta á laugardagsk völdið. Undirrituð hafðí ekki aðgang að Stöð 2, en lét þaö ekkert á sig fá og lá með tæmar upp i loft allt k völdið með augun sem límd við skjáinn, allt frá því að þáttur Helga P. fór í loftið og þar til fyrri bíómynd kvöldsins var lokiö. Þátturinn hans Helga P. var bæði lifandi og skemmtilegur og hafa sj álfsagt flestir haft gaman af því að sjá framan í þessar fyrrum „frægu“ söngkonur á Islandi, svo ekki sé minnst á þá sem upplifðu þessatímameðþeim. Fyrri bíómynd kvöldsihs, Blaða- snápar, var þó ekkert fyrir Sjón- varpið að hreykja sér yfir. Þama var á ferðinni þriðja flokks mynd sem erfitt er að ímynda sér aö eigi sér hliðstæðu í raunveruleikanum. Myndin gekk út á svik og pretti og sýndi þær hliðar „blaðamennsk- unnar “ sem h vorki ég né aörir geta ímyndað sér að geti viðgengist, í þaö minnsta ekki hér á landi. „Blaöamenn" fóru þar svo ræki- lega yfir strikið aö þaö er með ólik- indum. Sem dæmi má nefha hreinan þjófnaöá sönnunargögnum og svæsna s viðsetningu til þess að nappa þingmann sem átti að hafa gaman af afbrigðilegu kynlífi. En hvað um það, er undirrituö komst í myndlykil á sunnudags- k völdið og horfði á myndina Konu- morð við Brewesterstræti lifnaöi heldur betur yfir tilverunni. Þetta var fyrri hlutinn af tveimur og héð- an af verður ekki hjá því komist að horfaáþannseinni. Fyrri hlutinn segirá átakanlegan hátt frá því hvernig ungri svartri móður tekst að búa bami sínu fall- egt heimili þrátt fyrir lítil efni, og loks því hvernig hún svo missir aleiguna vegna afglapa bamsins er það kemst á fullorðinsaldur. Þátturinn var bæði vandaður og vel leikinn, en undirrituð þekkir aðalleikkonuna, Oprah Winfrey, betur af viðtalsþáttum hennar í bandaríska sjónvarpinu en sem leikkonu og þvi komu hæfileikar hennar skemmtilega á óvart. Ég vil þakka Stöð tvö fyrir að sýna þessa þætti, og þá ekki hvað síst fyrir að tey gja ekki lopann fram á næsta sunnudag. Þetta var gott framtak. Ingibjörg Óðinsdóttir BINGO! Hcfst kl. 19.30 í kvöld Aðalvinningur að verðmæti 100 bús. kr. Hcildarvcrðmæti vinninga um 300 bús. kr. TEMPLARAHÖLUN Eiríksgötu 5 — S. 20010 freetfumz MARGFELDI 145 PÖNTUNARSÍMI ■ 653900 Veður Vestlæg eða suðvestlaeg átt viðast hvar á landinu, yfirleitt gola eða kaldi en stinningskaldi öðru hverju norðvestan til á landinu. Bjart veður um landið aust* anvert og viða norðanlands en skýjað á Suðvestur og Vesturlandi og sums staðar súldarvottur. Fremur hlýtt verður áfram og varla næturfrost nema á stöku stað á Norðaustur- og Austurlandi. Akureyri iéttskýjað 4 Egilsstaðir léttskýjað 2 Keflavikurflugvöllur alskýjað 5 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað 0 Raufarhöfn heiðskirt 0 Reykjavik alskýjað 5 Vestmannaeyjar alskýjað 5 Bergen rigning 4 Helsinki alskýjað 0 Kaupmannahöfn skýjað 0 Osló hálfskýjað -2 Stokkhólmur skýjað -3 Þórshöfn heiðskírt 5 Amsterdam hálfskýjað 3 Barcelona léttskýjað 8 Berlin léttskýjað 1 Chicago skýjað 2 Feneyjar léttskýjað 5 Frankfurt skýjað 5 Glasgow rigning 6 Hamborg léttskýjað -4 London þoka 3 LosAngeles alskýjað 19 Lúxemborg skýjað 4 Madrid heiðskírt 2 Malaga léttskýjað 9 Mallorca skýjað 10 Montreal skýjað 0 New York heiðskirt 8 Nuuk rigning 3 Orlando alskýjað 21 Paris skýjaö 6 Róm skýjað 11 Valencia hálfskýjað 7 Vin þokuruðn. 1 Gengið Gengisskráning nr. 200. - 21. okt. 1991 kl.9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 59.740 59.900 59.280 Pund 102.893 103.169 103.900 Kan. dollar 52.996 53.138 52,361 Dönsk kr. 9.1633 9.1878 9.2459 Norsk kr. 9.0289 9.0531 9,1172 Sænsk kr. 9.7107 9.7367 9,7749 Fi. mark 14.4596 14.4984 14.6678 Fra. franki 10.3760 10,4038 10,4675 Belg. franki 1.7184 1.7230 1.7312 Sviss. franki Holl. gyllini Þýskt mark ít. líra Aust.sch. Port.escudo Spá. peseti Jap. yen írskt pund SDR ECU 40.4045 31,3950 35.3742 0.04732 5.0181 0.4113 0,5608 0.45790 94,598 81.4125 72.4138 40,5127 31.4791 35.4690 0.04745 5.0315 0,4124 0.5623 0.45913 94.852 81,6305 72.6078 40.9392 31.6506 35.6732 0.04767 5.0686 0,4121 0,5633 0.44682 95,319 81.0873 72.9766 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Fiskmarkaðimir Fiskmarkaður Hafnarfjarðar 19. október seldust alls 10.951 tonn. Magrt i Verð í krónum tonnum Meöal Lægsta Hæsta Smáýsa 0.054 56,00 56.00 56,00 Karfi 0,023 25,00 25.00 25.00 Smáýsa, ósl. 0,028 56,00 56.00 56,00 Smáufsi 0.041 45,00 45,00 45,00 Steinbitur 0.011 20.00 20.00 20.00 Lýsa 0,112 52.00 52.00 52,00 Lúða 0.014 310.00 310.00 310,00 Steinb. ósl. 0,128 , 29.06 20,00 30,00 Lýsa, ósl 0,143 48.00 48,00 48,00 Langa. ósl. 0,076 27.00 27.00 27,00 Keila, ósl. 0,058 10.00 10,00 10,00 Ýsa, ósl. 4,448 76,44 50.00 85,00 Ufsi, ósl. 0,243 45.00 45,00 45,00 Þorskur, ósl. 3.348 60,61 50.00 80,00 Ýsa 1.211 89.30 82,00 92,00 Ufsi 0,064 46,00 46.00 46,00 Þorskur. st. 0.284 87,00 87.00 87.00 Þorskur 0,375 89,77 80,00 95,00 Þorskur. st. 0.285 86,00 86,00 86.00 Fiskmarkaðurinn i Þorlákshöfn 19. október seldust alls 19.125 tonn Háfur 0,012 4.00 4.00 4.00 Karfi 0.208 38,00 38.00 38.00 Keila 6.604 36,84 20,00 39,00 Langa 3,264 77.93 77,00 80,00 Lúða 0,032 294,29 290,00 300,00 Lýsa 0,046 15,00 15.00 15.00 Skata- 0.135 120.04 120,00 121.00 Skarkoli 0,033 67,00 67,00 67.00 Skötuselur 0,052 238,00 180,00 470.00 Steinbitur 0,249 50,75 50.00 51,00 Tindabikkja 0.064 4.00 4.00 4.00 Þorskur, sl. 1,433 96,00 96,00 96,00 Þorskur, smár 0,080 61,00 61,00 61.00 Þorskur, ósl. 2.985 91,44 83,00 94,00 Ufsi 0,047 43.00 43,00 43,00 Ufsi, ósl. 0,018 20,00 20,00 20.00 Undirmál. 0,080 48,03 37.00 61.00 Ýsa, sl. 0,411 100,00 100.00 100.00 Ýsa, ósl. 3,371 77,94 75,00 88,00 ■M FIMMTI GÍR í PÉTTBÝLI! RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.