Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992. Fréttir Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið vill færa út kvíamar á niðurskurðartímum: Áhugi á milljarðs- húsi Sambandsins Samkvæmt heimildum DV hafa hugsanleg kaup heilbrigöis- og trygg- ingaráðuneytis á Sambandshúsinu á Kirkjusandi veriö rædd á bak við tjöldin að undanfómu, en engin ákvörðun verið tekin. Fljótlega eftir að Samband ís- lenskra samvinnufélaga ákvað að selja húsið, sem talið er hafa kostað um einn milljarð, höfðu menn frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytinu samband við forráðamenn SÍS og ræddu málið. Forráðamenn SÍS ákváðu að sá fasteignasali sem tók að sér sölu á húsinu skyldi annast máhð að öllu leyti. Eftir þaö kom svo nefnd á veg- um ráðuneytisins að skoða húsið betur til að athuga hvort það hentaði sem ráðuneytishús. í nefndinni voru Jón Sæmundur Sigiujónsson, deild- arstjóri í ráðuneytinu, Eggert Þor- steinsson, forstjóri Tryggingastofn- unar og Guðmundur Rúnar Guö- mundsson frá eignadeild íjármála- ráðuneytisins. v Jón Sæmundur Sigurjónsson sagði í samtali við DV að Tryggingastofn- un ríkisins þyrfti nauðsynlega á auknu húsnæði að ræða. Menn hefðu komist að þeirri niðurstöðu að hent- ugast væri fyrir Tryggingastofnun að heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt- ið flytti úr húsi stofnunarinnar og hún fengi það húsnæði til umráða. „Þegar við vorum að fjalia um hús- næðisskort Tryggingastofnunar kom upp hugmyndin með Sambandshús- ið. Við nefndarmenn skoöuðum það en ég hef ekkert heyrt af málinu síð- an í nóvember,“ sagöi Jón Sæmund- ur. Guðmundur Rúnar Guðmunds- son sagði að ekkert frekar hefði gerst T málinu. Húsið hefði verið skoðað til að sjá hvort það hentaöi undir starfsemi á vegum ríkisins. Hann fullyrti að ekkert hefði verið rætt við eigendur. DV hefur aftur á móti heimildir fyrir því að á bak við tjöldin hafi málið verið rætt en engin ákvörðun verið tekin. Samkvæmt sömu heim- ildum stendur það í mönnum að kaupa nýtt húsnæði fyrir ráðuneyti sem er aö skera niöur sem nemur milljörðum í heilbrigðis- og trygg- ingamálum. Menn telja að erfltt verði að réttlæta þau kaup. -S.dór Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Ólöf Árnadóttir, Vilborg Elíasdóttir og Jóhanna Birgisdóttir meö ungu Sauökrækingana sem allir komu í heiminn á síðasta ári. DV-mynd Þórhallur Sauðárkrókur: Metár í fjölburafæðingum Þórhallur Asrmmdason, DV, Sauðárkróki: Fjölburafæðingar hafa veriö frem- ur fátíðar hjá Sauðkrækingum um árin. Sést það best á því að í upphafi síðasta árs höfðu ekki fæðst tvíburar í bænum síðan 1988. En um þetta leyti fyrir ári byijaði einmitt töm tvíburafæðinga á Króknum. Þá fæddust þrennir tvíburar á 12 dögirni og í september komu síðan fjórðu _ tvíburarnir á árinu í heiminn. Ekki er vitað um að fjölburafæð- ingar hafa verið jafnmargar í Skaga- firði áður - að minnsta kosti ekki síðustu áratugina. Fyrsta tvíburaafmælið var haldið hátíðlegt á dögunmn. Eins árs af- mæli þeirra Hjartar og Sigþórs en þeir voru einmitt fyrstu glasaböm Sauðkrækinga. Foreldrar þeirra em Ingibjörg Sigtryggsdóttir og Gunnar Steingrímsson. Þeim Ingibjörgu og Gunnari fannst tilhlýðilegt að bjóða hinum þremur tvíburunum í afmæhð og það var heilmikið um að vera hjá ungu af- mælisgestunum í Dalatúni 3 mánu- daginn 20. janúar. Næst þeim Hirti og Sigþóri í aldurs- röðinni koma Halla Míöll og Edda Borg, fæddar 29. janúar, dætur Ólaf- ar Amadóttur og Stefáns Jónssonar. Þá Stefanía Ósk og Pála Rún, fæddar 1. febrúar, dætur Jóhönnu Birgis- dóttur og Páls Stefánssonar. Og loks 29. september fæddust þeim Omari Jenssyni og Vilborgu Elíasdóttur dætm- sem hlutu nöfnin Elísa og Pálína. Þroskahjálp og Öryrkjabandalagiö: Vilja aðild að dómsmáli tn að tryggja hagsmuni íbúa sambýhs einhverfra Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið hafa óskaö með- algöngu, eða aðildar, í dómsmáli sem hjón á Seltjamamesi hafa höfðað gegn félagsmálaráðherra. Um er að ræða deilu vegna staðsetningar sam- býlis fyrir einhverfa á Selfjamar- nesi. Vilja hjónin sambýlið burt. Þau telja sig verða fyrir ónæði af því og að starfsemin bijóti í bága við skipu- lag bæjarins. í janúar dæmdi Hæstiréttur móður einhverfs drengs í sambýlinu rétt til meðalgöngu en áöm hafði því verið hafnað í bæjarþingi. Meðalganga fel- m í sér að viðkomandi aðili gerist þátttakandi í málinu sem sjálfstæöm aöili enda hafi viðkomandi hags- muna að gæta varðandi dómsniöm- stöðu. Ásta Þorsteinsdóttir, formaðm Þroskahjálpar, segir ástæðuna tví- þætta fyrir því að landssamtökin óski eftir aðild aö málinu. Annars vegar sé tilgangurinn sá að standa vörð um hagsmuni ungrar stúlku sem búsett er í sambýlinu, enda hafi hún ekkert tryggt heimili verði sam- býlið lagt niðm. Hins vegar snúist þetta mál um þau grundvaUarmann- réttindi fólks að fá að búa í íbúðar- hverfum, burtséð frá fótlun. Að sögn Ásgerðar Ingimarsdóttm, framkvæmdastjóra Öryrkjabanda- lagsins, ákvað stjóm bandalagsins að óska eftir meðalgöngu í málinu til að tryggja réttarstöðu skjólstæðinga sinna: „Við viljum sýna samstööu með okkar fólki í sambýlinu og veita því stuðning með þátttöku í málinu," segir hún. -kaa Framtalseyðublöðin: Pósturínn kostar 500 þúsund á Vesturlandi Það kostar Skattstofu Vestm- lands um hálfa milljóna króna í póstburðargjöld að senda frarn- talseyðublöðin til viðtakenda í pósti, að sögn Stefáns Skjaldar- sonar, skattstjóra umdæmisins. Eins og s'kýrt var frá i DV í gær skorti Skattstofu Vesturlandsum dæmis peninga til að senda öll framtalseyðublöðin í umdæminu út á réttum tíma. „Það er vissu- lega rétt að útsending framtal- seyðublaða hefur dregist aðeins en ekki umtalsvert,“ sagði Stefán. Hann sagði að þarna hefði myndast sraábil sem nú væri búið að brúa, og vonandi yrðu framteljendur búnir að fá fram- talseyðublöð í hendur á mánu- dag. „Þótt þessi dráltur hafi orðiö á útsendingu eyöublaðanna gefur það ekki sjálfkrafa rétt hjá framt- eijendum til að skila skattskýrsl- um sinum eftir 10. febrúar. Hins vegar ef fólk sækir um skilafrest vegna þessa þá verður súósktek- in til greina," sagöi Stefán. Hann sagði að skattstofurnar hefðu veriö skomar niður á fjár- lögum, eins og flestar stofnanir ríkisíns. Það væri þó ekki ástæð- an fyrir því að ekki voru til pen- ingar til að senda framtalseyðu- blöðin út, heldur hefði smágat myndast sem nú væri búið að stoppaí. -S.dór Eigandi myndbandaleigunnar Myndvals í Keflavík hefur viðm- kennt hjá lögreglu að hafa dreift 5 ólöglegum kvikmyndatitlum til viðskiptavina sinna. Um var aö ræða myndir sem rétthafar voru ekki búnir að fjölfalda sjálfir. Myndimar voru ýmist I gangi í kvikmyndahúsum eða höfðu ekki verið sýndar þar ennþá. Eigand- inn viðmkenndi að hafa keypt efnið hjá öðrum aöila sem sá um að fjölfaldfa hið ólöglega efni yíir á spólur. Rétthafar kvikmyndanna kærðu myndbandaleiguna til lög- reglunnar. Leigunni var lokaö í kjölfar raálsins. Eigandinn reyndist ekki hafa viðeigandi verslunarleyfi til starfrækslu á myndbandaleigunni. Því hefur nú veriö kippt í lag og hefur Myndval opnað á ný. Málið er upplýst. Þaö verður sent til rikis- saksóknaraembættisins. Þar verður meðal annars metið hvort efni standa til að gefa út ákæm fyrirdómstólameðferð. -ÓTT Innflutningur meiri en út- flutningur Vöraskiptajöfnuðurinn f des- ember var óhagstæður um 250 milljónir króna. Alls voru fluttar út vörur fyrir tæpa 6,8 miltjarða en inn voru fluttar vömr fyrir röska 7 milljarða. Til samanburö- ar má geta þess að í desember 1990 var viðskiptajöfnuðminn viö útlönd í jámum. Á síðasta ári vora alls fluttar út vörur fyrir tæpa 91,6 milljarða en innfýrir rífiega 92,2 milljaröa. Vöruskiptpjöíhuöurinn á árinu var þvf óhagstæðm um 700 miltj- ónir en á árinu 1990 var hann hagstæðm um 4,5 milljarða. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.