Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1991, Page 44
FR ÉTTASKOT IÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjóm - Auglýsingar - Askrift - Dreif ing: Simi 27022
Frjálst,óháö dagblað
MÁNUDAGUR 21. OKTÓBER 1991.
Verkfallið:
Vatn flutt
upp á Skaga
- fór um borð í Hofsjökul
„Þaö var flutt frá Reykjavík vatn
frá Vífilfelli. Þaö fór um borð í Hofs-
jökul. Þetta er þaö eina sem mér er
kunnugt um að komið hafi aö sunn-
an,“ sagöi Davíð Guðlaugsson, yfir-
hafnarvörður á Akranesi.
Tvö skip höfðu viðkomu í Akranes-
höfn um helgina. Það voru strand-
feröaskipið Askja, sem landaði gám-
um þar á laugardagsmorgun, og
Hofsjökull sem kom til Akraness á
laugardagskvöld. Hann lestaði ísfisk
en hélt síðan áfram ferð sinni.
Þessi skip hefðu stöðvast vegna
verkfalls undirmanna á farskipum
hefðu þau komið til hafnar í Reykja-
vík. Verkfallið nær hins vegar ekki
til nágrannahafnanna.
Davíð sagði ekki útlit fyrir að
skipafélögin myndu notfæra sér
Akraneshöfn meðan á verkfallinu
stæði. Engar óvenjulegar skipakom-
ur væru boðaðar á næstu dögum.
„Við munum ekkert hafast að að
svo stöddu þótt þetta vatn hafi verið
flutt frá Reykjavík upp á Akranes til
þess að koma því á skip. Við gátum
alltaf búist við svona löguðu úr því
að ekki var boðað verkfall um allt
land,“ sagði Jónas Garðarsson hjá
Sjómannafélagi Reykjavíkur. „En
það verður hert á svona hlutum á
seinni stigum verkfallsins. “ -JSS
Stranda við*
ræður á deilum
Alpana?
Jón G. Haukssan, DV, Lúxemborg:
„Evrópubandalagið á erfitt með
að samþykkja sjónarmiö EFTA-
ríkjanna í viðræðunum um evr-
ópskt efnahagssvæði," sagði Frank
Andreasen, varaforseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópubanda-
lagsins, við DV seint í gærkvöld.
Þá hafði hann átt kvöldverðarfurd
með þeim Horst Krenzler, aöai-
samningamanni EB, Jóni Baldvin
Hannibalssyni utanríkisráðherra
og Pertti Salolainen, utanrikisráð-
herra Finna.
Andreasen bætti við: „Eg er engu
að síður bjartsýnn, einfaldlega
vegna þess að stundum er bjartsýn-
in eina lausnin.“ Þá kvað hann full-
trúa EFTA telja núverandi um-
ræðugrundvöll EB ófullnægjandi.
Jón Baldvin Hannibalsson hafði
ekki mörg orð um fundinn með
fulltrúum EB í gærkvöld. Hann
sagði: „Þetta gekk ekki neitt.“
Klukkan níu í morgun að íslensk-
um tíma hófst fundur um sam-
göngumál í Ölpunum, eitt helsta
þrætueplið í viðræðunum um evr-
ópska eíhahagssvæðið. Mikil
spenna ríkir hér um úrslit þessa
fundar. Það er almenn skoðun að
náist ekki samkomulag á þessum
fundi, sem margir telja vaxandi lík-
ur á, séu viðræður um evrópskt
efnahagssvæði farnar út um þúfur
og að ekkert verði af samhliða
fundum EFTA og EB klukkan þrjú
í dag, margumtöluðum úrslita-
fundi.
„Ef fundurinn um samgöngumál-
in leysist upp er málið búið,“ sagði
Jón Baldvin.
Alþýðuflokkur:
Engin sam-
þykkt um
hvítu bókina
Engin samþykkt var gerð um hvítu
bókina á flokksstjórnarfundi Al-
þýðuflokksins um helgina. Bókin
hefur af ríkisstjórninni verið kynnt
sem stjórnarsáttmáli hennar og sam-
kvæmt lögum Alþýðuflokksins á
flokksstjórn að taka afstöðu til slíks
sáttmála.
Guðmundur Árni Stefánsson, sem
hvað harðast hefur gagnrýnt flokks-
forystuna að undanförnu, meðal
annars vegna hvítu bókarinnar og
fjárlagagerðarinnar, mætti ekki á
fundinn. Nokkur gagnrýni kom þó
fram á fundinum varðandi fyrirhug-
uðútgjöldtillandbúnaðarmála. -kaa
Sex mynd-
bandstækjum
stolið
Brotist var inn í Fjarðarvideo við
Trönuhraun í Hafnarfirði um helg-
ina og þaðan stolið sex afspilunar-
tækjum fyrir myndbönd. Einnig var
brotist inn í verslun og þaðan stolið
slgarettum og um 30 þúsund krónum
ípeningum. -ÓTT
Menn úr björgunarsveitinni Albert fylgdu þeim feðgum til Snarfarahafnarinnar á slöngubátnum
Gróttu. Myndin er tekin þegar komið var að bryggju um níuleytið á laugardagskvöld. DV-mynd S
Smábátur vélarvana við Viðey:
Vöfðu böndum um
árar og kveiktu í
Þrjár björgunarsveitir voru kall-
aðar út um kvöldmatarleytið á laug-
ardag þegar ekkert hafði spurst til
tveggja manna sem höfðu farið á
veiðar á Sundunum við Reykjavík
seinnipartinn á laugardag. Mennirn-
ir fundust á litlum vélarvana plast-
bát vestan við Viðey um áttaleytið.
Voru þeir dregnir til hafnar heilir á
húfi.
„Þegar vélin bilaði settum við akk-
erið út. Reyndar höfðum við litlar
árar en vindur af landi var það mik-
ill að þær komu ekki að neinu gagni.
Okkur hefði bara rekið út á Faxa-
fióa. Við vorum sallarólegir og not-
uðum tímann til að búa okkur til
blys með því að vefja böndum um
árarnar og hella bensíni á. Þegar
flugvél kom fljúgandi í átt til okkar
um áttaleytið kveiktum við í árun-
um. Þeir í flugvélinni hafa ekkert séð
en björgunarsveitir sem voru lagðar
af stað frá landi sáu blysið vel og
komu okkur til hjálpar. Kunnum við
björgunarsveitunum bestu þakkir
fyrir,“ sagði Karl Sighvatsson í sam-
tali viö DV.
Karl og sonur hans, Sigurður, sem
á bátinn, fóru á veiðar um fiögurleyt-
ið á laugardag. Lögðu þeir upp frá
gamalli lendingu, sem köllúð er
gamli Snarfari, rétt vestan við af-
greiðslu Áburðarverksmiðjunnar.
Þeir höfðu með sér sjóstengur. Fóru
þeir fyrst að Lundey en urðu ekki
varir. Þá færðu þeir sig vestur fyrir
Viðey. Þar fengu þeir fisk en stuttu
síðar bilaði vélin, utanborðsvél. Þá
var klukkan um sex og farið að
skyggja. Þar sem ekkert hafði spurst
til þeirra feðga eftir að myrkt var
orðið voru björgunarsveitirnar Ing-
ólfur í Reykjavík, Albert á Seltjarn-
arnesi og Kjölur á Kjalarnesi kallað-
ar út til leitar á bátum sínum.
-hlh
LOKI
Að funda eða funda ekki,
það er spurningin í Lúx!
Veðrið á morgun:
Hlýttum
allt land
Á morgun verður suðvestanátt,
víðast gola eða kaldi. Skýjað
verður vestanlands og víða súld
eða þokuloft en bjart veður um
landið austanvert. Hlýtt verður í
veöri, hiti á bilinu &-
10 stig.
ORUGGIR-ALyORU
PENINGASKAPAR
VARI - ÖRYGGISVÖRUR
^ © 91-29399
Allan sólarhringinn
Öryggisþjónusta
ÍMJRI síöan 1 9Ó9